Framhaldsskólar
1 2 3 4 5 6 … 23 ›
Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það. Innlent 22.5.2026 08:32
Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Töluverður munur er á þeim fjölda úr hverjum grunnskóla sem útskrifast úr framhaldsskóla. Það sýnir ný skýrsla mennta- og barnamálaráðherra. Í skýrslunni kemur fram að flestir útskrifaðir framhaldsskólanemendur skólaárið 2023-2024 komu úr stórum safnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 22.5.2026 06:33
Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur í embætti skólameistara Borgarholtsskóla til fimm ára frá 1. júlí næstkomandi. Umsækjendur um starfið voru tveir. Innlent 21.5.2026 13:27
Árni skólameistari heldur embættinu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur sinnt embættinu undanfarin tíu ár en hann heyrði af því í útvarpinu nýverið að til stæði að auglýsa embættið Innlent 21.5.2026 10:52
Skipuð rektor MH fyrst kvenna Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor. Innlent 21.5.2026 10:47
Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Einn dró umsókn sína til baka. Innlent 21.5.2026 10:00
Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn. Innlent 21.5.2026 06:47
Sjö vilja embætti skólameistara FB Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins. Innlent 11.5.2026 10:03
Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla gagnrýnir „niðurrifsumræðu“ um skólamál. Hún segir þurfa betri samræmd námsviðmið, betri námsgögn og að foreldrar taki ábyrgð á námi barna sinna. Allt of margir foreldrar sinni ekki námi barna sinna og taki þau jafnvel úr skóla í lengri tíma. Innlent 11.5.2026 09:58
Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Ársæll Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri í Borgarholtsskóla, fær ekki að leiða forsætis- og menntamálaráðherra til vitnis í baráttu sinni við ríkið. Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Innlent 7.5.2026 12:39
Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra segir meiri líkur en minni á að hugmyndir forvera hennar um svæðisskrifstofur framhaldsskóla verði slegnar út af borðinu. Þess í stað eigi að virkja enn frekar tengsl milli menntamálaráðuneytisins og framhaldsskólanna. Hún segist vona að kerfisbreytingar muni liggja fyrir í haust, meðal annars tilhögun á skipunum skólameistara. Innlent 30.4.2026 10:32
Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Inga Sæland situr fyrir svörum um áform um skipulagsbreytingu á framhaldsskólastiginu á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 30.4.2026 08:46
Skrefin við lok grunnskóla Það eru stór tímamót að ljúka grunnskóla. Nemendur standa frammi fyrir nýjum tækifærum, auknu sjálfstæði og í mörgum tilfellum ýmsum valmöguleikum varðandi námsbrautir og skóla. Skoðun 24.4.2026 09:04
Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Viltu að barnið þitt eigi möguleika á að komast í framhaldsskóla eftir að það lýkur grunnskóla? Hvort skiptir meira máli að það sé pláss fyrir öll börn í skólunum okkar eða að einkunnir séu gefnar í tölustöfum? Skoðun 22.4.2026 15:02
Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu „Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann. Innlent 16.4.2026 18:18
„Áfall fyrir starfsfólk“ Starfsmenn Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæma vinnubrögð og framkomu barna- og menntamálaráðuneytisins en skólameistari skólans sagði af sér í dag í kjölfar fundar með starfsmönnum ráðuneytisins. Innlent 16.4.2026 14:16
Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sagt af sér embætti þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Ástæðan er óánægja með húsnæðismál skólans og að menntamálaráðuneytið hafi engar ákvarðanir tekið varðandi úrbætur. Innlent 16.4.2026 13:05
„Já, ég er dálítið reiður“ Formaður Kennarasambandsins lýsir gríðarlegum vonbrigðum með orð ráðherra menntamála á þingi Kennarasambandsins í morgun um breytingar á námsmati í grunnskólum. Hann segir áhyggjuefni að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá. Innlent 15.4.2026 12:06
Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst. Innlent 15.4.2026 11:30
Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Um 250 félagsmenn Kennarasambandsins mæta til þings á Hilton Nordica í dag, miðvikudaginn 15. apríl. Þing KÍ hefur æðsta vald í málefnum KÍ og á þinginu er ákveðið hvert skuli stefna í öllum málaflokkum næstu fjögur árin. Fjölmargar málefnanefndir munu starfa á þinginu og ræða margvíslega þætti sem snerta félagsfólk Kennarasambandsins. Innlent 15.4.2026 09:26
Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn „Guð minn góður, þetta var ótrúlegt,“ segir hinn átján ára gamli Guðjón Þorgils Kristjánsson sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna um helgina. Blaðamaður náði tali af þessari rísandi stjörnu sem er rétt að byrja. Tónlist 13.4.2026 20:01
Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Verzlunarskóli Íslands vann sinn þriðja hljóðnema í kvöld eftir að hafa borið afgerandi sigur úr býtum gegn Menntaskólanum í Reykjavík í æsispennandi úrslitaviðureign Gettu betur, með 36 stigum gegn 25. Þetta er fyrsta úrslitakeppnin þar sem fleiri stúlkur kepptu en strákar. Innlent 10.4.2026 21:54
Ársæll hættur sem skólameistari Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum. Innlent 29.3.2026 13:12
Barnsmóðir og dætur Eyjólfs fluttar til Íslands Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mætti með barnsmóður sinni, Suzanne, og dætrum þeirra tveimur á Skrúfudaginn, árlegan kynningardag nemenda í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans, um helgina. Þær hafa búið í Noregi síðustu ár. Lífið 26.3.2026 12:33
Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Glatt var á hjalla í miðborginni í dag þegar annars árs nemendur í Kvennaskólanum í Reykjavík héldu peysufatadag hátíðlegan. Prúðbúnir mennskælingarnir létu kuldabolann ekki á sig fá og stigu dans og sungu þjóðlög á Lækjartorgi í tilefni dagsins. Lífið 25.3.2026 18:02
Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25.3.2026 14:05
Kennsluafsláttur framhaldsskólakennara – Er það eitthvað sem má skoða? Í íslenskum framhaldsskólum gildir kerfi sem sjaldan er rætt opinberlega en hefur engu að síður veruleg áhrif á skipulag skólastarfs. Þetta er svokallaður lífaldurstengdur kennsluafsláttur framhaldsskólakennara. Skoðun 18.3.2026 11:31
Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Miðvikudaginn 11. mars síðastliðinn áttu nokkrir nemendur úr 4. bekk MR fund með rektor skólans, Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur, og afhentu henni tvo undirskriftalista. Innlent 15.3.2026 08:47
Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Það er mikill gauragangur á meðal nemenda Menntaskólans að Laugarvatni þessa dagana en ástæðan er sú að þau eru að frumsýna í kvöld leikritið Gauragang í félagsheimilinu Aratungu í Bláskógabyggð. Lífið 12.3.2026 20:04
Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði beiðni fráfarandi skólastjóra Borgarholtsskóla um að leiða forsætis- og menntamálaráðherra til vitnis í dag. Lögmaður hans segir að úrskurðurinn verði kærður til Landsréttar. Innlent 11.3.2026 14:18