Innlent
Afnemur skilyrði vegna íbúðalána Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur fyrst bankastofnana ákveðið að afnema skilyrði um önnur bankaviðskipti á 4,15 prósenta íbúðalánum. Segir í fréttatilkynningu að þessi lán séu nú öllum opin hjá SPRON sama hvar lántakandi sé í bankaviðskiptum og gildi það einnig fyrir þá sem þegar hafi tekið 4,15 prósenta íbúðalán hjá SPRON. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19
Ólga í Landakotsskóla Mikil ólga ríkir í Landakotsskóla eftir að skólastjórinn sagði upp störfum fyrir helgina. Áður hafði aðstoðarskólastjórinn verið látinn taka pokann sinn. Innlent 13.10.2005 19:19
Klippti númer af ótryggðum bílum Lögreglan í Kópavogi handtók fólk með smáræði af fíkniefnum í gærkvöldi en það var annað fíkniefnamálið sem kom upp í Kópavogi um helgina. Bæði málin teljast upplýst. Annars hafði Kópavogslögreglan þónokkuð að gera við að klippa númer af bílum sem ekki voru tryggðir en eigendur þeirra bíla geta verið í vonum málum ef þeir lenda í óhappi, jafnvel þótt þeir séu í rétti. Innlent 13.10.2005 19:19
Dæmd fyrir að stinga sambýlismann Rúmlega þrítug kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmd í fimmtán mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir að stinga sambýlismann sinn í bakið þannig að hnífurinn gekk inn í lunga. Innlent 13.10.2005 19:19
Tillaga um minni þorskkvóta Hafrannsóknastofnunin leggur til að dregið verði úr þorskveiðum um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Í fyrra lagði stofnunin til að þorskaflinn yrði 205 þúsund tonn en leggur til 198 þúsund tonna aflahámark nú. Innlent 13.10.2005 19:19
Seglskútan Hetairos í höfninni Seglskútan Hetairos sem mönnuð er fimm írskum sægreyfum liggur nú við Reykjavíkurhöfn en þeir segjast vera að bíða eftir góðu veðri til utanferðar. Þeir hafa verið að sigla um Ísland í þrjár vikur og eru yfir sig hrifnir af fegurð Vestfjarða þar sem siglt var um með viðkomu á Patreksfirði og Ísafirði. Innlent 13.10.2005 19:19
Verðlaunað fyrir öryggisvitund Áhöfnin á ísfisktogaranum Kaldbaki EA 1 hlýtur í ár viðurkenningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund eftir að hafa sótt námskeið hjá Slysavarnaskóla Landsbjargar. Landsbjörg hefur ákveðið að veita þessa viðurkenningu árlega, en um er að ræða farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Innlent 13.10.2005 19:19
Sterling breyti ferðamynstri Dana Flugfélagið Sterling, sem er að meirihluta í eigu Íslendinga, á eftir að gjörbreyta ferðamynstri Dana, að mati stærstu ferðamiðlunar Danmerkur. Sölustjóri Star Tour spáir því að Danir muni í þúsundavís ferðast til Bandaríkjanna í stað þess að halda austur á bóginn næsta vor þegar Sterling býður upp á lággjaldaflug til Bandaríkjanna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19
Endurfjármögnun SÍF lokið Um fimmtíu prósenta umframeftirspurn var eftir lánum við endurfjármögnun SÍF sem nú er formlega lokið, en umsjónarbankarnir KB banki og Bank of Scotland seldu hluta láns félagsins til sjö banka og fjögurra fjárfestingasjóða. Fram kemur í tilkynningu frá SÍF að 13 bankar og fjárfestingarsjóðir standi nú að sambankaláni SÍF og er heildarlánsfjárhæðin nú 262,4 milljónir evra en upphafleg lánsfjárhæð var 290 milljónir evra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19
Ekki inn á Bandaríkjamarkað í vor Skandinavíska flugfélagið Sterling, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er ekki á leið inn á Bandaríkjamarkað í vor eins og kemur fram í dönskum fjölmiðlum í dag. Þá er félagið ekki að ráða til sín 400 manns eins og jafnframt hefur komið fram í fjölmiðlum þar í landi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19
Geðraskanir og offita aðalvandamál Geðraskanir, ofvirkni, offita, reykingar og ofbeldi eru helstu heilbrigðisvandamál þjóðarinnar nú og í fyrirsjáanlegri framtíð, að mati landlæknis. Innlent 13.10.2005 19:19
Úrbóta þörf vegna geðraskana Sigurður Guðmundsson landlæknir segir úrbóta þörf í málefnum þeirra sem eiga við geðraskanir og ofvirkni að stríða sem og vegna offitu, tóbaksreykinga og ofbeldis. Þetta kemur fram í skýrslu landlæknis fyrir árið 2004. Innlent 13.10.2005 19:19
Verður við hátíðahöld í Noregi Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, verða viðstödd hátíðarhöld í Noregi á morgun þar sem þess verður minnst að öld er liðin frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar og endurreisnar konungdæmis í Noregi. Hátíðarsamkoma verður í þinghúsinu í Ósló vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:19
Rær umhverfis Ísland Kjartan Jakob Hauksson, kafari, tók á sjómannadaginn upp þráðinn þegar hann lagði á ný upp í hringferð um Ísland. Hann hóf ferðalagið fyrir tveimur árum á róðrarbátnum Rödd hjartans. En þeirri ferð lauk þegar báturinn strandaði við Bolungarvík. Innlent 13.10.2005 19:19
Ungir ökumenn hegða sér betur Umferðarbrotum ungra ökumanna, á aldrinum sautján til tuttugu og fimm ára, hefur fækkað umtalsvert. Innlent 13.10.2005 19:19
Hugsanlega hert gæsla Lögregluyfirvöld og Útlendingastofnun hafa verið að skoða hugsanlegan viðbúnað vegna fyrirhugaðrar komu atvinnumótmælenda sem hyggjast dvelja í tjaldbúðum við Kárahnjúkavirkjun nú í sumar. Þetta segir Hildur Dungal forstjóri Útlendingastofnunar. Innlent 13.10.2005 19:19
Ófriður í Landakotsskóla Skólastjóri Landakotsskóla hefur sagt upp störfum í kjölfar átaka um stjórn skólans. Foreldrar barna í skólanum eru reiðir og óttast að fjöldi kennara hverfi með skólastjóranum. Stjórn skólans ber við að taka hafi þurft á fjárhagsvanda. Innlent 13.10.2005 19:19
Biðst afsökunar vegna Gunnars Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, biður kjósendur flokksins afsökunar á því að Gunnar Örn Örlygsson hafi hætt þingmennsku fyrir flokkinn. Innlent 13.10.2005 19:18
Verkaskipting óljós í dýravernd Dýraverndunarmálum hefur sáralítið verið sinnt á Íslandi í áratugi vegna slæmrar stjórnsýslu og óljósrar verkaskiptingar. Unnið hefur verið að úrbótum síðustu árin. Innlent 13.10.2005 19:19
Elsti bíll landsins seldur "Með þessu móti höldum við þessum elsta bíl landsins í þeim mikla bílabæ Selfossi," segir Hilmar Pálsson, en hann keypti um helgina ásamt félaga sínum Sigurði Karlssyni, elsta bíl landsins. Innlent 13.10.2005 19:19
Aldraðir sjómenn heiðraðir Sjómennirnir Eyjólfur Eyjólfsson, Eiríkur Eiríksson, Grétar Bjarnason, Sigfús Jóhannsson og Eyjólfur Guðjónsson voru heiðraðir við Miðbakkann í Reykjavík í gær fyrir ævistörf sín. Einnig hlaut Bragi Ragnarsson viðurkenningu fyrir fyrirmyndarvélstjórastörf. Innlent 13.10.2005 19:19
Líf og fjör á sjómannadaginn Hátíð hafsins var haldin í blíðskaparviðri við Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn. Fjöldi fólks var samankominn til að fylgjast með umfangsmikilli dagskrá sem var í boði. Innlent 13.10.2005 19:19
Eldur í bústað í Tálknafirði Eldur kviknaði í sumarbústað í Tálknafirði á fimmta tímanum í nótt. Fjöldi fólks var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp. Þrír voru fluttir á heilsugæslu Patreksfjarðar til frekari rannsóknar vegna gruns um reykeitrun að sögn lögreglunnar. Slökkviliðinu á Tálknafirði gekk vel að slökkva eldinn en bústaðurinn skemmdist mikið. Innlent 13.10.2005 19:18
Sjómenn eru undirstaðan Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, hélt ræðu í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í gærmorgun. Sagði hann að sjómenn væru undirstaðan í íslensku atvinnulífi en ekki bankar og fjármálafyrirtæki. Innlent 13.10.2005 19:19
Hringvegur lagfærður í Borgarfirði Miklar lagfæringar og breytingar standa nú yfir á hringveginum frá Borgarfjarðarbraut að Brekku. Búast má við að umferð um svæðið tefjist töluvert í sumar, en um 3000 bílar aka um veginn á degi hverjum yfir sumarmánuðina. Innlent 13.10.2005 19:19
Vill opnari umræðu um þorskstofn Árni Matthiessen sjávarútvegsráðherra kallaði eftir opinskárri umræðu um ástand þorskstofnsins í sjómannadagsræðu sinni að þessu sinni. Innlent 13.10.2005 19:19
Mistókst að sökkva háhyrningshræi Tilraunir til að sökkva hræi af háhyrningi sem var á reki í Hafnarfjarðarhöfn í gær mistókust. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar var kallaður til og var hræið dregið langt út á haf. Sprengingin gerði ekki annað en að skipta hræinu í tvennt og hélt það áfram að reka, nú í tveimur hlutum. Innlent 13.10.2005 19:18
LÍÚ vill færa sjómannadaginn Hjörtur Gíslason, stjórnarmaður í Landssambandi íslenskra útvegsmanna, sagði í sjómannadagsræðu sinni í Reykjavík í gær að færa ætti sjómannadaginn fram á síðasta sunnudaginn í júlí. Innlent 13.10.2005 19:19
Sjómenn séu undirstaða atvinnulífs Sjómenn, ekki bankar og fjármálafyrirtæki, eru undirstaða íslensks atvinnulífs, sagði Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, í hugleiðingu í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í morgun. Haldið er upp á þennan dag alla helgina um land allt og má segja að í dag sé formlegi dagurinn, dagur ræðuhalda, viðurkenninga og messa. Innlent 13.10.2005 19:19
Shoe Studio Group í Kauphöllina Don McCarthy, forstjóri Shoe Studio Group, hefur áhuga á því að skrá félagið í Kauphöll Íslands næsta haust en þetta kom fram hjá Sunday Express. Shoe Studio rekur meðal annars tískuverslunarkeðjurnar Principles and Warehouse auk þess að reka skóverslanir. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19