Óveður 10. og 11. desember 2019

Vegir lokaðir víðast hvar á landinu
Nánast allir vegir á landinu eru lokaðir og er Íslandskortið hjá Vegagerðinni nánast alrautt.

Sáu ekki neitt þegar þær fóru út í hesthús að gefa
Hjördís Jónsdóttir er fædd og uppalin á Leysingjastöðum 2 í Austur-Húnavatnssýslu. Þar er fjölskylda hennar með búskap og fóru hún og systir hennar af stað klukkan fimm síðdegis í dag út í hesthús til að gefa kvöldgjöfina.

Segir það hafa skipt sköpum að fólk hafi farið að tilmælum viðbragðsaðila
"Það sem af er degi hafa björgunarsveitir á landinu öllu sinnt rúmlega tvö hundruð verkefnum og þetta er allt frá því að vera þessi hefðbundnu foktjón, sem er þá fok sérstaklega á klæðningum á húsum, þakplötum og veggklæðningu og svo fok á lausamunum,“ sagði Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu Vísis.

Veðurofsinn á Norðurlandi: „Þetta er það langversta sem ég hef séð hér“
Verkefni björgunarsveitanna voru einkum mörg í Hrútafirði og á Ströndum. Þá hefur veðrið haft mikil samfélagsleg áhrif, skólahald var fellt niður, vegum lokað og ýmiss þjónusta raskaðist. Þakplötur losnuðu af iðnaðarhúsnæði í Ólafsfirði og settu rafmagnstruflanir strik í reikninginn á öllu svæðinu.

Rafmagnstruflanir mesta áhyggjuefni viðbragðsaðila
Mikið hefur verið um útköll og þúsundir manna eru í viðbragðsstöðu vegna aftakaveðurs. Allt flug var fellt niður frá Keflavíkurflugvelli og öllu innanlandsflugi var aflýst eftir hádegi.

Meðalvindhraði 28 metrar á sekúndu á Seltjarnarnesi og Geldinganesi
Veðrið er að ná hámarki sínu á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi vestra.

Ók frá Reykjavík í nótt til að búa sig undir storminn
Agnes Hulda Agnarsdóttir, íbúi á Sauðárkróki, segist hafa undirbúið sig undir óveðrið strax síðustu nótt.

Fréttir Stöðvar 2: Allt um óveðrið sem gengur yfir landið
Fréttir Stöðvar 2 hefjast klukkan 18:30.

Telur alla á Króknum hafa vit á því að halda sig heima
Elvar Freyr Snorrason, sjómaður á Drangey á Sauðárkróki, segist vanur óveðri af störfum sínum úti á sjó.

Alltaf hressandi að fara út og gera eitthvað skemmtilegt
Brynjar Logi Steinunnarson, formaður Skagfirðingarsveitar á Sauðárkróki, segir sveitina klára fyrir verkefni kvöldsins. Veður hefur verið slæmt á Króknum í dag og er von á að það versni eftir því sem líður á kvöldið.

„Nánast engin umferð á götunum“
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að svo virðist sem almenningur hafi hlustað vel á viðvaranir vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið.

Óveðursvakt á Bylgjunni í kvöld
Óveðursvakt verður á Bylgjunni í kvöld í umsjón Þorgeirs Ástvaldssonar með fulltyngi fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Vaktin hefst strax að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2, sem hefjast kl. 18:30.

Björgunarsveitarfólk tilbúið að taka á móti mesta skellinum í veðrinu
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að veðurspáin sé að miklu leyti að ganga eftir. Mesti skellurinn í veðrinu sé því fram undan næstu klukkutímana og er björgunarsveitarfólk um allt land í startholunum.

Bindur bátinn og fjölgar belgjum við Reykjavíkurhöfn
Elmar Örn Sigurðsson sjómaður var við Reykjavíkurhöfn eftir hádegið í dag að gera ráðstafanir vegna óveðursins sem reiknað er með að nái hápunkti á höfuðborgarsvæðinu eftir klukkan sex í kvöld.

„Getur dottið í að verða alveg snarbrjálað hérna seinnipartinn“
„Það þýðir ekkert annað en gera það sem maður þarf að gera og sem minnst meira en það,“ segir Guðlaugur Agnar Ágústsson, bóndi á Steinstúni í Norðurfirði á Ströndum

Hættustig á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra sem eystra
Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að hækka viðbúnaðarstig vegna óveðurs af óvissustigi yfir á hættustig.

Landsmenn hamstra nammi og snakk í óveðrinu
Jóhannes Laxdal Sigurðsson, verslunarstjóri í Bónus á Granda, segir mikið hafa verið að gera í versluninni það sem af er degi.

Rauðum viðvörunum fjölgar
Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að flýta gildistöku rauðrar veðurviðvörunar fyrir Norðurland vestra.

Lokað fyrir umferð um Hellisheiði, Kjalarnes og Mosfellsheiði
Umferð hefur verið lokað um Helliðsheiði, Kjalarnes, Þrengsli og Mosfellsheiði.

Akureyringar lagstir í híði
Segja má að Akureyringar séu lagstir í híði en fjölmargar verslanir lokuðu snemma og stór hluti þjónustu á vegum Akureyrarbæjar liggur niðri vegna veðurs.

Simmi Vill skammar þá sem hafa opið í óveðrinu
Sigmar Vilhjálmsson telur hættu á að gróðavonin reka menn út í ófæru.

Bein útsending: Veðrið um allt land í vefmyndavélum
Aftakaveður mun ganga yfir landið í dag og á morgun. Veðurstofan hefur í fyrsta sinn gefið út rauða viðvörun frá því að litakóðakerfið var tekið upp, en það er á Norðurlandi vestra og Ströndum. Alls staðar annars staðar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun.

Rafmagnslaust víða á Norðurlandi
Rafmagnslaust er víða á Norðurlandi og Norðurlandi eystra vegna veðursins sem gengur yfir landið.

Þakplötur fuku á Ólafsfirði
Eftir bjartan morgunn á Ólafsfirði er farið að hvessa allhressilega með mikilli ofankomu.

Ekki ráðlegt að styðjast við spár Yr.no í íslensku óveðri
Veðurfræðingur hjá Bliku ráðleggur Íslendingum að taka ekki mark á veðurspám norska veðurvefsins yr.no þegar spáð er óveðri á landinu líkt og í dag.

Próf í HÍ falla niður vegna veðurs
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, sendi nemendum skólans í dag.

„Eitthvað sem höfum ekki séð áður“ gangi spárnar eftir
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra segir að veðrið sem spáð er að muni ganga yfir landsfjórðunginn leggist ekki vel í hann.

Verulega farið að hvessa á Vestfjarðamiðum
Landhelgisgæslan hefur birt myndband þar sem sjá má ölduganginn á Vestfjarðamiðum.

Jólunum komið í skjól fyrir veðurofsanum
Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið að því í morgun að tryggja stórar jólaskreytingar í miðbænum áður en mikið hvassviðri skellur á síðdegis í dag.

Beið eftir aðstoð í miðju viðtali: „Ef þeir eru að hlusta þá mega þeir drífa sig“
Björgunarsveitarmenn á Siglufirði eru klárir í slaginn verði þeir kallaðir í útkall vegna veðurofsans sem nú fer yfir landið. Þeir hafa nú þegar farið í eitt útkall, til þess að koma félaga þeirra í björgunarsveitinni til aðstoðar er bíll hans rann út af veginum fyrr í morgun.