Lífið

Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Elísa og Elís tilkynntu um óléttuna fyrr í dag.
Elísa og Elís tilkynntu um óléttuna fyrr í dag.

Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári. Parið hefur verið trúlofað frá því um jólin 2021. 

Elísa Gróa Steinþórsdóttir og Elís Guðmundsson eiga nú von á sínu fyrsta barni saman. Það tilkynnti parið í dag í afar skemmtilegri tilkynningu á samfélagsmiðlum þar sem þau léku sér að því að bera svipað nafn.

Hamingjuóskunum rignir inn til parsins á samfélagsmiðlum enda mikið gleðiefni.

Elísa og Elís hafa verið saman í nokkur ár og trúlofuð frá því á aðfangadagskvöld árið 2021. 

Elísa hefur unnið sem flugfreyja og var kjörin Miss Universe Iceland árið 2021. Hún keppti í kjölfarið í Miss Universe fyrir hönd Íslands í Ísrael árið 2021. Þegar hún vann var hún að keppa um titilinn í sjöunda sinn.


Tengdar fréttir

Svona var Miss Universe Iceland 2021 valin

Elísa Gróa Steinþórsdóttir var í gær krýnd Miss Universe Iceland 2021. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og á sjónvarpsstöðinni okkar Stöð 2 Vísi.

Elísa Gróa er Miss Universe Iceland 2021

Elísa Gróa Steinþórsdóttir, Miss Capital Region, var rétt í þessu krýnd Miss Universe Iceland 2021. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og á Stöð 2 Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×