Innlent

Fréttamynd

Maðurinn var heilsuhraustur

Karlmaður á sjötugsaldri er talinn hafa fengið aðsvif undir stýri á Breiðholtsbrautinni í morgun en hann missti stjórn á bílnum og ók út af veginum. Maðurinn lést og segir sonur hans föður sinn hafa verið heilsuhraustan, en ekki hjartveikan, eins og haft var eftir lækni á Landspítalanum í fréttum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Shadows trylltu lýðinn

Hinar öldnu hetjur í Shadows trylltu íslenska tónlistaraðdáendur á ýmsum aldri í Kaplakrika í gærkvöldi. Hljómsveitin, sem verið hefur við lýði frá því á sjötta áratugnum, lék lög frá ýmsum tímum ferilsins.

Lífið
Fréttamynd

Spáð góðu laxveiðisumri

Sérfræðingur Veiðimálastofnunar spáir bæði góðu laxveiðisumri um land allt og auknum stórlaxagöngum í ám fyrir norðan og austan. 

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldi mótmælt á Ingólfstorgi

Talið er að á þriðja hundrað manns hafi haldið rauðu spjaldi hátt á lofti á útifundi á Ingólfstorgi nú síðdegis sem haldinn var til höfuðs ofbeldi. Það er Birting, samtök ungs fólks gegn ofbeldi, sem stóð fyrir fundinum á Ingólfstorgi í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Hópakstur fornbíla um borgina

Þeir verða gamlir bílarnir sem verða í skoðunarstöð Frumherja á Hesthálsi á morgun en þar verða um eitt hundrað fornbílar skoðaðir. Að lokinni skoðun mun bílalestin keyra um borgina.

Innlent
Fréttamynd

Fimm aðilar keppast um háskólatorg

Hús Háskóla Íslands verða tengd saman í sérstakt háskólatorg sem fimm útvalin fyrirtæki keppast um að hanna. Kynningarfundur með þeim hófst í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Töfravatn leitt á sundlaugarsvæði

Orkuveita Húsavíkur hefur ákveðið að leiða 95 gráðu heitt vatn úr borholu á Húsavíkurhöfða í pott sem komið verður fyrir við Sundlaug Húsavíkur. Veitustjóri segir vatnið hafa góða virkni gegn psoriasis-sjúkdómnum auk þess sem breyting á efnainnihaldi þess getur sagt til um yfirvofandi jarðhræringar á Norðurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Slegnir yfir rítalínnotkun barna

Landlæknir hætti að fylgjast með ávísunum á rítalín til barna og unglinga árið 2001. Þingmenn voru slegnir á Alþingi í dag yfir upplýsingum um umdeilt heimsmet íslenskra barna í notkun rítalíns. 

Innlent
Fréttamynd

Sótti um án samráðs við stjórn

Fyrrverandi alþingismaðurinn Guðjón Guðmundsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri dvalarheimilisins Höfða á Akranesi, segist hafa sótt um stöðuna einfaldlega vegna þess að hann taldi sig uppfylla þær hæfniskröfur sem fram komu þegar staðan var auglýst.

Innlent
Fréttamynd

Landsbankinn styrkir Selmu

Landsbankinn hefur ákveðið að styrkja Selmu Björnsdóttur til þátttöku í Evróvisjón söngvakeppninni. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að með samningnum fái Selma aukið fjárhagslegt svigrúm til að helga sig þátttöku í keppninni.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguráðuneytið dregur í land

Samgönguráðuneytið dregur í land með frumvarp sitt um að varðveita skuli fjarskiptaupplýsingar í heilt ár vegna hugsanlegra lögreglurannsókna. Ráðuneytið hefur fallist á athugasemdir Persónuverndar.

Innlent
Fréttamynd

459 milljóna hagnaður

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hagnaðist um 459 milljónir á fyrsta ársfjórðungi ársins og eykst hagnaður fyrirtækisins um tæp 70 prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins námu 1,7 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjarski í fullum rétti

Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar var Fjarski ehf. í fullum rétti er þeir leigðu út fjarskiptarásir í skúr sem Fjarski á á landareign Reykjahlíðar. Samkvæmt samningi frá 1971sem íslenska ríkið gerði við eigendur jarðarinnar um nýtingu jarðhita og byggingu mannvirkja því tengdu á Kröflusvæðinu þá var Fjarska fullheimilt að nýta skúrinn að vild.

Innlent
Fréttamynd

Gripnir fyrir akstur utan vega

Þrír mótorhjólamenn voru gripnir fyrir akstur utan vega á norðanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi. Lögreglumenn á eftirlitsferð veittu athygli mannlausri bifreið með eftirvagn fyrir mótorhjól við Grákúlu, sem er eldgígur skammt frá Stykkishólmi. Frá bifreiðinni lágu hjólför sem lögreglumennirnir röktu meðal annars yfir mosavaxna hraunmöl.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla skiptingu vegafjár

Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu ásamt borgarstjóra mótmæla skiptingu vegafjár. Þeir afhentu samgöngunefnd Alþingis sameiginlega athugasemdir sínar í byrjun vikunnar.

Innlent
Fréttamynd

Meðafli í kolmunna ekki vandi

Fyrirhuguð lagabreyting, sem skyldar útgerðum að draga meðafla í uppsjávarveiðum frá kvóta, er meingallað að mati Magnúsar Þórs Hafsteinssonar þingmanns Frjálslynda flokksins. Hann hefur skilað séráliti í sjávarútvegsnefnd Alþingis vegna frumvarps sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um nytjastofna sjávar.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í fiskikörum á Stokkseyri

Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um eld í þremur fiskikörum við frystihúsið á Stokkseyri rétt eftir klukkan tvö í nótt. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi urðu litlar skemmdir á frystihúsinu sjálfu en körin eru þó talin ónýt. Brunavarnir Árnessýslu komu á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn.

Innlent
Fréttamynd

Vilja hækka sektargreiðslur

Kröfur komu fram á Alþingi í gær um að sektir fyrir að leggja ólöglega í bílastæði fatlaðra yrðu stórhækkaðar.

Innlent
Fréttamynd

SUF fylgjandi afnámi fyrningar

Samband ungra framsóknarmanna hefur sent frá sér ályktun þar sem það hvetur til þess að frumvarp sem er nú til umfjöllunar í allsherjarnefnd, þess efnis að kynferðisbrot gegn börnum fyrnist ekki, verði að lögum frá Alþingi. Þá fagnar sambandið þeirri þjóðarvakningu sem hafi átt sér stað í samfélaginu um alvarleika kynferðisglæpa gegn börnum. Sérstaklega beri að fagna þeirri vinnu sem Stígamót og Blátt áfram hafi sinnt til að kynna málstaðinn.

Innlent
Fréttamynd

Myndavél rænt af leikskóla

Lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um hádegi í dag um að brotist hefði verið inn í leikskólann Hólaborg í Breiðholti og þaðan stolið stafrænni myndavél. Lögreglan segir að engin ummerki hafi verið um að brotist hafi verið inn í leikskólann og ekki ólíklegt að einhver hafi gleymt að læsa eftir á eftir sér í gær. Lögreglan biður þá sem urðu varir við eitthvað grunsamlegt í kringum leikskólann í morgun að hafa samband.

Innlent
Fréttamynd

Pólitísk ráðning á Höfða?

Guðjón Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Sextán sóttu um stöðuna en Guðjón er með minnstu menntunina. Hann sat á Alþingi í tólf ár fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Annar umsækjandi segir mörgum þyki þetta merkileg ráðning.

Innlent
Fréttamynd

Sex um hverja lóð

Mikil eftirspurn er eftir lóðum víðar en á suðvesturlandi eins og sannaðist við úthlutun tíu einbýlishúsalóða á Akureyri í gær.

Innlent
Fréttamynd

Rauða spjaldið á ofbeldi

Birting, nýstofnuð samtök gegn ofbeldi, efna til samstöðu gegn ofbeldi á Ingólfstorgi í dag klukkan 17 þar sem ofbeldi verður sýnt rauða spjaldið.

Innlent
Fréttamynd

Aðhefst ekkert vegna auglýsinga

Samkeppnisstofnun telur ekki ástæðu til þess að aðhafast neitt vegna auglýsinga Og Vodafone á Og1, nýrri símaþjónustu fyrir heimili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Og Vodafone. Landssími Íslands hafði kvartað til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga fyrir Og 1 og talið þær ólögmætar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekið á stúlku á Akureyri

Ekið var á 10 ára stúlku á Hörgárbraut á Akureyri um fjögurleytið í dag en slysið átti sér stað þegar stúlkan var að fara yfir gangbraut. Meiðsl stúlkunnar eru talin minni háttar en hún var þó flutt á slysadeild til skoðunar. Lögreglan á Akureyri segir að stúlkan muni að öllum líkindum fara heim að skoðun lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan í Keflavík göbbuð

Lögreglan í Keflavík fékk upphringingu í fyrrinótt frá manni sem sagðist vera í smábátahöfninni í Grófinni í þeim tilgangi að fyrirfara sér. Lögreglulið var umsvifalaust sent á staðinn en þegar það kom í höfnina var enginn þar. Þá hóf lögreglan að leita í öðrum höfnum í Reykjanesbæ til að losa sig við allan grun, en án árangurs.

Innlent
Fréttamynd

Staðan góð en teikn á lofti

"Almennt má segja að niðurstaða í þetta sinn sé góð en þó verðum við að fara að stíga á bremsuna hvað framtíðina varðar," segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Dagur eldri borgara í kirkjum

Dagur eldri borgara er í kirkjum landsins í dag, á uppstigningardegi. Af því tilefni bjóða margar kirkjur til guðsþjónustu sem sérstaklega er tileinkuð öldruðum. Aldraðir taka þá virkan þátt í guðsþjónustunni, svo sem með ritningalestrum, söng og bænalestri. Gjarnan er boðið til kaffisamsætis að guðsþjónustu lokinni þar sem gefst tækifæri til uppbyggilegrar og ánægjulegrar samveru að því er fram kemur á vef þjóðkirkjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Síbrotamaður dæmdur

Hæstiréttur dæmdi á miðvikudaginn þrítugan Reykvíking í átta mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Maðurinn stal 18 feta rörabát og utanborðsmótor alls að verðmæti 3,8 milljón krónur. Lögreglan í Hafnarfirði hafði hendur í hári mannsins en þá hafði hann tekið utanborðsmótorinn af og brotið niður og kippt víra í stjórnborðspúlti bátsins.

Innlent
Fréttamynd

Flugskóli Íslands seldur

Íslenska ríkið hefur nú selt allan hlut sinn í Flugskóla Íslands hf. til þriggja aðila sem í flugrekstri standa og er skólinn því orðinn einkavæddur að öllu leyti.

Innlent