Innlent
Ný stjórn Árvakurs Ragnhildur Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson eru ný í stjórn Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins en þau eru fulltrúar nýrra hluthafa. Á hluthafafundi félagsins í dag var ný stjórn skipuð og var hún sjálfkjörin. Innlent 22.11.2005 18:25
KEA félagar fá sexþúsund króna inneign Átta þúsund félagar KEA fá senda inneignarmiða upp á sexþúsund krónur senda heim á næstunni. Í ljósi góðs gengis félagsins á árinu 2004 ákvað stjórn félagsins síðastliðið vor að fjármunirnir yrðu notaðir til að leita viðskiptakjara fyrir félagsmenn. Innlent 22.11.2005 16:35
Byggðastofnun ekki forystuafl Byggðastofnun er ekki það forystuafl í uppbyggingu atvinnustarfssemi á landsbyggðinni sem ætla mætti og sinnir ýmsum grundvallarhlutverkum ekki nægilega vel. Innlent 22.11.2005 14:43
Tundurdufl á bryggjunni á Eskifirði Óskað hefur verið eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar vegna tundurdufls sem áhöfn þýsks togara setti upp á bryggjunni á Eskifirði. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú á leið þangað með tvo sprengjusérfræðinga um borð. Innlent 22.11.2005 15:10
Æðstu stjórnendur enn í lykilstöðum Ríkislögreglustjóri segir um rannsókn sína á ólöglegu verðsamráði stóru olíufélaganna að ætluð brotatilvik skipti hundruðum, en sjö æðstu stjórnendur félaganna þriggja, sem hvað oftast komu við sögu við rannsókn samkeppnisyfirvalda á sama máli, gegna enn lykilstjórnunarstöðum í olíufélögunum. Innlent 22.11.2005 14:21
Velti bíl sínum á Miklubraut Ökumaður fólksbíls slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á Miklubraut í Reykjavík um tólfleitið með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumanninum var mjög brugðið en virtist ekki alvarlega slasaður, í það minnsta gekk hann frá bifreið sinni. Þaðan var hann fluttur á slysadeild til athugunar. Innlent 22.11.2005 12:41
Tollar lækka verulega Útflytjendur íslenskra vara til Rússlands hafa ástæðu til að fagna því tollar á þær lækka verulega í kjölfar þess að Rússland fær ástæða að Alþjóða viðskiptastofnuninni. Samningur milli Íslands og Rússlands þessa efnis var undirritaður í Moskvu á dögunum. Innlent 22.11.2005 10:55
Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári. Innlent 22.11.2005 08:56
Fjallar ekki um ákæruliðina átta Sérstakur saksóknari sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í Baugsmálinu hefur aðeins vald í þeim 32 ákæruliðum Baugsmálsins sem vísað var frá dómi en ekki þeim átta sem eftir standa af 40 upphaflegum ákæruliðum.. Bogi Nilsen ríkissaksóknari fer með ákæruvald í þeim liðum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp rétt rúmlega níu. Innlent 22.11.2005 09:09
Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. Innlent 22.11.2005 06:41
Minnst traust til Halldórs Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, er sá stjórmálamaður sem mests trausts nýtur meðal almennings samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 22,4 prósent treysta honum best. Geir er afskaplega traustur stjórnmálamaður og sýnir það í störfum sínum. Því koma þessar niðurstöður lítið á óvart segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Innlent 21.11.2005 22:25
Orkuveitan tapaði dómsmáli Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar. Innlent 22.11.2005 06:33
Missti báða fæturna í hörmulegu bílslysi Særún Sveinsdóttir Williams stórslasaðist í þriggja bíla árekstri á fjölfarinni hraðbraut í Omaha í Bandaríkjunum. Hún telur sig hafa misst fæturna þegar bíll vinnufélaga hennar lenti á henni. Innlent 21.11.2005 22:25
Nýrnasjúklingar óttast framtíð blóðskilunardeildar Nýrnasjúklingar sem þurfa að leita til blóðskilunardeildar eru uggandi yfir þeirri stöðu sem komin er upp á blóðskilunardeild. Þeir óttast að allt stefni í óefni en allar líkur eru á að átta af sextán starfsmönnum deildarinnar láti af störfum um áramótin. Innlent 21.11.2005 22:36
Skera úr um hæfi dómsmálaráðherra á morgun Pétur Guðgeirsson héraðsdómari og tveir meðdómendur hans munu kveða upp úr um hæfi Björn Bjarnasonar dómsmálaráðherra við skipun sérstaks saksóknara í Baugsmálinu svokallaða fyrir hádegi á morgun. Verjendur sakborninga fóru fram á það við þinghald í málinu nýverið að dómarar skæru úr um hæfi Björns. Innlent 21.11.2005 21:38
Tekið verður harðar á þeim starfsmannaleigum sem brjóta af sér Fyrirtæki sem nýta sér starfsmannaleigur þurfa ekki að svara til ábyrgðar reynist brotið á starfsmönnum. Þetta er niðurstaða starfshóps um lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga. ASÍ hefur skorað á ráðherra að sú ábyrgð verði engu að síður í væntanlegum lögum. Innlent 21.11.2005 21:32
Rækjustofnar á grunnslóð í algjöru lágmarki Lítið er af rækju á hefðbundnum miðum samkvæmt niðurstöðum haustkönnunar Hafrannsóknarstofnunar. Rækjustofnar á grunnslóð mældust í algjöru lágmarki og 2005 árgangur þorks mældist sá minnsti á grunnslóð síðan árið 1991. Innlent 21.11.2005 20:07
Talið að kviknað hafi í út frá eldavélahellu Talið er að kviknað hafi í út frá eldavélahellu í heimahúsi á Ísafirði í dag. Slökkvilið á Ísafirði var kallað út rétt fyrir klukkan sex síðdegis. Íbúi í húsinu hringdi á slökkvilið sem kom á staðin og slökkti eldinn. Um minniháttar bruna var að ræða en kviknað hafi lítillega í klæðningu og í eldhúsi. Innlent 21.11.2005 20:45
Litháar dæmdir fyrir að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni með Norrænu Tveir Litháar voru dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands á föstudag fyrir að hafa smyglað tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu. Innlent 21.11.2005 19:51
Heilbrigð skynsemi fyrir farsímanotendur Og Vodafone ætlar á næstu dögum að hefja sölu á Simply farsímum frá Vodafone Global Plc. Simply símtæki eru sérstaklega hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga, þeirra sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu leyti við tal og SMS. Jafnframt er í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply notendur. Innlent 21.11.2005 19:41
Heilbrigðisráðherra segir Alfreð hafa verið valinn vegna reynslu í að stýra byggingaframkvæmdum Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir hrókeringar í borgarstjórnarflokki Framsóknarflokksins ekki tengda skipun hans á Alfreð Þorsteinssyni í stöðu framkvæmdastjóra um byggingu hátæknisjúkrahúss. Hann vísar því sömuleiðis á bug að Orkuveituhúsið hafi verið óeðlilega dýrt. Innlent 21.11.2005 18:21
Ekki ljóst hvernig slæm staða Byggðarstofnunar verði leyst Byggðastofnun, sem á að tryggja jafnan aðgang landsbyggðafyrirtækja að fjármagni á við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lömuð vegna fjárskorts. Hún er hætt að lána og fyrr á árinu var styrkveitingum og hlutafjárkaupum hætt. Valgerður Sverrisdóttir vill ekkert segja um hvernig staða stofnunarinnar verði leyst. Innlent 21.11.2005 18:12
Kaupmáttur eldri borgara minnkað um 1,6% frá 1988 Kaupmáttur eldri borgara hefur minnkað um 1,6% ef litið er aftur til 1988. Sé miðað við síðustu tíu ár hefur kaupmáttur eldri borgara vaxið lítillega en þó aðeins um einn sjötta af kaupmáttaraukningu ráðstöfunartekja í landinu. Innlent 21.11.2005 17:45
Byggðasafn Vestmannaeyja er á móti byggingu landnámsskála í Herjólfsdal yggðasafn Vestmannaeyja er mótfallið byggingu Landnámsbæjar í Herjólfsdal á meðan endurmat á mögulegum fornleifum á svæðinu hefur ekki farið fram. Hlíf Gylfadóttir, safnvörður, tekur þó fram að málið snúist ekki um að byggðasafnið sé á móti byggingu landnámsskála út af fyrir sig, heldur um verndun dalsins og hættu á skemmdum á mögulegum fornleifum. Innlent 21.11.2005 17:41
Ný starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir tekin í notkun á morgun Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, tekur nýja starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir í notkun á morgun. Starfsstöðin verður í Bolholti í Reykjavík og starfrækt af heilsugæslunni og Hugarafli. Þjónustan mun byggja á samstarfi fagfólks, þeirra sem njóta þjónustunnar og aðstandendum þeirra. Innlent 21.11.2005 17:18
Ófærar vegna élja og hálku Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjall eru ófær vegna éljagangs og hálku. Él og hálka gera ökumönnum víða erfitt fyrir á Vesturlandi og á Vestfjörðum auk þess sem hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði. Innlent 21.11.2005 17:04
Nokkur hálka og hálkublettir um allt land Nokkur hálka og hálkublettir eru víða um land. Hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði. Þá er einnig hálka og éljagangur víða á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjalli og óveður er á Steingrímsfjarðarheiði. Innlent 21.11.2005 17:00
Verðbólga fer undir þolmörk Verðbólga fer niður fyrir efri þolmörk verðbólgumarkmiða Seðlabankans í næsta mánuði ef verðbólguspá Greiningardeildar KB-banka gengur eftir. Innlent 21.11.2005 16:46
Unglingspiltur keypti gas til að sniffa Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku ábendingu um unglingspilt sem keypti gas í verslun á Selfossi í þeim tilgangi að sniffa gasið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vitað hver pilturinn er og hafa foreldrar hans verið látnir vita. Innlent 21.11.2005 16:23
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í alvarlegu umferðarslysi í Norðurárdal í Borgarfirði í gær hét Sigurður Jóhann Hendriksson. Sigurður Jóhann var fæddur í mars árið 1946 og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Sigurður Jóhann var til heimilis að Reyrengi 32 í Reykjavík. Innlent 21.11.2005 15:30