Innlent

Fréttamynd

Bjart veður næstu daga

"Það verður mjög rólegt veður, væntanlega mjög bjart en engin veruleg hlýindi að sjá enn sem komið er," segir Theódór Hervarsson veðurfræðingur um horfur næstu daga.

Innlent
Fréttamynd

Segir launakönnun ómarktæka

Það er óskynsamlegt og felur í sér sóun að mismuna í launum á grundvelli annars en hæfnis og framlags. Þetta segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur jafnframt að könnun Háskólans á Bifröst um launamun kynjanna sé ómarktæk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stefán vann prestskosinguna

Stefán Már Gunnlaugsson hefur verið kjörinn sóknarprestur á Hofi í Vopnafirði með 58 prósentum atkvæða. Þrír voru í köri auk Stefáns, þau séra Brynhildur Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir guðfræðingur og Þóra Ragnheiður Björnsdóttir guðfræðingur.

Innlent
Fréttamynd

Hótel opnað eftir tæpar tvær vikur

Radisson Sas 1919 í gamla Eimskipahúsinu verður opnað 10. júní næstkomandi með pompi og prakt. Andri Már Ingólfsson, eigandi hótelsins, segir að um glæsilegasta hótel Íslands sé að ræða og fékk fréttastofa Stöðvar 2 að kíkja inn, nú þegar verið er að leggja lokahönd á verkið.

Innlent
Fréttamynd

Úthafskarfi í hættu vegna ofveiði

Úthafskarfastofnarnir eru í hættu vegna ofveiði og ofveiðin leiðir til verðhruns á mörkuðum. Hvort tveggja er alvarlegt fyrir Íslendinga því að veiðarnar hafa skilað þjóðarbúinu þremur til fjórum milljörðum króna árlega. Á sama tíma eru sjóræningjar að útmá stofninn á Reykjaneshrygg.

Innlent
Fréttamynd

Myndbandaleiga á Netinu

Fyrsta íslenska myndbandaleigan á Netinu hefur verið tekin í notkun. Um er að ræða nýjan afþreyingarvef þar sem hægt er að horfa á bíómyndir í gegnum Netið án endurgjalds.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

R-lista viðræðum verður framhaldið

Vinstri hreyfingin grænt framboð vill halda áfram viðræðum um framtíð R-listans í Reykjavík. Félagsfundur hjá VG í Reykjavík samþykkti ályktun þessa efnis í gær en ljóst er að flokkurinn leggur þunga áherslu á jafna skiptingu sæta á hugsanlegum framboðslista R-listans. 

Innlent
Fréttamynd

Eldur í undirgöngum í miðbænum

Slökkvilið Reykjavíkur kallað að undiröngum við Urðarstíg og Nönnustíg um klukkan hálffjögur í nótt þar sem búið var að kveikja í rusli. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkur hætta myndaðist þó þar sem eldurinn hefði getað náð til íbúðarhúsa í kring, að sögn slökkviliðsins.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert fjarveruslys í rúmt ár

Ekkert fjarveruslys hefur orðið í álveri Alcan í Straumsvík í rúmt ár eða í samtals eina milljón vinnustunda. Hefur aldrei liðið jafnlangur tími hjá fyrirtækinu án fjarveruslyss en þá er átt við slys sem veldur því að starfsmaður getur ekki mætt til vinnu næsta dag.

Innlent
Fréttamynd

Þyrla upp á Grafarvogskirkju

Þyrla var hífð upp á þak Grafarvogskirkju í dag. Tilefnið er flugmessa sem verður í kirkjunni á morgun. Að sögn séra Vigfúsar Þórs Árnasonar var TF-LÍF of stór til að lenda á þakinu svo að minni þyrla var fengin til að skreyta kirkjuna. TF-LÍF mun hins vegar flytja presta og tónlistarfólk til messu í fyrramálið og lenda með það á hlaðinu.

Innlent
Fréttamynd

Smánarblettur á atvinnulífi

Konur, sem hafa útskrifast frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst, eru að meðaltali með tæplega helmingi lægri laun en karlar sem útskrifast með sama próf frá sama skóla. Rektor viðskiptaháskólans segir þetta smánarblett á atvinnulífinu og hyggst grípa til aðgerða.

Innlent
Fréttamynd

Impregilo greiddi 123 þúsund

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmt til að greiða Austfjarðarleið tæplega 123 þúsund krónur vegna vanefnda í sambandi við rútuakstur með starfsmenn fyrirtækisins í hádeginu. Ranghermt var í frétt í gær að Impregilo hefði verið dæmt til greiðslu tæplega sex milljóna króna og kom það af mislestri á dómsorði þar sem láðist að draga innborganir frá. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á því.

Innlent
Fréttamynd

Mikill erill hjá lögreglunni

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Vík í Mýrdal, vegna mótorkrossmóts sem staðið hefur yfir um helgina. Þrjú slys hafa orðið á ökumönnum bifhjóla. Einn ökumaður ökklabrotnaði, annar fór úr axlarlið og sá þriðji slapp með minni háttar meiðsl.

Innlent
Fréttamynd

Vísar gagnrýni borgarstjóra á bug

Leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík vísar alfarið á bug gagnrýni borgarstjóra á hugmyndir þeirra um framtíðarskipulag í borginni. Þær byggist hvorki á hugmyndum annarra né leiði til hærra lóðaverðs.

Innlent
Fréttamynd

Eitt skipanna reyndist draugaskip

Eitt af sjóræningjaskipunum sjö á karfaslóð við lögsögumörkin á Reykjaneshrygg er draugaskip; það er ekki að finna í viðurkenndum skipaskrám. Öll sigla þau hins vegar undir fána Dominíku í Karíbahafinu. Kristján Þ. Jónsson, yfirmaður gæsluframkvæmda, segir verið að kortleggja sjóræningjaveiðarnar og verslun með afla.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarloforð réttlæti ekki lygi

Íþróttamenn, kaupsýslumenn, stjórnmálamenn, blaðamenn, - það er sama hvar gripið er niður, í öllum stéttum þjóðfélagsins má finna dæmi um menn sem reyna að ljúga sig úr vandræðum. Loforð um trúnað réttlætir þó ekki lygi, að mati siðfræðings á sviði viðskipta. Við skulum rifja upp nokkur dæmi um meinta ósannsögli sem fjallað hefur verið um opinberlega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Magnús fer úr Samson

Magnús Þorsteinsson hefur selt Björgólfsfeðgum hlut sinn í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin eiga hluti í Landsbankanum og Burðarási. Í tilkynningu um viðskiptin segir að Magnús hyggist einbeita sér að fjárfestingum í almennri flugstarfsemi og flugrekstri, er þar vísað til þess að hann er aðaleigandi Avion Group.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Innflytjendum mismunað eftir stöðu

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur segir Íslendinga gera mismunandi kröfur til íslenskukunnáttu innflytjenda eftir menntun og stöðu þeirra í samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Munar 50% á launum kynjanna

Þrátt fyrir að konur tvöfaldi laun sín og rúmlega það eftir nám við Viðskiptaháskólann á Bifröst munar samt nær fimmtíu prósentum á launum þeirra og launum karla eftir útskrift.

Innlent
Fréttamynd

Styttingu framhaldsnáms seinkar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri styttingu á námi til stúdentsprófs um eitt ár. Það þýðir að ný námsskrá tekur gildi haustið 2009 í stað 2008 eins og stefnt var að. 

Innlent
Fréttamynd

Nýr prestur kynntur í dag

Prestskosningar í Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi fóru fram í gær, í safnaðarheimilinu á Vopnafirði. Fimm umsækjendur voru um stöðuna,

Innlent
Fréttamynd

Sótti slasaðan vélsleðamann

Vélsleðaslys varð við skálann Jaka á Langjökli um tíuleytið í gærkvöldi þegar maður ók vélsleða fram af um metra hárri snjóhengju. Maðurinn slasaðist það mikið við fallið að læknir í Borgarnesi kallaði þyrlu Landhelgisgæslunnar út. TF-LIF lenti við Borgarspítalann með hinn slasaða um hálftólfleytið í gærkvöld en ekki er unnt að fá upplýsingar um líðan mannsins eða hversu alvarlega slasaður hann er.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í bifreið í Kópavogi

Lögreglan í Kópavogi fékk tilkynningu um eld í bifreið á Smiðjuveginum um hálffjögurleytið í nótt og var bifreiðin alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Þá skemmdist einnig lakk bifreiðar við hliðina á þeirri sem kviknaði í mikið. Lögreglan segir eldsupptök vera ókunn en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Vill fjölga yngri áhorfendum

Meðalaldur þeirra sem eiga árskort í Þjóðleikhúsinu er sextíu og tvö og hálft ár og fer hækkandi. Þeir, sem yngri eru, fá sér mun síður árskort. Þjóðleikhússtjóri segir að við þessu verði brugðist með aukinni fjölbreytni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja halda í vaxtabótakerfið

Ungir framsóknarmenn leggjast gegn því að vaxtabótakerfið verði afnumið. Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna segir í ályktun að vaxtabætur séu eitt besta tækifæri sem stjórnvöld hafa til að hjálpa fólki við að koma sér þaki yfir höfuðið.

Innlent
Fréttamynd

Hyggst einbeita sér að flugrekstri

Magnús Þorsteinsson hefur ákveðið að selja eignarhluti sína í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin, sem fram til þessa hafa verið í eigu Magnúsar, Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, eiga hluti í Landsbanka Íslands og Burðarási.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Reyna að hindra löndun

Landhelgisgæslan mun reyna að koma í veg fyrir að sjóræningaskipin sem eru að veiðum á Reykjaneshrygg komi afla sínum í verð. Jafnvel kemur til greina að varðskip elti flutningaskip, sem tók við afla frá þeim, hvert sem það fer til að reyna að landa. Gæslan mun jafnframt fylgjast grannt með þeim stóra flota erlendra skipa sem dansar línudans á lögsögumörkunum.

Innlent
Fréttamynd

Gleymdist að ræða verðið

Ekki var rætt um verðhugmyndir bjóðenda um Landsbankann fyrr en bjóðendurnir sjálfir bentu á það undir lok söluferlisins. Gripið var til þess að setja inn í ferlið "millistig" þar sem skila ætti inn verðhugmyndum. Sigríður Dögg Auðunsdóttir segir hér frá því hvernig framkvæmdanefndin var notuð til að framkvæma vilja ráðherranna.

Innlent
Fréttamynd

Styttingu náms frestað um eitt ár

Styttingu framhaldsskólanáms verður frestað um eitt ár. Endurskoðuð námsskrá tekur gildi árið 2009. Grunnskólar fá þannig lengri tíma til að undirbúa sig fyrir breytingarnar á framhaldsskólastigi. Menntamálaráðherra tilkynnti þetta í dag.

Innlent
Fréttamynd

Vilja innanflokksprófkjör

Lagt verður til á félagsfundi Vinstri-grænna í Reykjavík í dag að innanflokksprófkjör verði notað til að velja sex efstu frambjóðendur flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík næsta vor. Skiptir þá engu hvort flokkurinn býður fram undir eigin nafni eða í samstarfi við hina flokkana sem í dag standa að Reykjavíkurlistanum.

Innlent