Innlent

Fréttamynd

Þrír teknir fyrir ölvunarakstur

Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirðinum grunaðir um ölvun við akstur í nótt. Lögreglan segir mennina alla hafa virst töluvert ölvaða og verða þeir allir ákærðir. Enginn þurfti þó að gista fangageymslur lögreglunnar þessa nótt. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni um land allt, þar á meðal lögreglunni í Reykjavík, og í raun óvenju róleg miðað við árstíma.

Innlent
Fréttamynd

Guðfríður endurkjörin formaður SÍ

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var einróma endurkjörin forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins sem fram fór í dag. Í tilkynningu frá sambandinu segir að jákvæðar og líflegar umræður hafi farið fram á fundinum um stöðu skákarinnar, stefnu sambandsins og áframhaldandi uppbyggingu æskulýðsstarfs.

Innlent
Fréttamynd

Gekk vel fyrir sig

Flugslysaæfing var haldin á Akureyrarflugvelli um helgina. Yfir þrjú hundruð manns tóku þátt í æfingunni og voru heilbrigðisstarfsfólk, björgunarsveitir, lögreglan, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, að ógleymdum miklum fjölda fólks sem lék slasaða, í aðalhlutverkum.

Innlent
Fréttamynd

Beðið verði fyrir Aroni Pálma

Biskupsstofa hefur sent öllum prestum landsins beiðni um að mál Arons Pálma Ágústssonar verði gert að sameiginlegu bænarefni við guðþjónustu í kirkjum landsins á morgun eða við aðrar helgistundir í kirkjunum næstu daga þar sem beðið verði fyrir velferð hans og skjótri heimkomu. Er þetta gert að ósk RJF-hópsins, stuðningshóps Arons Pálma.

Innlent
Fréttamynd

Vaxtabótakerfið verði ekki afnumið

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna varar við hugmyndum um afnám vaxtabótakerfisins í ályktun sem félagið sendir frá sér í dag. Þar segir einnig að vaxtabæturnar séu eitt besta tæki sem hið opinbera hafi komið á til að hjálpa einstaklingum til að koma sér þaki yfir höfuðið og dragi þar með úr útgjöldum til húsaleigubóta til lengri tíma litið.

Innlent
Fréttamynd

Helmings launamunur eftir útskrift

Karlar sem útskrifast frá Viðskiptaháskólanum að Bifröst geta vænst þess að fá nærri 50 prósentum hærri laun en konur í sömu stöðu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem háskólinn gerði á stöðu og störfum fólks sem nýlega hefur úrskrifast og Runólfur Ágústsson, rektor skólans, kynnti í útskriftarræðu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Vissi ekki af Búnaðarbankasölu

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hafði samið auglýsingu um sölu á ráðandi hlut í Landsbanka eftir að hafa borist bréf frá Samson í júní 2002. Ráðherranefndin, sem í sátu Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson og Valgerður Sverrisdóttir, breytti auglýsingunni eftir fund sinn og auglýsti bankana til sölu að framkvæmdanefndinni forspurðri.

Innlent
Fréttamynd

Mesta aðsókn í 17 ár hjá LA

Skuldir Leikfélags Akureyrar hafa minnkað um helming frá fyrra ári. Leikhússtjórinn gerir ráð fyrir að félagið verði skuldlaust árið 2006 en aðsókn hefur ekki verið meiri í sautján ár.

Innlent
Fréttamynd

Tveir nýir sendiherrar

Utanríkisráðherra skipaði í dag þá Helga Gíslason prótokollstjóra og Svein Á. Björnsson sendifulltrúa sendiherra í utanríkisþjónustunni frá og með 1. júní næstkomandi. Helgi Gíslason réðst til starfa í utanríkisþjónustunni árið 1970 og hefur m.a. starfað í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Moskvu, París. Sveinn Á. Björnsson réðst til starfa í viðskiptaráðuneytinu árið 1970 og starfaði m.a. sem viðskiptafulltrúi í París á þess vegum.

Innlent
Fréttamynd

Lögbrjótar í þúsundavís

Vel yfir fjögur þúsund ökumenn óku hraðar en á 110 kílómetra hraða um Ártúnsbrekkuna í vikunni samkvæmt mælum Gatnamálastofu Reykjavíkurborgar en það er 40 kílómetrum hraðar en leyfilegur hámarkshraði.

Innlent
Fréttamynd

Bráðkvaddur í bát sínum

Eldri maður lést um borð í bát sínum sem strandaði í fjöru um þrjár sjómílur frá Bolungarvík í gærmorgun. Talið er að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur.

Innlent
Fréttamynd

Skipaði tvo nýja sendiherra

Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum.

Innlent
Fréttamynd

Sektaðir fyrir vopnaburð

Þrír menn á tvítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir til greiðslu sektar vegna brota á vopnalögum. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa verið með tvo hnífa með 45 sentímetra blaði og höggvoopn í miðborg Reykjavíkur í apríl í fyrra. Mennirnir voru dæmdir til að greiða hver 30 þúsund króna sekt fyrir vopnaburðinn.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdar bætur vegna uppsagnar

Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða starfsmanni sem sagt var upp á sambýli fyrir fatlaða á Blönduósi árið 1998, 800 þúsund krónur í bætur vegna uppsagnarinnar. Í dóminum segir að manninum hafi verið sagt upp störfum vegna vankunnáttu og trúnaðarbrests á milli starfsmannsins og stjórnenda sambýlisins. Hlaut maðurinn einnig tvær áminningar frá sambýlinu en með dómnum voru þær felldar úr gildi.

Innlent
Fréttamynd

Farþegum FL Group fjölgar áfram

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um tæplega eitt prósent í apríl í ár í samanburði við apríl á síðasta ári og á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur farþegum flugfélagsins fjölgað um 9,9 prósent milli ára. Framboð félagsins og sala í mánuðinum var einnig nánast hin sama og á síðasta ári og var sætanýting einnig mjög svipuð og í apríl í fyrra, eða 72,7 prósent á móti 73,5 prósentum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkið dæmt til bótagreiðslna

Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfsmanni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar.

Innlent
Fréttamynd

Bíll valt á Hafnarfjarðarvegi

Einn maður slasaðist þegar bíll hans valt á Hafnarfjarðarvegi laust fyrir klukkan hálfsjö í morgun. Bílnum var ekið norður Hafnarfjarðarveg og valt hann rétt sunnan við Nesti í Fossvogi. Bíllinn fór tvær veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur á slysadeild. Ekki er talið að hann hafi slasast alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Stýrðu sölu bankanna

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tóku völdin af framkvæmdanefnd um einkavæðingu við sölu Landsbankans og Búnaðarbankans til að stýra því hver fengi að kaupa. Átökin um bankana og VÍS voru svo mikil að ríkisstjórnarsamstarfið var í uppnámi um tíma.

Innlent
Fréttamynd

Stærsta verksmiðja sinnar tegundar

Lýsi hefur opnað nýjar höfuðstöðvar við Fiskislóð og tvöfaldast framleiðslugeta fyrirtækisins í nýja húsnæðinu. Nýja verksmiðjan er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Framleiðslugetan er nú sex þúsund tonn á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir hugmyndir ekki stolnar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, vísar ummælum Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um að sjálfstæðismenn hafi stolið hugmyndum um uppbyggingu á Örfirisey algjörlega á bug. Steinunn Valdís sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að hugmyndirnar hefðu verið kynntar sem trúnaðarmál í hafnarstjórn á sínum tíma og greinilegt væri að sjálfstæðismenn gerðu þær að sinni tillögu nú. Því fagnaði hún.

Innlent
Fréttamynd

200 þúsund á málaskrá lögreglu

Fjöldi íslenskra ríkisborgara á svokallaðri málaskrá Ríkislögreglustjóra samsvarar öllum Íslendingum á aldrinum 17-80 ára. Á skránni voru um miðjan þennan mánuð skráð nöfn 201.278 einstaklinga en Íslendingar á aldrinum 17-79 ára voru 200.789 um síðustu áramót samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Meiðyrðamál tekið fyrir í dag

Meiðyrðamál Marcos Branacchia, fyrrverandi tengdasonar Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra í Finnlandi, var tekið fyrir í lokuðu þinghaldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Marco höfðaði málið vegna ummæla sem Jón Baldvin lét falla í viðtali við DV þar sem hann hélt því fram að Marco hefði hótað fjölskyldunni lífláti. Marco hefur staðið í harðvítugu forsjármáli síðustu ár gegn dóttur Jóns Baldvins.

Innlent
Fréttamynd

Aðstoða bát uppi í fjöru

Varðskip og tvö björgunarskip eru á leið til lands með bát sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi. Einn maður var á bátnum en ekki fengust upplýsingar um hann fyrir fréttir. Í sjálfvirku kerfi tilkynningarskyldunnar sást að báturinn var kominn upp í fjöru og voru björgunarskip frá Bolungarvík og Ísafirði send af stað sem og varðskip sem var á þessum slóðum og er báturinn nú í togi.

Innlent
Fréttamynd

Kynnir sér vísindi, orku og lyf

Indlandsforseti mun kynna sér sérstaklega viðvörunarkerfi vegna aðsteðjandi jarðskjálfta og aðra náttúruvá í Íslandsheimsókn sinni sem hefst á mánudag. Heimsóknin stendur í tvo daga en þetta er í fyrsta sinn sem forseti Indlands kemur í opinbera heimsókn til Íslands. Einnig mun hann kynna sér samvinnu Íslendinga og Indverja á sviði lyfjaþróunar og lyfjaframleiðslu sem og nýtingu jarðhita og hvaða lærdóm Indverjar geti dregið af íslenska vetnisverkefninu.

Innlent
Fréttamynd

Sjö sjóræningjar að veiðum

Sjö svokölluð sjóræningjaskip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Hugmyndir geti leitt til hækkana

Borgarstjóri segir líklegt að lóðaverð hækki með þeim miklu framkvæmdum sem tillögur sjálfstæðismanna um nýtt skipulag í borginni hefðu í för með sér.

Innlent
Fréttamynd

Þyrla sækir vélsleðamann

Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir tíu í kvöld vegna vélsleðamanns á Langjökli. Þyrlan lagði af stað 24 mínútur yfir tíu. Maðurinn fór fram af stalli og lenti harkalega. Ekki lá fyrir hve alvarlegt slysið var, en um einhvers konar bakáverka var að ræða og rétt þótti að kalla björgunarþyrluna út.

Innlent
Fréttamynd

Börnum líði vel í leikskólanum

Um mánaðamótin sameinast Leikskólar Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð í nýtt menntasvið Reykjavíkurborgar. Samhliða því mun Bergur Felixson, sem verið hefur í forsvari leikskólanna í Reykjavík í samfellt 30 ár, láta af starfi. Á fréttamannafundi í morgun kynnti Bergur könnun sem gerð var meðal foreldra leikskólabarna í Reykjavík þar sem fram kom að 99 prósent foreldra telja að börnum þeirra líði vel í leikskólanum.

Innlent
Fréttamynd

Skorrdælingar velja sér framtíð

Íbúar í Skorradalshreppi ákveða um næstu helgi hvort þeir vilja sameinast nágrannasveitarfélögunum eða ekki. Oddvitinn vísar því á bug að þriðjungur þeirra sem eigi lögheimili í Skorradalshreppi séu sumarbústaðareigendur úr höfuðborginni. Blaðamaður kannaði hvort sameiningarmálið væri í raun aðeins átök um auð.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Aflaði upplýsinga án heimildar

Persónuvernd hefur kveðið upp þann úrskurð að Tollstjóranum í Reykjavík hafi verið óheimilt að afla upplýsinga í málaskrá lögreglu um einstakling sem sótti um starf hjá embættinu.

Innlent