Innlent
Krafinn um 8 milljónir Fjölskylda Halldórs Laxness fer fram á að Hannes Hólmsteinn Gissurarson verði dæmdur fyrir brot á höfundarlögum í 120 tilvikum. Lögmaður Hannesar telur óeðlilegt að fara fram á bætur þar sem ekki hafi verið sýnt fram á ávinning Hannesar af bókinni. Innlent 13.10.2005 19:18
Vill skapa ný störf með Samherja Sveitarstjóri Austurbyggðar vonast til og hefur trú á að það takist að skapa einhver ný störf á Stöðvarfirði í samvinnu við Samherja í stað þeirra starfa sem tapast í haust. Hann segir Stöðvarfjörð enn álitlegan búsetukost. Innlent 13.10.2005 19:17
Lögregla lýsir eftir manni Lögregla í Reykjavík lýsir eftir Bjarna Jónssyni, 29 ára. Bjarni er 194 sm á hæð, er grannvaxinn með ljósskolleitt stutt hár, klæddur dökkum gallabuxum, bláum jakka, dökkri peysu og er í dökkum skóm. Bíll Bjarna fannst seinni partinn í gær í Melasveit við Skarðsheiði. Talið er að til hans hafi sést við bílinn síðastliðið mánudagskvöld, en þá var Bjarni klæddur bláum Kraftgalla. Innlent 13.10.2005 19:18
Gunnar tekur við bæjarstjórastarfi Gunnar I. Birgisson tók við bæjarstjóraembættinu í Kópavogi nú klukkan tíu . Hann tekur við lyklunum úr höndum Hansínu Björgvinsdóttir, fráfarandi bæjarstjóra. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur gerðu með sér samkomulag í upphafi kjörtímabilsins að bæjarstjórastóllinn, sem framsóknarmenn hafa setið í um árabil, færðist yfir til sjálfstæðismanna. Innlent 13.10.2005 19:17
Dreifði röngum skilaboðum Bilun í tveimur nýjum netskiptum frá Cisco olli því að netkerfi Landspítala háskólasjúkrahúss datt út í fyrradag, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítalanum. Kerfið var úti í nær fimm klukkustundir. Innlent 13.10.2005 19:18
Framsókn í sögulegu lágmarki Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup hlaut Framsóknarflokkurinn lægstu útkomu sem mælst hefur í skoðanakönnunum Gallup, en hann mældist með 8,5% fylgi. Áður hafði hann neðst mælst í 10 prósentum, en flokkurinn fékk 18 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Innlent 13.10.2005 19:18
Fagna uppbyggingu "Ég fagna allri uppbyggingu í sveitarfélaginu," segir Gunnar Þorgeirsson, oddviti í Grímsnes- og Grafningshreppi, um fyrirhugaða frístundabyggð við Úlfljótsvatn. Innlent 13.10.2005 19:18
Flóttafólkið hefur fest hér rætur Langflestir þeirra 420 flóttamanna sem komið hafa hingað á vegum íslenska ríkisins eru búsettir hér. Í undantekningartilvikum hefur fólk þó snúið heim aftur og einstaka flutt til annarra landa, þar sem ættingjar búa. Innlent 13.10.2005 19:18
Verð á heitu vatni lækkað í dag Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að lækka verð á heitu vatni til notenda á höfuðborgarsvæðinu um 1,5 prósent og kemur sú ákvörðun til framkvæmda í dag. Frá þessu greinir Orkuveitan í tilkynningu í dag. Þar segir einnig að hækkun vísitölu undanfarna mánuði hafi numið um 3,5 prósentum en vegna aukinnar sölu á heitu vatni á undanfarna mánuði hafi verið ákveðið að taka þá hækkun ekki með í reikninginn. Innlent 13.10.2005 19:17
Veiðin gekk illa í Norðurá Segja má að laxveiðitímabilið hafi hafist í dag. Norðurá var opnuð með pompi og prakt en þrátt fyrir kjöraðstæður gekk veiðimönnum illa að ná í laxinn. Innlent 13.10.2005 19:18
OR opnar móttöku fyrir gesti Orkuveita Reykjavíkur opnar í dag mótttöku fyrir gesti á Hellisheiði og Nesjavöllum. Gestamóttaka á Hellisheiði er í Skíðaskálanum í Hveradölum og er þar að finna margvíslegar upplýsingar um fyrirhugaða Hellisheiðarvirkjun. Sem fyrr stendur Orkuveitan fyrir gestamóttöku í Nesjavallavirkjun. Innlent 13.10.2005 19:17
Veitt í fyrsta sinn Ólafur Ragnar Grímsson veitti í gærkvöld Íslensku menntaverðlaunin í fyrsta sinn í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Innlent 13.10.2005 19:18
Enn enginn lax upp úr Norðurá Enginn lax er kominn á land úr Norðurá en áin opnaði venju samkvæmt klukkan sjö í morgun. Horfa þarf aftur til ársins 1989 til finna opnunardag þar sem veiðin var engin að sögn formanns Stangaveiðifélags Reykjavíkur á síðunni <em>Vötn og veiði.is</em>. Hann segist ekki ætla lenda í slíku núna og er viss um að lax náist í seinni lotunni sem hófst klukkan þrjú. Innlent 13.10.2005 19:17
Á 150 km hraða á Reykjanesbraut Lögreglan í Kópavogi stöðvaði ökumann á rúmlega 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um miðnætti. Ökumaðurinn gaf þær skýringar einar að hann hefði verið að flýta sér. Sá flýtir á þó eftir að kosta hann ökuskírteinið og einhverja tugi þúsunda í sekt. Innlent 13.10.2005 19:17
Bílddælingur segir upp 50 manns Um fimmtíu starfsmönnum Bíldælings var sagt upp störfum í gær. Bæjarstjóra Vesturbyggðar er brugðið en hann fékk að vita af uppsögnunum frá svæðisvinnumiðluninni í gær. Um eitthundrað störf eru á Bíldudal og lætur því nærri að annar hver vinnandi maður á staðnum hafi fengið uppsagnarbréf. Innlent 13.10.2005 19:17
Samson bað um fund Samson-hópurinn bað um fund með Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, til að ræða söluna á Búnaðarbankanum og Landsbankanum þegar hún var í bígerð. Þetta upplýsti Valgerður í viðtali á Talstöðinni í Hádegisútvarpinu í gær. Innlent 13.10.2005 19:18
Skagafjarðarhraðlestin af stað Brottför Skagafjarðarhraðlestarinnar var í dag en hún er félag sem sett var á fót til að efla sveitarfélögin í Skagafirði. Meginmarkmiðið er að efla atvinnulíf á sem fjölbreyttastan hátt og að efla samstarf á milli atvinnulífs og stjórnsýslu. Fyrsta verkefnið verður að tryggja að virkjunarréttur á fallvötnum á svæðinu verði í höndum heimamanna. Innlent 13.10.2005 19:18
Reyndi að ná sáttum "Ég hef enga trú á því að hægt sé að sakfella mig fyrir þetta," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og er ánægður með hvernig málflutningurinn fór í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:18
Náið ykkur niður á Strákunum Strákarnir ætla að bjóða þeim áhorfendum Stöðvar 2 sem finnst sér misboðið að taka út gremju sína á þeim föstudaginn 3. júní. Strákarnir verða á Lækjartorgi (við klukkuna) á slaginu 12 á hádegi þar sem þeir koma til með að selja rjómatertur og egg sem fólk getur keypt og síðan grýtt þá með. Ágóði af sölunni rennur til langveikra barna. Lífið 13.10.2005 19:18
Landsspítalinn sambandslaus Landsspítali Háskólasjúkrahús var símasambandslaus frá því um ellefuleytið til klukkan þrjú í gær. Einnig lágu öll tölvukerfi Spítalans niðri en bilun kom upp í aðalnetkerfi sjúkrahússins með þeim afleiðingum að innra tölvu- og símkerfið datt að mestu leyti út. Innlent 13.10.2005 19:17
Orkuveitan reisir 600 bústaði Orkuveita Reykjavíkur ætlar að vera með í félagi um byggingu allt að sex hundruð sumarbústaða í landi Úlfljótsvatns ásamt Íslandsbanka. Hlutafé verður allt að þrjú hundruð milljónir. Framkvæmdir gætu hafist á árinu 2007. Innlent 13.10.2005 19:17
Ræddi ekki átök og hótaði engu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kveðst aldrei hafa hótað stjórnarslitum vegna deilna um eignarhald á Vátryggingafélagi Íslands. S-hópurinn svonefndi átti helminginn í VÍS á móti Landsbankanum en keypti hlut bankans í fyllingu tímans. S-hópurinn og VÍS urðu síðar annar af tveimur bjóðendum í hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Innlent 13.10.2005 19:17
Halldór á móti ljósmyndasýningunum Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hefur sent Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra bréf þar sem hann gagnrýnir þá ákvörðun embættisins að heimila að þriðja árið í röð verði stillt upp fyrirferðamiklum og grófum steinstöplum á Austurvelli þar sem ljósmyndum verði komið fyrir. Innlent 13.10.2005 19:17
Gæsluþyrlan leitar manns Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld til að svipast um eftir manni sem saknað var á svæðinu í kringum Hafnarfjall. Rólegt var í lögregluumdæmum landsins að öðru leyti í gærkvöld. Innlent 13.10.2005 19:17
Ótti og óvissa á Stöðvarfirði Ótti og óvissa ríkir á Stöðvarfirði eftir að öllu starfsfólki frystihúss Samherja var sagt þar upp í dag, alls 32. Talsmaður Samherja segist hafa fulla trú á að allir finni vinnu fljótlega, nóg sé að gera á Mið-Austurlandi. Innlent 13.10.2005 19:17
Hrókurinn fær styrk Samþykkt var á síðasta ríkisstjórnarfundi að veita skákfélaginu Hróknum þrjár milljónir króna í styrk vegna unglingastarfs. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu þótti eðlilegt að styðja við bakið á því góða starfi sem skákfélagið hefur haldið uppi undanfarin ár. Innlent 13.10.2005 19:17
21 milljarður í landfyllingar Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnti hugmyndir sínar um framtíðarskipulag í Reykjavík á blaðamannafundi síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt tillögunum er kveðið á um 350 hektara landfyllingu milli Örfiriseyjar og Akureyjar og frá Sæbraut í áttina að Engey. Innlent 13.10.2005 19:17
Réttarmeinafræðingur fær styrk Eva Klonowski, íslenskur réttarmeinafræðingur af pólskum uppruna, hefur fengið tveggja milljóna króna styrk frá ríkisstjórninni vegna starfa sinna í Bosníu. Þar vinnur hún við að bera kennsl á lík fólks sem féll í styrjöldinni á tímabilinu 1992 til 1995. Innlent 13.10.2005 19:17
Ákvörðunin hafði ekki tekið gildi Samkeppnisstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki beri að rannsaka kvartanir Landssíma Íslands á hendur 365 - ljósvakamiðlum þar sem ákvörðunin sem kvörtunin nær til hefur ekki tekið gildi. Innlent 13.10.2005 19:17
Aðeins mál eins starfsmanns Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. Innlent 13.10.2005 19:17