Innlent

Fréttamynd

RÚV keypti þætti án fjárheimilda

Tvær fullunnar íslenskar sjónvarpsþáttaraðir bíða sýninga hjá Sjónvarpinu, önnur fram yfir áramót. Ríkisútvarpið hefur greitt þættina. Ekki hefur fengist heimild til kaupanna og þess vegna þarf að bíða með sýningar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Verða að tryggja stöðugleika

Stjórnvöld verða að gera meira til að tryggja stöðugleika en þau hafa gert til þessa, segir framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og tveir stjórnarandstöðuþingmenn.

Innlent
Fréttamynd

Töluverður erill hjá lögreglu

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt en ölvun var talsverð í miðborginni langt fram eftir morgni. Er það ekki síst rakið til þess að veður var með besta móti auk þess sem skólastarfi er nýlokið.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnafundur á Raufarhöfn

Sjö voru handteknir eftir að talsvert magn fíkniefna fannst við húsleit lögreglu á Raufarhöfn í gærmorgun. Var um að ræða tæp 50 grömm af hvítum efnum og um 50 töflur sem líkur þóttu á að væru e-töflur en það hafði þó ekki verið staðfest.

Innlent
Fréttamynd

Konur ræða stjórnarskrárbreytingar

Í tilefni yfirstandandi endurskoðunar stjórnarskrárinnar komu konur saman á Hallveigarstöðum í dag. Tilefni fundarins var að ræða mikilvægi þess að sjónarmið kvenna heyrist í starfi stjórnarskrárnefndar og að tillögur hennar endurspegli þarfir kvenna sem borgara í íslensku samfélagi.

Innlent
Fréttamynd

Lokun olli litlum töfum

Hluti Reykjanesbrautar var lokuð fram eftir degi í gær vegna framkvæmda en ekki varð um alvarlegar tafir hjá vegfarendum af þeim sökum enda hjáleiðir margar í boði.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar Norðurlandameistarar

Íslenskir vagnstjórar sigruðu kollega sína frá öðrum Norðurlöndunum auðveldlega í ökuleikniskeppni vagnstjóra sem fram fór við höfuðstöðvar Strætó að Kirkjusandi í gær. Urðu þeir alls 2500 sekúndum á undan Dönum sem komu næstir.

Lífið
Fréttamynd

Töluverðar líkur á valdaskiptum

Töluverðar líkur er á að nýr meirihluti komist til valda í Íslandsbanka verði af fyrirhugaðri sölu Steinunnar Jónsdóttur á ríflega fjögurra prósenta hlut sínum í bankanum til hóps fjárfesta sem telst vinveittur hinum svokallaða Straumsarmi í bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Féll ofan af fjórðu hæð

Karlmaður á þrítugsaldri hlaut nokkur beinbrot eftir fall ofan af fjórðu hæð húss í miðborg Reykjavíkur í nótt. Á sjöunda tímanum í morgun barst lögreglunni tilkynning um að maður væri að klifra utan á húsinu en hann hafði farið út um glugga á sameign og reynt að komast inn í íbúð utanfrá.

Innlent
Fréttamynd

Bankamenn óttast um störf sín

Bankamenn hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu ef Straumur nær yfirráðum í Íslandsbanka og ítök Landsbankans aukast. Viðskiptafræðingur við Háskóla Íslands segir Landsbankann reyna að ná yfirráðum í bankanum í gegnum Straum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bílstjórar eiga við samvisku sína

Trukkabílstjórar verða að eiga við samvisku sína hvort þeir séu færir um að aka svo dögum skiptir, segir formaður bifreiðastjórafélagsins Sleipnis. Reglugerðir fyrirskipa hvíldartíma en Hæstiréttur segir engar refsiheimildir til staðar, og því er ekki hægt að framfylgja reglugerðinni.

Innlent
Fréttamynd

Á árabáti í kringum landið

Einn og á árabáti ætlar Kjartan Hauksson að róa um landið. Þannig ætlar hann að koma Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, til hjálpar.

Innlent
Fréttamynd

Hallinn 12% af landsframleiðslu

Viðskiptahallinn í ár mun ná því að verða 12% af landsframleiðslu samkvæmt spá greiningardeildar Íslandsbanka en í gær birti Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuðinn á síðasta ári og reyndist hann vera neikvæður um þrjátíu og einn milljarð króna samanborið við þrettán milljarða árið áður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Grillveisla gekk framar vonum

Um 70 manns skemmtu sér hið besta í grillveislu Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, en slík veisla er haldin á hverju ári.

Innlent
Fréttamynd

Tóm vitleysa, segir hvalveiðimaður

Það er tóm vitleysa að setja mál upp með þeim hætti að bera saman kostnað við hvalveiðar í vísindaskyni og tekjur af sölu aflans, segir Konráð Eggertsson, hrefnuveiðimaður til margra ára. Í gær var kynnt skýrsla þar sem því var haldið fram að neytendamarkaður fyrir hvalkjöt væri afar lítill og flest bendi til að hann minnki enn frekar. 

Innlent
Fréttamynd

50% kvenna deyr úr hjartasjúkdómum

Tæplega helmingur allra kvenna í löndum Evrópusambandsins deyr úr hjartasjúkdómum. Fleiri konur deyja úr hjartasjúkdómum en krabbameini á ári hverju. Rannsóknir hafa þó leitt í ljós að mjög lágt hlutfall kvenna er meðvitað um hættuna á hjartasjúkdómum.

Innlent
Fréttamynd

Sjö handteknir vegna fíkniefnamáls

Sjö hafa verið handteknir á Raufarhöfn í dag vegna fíkniefnamáls. Við aðgerðina haldlagði lögregla nokkuð magn meintra fíkniefna, svo og tóla og tækja til fíkniefnaneyslu. Um það bil 25-30 grömm af hvítum efnum voru haldlögð og um 50 töflur sem líklegt þykir að séu e-töflur.

Innlent
Fréttamynd

Vilja þyngri dóma í mansalsmálum

Kristín Ástgeirsdóttir, sérfræðingur á rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að taka á öllum málum tengdum mansali, þar sem konur um allan heim eru oftar en ekki fórnarlömb, af ákveðni og hörku.

Innlent
Fréttamynd

Blóðbankahlaup í Laugardalnum

Í tilefni af Alþjóðlega blóðgjafadeginum efnir Blóðbankinn til fjölskylduskokks í Laugardalnum á morgun, laugardag. Hlaupið hefst klukkan 13 og munu blóðgjafar og fjölskyldur þeirra sem taka þátt í deginum hlaupa 3 km leið um Laugardalinn. Að loknu hlaupinu fá allir þeir sem komast í mark verðlaunapening sem Blóðgjafafélag Íslands gefur og ýmis annað góðgæti.

Lífið
Fréttamynd

Sprotafyrirtæki við dauðans dyr

Allt að 70 prósent þeirra sprotafyrirtækja, sem annars ættu góða lífsvon, berjast í bökkum við núverandi efnahagsástand og mörg þeirra eru við dauðans dyr.

Innlent
Fréttamynd

Sumarhúsalóðir á útsöluverði

"Ef sumarhúsalóð, á þessum stað, kostar ekki nema á tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur er það spottprís," segir Sigurður Sveinsson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Bakki.com á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 20.000 tryggingakort

Rúmlega tuttugu þúsund evrópsk sjúkratryggingakort voru gefin út í maí, fyrsta mánuðinn eftir að útgáfa kortanna hófst.

Innlent
Fréttamynd

Valdahlutföll að breytast?

Steinunn Jónsdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka, hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu ákveðið að selja ríflega fjögurra prósenta hlut í bankanum. Líklegt er að það verði til hóps fjárfesta sem telst vinveittur Straumi og er samkomulag um þetta í burðarliðnum. Með því virðist sem valdahlutföll í bankanum muni breytast verulega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enn hækka stýrivextir Seðlabankans

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um hálft prósentustig í gær. Allar líkur eru því á því að vextir á skammtímalánum, yfidrætti og kreditkortaskuldum hjá bönkunum hækki í kjölfarið.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla banni við gleðigöngu

Hinsegin dagar í Reykjavík hafa sent bréf til borgarstjórans í Varsjá í Póllandi til að mótmæla því að hann ætlar að koma í veg fyrir að samkynhneigðir íbúar borgarinnar geti farið í gleðigöngu („gay parade“).

Lífið
Fréttamynd

Rockville brennur

Mikill eldur var í Rockville, gömlu ratsjárstöðinni á Miðnesheiði, í nótt. Samkvæmt Víkurfréttum var fjölmennt slökkvilið sent á staðinn á þriðja tímanum í nótt og logaði þá mikill eldur í byggingu hjá kúluturnunum sem eru eitt helsta kennileiti staðarins.

Innlent
Fréttamynd

Alfreð kallar Perluna hringekju

Ungir sjálfstæðismenn færðu Alfreð Þorsteinssyni, formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, Monopoly spilið að gjöf í morgun. Þeir segjast  hafa gert það til að mótmæla taumlausri eyðslu hans á kostnað borgarbúa. Alfreð endursendi hins vegar spilið skömmu síðar og hvatti gefendurna til að spila það við Davíð Oddsson í „hringekjunni í Öskjuhlíð“.

Innlent
Fréttamynd

Par dæmt í fangelsi

Maður og kona voru í gær dæmd í fangelsi fyrir innbrot og þjófnaði. Þau stálu meðal annars fartölvu úr bifreið og gerðu tilraun til þess að brjótast inn í skóla í Hörgárbyggð en flúðu þegar þjófavarnarkerfi skólans fór í gang.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur sneri tveimur dómum

Hæstiréttur sneri í gær við tveimur dómum þar sem ökumenn höfðu verið sakfelldir fyrir að virða ekki hvíldarákvæði EES-samningsins. Í báðum málunum hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmt bílstjórana til sektargreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Þrír taldir með reykeitrun

Þrír menn voru fluttir á heilsugæslustöð Patreksfjarðar vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í sumarbústað í Tálknafirði aðfaranótt sunnudags.

Innlent