Innlent

Fréttamynd

Öryggi tryggt við Kárahnjúka

Grípa þarf til viðbótaraðgerða til að styrkja stíflurnar við Kárahnjúka ef jarðskjálftar og misgengi eiga sér stað. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði alls um 100-150 milljónir króna og er allt þá meðtalið.

Innlent
Fréttamynd

LSH telur engin lög brotin

Umkvörtunarefni lyfjafræðinga heyra sögunni til segir í yfirlýsingu frá forstjóra Landspítala- háskólasjúkrahúss um lyfjaþjónustu LSH. Lyfjafræðingar hafa kvartað yfir að Lyfjaþjónustunni sé stjórnað af viðskiptafræðingi.

Innlent
Fréttamynd

Farþegum fjölgar áfram

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 27 prósent í mars miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 99 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 125 þúsund farþega nú. Þetta kemur fram á heimasíðu flugstöðvarinnar. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 27 prósentum milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um 24 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Heimdallur fagnar stofnun Mjólku

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fagnar stofnun Mjólku, nýs mjólkursamlags, sem stendur utan styrkjakerfis landbúnaðarins. Þá fagnar félagið enn fremur auknu valfrelsi neytenda á mjólkurvörum og segir að hingað til hafi neytendum nánast eingöngu staðið til boða ríkisstyrkt innlend framleiðsla.

Innlent
Fréttamynd

Fimm sóttu um Hofsprestakall

Fimm sóttu um stöðu sóknarprests í Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi en umsóknarfrestur rann út í fyrradag. Þeir eru séra Brynhildur Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir guðfræðingur, Stefán Már Gunnlaugsson guðfræðingur, Stefán Karlsson guðfræðingur og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir guðfræðingur.

Innlent
Fréttamynd

Rúmir 20 milljarðar í arð frá 1989

Landssíminn hefur greitt ríkissjóði rúmlega 20 milljarða króna í arðgreiðslur frá árinu 1989 að því er fram kemur í svari Geirs Haarde fjármálaráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, þingmanns Vinstri - grænna, um greiðslur Landssímans til ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Komið verði á foreldrafræðslu

Nefnd sem forsætisráðherra skipaði fyrir fjórum árum til að vinna að heildstæðri stefnumótun í málefnum barna og unglinga hefur skilað af sér skýrslu sinni. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem talið er að koma megi í framkvæmd á næstu fimm árum, þar á meðal foreldrafræðslu. 

Innlent
Fréttamynd

Fimm sóttu um

Fimm umsækjendur voru um stöðu sóknarprests í Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi.

Innlent
Fréttamynd

Óku saman í Ljósavatnsskarði

Tvennt var flutt á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla í Ljósavatnsskarði til móts við Stóru-Tjarnir í dag. Jeppi og fólksbíll skullu saman með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins og farþegi í jeppabifreiðinni slösuðust. Fólkið var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en ekki er talið að það sé alvarlega slasað.

Innlent
Fréttamynd

Enn frekari stækkun Norðuráls

Með samkomulagi Norðuráls, dótturfyrirtækis Century Aluminum Company, við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, um kaup á 70 megavöttum af viðbótarraforku fyrir álver fyrirtækisins á Grundartanga, verður álverinu gert kleift að auka framleiðsluna í 260 þúsund tonn árlega á síðari hluta ársins 2008. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðuráli í dag.

Innlent
Fréttamynd

Féll þrjá metra í körfu

Vinnuslys varð í fyrirtækinu Gúmmívinnslunni á Akureyri um klukkan tvö í dag þegar maður féll rúmlega þrjá metra niður í svokallaðri mannkörfu. Að sögn lögreglunnar á Akureyri eru meiðsli mannsins enn óljós en hann var fluttur á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Nær 300 börn bíða greiningar

Samtals 266 börn eru á biðlista eftir greiningu og íhlutun hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Þetta kom fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman á Alþingi í gær. Rúmlega 80 þessara barna hefur beðið í meira en sex mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 250 í meðferð vegna kókaíns

Á síðasta ári fóru 217 í sína fyrstu meðferð vegna kókaínfíknar og 258 alls. Flestir sem fóru í fyrsta sinn eru á milli tvítugs og þrítugs eða um 120 manns.

Innlent
Fréttamynd

Um 150 bíða vímuefnameðferðar

Um 150 einstaklingar eru á biðlista meðferðarsjúkrahússins á Vogi. Þórarinn Tyrfingsson segir að hver meðferð taki tíu daga og því sé biðin mánuður.

Innlent
Fréttamynd

Menntaverðlaun veitt að vori

Skólastarf, góðir kennarar og gott kennsluefni fær verðlaun um mánaðamótin maí - júní næstkomandi en þá verða í fyrsta sinn veitt Íslensku menntaverðlaunin.

Innlent
Fréttamynd

Fjórtán mánaða fangelsisdómur

Kona var í gær dæmd til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og þjófnað en brotaferill viðkomandi er langur og útskýrir það lengd dómsins. Dómurinn frestaði þó fullnustu tólf af þeim fjórtán mánuðum sem dómurinn hljóðaði upp á haldi viðkomandi skilorð næstu þrjú ár.

Innlent
Fréttamynd

Gengur vonandi upp hjá Mjólku

Skiptar skoðanir eru um það hvort hægt sé að reka mjólkursamlag utan greiðslumarkskerfis landbúnaðarins eins og stefnt er að með mjólkursamlaginu Mjólku. Samkeppnisstaðan verður skökk vegna beingreiðslna ríkisins en á móti kemur að osturinn nýtur innflutningsverndar. Mjólka mun framleiða ost. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Mælt með takmörkun á eignaraðild

Fjölmiðlanefnd lýkur vinnu sinni eftir síðasta fund sinn í dag þar sem rætt verður um hversu lágt eigi að setja markið um leyfilegan eignarhlut í fjölmiðlum. Þverpólitísk sátt er um að hámarkseignaraðild einstaklings eða fyrirtækis í fjölmiðli með tiltekna markaðshlutdeild verði miðuð við 25 prósent. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Lítið heillegt eftir bruna

Nánast ekkert heillegt var að finna í íbúðinni sem brann við Rósarima í gær. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá eldavélarhellu.

Innlent
Fréttamynd

Konur þriðjungur manna á Vogi

Konur voru tæplega þriðjungur þeirra 17.512 sem höfðu innritast á meðferðarsjúkrahúsið Vog í árslok 2004. Áttatíu prósent allra sem fóru í meðferð fóru þrisvar sinnum eða sjaldnar.

Innlent
Fréttamynd

Sökuð um byggðaeyðingarstefnu

Opinberum störfum við stjórnsýslu fjölgaði um tólf prósent á landsbyggðinni og um tvö prósent á höfuðborgarsvæðinu á fimm ára tímabili. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði ásökunum um að ríkisstjórnin stæði fyrir byggðaeyðingarstefnu.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið hækkar álögur á bensín

"Það nær í raun ekki nokkurri átt að ætla sér að hækka bensíngjaldið á þessum tímapunkti," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðareigenda. Fram kemur í nýrri samgönguáætlun að gjald það sem ríkið leggur á hvern lítra bensíns mun hækka um 6 til 7 prósent þann fyrsta júlí.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitala yfir 4000 stig

Úrvalsvísitalan náði nýju hámarki í dag þegar hún fór í fyrsta sinn yfir fjögur þúsund stig. Það sem af er ári hefur hún hækkað um nærri tuttugu prósent og enn er talið svigrúm til hækkunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sat á barnaskýrslu í tvö ár

Forsætisráðuneytið sat á skýrslu nefndar um málefni barna og ungmenna í tvö ár. Til snarpra orðaskipa kom á Alþingi í dag og var forsætisráðherra sakaður um að ræða málefni fjölskyldunnar og barna bara fyrir kosningar og á tyllidögum. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að ýmislegt bendi til þess að kynferðislegt ofbeldi gegn börnum sé stórum útbreiddara en álitið hefur verið hingað til og að nærri fimmta hvert barn hafi orðið fyrir því.

Innlent
Fréttamynd

Þökkuðu fyrir björgun sjómanna

Samskip færðu Sjóbjörgunarstöð Færeyja rúmlega eina milljón króna að gjöf í hófi sem haldið var í Þórshöfn í Færeyjum til að minnast eins árs starfsafmælis skrifstofu Samskipa þar. Það var Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, sem afhenti Joen Jakob Jakobsen, formanni Sjóbjörgunarstöðvarinnar, gjöfina sem þakklætisvott fyrir þeirra þátt í björgun sjómanna af Jökulfellinu í febrúar síðastliðnum.  

Innlent
Fréttamynd

Tarak náðaður en útlægur

Lögfræðingur hundsins Tarak, Jón Egilsson, ætlar að leita leiða í fullri sátt til að hundurinn fái að vera áfram hjá eigendum sínum í Reykjavík. Hann kvað það þó skipta mestu að hundurinn fengi að lifa.

Innlent
Fréttamynd

Auðun Georg fær starfslokasamning

Vinna við starfslokasamning Auðuns Georgs Ólafssonar og Ríkisútvarpsins er að hefjast, að sögn Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra. Hann kvað lögfræðing Auðuns Georgs hafa óskað viðræðna um starfslok hans.

Innlent
Fréttamynd

Ákæruvaldið snuprað í héraðsdómi

Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir málatilbúnað ákæruvaldsins í dómi yfir tvítugri konu sem fundin var sek í morgun fyrir þjófnað og gripdeildir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Konan játaði skýlaust brot sín fyrir dómi. Hún hafði áður hlotið dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness 2003 og 2004 og verið dæmd í samanlagt 28 mánaða skilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni.

Innlent