Innlent
Framlög val fyrirtækja og banka Það sem fyrirtæki leggja í samfélagsleg verkefni umfram skýrar kröfur og skyldur verður að vera á frjálsum grundvelli og ráðast af vilja einstakra fyrirtækja, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Stjórnarformaður KB banka, segir bankana hafa tekið öflugan þátt í vexti og viðgangi þeirra fyrirtækja sem hvað mest hafa vaxið undanfarið í íslensku atvinnulífi. Innlent 13.10.2005 19:23
Vopnað rán í Lyf og heilsu Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum. Innlent 13.10.2005 19:23
Lyfjum stolið í Austurveri Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki. Innlent 13.10.2005 19:23
Hundar bannaðir í miðbænum? Útlit er fyrir að innan tíðar verði óheimilt með öllu að fara með hunda um miðbæ Ísafjarðar. Undanþegnir verða hundar sem notaðir eru við löggæslu- og björgunarstörf og aðstoðarhundar sjúkra og blindra einstaklinga. Innlent 13.10.2005 19:23
Stuð og friður í Poppminjasafninu Sýning Poppminjasafns Íslands, „Stuð og friður - áttundi áratugurinn“, var opnuð í Duushúsum í Reykjanesbæ í gær. Sagt er frá tímabilinu 1969 til 1979 í máli og myndum, tískan og tíðarandinn rifjuð upp og það sem helst var á döfinni í tónlistinni. Lífið 13.10.2005 19:23
Fengu kosningarétt fyrir 90 árum Á morgun, þann 19. júní, verða níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi. Kvennasamtök hafa af því tilefni sameinast um hátíðar og baráttudagskrá alla helgina og hefst hún í Hólavallakirkjugarði eftir um það bil hálfa klukkustund. Þar verður þeirra kvenna sem börðust fyrir þessum réttindum minnst og blóm lögð á legsteina þeirra. Innlent 13.10.2005 19:23
Hrossakastínu sem liggur á Fimmtán ára hrossakastanía blómstraði úti í garði í Hveragerði á dögunum. En hvað er svona merkilegt við það? Innlent 13.10.2005 19:23
Skýrði ekki frá öllum hlutnum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi síðastliðinn mánudag að hann og fjölskylda hans ættu 25 prósenta hlut í Skinney-Þinganesi. Á fundi fjárlaganefndar þremur dögum síðar kom fram að hlutur fjölskyldunnar í fyrirtækinu er níu prósentustigum hærri, eða 34 prósent. Innlent 13.10.2005 19:23
Sammála um ábyrgð stórfyrirtækja Í þjóðhátíðarræðu sinni í gær lét Halldór Ásgrímsson í ljós þá skoðun að stórfyrirtæki með góða afkomu ættu að bera samfélagslega ábyrgð og taldi eðlilegt að þau tækju þátt í mikilvægum málum á sviði nýsköpunar, menningar og velferðar. "Þeim ber að nýta hagnað til að byggja upp," sagði Halldór. Innlent 13.10.2005 19:23
Fordæma gæsluvarðhaldsúrskurð Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga fordæmir gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Bretanum Paul Gill vegna mótmælaaðgerða hans og tveggja Íslendinga á Nordica-hóteli 14. júní sl. þar sem hlutaðeigendur slettu skyri á gesti á álráðstefnu. Innlent 13.10.2005 19:23
Barátta þvert á flokka „Þetta er barátta sem gengur þvert á flokka og sem allar konur geta sameinast um,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri við upphaf hátíðahalda í tilefni af því að á morgun eru níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Innlent 13.10.2005 19:23
Ólæti á Akureyri Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð. Innlent 13.10.2005 19:23
Þrjóska og Pink Floyd í farteskinu Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson eyðir sumarfríinu í ferðalag til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Hann lagði af stað í gær frá Vogum með þrjóskuna í farteskinu og óminn af Pink Floyd í eyrunum. Lífið 13.10.2005 19:23
Björgunarsveit náði í konu Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Dalvík voru kallaðar út um fimm leytið í gær til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum í Ytri Árdal. Kona í hópnum hafði dottið og ökklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn og fluttu þeir hana í körfu að sjúkrabíl sem beið við veginn. Innlent 13.10.2005 19:23
Útiloka ekki frekari framúrkeyrslu Landbúnaðar- og heilbrigðisráðuneytin gætu aftur farið fram úr fjárlögum á þessu ári. Landbúnaðarráðuneytið fór hlutfallslega mest fram úr en heilbrigðsmálaráðuneytið mest í krónum talið. Innlent 13.10.2005 19:23
Líðan mannsins stöðug Líðan mannsins sem slasaðist í bílveltu við Varmalæk í Borgarfirði í gær er stöðug. Hann mun gangast undir aðgerð síðar í dag. Ungum manni sem fluttur var á Landspítalann í gær eftir bílslys í Öxnadal sem kostaði tvo vini hans lífið er enn haldið sofandi í öndunarvél. Innlent 13.10.2005 19:23
Flaggað í ljósastaur við Kárahnúka Íslenski fáninn var dreginn upp á ljósastaur utan við skála á Kárahnúkum í tilefni þjóðhátíðar í fyrradag. "Þeir hafa greinilega ekki haft fánastöng á Kárahnúkum," segir Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi um þessa óhefðbundnu flöggun. "Það er ætlast til þess að fáninn sé dreginn upp að húni." Innlent 13.10.2005 19:23
Alvarlega slasaður eftir bílveltu Bíll valt við bæinn Varmalæk í Borgarfirði um miðnætti í gærkvöld. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út. Talið er að bíllinn hafi farið að minnsta kosti eina veltu og að ökumaðurinn hafi ekki verið í belti. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en ekki í lífshættu. Innlent 13.10.2005 19:23
Enn í gjörgæslu Einn unglingspiltanna úr slysinu sem varð í Öxnadal á þjóðhátíðardaginn liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítala-Háskólasjúkrahúss. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Innlent 13.10.2005 19:23
Stelast í gegnum göngin Verktakinn hefði getað skilað Fáskrúðsfjarðargöngum tilbúnum í síðasta mánuði, ef Vegagerðin hefði greitt flýtifé. Göngin verða því ekki opnuð fyrr en í október. Austfirðingar hafa litla biðlund og stelast í gegn, starfsmönnum til mikillar armæðu. Innlent 13.10.2005 19:23
Sammála en greinir á um aðferðir Stjórnarandstaðan er sammála forsætisráðherra um að tímabært sé að stokka upp í stjórnsýslunni. Samfylkingin leggur til fækkun úr þrettán ráðuneytum í níu en Vinstri-grænir telja réttast að hver ríkisstjórn ráði því hvernig starfsfólki og ráðuneytum sé raðað niður hverju sinni. Innlent 13.10.2005 19:23
Þróunaraðstoð í Asíu í fyrsta sinn Ísland er, í fyrsta skipti, að hefja þróunaraðstoð við land í Asíu en Íslendingar hafa tekið að sér að aðstoða við uppbyggingu sjávarútvegs í Srí Lanka. Einnig er verið að nema land í Mið-Ameríku. Erlent 13.10.2005 19:23
Áhersla á uppbyggingu sjávarútvegs Sérstök áhersla verður lögð á aðstoð við uppbyggingu í sjávarútvegi í þeirri aðstoð sem framundan er á vegum Íslendinga í Srí Lanka. Þróunarsamvinnustofnun hefur unnið að undirbúningi verkefnisins í nokkurn tíma en í næstu viku verður samningur um aðstoðina undirritaður. Erlent 13.10.2005 19:23
Taka gagnrýninni ekki illa Það sem fyrirtæki leggja til samfélagsins, fyrir utan skatta og skyldur og að fara eftir lögum og reglum, verður að vera á sjálfviljugum grundvelli, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir forsætisráðherra hafa orðað hlutina á sinn hátt í hátíðarræðu sinni í gær og að samtökin hafi ekkert við það að athuga. Innlent 13.10.2005 19:23
Róleg nótt í borginni Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri. Innlent 13.10.2005 19:23
Vel gengið um tjaldstæðin Engin teljandi vandamál komu upp á tjaldsvæði Akureyringa á Hömrum aðfaranótt 17. júní. Ölvun var í lágmarki og umgengni góð en á milli þrjú og fjögur hundruð gestir voru á tjaldsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:23
Róleg þjóðhátíð 17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga. Innlent 13.10.2005 19:23
Tveir dóu í umferðarslysi Tveir unglingspiltar létu lífið þegar bifreið sem þeir voru í lenti utan vegar í mynni Öxnadals aðfaranótt föstudags. Innlent 13.10.2005 15:34
Þjóðhátíð í Reykjavík hafin Þjóðhátíð í Reykjavík hófst þegar forseti borgarstjórnar lagði blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar klukkan tíu í morgun. Skipulögð dagskrá er fram eftir öllum degi víða um miðborgina. Lífið 13.10.2005 15:33
Rjómablíða í Reykjavík Það var sannkölluð 17. júní stemning í miðbæ Reykjavíkur enda léku veðurguðirnir við hvern sinn fingur. Borgarbúar spókuðu sig léttklæddir um borgina, sem skartaði sínu fegursta. Á Arnarhóli var skipulögð dagskrá langt fram á nótt. Innlent 13.10.2005 15:34