Innlent
Helmingur nýrra hjóla ólöglegur Nærri helmingur nýrra reiðhjóla hér á landi er ólöglegur þegar þau eru seld út úr búðum. Hvorki Umferðarstofa né lögregla segjast eiga að hafa eftirlit með því að reiðhjól séu fullbúin þegar þau eru seld. Innlent 13.10.2005 19:20
Unnið gegn heimilisofbeldi Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur falið verkefnisstjórn um heilsufar kvenna að skoða ákveðna þætti í heilbrigðisþjónustunni til að vinna gegn heimilisofbeldi og bæta þjónustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis. Innlent 13.10.2005 19:20
Óvissa um staðarval loðnubræðslu Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjórinn í Grindavík, bindur vonir við að Síldarvinnslan ákveði að byggja upp starfsemi sína í bænum. Innlent 13.10.2005 19:20
Stefnan að hafa álverið á Húsavík Iðnaðarráðuneytið hefur sett stefnuna á Húsavík við undirbúning álvers á Norðurlandi og miðast vinna við val virkjanakosta nú við þá staðsetningu. Gert er ráð fyrir að jarðgufuvirkjanir í innan við fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Húsavík geti annað raforkuþörf meðalstórs álvers. Innlent 13.10.2005 19:20
Leiðtogaþing í Reykholti Leiðtogaþing lútherskra kirkna í Evrópu hófst í gær í Reykholti í Borgarfirði, en evrópudeild Lútherska heimssambandsins stendur fyrir þinginu. Innlent 13.10.2005 19:20
Ökumönnum umbunað út frá ökuritum Vátryggingafélag Íslands ætlar að bjóða ungum ökumönnum að hafa ökurita í bílum sínum í sumar. Besti ökumaðurinn verður svo valinn í sumarlok út frá þeim upplýsingum sem ökuritinn hefur skráð um aksturslagið. Innlent 13.10.2005 19:20
Innra eftirlit verði hert Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til heilbrigðisstofnana að herða innra eftirlit til varnar fjölómæmu bakteríunnni, MÓSA, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 13.10.2005 19:20
Ólafur sakaður um málþóf Ólafur F. Magnússon lagði í fyrradag til á borgarstjórnarfundi að heimildir til niðurrifs sjö gamalla húsa yrðu dregnar til baka. Húsin eru milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og fimm þeirra eru frá 19. öld. Innlent 13.10.2005 19:20
Íslensk sérleyfi seld til útlanda Íslensk fyrirtæki í útrás nýta sér í auknum mæli sérleyfi sem þau selja í útlöndum. Sérleyfi, eða svokallað „franchise“, hefur verið nokkuð áberandi á Íslandi undanfarin ár, þ.e.a.s. að íslensk fyrirtæki stofni fyrirtæki hér á landi á erlendu sérleyfi sem þau hafa keypt en nú virðist sem verið sé að snúa fyrirkomulaginu við. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:20
Kjartan stopp í Reykjafirði í gær Kjartan Jakob Hauksson ákvað að halda kyrru fyrir í Reykjafirði í fyrrinótt og í gær vegna hvassviðris. Í mestu hviðunum fór vindurinn upp í 20 m/s. "Veðrið er að detta niður," sagði Kjartan þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Hann gerði ráð fyrir því að komast aftur af stað í nótt eða nú í morgunsárið. "Það spáir hæglætisveðri næstu daga." Innlent 13.10.2005 19:20
Rafrænt vegabréf skilyrði Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sendi í dag út tilkynningu þar sem minnt er á að enginn ferðamaður komist inn í landið án vegabréfsáritunar nema hann framvísi rafrænu vegabréfi frá og með 26. júní nk. Flugfélög sem flytja farþega án tilskilinna ferðapappíra mega eiga von á sekt upp á rúmar 200 þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:20
Lyfjakostnaður aukist um þriðjung Íslendingar eyða um 200 þúsund krónum á mann í heilbrigðismál á ári hverju. Aðeins fjögur lönd í heiminum eyða meiru en útgjöld til heilbrigðismála hafa aukist í öllum OECD-löndunum. Lyfjakostnaður hefur að meðaltali aukist um rúman þriðjung á fimm árum. Innlent 13.10.2005 19:19
Læknar átaldir fyrir morfínávísun Landlæknisembættið hefur að undanförnu átalið hóp lækna fyrir óeðlilegar ávísanir á morfínlyf og önnur ávanabindandi lyf. Sumir hafa fengið áminningu. Sérstaklega er tekið í lurginn á þeim sem hagnast með þessum hætti. Nytsemi nýs lyfjagagnagrunns er farin að skila sér. Innlent 13.10.2005 19:19
Tekur upp hljóð úr geimnum Íslenski verkfræðingurinn Eggert Guðmundsson starfar á dansk-bandarísku vísindastöðinni Kellyville á Grænlandi við það að taka upp hljóð frá himingeimnum. Gögnin eru síðan rannsökuð af hernaðarlegum og borgaralegum sérfræðingum í Bandaríkjunum. Væntanlega með það meðal annars í huga að rannsaka líf úti í geimnum. Innlent 13.10.2005 19:19
Hringróðurinn: Hvíldi sig í gær Kjartan Jakob Hauksson, sem nú rær hringinn í kringum landið, hélt kyrru fyrir fram eftir degi í gær og hvíldi sig eftir átökin í fyrsta áfanga. Það viðraði ekki vel til siglinga um morguninn en búist var við betra veðri í dag. Hann dvaldist yfir daginn í góðu yfirlæti hjá ættingjum sínum í Reykjafirði. Innlent 13.10.2005 19:19
Undrast aðgerðaleysi stjórnvalda Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitastjóri í Raufarhafnarhreppi, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með lítinn stuðning stjórnvalda, sem vilyrði var gefið fyrir þegar staðurinn gekk í gegnum mikla erfiðleika. "Ég hélt að það væri meira kjöt á þessum beinum ríkisstjórnarinnar, því það hefur ekki farið mikið fyrir þeim stuðningi sem talað var um". Innlent 13.10.2005 19:19
Vilja heilsulind að Nesjavöllum Til stendur að hefja rekstur heilsulindar í ætt við þá sem rekin er í Hveragerði, á Nesjavöllum. Orkuveita Reykjavíkur á í samningaviðræðum við félag sem vill nýta jarðvarmann þar og segja forsvarsmenn félagsins að gangi allt vel, geti framkvæmdir hafist á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:19
Helmingur reiðhjóla ólöglegur Tæplega helmingur allra nýrra reiðhjóla, sem seld eru í verslunum á höfuðborgarsvæðinu, er ólöglegur, samkvæmt athugun sem Brautin, bindindisfélag ökumanna, hefur gert á sölu reiðhjóla. Í úttektinni voru einungis stærstu hjólreiðaverslanirnar athugaðar. Í ljós kom að nær engin verslun var með allan þann búnað sem skylt er að hafa á reiðhjóli en oftast vantaði keðjuhlíf, glitmerki, bjöllu og lás. Innlent 13.10.2005 19:19
39 hrefnur verði veiddar í ár Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyft verði að veiða 39 hrefnur til vísindarannsókna í ár. Sjávarútvegsráðherra segir að hrefnur verði veiddar þetta sumarið en hefur ekki tekið ákvörðum um hversu margar þær verða. Innlent 13.10.2005 19:19
Eimskip semur um smíði skipa Eimskipafélag Íslands hefur gert samninga um smíði tveggja fullkominna frystiskipa og hefur félagið auk þess möguleika á fjórum skipum til viðbótar. Kaupverð skipanna tveggja er um 2,6 milljarðar íslenskra króna. Forráðamenn Eimskipafélagsins segja að samningarnir séu liður í áætlunum félagsins um að verða leiðandi flutningafyrirtæki á sviði frysti- og kæliflutninga á Norður-Atlantshafi. Innlent 13.10.2005 19:19
Söfnun grunnskólabarna að ljúka Söfnuninni Börn hjálpa börnum er að ljúka og hafa meira en átta milljónir króna safnast. Söfnunin, sem er á vegum ABC barnahjálpar hófst 15. apríl þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gaf í söfnunina og forveri hans Vigdís Finnbogadóttir einnig. Það voru íslensk grunnskólabörn sem gengu á milli fólks með söfnunarbauka. Innlent 13.10.2005 19:19
Segir aðgerðir munu skila árangri Stjórn Landakotsskóla telur að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til til lausnar fjárhags- og stjórnunarvanda skólans eigi eftir að skila árangri og tryggja grundvöll starfseminnar til framtíðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn skólans sendi frá sér í dag, en undir hana skrifar Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar Landakotsskóla. Innlent 13.10.2005 19:19
Fangelsuð fyrir búðarhnupl Kona á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd í níutíu daga fangelsi fyrir þjófnað. Innlent 13.10.2005 19:19
Slapp við frekari refsingu Maður á þrítugsaldri slapp við refsingu eftir að hann var fundinn sekur um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni og lamið hann ítrekað í höfuðið. Innlent 13.10.2005 19:19
Þriðja mesta verðbólga innan OECD Ísland er með þriðju mestu verðbólguna af OECD-ríkjunum. Orkuverð hefur hækkað verulega hér á landi samkvæmt athugun OECD. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:19
Mynd á þili er komin út "Þetta er menningarlegt stórvirki," segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi en í gær kom út á vegum JPV útgáfu bókin Mynd á þili eftir Þóru Kristjánsdóttur list- og sagnfræðing. Innlent 13.10.2005 19:19
Skorrdælingum hótað öllu illu Skorrdælingar mega þakka fyrir ef börn þeirra fá pláss í leikskólanum þegar eftirspurn eftir leikskólaplássi eykst. Nágrannarnir hyggjast beita þá hörðu eftir að þeir höfnuðu sameiningu. Innlent 13.10.2005 19:19
Helmingun þorskveiða við Færeyjar Alþjóða hafrannsóknarráðið leggur til að dregið verði úr sókn í þorskstofninn við Færeyjar um 50 prósent á næsta ári. Jakob Rænert yfirmaður fiskirannsókna í Færeyjum sagði í samtali við Fréttastofu útvarpsins í gær að þetta væri afleiðing ofveiði og rangrar ráðgjafar Jóns Kristjánssonar fiskifræðings. Jón vísar því hins vegar algerlega á bug. Innlent 13.10.2005 19:19
Aldrei nein uppskeruhátíð Sjávarútvegurinn bíður enn eftir að spá um auknar þorskveiðar rætist. Ýmsir eru að vísu orðnir vondaufir eftir 20 ára bið en gleðjast þó yfir góðu ástandi ýsustofnsins og góðum fyrirheitum um aukna veiði á öðrum tegundum. Innlent 13.10.2005 19:19
Skipulagsmál helsta kosningamál Tæpu ári fyrir næstu borgarstjórnarkosningar bendir flest til þess að skipulagsmál verði helsta kosningamálið. Fyrir rúmri viku kynntu sjálfstæðismenn hugmyndir um eyjabyggð í Reykjavík en í dag kynnti borgarfulltrúi R-listans tillögu um framtíðarbyggð á Vatnsmýrarsvæðinu með tengingu við Álftanes. Innlent 13.10.2005 19:19