Innlent
Skaðbrenndir drengir vara við hættulegum leik Bjarki Jóhannsson og Andrés Valur Jóhannsson sem brenndust alvarlega þegar þeir fiktuðu með eldfimt efni í Grafarvogi í nóvember, vilja vara aðra krakka við að leika sér með eld og eldfim efni. Andrés Valur þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð, en Bjarki hefur legið á sjúkrahúsi frá slysinu. Innlent 9.2.2006 18:53
SÍF verður Alfesca SÍF hf. hefur breytt nafni sínu í Alfesca og samhliða því tekið upp nýtt fyrirtækismerki. Í tilkynningu frá félaginu segir að nýtt nafn og merki sé tilkomið vegna umfangsmikilla breytinga á starfsemi félagsins. Innlent 9.2.2006 17:53
Sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir ölvunarakstur. Maðurinn var jafnframt sviptur ökuréttindum ævilangt. Maðurinn hefur ítrekað gerst sekur um ölvunarakstur frá árinu 1997 og önnur umferðarlagabrot. Innlent 9.2.2006 17:34
Lóðaúthlutun hjá Sörla frestað Lóðaúthlutun á svæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði hefur verið frestað vegna nýrrar tillögu stjórnar félagsins að þéttingu hesthúsabyggðar við Sörlaskeið og Kaplaskeið. Þetta kemur fram á heimasíðu Sörla. Innlent 9.2.2006 17:33
Spassky og Friðrik tefla um helgina Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Friðrik Ólafsson, stórmeistari, munu tefla tveggja skáka einvígi á laugardaginn kemur. Spassky kemur hingað til lands á morgun og mun hann meðal annars flytja erindi um alþjóðlegan feril Friðriks Ólafssonar sem er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Erindið verður flutt á málþingi sem Skáksamband Íslands stendur fyrir á laugardaginn og er haldið í aðalbanka Landsbanka Íslands. Innlent 9.2.2006 17:06
Eitt barn smitaðist af alnæmi Yngsti Íslendingurinn sem hefur greinst með alnæmi var innan við fimm ára gamall og smitaðist frá móður. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttar þingmanns um alnæmissmit. Innlent 9.2.2006 16:51
Matfiskur lítt mengaður Sá fiskur sem veiddur er hér við land og ætlaður er til manneldis inniheldur mjög lítið magn af díoxíni, díoxínlíkum PCB efnum, skordýraeitri og plöntueitri. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins sem kynntar voru í dag. Innlent 9.2.2006 16:48
Engin lausn að leggja niður stofnanir Það er engin lausn að leggja leggja niður stofnanir því verkefni þeirra standa þá eftir. Þetta segir formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Viðskiptaráð sagðist í gær frekar vilja leggja niður stofnanir en sameina þær. Dæmi eru um að útgjöld stofnana hafi hækkað um hundruð milljóna eftir sameiningu. Innlent 9.2.2006 16:35
Lögum um þagnarskyldu verði breytt ef þurfa þykir Lagaákvæðum um þagnarskyldu heilbrigðisstétta verður breytt ef þau eru ekki nógu skýr varðandi það hvort stéttunum beri að tilkynna lögreglu um lögbrot sjúklinga sinna, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag. Hann telur sjálfur ákvæðin nógu skýr og að læknum beri að tilkynna um lögbrot sjúklinga sinna. Innlent 9.2.2006 15:51
Aðalmeðferð í Baugsmálinu nær til allra málsaðila Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í morgun að aðalmeðferð í Baugsmálinu skuli verða 20. og 21. febrúar og skuli ná til allra aðila málsins. Innlent 9.2.2006 14:06
300 nýir Sjálfstæðismenn á Akureyri frá áramótum Yfir 300 nýir félagar hafa skráð sig í Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri frá áramótum. Prófkjör fer fram um næstu helgi þar sem 20 bjóða sig fram í bæjarstjórn, sex konur og fjórtán karlar. Innlent 9.2.2006 14:00
Solla stirða tilnefnd til Emmy verðlauna Julianna Rose Mauriello, bandaríska stúlkan sem leikur Sollu Stirðu í þáttunum um Latabæ, hefur verið tilnefnd til Emmy verðlaunanna í ár fyrir frammistöðu sína í þáttunum. Innlent 9.2.2006 13:53
Skólamáltíðir ókeypis í Garðinum Bæjarráð í Garðinum á Reykjanesi hefur ákveðið að lækka gjöld fyrir skólamáltíðir í áföngum þannig að þær verði alveg ókeypis frá og með fyrsta september árið 2008. Innlent 9.2.2006 13:49
Saka Vestmannaeyjabæ um að hafa brotið jafnræðisreglu Bændasamtökin í Vestmannaeyjum, sem halda sauðfé á Heimaey, hafa leitað ásjár félagsmálaráðherra vegna meintra brota bæjaryfirvalda á jafnræðisreglu, og valdníðslu gegn þeim. Innlent 9.2.2006 13:46
Bankarnir lánuðu stjórnendum 5.5 milljarða 2004 Stjórnarmenn og æðstu stjórnendur þriggja íslensku viðskiptabankanna fengu samtals 5.5 milljarða að láni frá bönkunum árið 2004 og 2.7 milljarða árið þar á undan. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Þar er vísað til ársreikningar bankanna. Innlent 9.2.2006 13:22
Síminn kaupir í Kögun Síminn hefur keypt tæplega 27% hlut í Kögun og nemur hlutur Símans samtals 52 milljónum hluta að nafnverði. Samningur um kaupin var undirritaður í morgun. Innlent 9.2.2006 12:46
Stórfellt rekstrartap blasir við fjölda ferðaþjónustufyrirtækja Sex ferðaskrifstofur og hagsmunahópar um ferðamennsku á hálendinu gera þá kröfu til stjórnvalda að ferðaþjónusta og útivist í ósnortinni náttúru verði viðurkennd sem arðbær og mikilvæg atvinnugrein til jafns við aðrar atvinnugreinar. Nú blasi við stórfellt rekstrartap fjölda ferðaþjónustufyrirtækja vegna virkjanaframkvæmda, sem halda uppi allt of háu gengi krónunnar, en það kemur illa niðri á ferðaþjónustunni. Innlent 9.2.2006 12:20
Samfylkingin rauf ekki friðinn í fjölmiðlamálum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er ósammála því að fimm þingmenn flokksins hafi rofið friðinn í fjölmiðlamálum á þingi í gær með frumvarpi þar sem ýmsar skyldur eru lagðar á dreifiveitur ljósvakaefnis. Hún segir tvo þingmenn Sjálfstæðisflokks frekar hafa rofið friðinn með frumvarpi um að einkavæða Ríkisútvarpið að hluta. Innlent 9.2.2006 12:16
Avion Group kaupir Star Airlines Avion Group hefur keypt Star Airlines, annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Flugfloti félagsins samanstendur af 6 þotum og starfsmenn eru tæplega 500 talsins. Innlent 9.2.2006 12:11
Slökkviliðs-og sjúkraflutningarmenn mótmæla Hópur slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn komu saman í morgun fyrir utan Karphúsið til að mótmæla þeim töfum sem hafa orðið á samningaviðræðum. Viðræðurnar hófust loksins í morgun. Innlent 9.2.2006 11:03
Segja Samfylkinguna hafa stolið vinnu fjölmiðlahóps Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn tóku höndum saman, á Alþingi, í gær, og sökuðu Samfylkinguna um að hafa stolið vinnu fjölmiðlahóps Alþingis. Þingmönnum var heitt í hamsi. Innlent 9.2.2006 10:30
Avion Group kaupir annað stærsta leiguflugfélag Frakklands Avion Group hefur keypt franska leiguflugfélagið Star Airlines, sem er annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Flugfélagið á 6 þotur og starfsmenn þess eru 460. Félagið flytur 900 þúsund farþega á ári til tuttugu áfangastaða. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag. Innlent 9.2.2006 10:11
Evrópa græðir á frjálsri för launafólks Evrópa og einstök ríki græða á frjálsri för launafólks. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Innlent 9.2.2006 08:54
Ísland vænlegur kostur fyrir erlenda fjárfesta Ísland er þriðja vænlegasta land í heimi fyrir erlenda fjárfesta að mati bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Á undan Íslandi á listanum er Danmörk, sem trónir á toppnum, og Finnland. Á eftir Íslandi koma Bandaríkin og Bretland en á botninum situr Haítí, rétt fyrir neðan Laos og Angóla. Innlent 9.2.2006 07:51
Vill að Tyrkland komi á sáttum Tyrkland getur komið á sáttum milli Danmerkur og múslimskra ríkja, samkvæmt þingmanninum Hüsyin Arac sem á sæti á danska þinginu. Hüsyin hefur samið friðaráætlun sem hann hyggst kynna fyrir Anders Foch Rasmussen í dag. Forsætisráðherrann er sagður jákvæður fyrir hugmyndum þingmannsins, sem er af tyrkneskum uppruna. Hüsyin hefur heitið fullri aðstoð í að koma á sáttum, ásamt ráðgjöfum bæði í Tyrklandi og Danmörku. Erlent 9.2.2006 07:32
Stakk af án þess að borga Ungur maður hugðist leggja land undir fót frá Ísafirði í gær og lagði upp með nesti og nýja skó, og fullan geymi af bensíni. Hann læddist hinsvegar af stað án þess að greiða neitt fyrir varninginn og var lögreglunni tilkynnt um málið. Innlent 9.2.2006 06:53
Þrír sóttu um stöðu forstöðumanns á Kvíabryggju Þrjár umsóknir bárust um stöðu forstöðumanns fangelsins á Kvíabryggju. Á fréttavefnum Skessuhorni segir að dómsmálaráðherra skipi í embættið frá 1. apríl æstkomandi. Umsækjendur eru Geirmundur Vilhjálmsson fangavörður á Kvíabryggju, Sigþór Jóhannes Guðmundsson fangavörður í Hegningarhúsinu í Reykjavík og Þórður Björnsson skipstjórnarmaður. Umsóknarfrestur rann út 3. febrúar síðastliðinn. Innlent 9.2.2006 06:49
KEA tígullinn tekinn úr notkun KEA tígullinn, sem hefur verið merki Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri um margra áratuga skeið, heyrir sögunni til frá og með deginum í dag. Tígullinn hefur skreytt fána og fyrirtæki KEA í gegnum tíðina og verið eitt af einkennum Akureyrar þar sem tígullinn hefur trónað á stafni höfustöðva KEA í hjarta bæjarins, líkt og merki Eimskips gerði á höfuðstöðvum félagins í hjarta Reykjavíkur. Innlent 9.2.2006 06:52
Líklegt að ekkert verði úr áformum um jarðgöng Jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja verða líklega slegin úr pallborðinu. Ástæðan er sú að kostnaður er of mikill. Innlent 9.2.2006 00:18
Útgjöld hafa aukist vegna sameiningar Útgjöld ríkisins hafa aukist um 1,8 milljarða króna vegna sameiningar stofnanna. Hagræðing vegna sameingar hefur því verið enginn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Viðskiptaráðs Íslands. Innlent 8.2.2006 23:55