Lífið

Bjöggi Takefusa bætir í stelpuhópinn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Björgólfur og Sólveig eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Björgólfur og Sólveig eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Björgólfur eina dóttur.

„Höldum stelpupartýinu gangandi 2024,“ skrifar parið í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.Þar má sjá parið ásamt dóttur Björgólfs sprengja svokallaða confetti-sprengju, við það kemur út bleikt skraut til marks um að von sé á stelpu. Björgólfur og Sólveig hafa verið par í á þriðja ár. 

Björgólfur á að baki 327 keppnisleiki í meistaraflokki hér á landi og skoraði í þeim 150 mörk. Hann raðaði fyrst inn mörkum með uppeldisfélaginu Þrótti áður en hann spilaði með Fylki, KR, Víking, Val, Fram áður en KV og SR sannfærðu hann um að spila nokkra leiki með félaginu í neðri deildum og bikarkeppni. Hann spilaði þrjá A-landsleiki fyrir Ísland.

Sólveig og Björgólfur

Björgólfur er barnabarn Björgólfs nafna síns Guðmundssonar, fyrrverandi eiganda Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×