Lífið

Matthías og Bryn­hildur eiga von á öðru barni

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Spennandi tímar framundan hjá listaparinu.
Spennandi tímar framundan hjá listaparinu. Instagram/Aðsend

Listaparið Matthías Tryggvi Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir eiga von á sínu öðru barni saman. 

Brynhildur tilkynnti þetta í Instagram færslu í gærkvöldi samhliða tilkynningu um að nýtt lag hljómsveitarinnar Kvikindis, Ríða mér, komi út á miðnætti. Í færslunni deilir hún mynd af skreyttri bumbunni að loknum tónleikum í tilefni útgáfunnar. „Swipe for surprise,“ skrifar hún við myndina.   

Matthías og Brynhildur giftu sig í lok ágúst í sannkallaðri sveitasælu í Borgarfirði. Faðir Brynhildar, leikarinn Karl Ágúst Úlfarsson, gaf þau saman með táknrænum en ólögformlegum hætti. Parið eignaðist dóttur í fyrra, hana Sóleyju. 

Árið hefur svo sannarlega verið viðburðaríkt hjá bæði Brynhildi og Matthíasi en til að mynda var Matthías ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins fyrr í vetur. Þá hlaut Kvikindi, hljómsveit Brynhildar, verðlaun fyrir plötu ársins á Hlustendaverðlaununum í vor.

Parið trúlofaði sig þarsíðasta haust eftir að Matthías fór á skeljarnar í Sky Lagoon. En við það tilefni sagðist Brynhildur aldrei hafa verið hamingjusamari eða ástfangnari.


Tengdar fréttir

Syngja um sam­farir á eld­hús­borðinu

Lista- og poppteymið Kvikindi var að senda frá sér glænýtt lag sem ber þann ögrandi titil Ríða mér. Kvikindi hreppti nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins og kemur fram á tónlistarhátíðinni Airwaves í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×