Tækni

Tímamót í viðskiptum með fasteignir
Eftir margra ára undirbúning er fyrsta rafræna þinglýsingin í fasteignaviðskiptum orðin að veruleika. Fyrsta afsalinu var þinglýst rafrænt fyrir helgi og gert er ráð fyrir að rafrænar þinglýsingar á kaupsamningum komi með haustinu. Fasteignasali segir að um mikla búbót sé að ræða og að starfsgreinin sé ekki í hættu.

Vekja athygli TIMES: Komandi kynslóðir geta hlustað á sögur sagðar með röddum ömmu og afa
Fyrir rúmum tveimur og hálfu ári sögðum við frá ævintýralegri vegferð þeirra Péturs Hannesar Ólafssonar og Bjarka Viðars Garðarssonar, stofnenda fyrirtækisins ONANOFF sem þá þegar velti á annan milljarð króna með annan eigandann búsettan í Hong Kong en hinn á Akureyri.

Að greina gervigreind
Mikið hefur verið rætt og ritað um háskólana á síðustu vikum og hefur hugvísindafólk minnt á stöðu þeirra sem sjálfstæðar stofnanir sem hafa það hlutverk að þróa nýja þekkingu í gegnum rannsóknarstarf. Má ætla að hér sé verið að bregðast við nýjum áherslum háskólaráðherra á STEAM greinarnar, þ.e. vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði, og tengingu þeirra við atvinnulífið.

36 ára Íslendingur í geimbransanum: Forstjórastóllinn kom tíu árum á undan áætlun
Fyrir rúmri viku var birtur árlegur listi Berlingske með nöfnum 100 ungra vonarstjarna í dönsku atvinnulífi. Hjalti Páll Þorvarðarson er ekki aðeins á listanum, heldur taldist tilefni til að ræða við Hjalta í heilu opnuviðtali í blaðinu. Einnig birt á netinu.

Starfsmenn Tesla deildu viðkvæmum myndum viðskiptavina
Hópur starfsmanna bílaframleiðandans Tesla segir að myndir og myndskeið, sem bílar viðskiptavina fyrirtækisins hafa tekið, hafi gengið milli starfsmanna í hópspjöllum á netinu. Sum myndskeiðin séu af viðkvæmum toga líkt og eitt sem sýnir viðskiptavin kviknakinn. Þá virðist eitt myndskeiðanna hafa verið tekið af bíl sjálfs Elons Musk, forstjóra Tesla.

Milljarðamæringur stunginn til bana í San Francisco
Bob Lee, stofnandi tækniforritsins Cash App, fannst stunginn til bana í Rincon Hill-hverfinu í San Francisco í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Á öryggismyndavélum má sjá hvernig ökumenn hunsuðu særðan Lee er hann óskaði eftir hjálp.

Panikka alltaf á mismunandi tímum en nú í skýjunum yfir viðtökunum
Það var heldur betur stemning í síðustu viku hjá þeim stöllunum Sigurlaugu Guðrúnu Jóhannsdóttur og Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur, sem kynntu til leiks fyrstu útgáfuna af HEIMA-appinu svo kallaða:

Til hvers eru háskólar?
Nýlega hafa skapast umræður um stöðu íslenskra háskóla, gildi hugvísinda og áhrif gervigreindar á vísindi og fræði. Af þessu tilefni er við hæfi að velta upp grundvallarspurningu um tilgang háskóla: Til hvers erum við á litla Íslandi að halda úti þessum stofnunum, með ærnum tilkostnaði (þótt hann sé að vísu minni hérlendis en víðast hvar annars staðar)? Spurningin er sérstaklega brýn nú á öld internets og gervigreindar þegar hægt virðist vera að nálgast allar mögulegar upplýsingar á hvaða formi sem er.

Þau hlutu Íslensku vefverðlaunin í ár
Íslensku vefverðlaunin voru afhent í Gamla bíói í Reykjavík síðastliðinn föstudag þar sem verðlaun voru veitt í fimmtán flokkum.

Do not underestimate the potential disruption by Artificial Intelligence
Artificial intelligence may seem to be a new element straight out of sci-fi, but it has actually been around for quite some time, it is what makes all of our smart gadgets, from phones to watches, seem “intelligent”. As such it has been analysed in different contexts by scientists and academics like Nick Couldry, Shoshanna Zuboff, Martin Ford, Nick Bostrom and many others.

Gervigreindin, vélþýðingar og sá vandi sem íslenskir nytjaþýðendur standa frammi fyrir
Gervigreind er mjög vinsæl þessi misserin. Það gleymist að hún er ekki raunveruleg greind, heldur forrituð greind og að vélmennið getur einungis vitað það sem er beinlínis búið að forrita inn í það.

Störf munu þurrkast út með tilkomu gervigreindar
Tækninni fleygir fram á ógnarhraða og gervigreind er ekki lengur bara eitthvað sem við lesum um í vísindaskáldsögum heldur er gervigreind nú þegar orðin partur af lífi margra.

Topp 10 fermingargjafir sem hitta í mark
Fermingar eru fram undan og veislur um allt land að því tilefni. Margt getur verið á óskalistanum fyrir stóra daginn en Origo mælir með gjöf sem nýtist fermingarbarninu vel og það getur tekið með sér inn í framtíðina.Við hjá Origo höfum að því tilefni tekið saman okkar tíu bestu hugmyndir að fermingargjöf frá flottustu og bestu vörumerkjunum okkar, gjafir sem munu án efa hitta beint í mark.

65 verkefni tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna
Sextíu og fimm verkefni eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna fyrir árið 2022, en tilnefningarnar voru gerðar opinberar í dag.

Þrívíddarprentuð eldflaug á loft í fyrsta sinn
Starfsmönnum fyrirtækisins Relativity Space tókst loks í nótt að skjóta fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni á loft. Tvær fyrri tilraunir höfðu misheppnast en bilun á efra stigi eldflaugarinnar leiddi til þess að hún komst ekki á braut um jörðu.

Fengu meðal annars styrk upp á 2,1 milljón evra
„Lengi framan af voru starfsmennirnir einn til tveir eða allt þar til árið 2019, þá kom Brunnur fjárfestingasjóður inn með fjármögnun og teymið varð þriggja til fjögurra manna. En frá upphafi höfum við nýtt okkur styrkjarumhverfið, allt frá styrkjum fyrir markaðsmálin yfir í styrk í gegnum einkaleyfisferlið,“ segir Ósvaldur Knudsen framkvæmdastjóri Laki Power.

Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum
„Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum.

Yfirmaður hjá Open AI hreifst af íslensku sendinefndinni og elskar Ísland
Yfirmönnum hjá bandaríska gervigreindarfyrirtækinu Open AI þóttu mikið til vinnu Íslendinga í máltækni koma og þess vegna veðjaði fyrirtækið á íslenskuna.

Hjálpar fólki að missa ekki af strætó
Á vefsíðunni seinn.is geta notendur séð hvar strætisvagn þeirra er staddur og hversu langt er í hann. Fjölmargir nota síðuna á hverjum degi til þess að sjá til þess að missa ekki af vagninum sínum.

Þarf að gera sér ferð til Íslands til að endurnýja rafræn skilríki
Íslendingar sem enda með týnd eða útrunnin rafræn skilríki erlendis geta ekki látið virkja þau á ný nema mæta á skráningarstöð á Íslandi.

Seðlabankastjóri: Lánshæfismat Íslands „lægra en við eigum skilið“
Seðlabankastjóri segist vera þeirrar skoðunar að lánshæfismat íslenska ríkisins sé „lægra en við eigum skilið“ en þar spilar meðal annars í að alþjóðlegu matsfyrirtækin virðast hafa vantrú á ferðaþjónustunni. Ef áætlanir fyrirtækja í hugverkaiðnaði um stórauknar útflutningstekjur á komandi árum ganga eftir þá mun það hins vegar hafa veruleg áhrif fyrir allt íslenska hagkerfið.

Fermingargjafir sem endast
Apple leggur áherslu á að lágmarka öll umhverfisáhrif við framleiðslu og í rekstri og framleiðir áreiðanlegar vörur sem endast vel.

Gervigreindin næsta stóra byltingin og nú talar hún íslensku
Besta og stærsta gervigreind sem opin er almenningi kann nú íslensku. Stofnandi Miðeindar segir gervigreindina næstu stóru byltinguna í okkar samfélagi. Rithöfundur og fyrirlesari segir hina íslenskumælandi gervigreind einungis geta hafa orðið til vegna aukinnar „nándar“ tækninnar og mannsins með notkun snjallsíma og samfélagsmiðla. Á þessari nánd byggi hún sína þekkingu.

Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára
Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum.

Sá strax að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína
Menningar- og viðskiptaráðherra segir það gríðarmikilvægt fyrir framtíð íslenskrar tungu að málið hafi verið valið inn í nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT. Ísland var eitt fyrsta þjóðríkið sem óskaði eftir samstarfi með eigandanum - og hann sá fljótt að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína.

Magnaður áfangi fyrir íslenskuna
Það er sannarlega magnaður áfangi fyrir íslenskuna að tungumálið okkar hafi verið valið í þróunarfasa fyrir nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT-4, fyrst allra tungumála fyrir utan ensku. Samstarfsverkefni með fyrirtækinu OpenAI hefur komið því til leiðar að stærsta gervigreindarnet heims er nú fínþjálfað til þess að skilja og miðla upplýsingum á íslensku.

Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4
Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu.

Anna nýr framkvæmdastjóri Marel í Norður-Ameríku
Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Marels í Norður-Ameríku. Hún er einnig framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá fyrirtækinu og mun gegna báðum störfum samhliða.

Nýsköpun í útrás: Stundum svolítið klaufalegt en tókst á endanum
Við heyrum oft af nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að gera góða hluti. Fáum fréttir af fjármögnun eða styrkjum og markmiðum um útrás. En hvernig ætli síðan útrásin gangi? Og hvernig gengur hún fyrir sig þegar farið er af stað?

Setja á fót tíu milljarða sjóð sem horfir til haftengdra fjárfestinga
Íslandssjóðir hafa klárað fjármögnun á tíu milljarða króna sjóð sem áformar að fjárfesta í haftengdri starfsemi á breiðum grunni en fjárfestingargeta hluthafanna sem standa að baki sjóðnum nemur margfaldri stærð hans. Stærstu fjárfestarnir eru Brim og Útgerðafélag Reykjavíkur, með samanlagt yfir fjórðungshlut, ásamt íslenskum lífeyrissjóðum en að sögn forsvarsmanna sjóðsins er þörf á „miklu fjármagni“ til að virkja þá möguleika sem eru til vaxtar í íslenskum sjávarútvegi.