Nokkur fyrirtæki vinna af þróun slíkrar tækni og henni meðal annars ætlað að hjálpa lömuðu fólki.
Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hafnaði beiðni Neuralink um prófanir á mönnum í fyrra en samþykkti hana svo fyrr á árinu. Leyfið snýr að tilraunabúnaði sem nota á í sex ára rannsókn og hafa forsvarsmenn Neuralink auglýst eftir lömuðu fólki sem er tilbúið til að taka þátt í tilrauninni.
Samkvæmt frétt Guardian hefur ekki verið gert opinbert af hverju starfsmenn Lyfjaeftirlitsins skiptu um skoðun og hvort Neuralink hafi breytt einhverjum ætlunum sínum til að fá samþykkið.
Í auglýsingu Neuralink, sem birt var á vef fyrirtækisins í gær, segir að vélmenni verði notað til að festa smáan búnað við heila þeirra sem taka þátt í tilrauninni. Búnaðurinn verður tengdur þeim hlutum heilans sem vitað er að stýri hreyfingu og á búnaðurinn að greina hugsanir og senda þær frá sér.
Markmiðið er að gera fólki sem hefur orðið fyrir mænuskaða kleift að stýra tölvumús eða lyklaborði með heilanum.
We re excited to announce that recruitment is open for our first-in-human clinical trial!
— Neuralink (@neuralink) September 19, 2023
If you have quadriplegia due to cervical spinal cord injury or amyotrophic lateral sclerosis (ALS), you may qualify. Learn more about our trial by visiting our recent blog post.
Allir aparnir dauðvona fyrir tilraunir
Musk hefur sagt að hann vilji þróa stærri búnað til að tengja við heila fólks og að slíkur búnaður væri nauðsynlegur svo menn gætu haldið í við þróun tölva í framtíðinni. Búnaðurinn sem prófa á í þessari tilraun er ekki svo metnaðarfullur.
Þeir sem taka þátt í tilrauninni munu fyrst taka þátt í átján mánaða rannsókn sem felur í sér níu heimsóknir til sérfræðinga. Síðan munu þeir verja minnst tveimur tímum í viku í tilraunastörf og heimsækja sérfræðinga minnst tuttugu sinnum yfir næstu fimm ár.
Upprunalega báðu forsvarsmenn Neuralink um leyfi til að gera tilraunir á tíu manns. Því mótmælti lyfjaeftirlitið en ekki liggur fyrir hver samþykktur fjöldi tilraunadýra er, samkvæmt frétt Reuters. Enn er talið að minnst áratugur sé þar til leyfi fæst til almennrar sölu svona búnaðar, þó tilraunir gangi vonum framar.
Ætlanir forsvarsmanna Neuralink hafa á tíðum verið umdeildar og sömuleiðis meðferð starfsmanna fyrirtækisins á tilraunadýrum. Elon Musk sagði nýverið að allir apar sem hefðu verið notaðir til tilrauna hjá Neuralink hefðu verið dauðvona áður en tilraunirnar hófust og að enginn þeirra hefði dáið vegna beinna afleiðinga frá tilraununum.