Innlent
Mikilvægt að fá fagmann til að tengja gaseldavélar á heimilum Gasnotkun á heimilum hefur verið að aukast á síðustu árum en gaseldavélar og gashelluborð hafa sjaldan verið eins vinsæl. Óhætt er að segja að lítill blossi geti hæglega valdið miklu báli sé ekki fyllsta öryggis gætt. Mikilvægt er að vanda til verka þegar gas er tengt við eldunartæki á heimilum og þá þarf að yfirfara búnaðinn reglulega. Innlent 25.1.2006 17:16
Gæludýr á um 30% heimila í landinu Íslendingar eru greinilega miklir dýravinir en gæludýr eru á um þriðjungur heimila í landinu. Kettir eru vinsælastir allra gæludýra og þar á eftir kemur besti vinur mannsins, hundurinn. Innlent 25.1.2006 17:11
Best að sitja sem fastast Kristinn H. Gunnarsson segist ekki á þeim buxunum að segja af sér þingmennsku þrátt fyrir harða gagnrýni Gunnars Braga Sveinssonar, sveitarstjórnarmanns og miðstjórnarmanns í Framsóknarflokknum, sem segir réttast að Kristinn láti af þingmennsku. Innlent 25.1.2006 17:03
Fækkar sveitarfélögum enn? Atkvæðagreiðsla um sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag fer fram næstkomandi laugardag. Íbúar sveitarfélaganna tveggja samþykktu tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð í október 2005 og því verður kosið aftur í sveitarfélögunum tveimur. Samþykki íbúar þeirra sameiningu verður til nýtt sveitarfélag með 2.300 íbúa. Við það mun sveitarfélögum í landinu enn fækka og verða þau þá 85 er gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Innlent 25.1.2006 16:49
Þoka á Hellisheiði og í Þrengslum og víða hálka Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis kemur fram að þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum og ýmist hálka eða hálkublettir á milli Kvískerja og Víkur í Mýrdal, á Sunnanverðum Vestfjörðum, á Eyrarfjalli, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, Lágheiði og víða á Norðausturlandi. Innlent 25.1.2006 16:34
Refsingar krafist vegna einkadans í Goldfinger Fyrirtaka var í dag í máli sem sýslumaðurinn í Kópavogi rekur á hendur rekstraraðila og tveggja dansmeyja næturklúbbsins Goldfinger fyrir brot á lögreglusamþykkt. Dansmeyjarnar tvær eru sakaðar um að hafa sýnt nektardans í lokuðu rými með viðskiptamanni í næturklúbbnum að kvöldi föstudagsins 7. október 2005. Rekstraraðili klúbbsins er sakaður um að hafa staðið fyrir sýningunni og krefst ákærandi þess að öll þrjú verði dæmd til refsingar. Innlent 25.1.2006 16:15
Fljúga tvisvar í viku frá Akureyri Iceland Express flýgur tvisvar í viku milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar. Flugið hefst 30. maí næstkomandi og kostar flugið hvora leið tæpar átta þúsund krónur auk flugvallarskatta. Flogið verður á þriðjudögum og fimmtudögum en farmiðasala hefst í næstu viku. Innlent 25.1.2006 15:59
Auglýsa gæslu án gjalds Foreldravefurinn Barnanet.is hefur opnað svæði þar sem dagforeldrar og aðrir þeir sem bjóða barnagæslu geta auglýst þjónustu sína án gjalds. Þetta er að sögn gert vegna þess ástands sem skapast hefur á leikskólum að undanförnuj vegna manneklu. Aðstandendur vefsins hvetja foreldra til að nýta sér þjónustuna. Innlent 25.1.2006 14:14
Fákeppni um sólarlandaferðir Með kaupum Sumarferða á Ferðaskrifstofu Íslands í gær bítast aðeins tvær ferðaskrifstofur um sólar- og orlofsferðir Íslendinga til útlanda. Rétt er að árétta að eins og staðan er á ferðamarkaðnum þá sjá flugfélögin Icelandair og Iceland Express um þrjá fjórðu hluta þeirra ferða sem Íslendingar fara. Ferðaskrifstofurnar bítast því aðeins um fjórðung markaðarins. Auk þess hefur sænska ferðaskrifstofan Appolo nýhafið sölu ferða hérlendis og er enn óþekkt stærð á markaði. Innlent 25.1.2006 12:03
Kristinn kommi og María mey Fulltrúi í miðstjórn og sveitarstjórnarmaður Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar vill að Kristinn H. Gunnarsson, samflokksmaður hans, segi af sér þingmennsku. Mælirinn sé einfaldlega fullur. Sveitarstjórnarfulltrúinn kallar Kristin komma, en líkir honum jafnframt við Maríu mey. Innlent 25.1.2006 12:02
Athugasemdir við stækkun álvers Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert athugasemdir við umhverfismat vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík um helming. Deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir og bæjarstjórnin fellst ekki á að mengun aukist við stækkunina. Innlent 25.1.2006 11:16
Essó lækkar bensínverð Bensínverð lækkar um eina og hálfa krónu líterinn á afgreiðslustöðvum Essó í dag og líterinn af dísil- og gasolíu lækkar um krónu. Eftir þessa breytingu verður algengt verð í sjálfsafgreiðslu á höfuðborgarsvæðinu 111,70 krónúr. Innlent 25.1.2006 11:35
„Fráleit byggðastefna“ Það er fráleit byggðastefna að ráðast í stórfellda uppbyggingu áliðnaðar á Suðvesturlandi á undan uppbyggingu álvers á Norðurlandi. Þetta segir í nýrri ályktun bæjarstjórnar Húsavíkurbæjar. Innlent 25.1.2006 10:23
Ákærð fyrir að aka ölvuð á unnusta sinn Ríkissaksóknari hefur ákært tvítuga konu fyrir alvarlega líkamsárás fyrir að aka ölvuð og af ásetningi á unnusta sinn og slasa hann. Innlent 25.1.2006 10:18
Tveir teknir vegna ölvunaraksturs Lögreglan í Kópavogi stöðvaði tvo ölvaða ökumenn í nótt og munu þeir báðir missa ökuréttindin. Svo stöðvaði hún tvo til viðbótar, báða blá edrú, en báða réttindalausa, eftir að hafa misst ökuskírteinin vegna ölvunaraksturs.Það dregst því eitthvað á langinn að þeir fái ökuréttindi á ný, því þeir höfðu ekki fengis syndaaflausn. Innlent 25.1.2006 08:12
Kona ákærð fyrir að aka á kærasta sinn Ríkissaksóknari hefur ákært tvítuga konu fyrir alvarlega líkamsárás fyrir að aka ölvuð og af ásetningi á unnusta sinn og slasa hann. Atvikið varð á Flúðum í Árnssýslu í fyrrasumar, þegar unnustinn ætlaði að koma í veg fyrir að konan æki ölvuð. Þegar hún ók á hann kastaðist hann fyrst í framrúðuna, braut hana, þeyttist svo yfir bílinn og hafnaði í roti aftan við hann. Innlent 25.1.2006 08:07
Útgjöld aukast um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur Útgjöld heimilanna hafa aukist um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur þeirra frá tímabilinu 2001-2003 til tímabilsins 2002-2004 samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar. Þær leiða enn fremur í ljós að um gæludýr eru á þriðjungi heimila í landinu. Innlent 25.1.2006 00:15
Flughált á Steingrímsfjarðarheiði Vegagerðin varar við flughálku á Steingrímsfjarðarheiði. Hálka og hálkublettir eru einnig á sunnanverðum Vestfjörðum og á Eyrarfjalli. Hálka er á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði og þá er einnig hálka og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Hálkublettir eru á milli Kvískers og Víkur í Mýrdal. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Innlent 25.1.2006 07:12
Ekki riðið út frá Glaðheimum ef skipulagi verður breytt Formaður hestamannafélagsins Gusts segir ljóst að ekki verði riðið út frá félagssvæði þess í Glaðheimum í framtíðinni ef ný tillaga bæjaryfirvalda að deiliskipulagi á reitum nærri svæðinu verður samþykkt. Formaðurinn er þó vongóður um að tekið verði tillit til athugasemda félagsins. Innlent 25.1.2006 00:11
Stefnt að mikilli uppbyggingu umhverfis Hlemm Íbúum á svæðum umhverfis Hlemm gæti fjölgað um allt að þrjú þúsund á næstu árum ef nýtt deiliskipulag verður að veruleika. Fyrstu reitirnir koma að öllum líkindum til uppbyggingar strax á þessu ári. Innlent 25.1.2006 00:03
Setbergsskóli stækkaður Hafnarfjarðarbær tók formlega í notkun nýbyggingu við Setbergsskóla. Fánar blöktu við hún við skólann enda verið að taka í notkun nýja viðbyggingu við hann. Í henni er tvískiptanlegur íþróttasalur ásamt búning- og baðaðstöðu, fyrirlestrarsalur, þrjár kennslustofur, hópherbergi ásamt tilheyrandi rýmum. Með byggingunni er síðasta áfanganum að einsetningu grunnskólanna í Hafnarfirði lokið. Innlent 24.1.2006 22:51
Mengun vegna stækkunar álvers má ekki aukast Mengun vegna álvers í Straumsvík má ekki aukast að mati Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Afstaða bæjarstjórnar er skýr hvað þetta varðar. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan telur óhjákvæmilegt að einhver mengunaraukning verði við stækkunina. Innlent 24.1.2006 22:47
Íslensk stjórnvöld höfðu ekki vitund um mannrán og fangaflug Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki haft neina vitneskju um fangaflug á vegum Bandaríkjastjórnar en segist ekki geta fullyrt neitt um hvort slíkt hafi átt sér stað án þeirra vitneskju. Hann segir að íslensk stjórnvöld muni ekki leita frekari svara Bandaríkjamanna og telur ekki ástæðu til þess að þau sendi sjálfstæða fyrirspurn um málið til bandarískra stjórnvalda. Innlent 24.1.2006 21:59
Lægsta boð í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar 727 milljónir króna. Tilboð voru opnuð í dag í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar og reyndist lægsta boð 727 milljónir króna. Til stendur að sporna gegn hægri umferð á þessum kafla með fjölgun akreina milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika úr tveimur í fjórar. Innlent 24.1.2006 21:44
Enn fleiri uppsagnir á leikskólum í Kópavogi Tugir ófaglærðra starfsmanna á leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Átta starfsmenn leikskólans Dals skiluðu inn uppsagnarbréfum í dag. Myndmenntarkennari í skólanum fær um það bil sextíu þúsund krónum hærri laun í Reykjavík. Innlent 24.1.2006 21:36
Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur af erlendum uppruna Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur er af erlendum uppruna. Þessi börn eiga rætur að rekja til áttatíu og tveggja þjóða í öllum heimsálfum. Reykjavíkurborg kynnti fjölmenningarstefnu leikskóla Reykjavíkur í dag, en vonir eru bundnar við að þetta átak dragi úr brottfalli þessara barna úr skóla síðar á lífsleiðinni. Innlent 24.1.2006 21:28
Nýr líkbrennsluofn ekki keyptur fyrr en eftir tíu ár Kirkjugarðar Reykjavíkur telja ekki ástæðu til að kaupa nýjan líkbrennsluofn, fyrr en eftir tíu ár, þrátt fyrir að sá gamli sé að verða sextugur. Á síðustu árum hefur tekist að draga verulega úr brunalykt í nágrenni líkbrennslunnar með endurbótum á ofninum og með því að byrja líkbrennslu fyrr á daginn þegar flestir eru í fastasvefni. Innlent 24.1.2006 21:20
Líknardráp leyfð á Íslandi? Á Íslandi er dauðvona sjúklingum hjálpað til að lina þjáningar og stundum er tekin ákvörðun um að hætta læknismeðferð og sjúklingum leyft að deyja. Aðstoðarlandlæknir segir að það sé þó langur vegur frá líknardrápi. Hollensk kona sem býr hér á landi segir það einungis tímaspursmál hvenær líknardráp verði leyft á Íslandi. Faðir hennar fékk aðstoð við að binda enda á líf sitt á hollensku sjúkrahúsi. Innlent 24.1.2006 20:37
Mengunarkvótinn uppurinn Stækkun álversins í Straumsvík klárar það sem eftir er af mengunarkvóta Íslands, samkvæmt Kyoto-samningnum. Til að byggja fleiri álver þarf Ísland því annaðhvort að biðja um frekari undanþágur við endurskoðun samningsins eða kaupa mengunarkvóta frá öðrum ríkjum. Innlent 24.1.2006 20:07
Álver í Straumsvík tekið fram yfir álver í Helguvík Stjórn Landsvirkjunar tók stækkun álversins í Straumsvík fram yfir nýtt álver í Helguvík þar sem Alcan bauðst til að greiða hærra verð fyrir raforkuna. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin án samráðs við sig. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir þetta hins vegar hafa verið pólitíska ákvörðun. Innlent 24.1.2006 19:55