Lífið

Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni.
Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni. Vísir/Getty

Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Thomasi Bojanowski. 

Frá þessu greinir Ólafía á Instagram. Þar deilir hún mynd af sér og skrifar „Bráðum verðum við fjögur“.

Ólafía og Thomas eignuðust son í júní 2021, en nú er ljóst að fjölga mun í fjölskyldunni. 

Ólafía, sem er einn fremsti kylfingur sem Íslendingar hafa átt, tilkynnti sumarið 2022 að hún væri hætt í atvinnumennsku í golfi og að hún ætlaði sér að takast á við ný ævintýri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×