Kvikmyndagerð á Íslandi

Þessi 35% skipta máli fyrir kvikmyndaframleiðslu á Íslandi
Á Alþingi í dag mælti Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar. Breytingin felur í sér að stærri verkefni, sem uppfylla ákveðin skilyrði sem fram koma í lögunum, geti sótt allt að 35% endurgreiðslu framleiðslukostnaðar.

„Að fólk kunni að meta það sem maður leggur hjarta sitt í eru hin sönnu laun“
Kvikmyndin Skjálfti hefur verið seld til fjögurra landa og mun þar að auki taka þátt í kynningarmarkaðinum á Cannes í ár samkvæmt Variety. Myndin er skrifuð og leikstýrt af Tinnu Hrafnsdóttur.

Samþykktu að hækka endurgreiðslurnar upp í 35 prósent
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp þess efnis að hækka endurgreiðslu af framleiðslukostnaði til kvikmyndaframleiðenda upp í 35 prósent fyrir stærri verkefni.

Berdreymi verðlaunuð í Póllandi
FIPRESCI hafa valið Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson sem bestu kvikmyndina í aðal keppni kvikmyndahátíðarinnar OFF CAMERA í Póllandi.

Aldrei of seint að hafa lagið í Berdreymi
Nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni Berdreymi inniheldur lag Þórunnar Antoníu Too Late. Lagið kom út fyrir tíu árum en það hefur rokið upp í spilunum eftir að myndin kom út. Hún tengir lagið við vináttu strákanna í myndinni og skilaboðin um að það sé aldrei of seint fyrir ástina.

Dýrið með þrettán tilnefningar til Eddunnar
Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2022 voru tilkynntar í dag. Kvikmyndin Dýrið er tilnefnd til þrettán verðlauna og er því með flestar tilnefningar.

Silja Rós og Kusk á upphitunargleði RVK Feminist Film Festival
Laugardaginn 30. apríl mun RVK Feminist Film Festival bjóða til upphitunargleði á LOFT Hostel. Þar verður í boði markaður, tónlist, húðflúr og söfnun fyrir nýrri rannsókn.

„Þá fór ég svo djúpt inn í karakterinn að ég hætti bara ekki að gráta“
Birgir Dagur Bjarkason og Viktor Benóný Benedikstsson fara með tvö af aðalhlutverkunum í myndinni Berdreymi sem fumsýnd var um helgina. Myndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og vann meðal annars verðlaun í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.

Daði hlaut BAFTA-verðlaun
Daði Einarsson hlaut í kvöld sjónvarpsverðlaun BAFTA í flokki „Special, Visual & Graphic effects“ fyrir fyrsta þátt af annarri þáttaröð The Witcher.

„Fjölskylduleyndarmál sem enginn vildi tala um“
Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Leikstjóri og handritshöfundur er Tinna Hrafnsdóttir og er óhætt að segja að valið sé vel í hlutverk en myndin skartar Anítu Briem, Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni, Bergi Ebba og fleiri frábærum leikurum.

„Þessir ungu menn og þessar ungu konur sem leika í þessari mynd eru stórkostleg“
Sérstök hátíðarforsýning var á Berdreymi nýrri íslenskri stórmynd í kvöld. Eftirvænting var í loftinu í Háskólabíói þegar myndin var sýnd.

Átta íslenskar myndir á Cannes á síðustu tólf árum
Kvikmyndin volaða land, eftir Hlyn Pálmason, keppir á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí. Um er að ræða 15. íslensku myndina sem keppir á hátíðinni í 75 ára sögu hennar. Sú fyrsta var sýnd á hátíðinni árið 1984. Regluleg þátttaka íslenskra mynda á hátíðinni er sögð kvikmyndaiðnaðinum hér á landi dýrmæt.

Eydís og Einar gefa út myndverk saman við nýtt lag
Tónskáldið og píanóleikarinn Eydís Evensen gaf út plötuna FROST um helgina. Samhliða útgáfunni kom út undurfagurt myndverk, sem Eydís gerði ásamt Einari Egils.

Ridley Scott tryggir sér kvikmyndarétt að nýjustu skáldsögu Ragnars
Framleiðslufyrirtæki leikstjórans og kvikmyndaframleiðandans Ridley Scott hefur tryggt sér réttinn að Úti, nýjustu skáldsögu Ragnars Jónassonar.

Leita að aðalleikkonu fyrir nýja íslenska gamanmynd
MyrkvaMyndi auglýsa eftir leikkonum fyrir aðalhlutverk á nýrri Íslenskri gamanmynd. MyrkvaMyndir framleiddi bráðskemmtilegu bíómyndina Hvernig á að vera Klassa Drusla sem vakti mikla athygli þegar hún kom í bíóhúsin hér á landi.

„Þagnarhjúpur og skömm hefur umlukið sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir“
Þann 20. apríl verður frumsýnd í Bíó Paradís kvikmyndin Út úr myrkrinu eftir Helga Felixson og Titti Johnson. Tónlistin í myndinni er eftir Óskarsverðlaunahafann Hildi Guðnadóttur. Sýnishorn úr myndinni má sjá hér neðar í fréttinni.

Hreiðrið, Brávallagata 12, Chrysalis og Vesturbæjar Beach sigurvegarar Sprettfisks
Um helgina fór fram uppskeruhátíð Sprettfisks, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar, með pomp og pragt. Sigurvegarar voru tilkynntir en þeir hljóta stærstu verðlaun sem veitt hafa verið á kvikmyndahátíð hér á landi til þessa.

„Fyrir mér er móðurhlutverkið það stærsta“
„Mér finnst afskaplega gott að fjalla um þessa hluti sem við forðumst að tala um,“ segir leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir. Hún glímdi við ófrjósemi í fimm ár áður en hún og Sveinn Geirsson eiginmaður hennar eignuðust tvíburadrengi árið 2012.

Mikill hasar á lokaðri Sæbraut
Sæbraut var lokað í dag fyrir hádegi, sem er vel því mikill hasar skapaðist þar í dag við tökur á kvikmyndinni Heart of stone.

Röskun á umferð í Reykjavík vegna Netflix-myndar
Víðtækar vegalokanir eru í Reykjavík um helgina, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, í tengslum við kvikmyndatökur á myndinni Heart of Stone. Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur leika í Netflix-myndinni og verða við störf í miðbæ Reykjavíkur næstu daga.