Innlent
Vilja hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra veitti viðtöku undirskriftarlista frá Kvenfálagi Lágafellskirkju í Alþingi í morgun. En konurnar vilja að bygging Hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ verði að veruleika. Kvenfélagskonurnar mættu með Salóme Þorkelsdóttur í fararbroddi í alþingi í morgun með undirskriftarlistann, sem Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra veitti móttöku. Innlent 9.3.2006 15:39
Minni innflutningur í febrúar Vöruinnflutningur nam 22 milljörðum króna hér á landi í febrúar en það er 3,5 milljörðum krónum minna en í janúar. Um bráðabirgðatölur er að ræða, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innflutningur á bílum tók kipp en búist er að hann minnki vegna gengislækkana á síðustu vikum. Viðskipti innlent 9.3.2006 16:12
ESB kannar möguleika Íslands á evrunni Embættismenn Evrópusambandsins í Brussel kanna nú hvort Ísland geti tekið upp evruna eða fengið aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins án þess að ganga í sambandið. Innlent 9.3.2006 16:10
Framboð Íslands með stuðning 60 ríkja Framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ hefur þegar fengið skriflega staðfestan stuðning um 60 ríkja af 191 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli utanríkisráðherra hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann sagði Ísland eiga vísan stuðning ýmissa annarra smáríkja og nefndi þar meðal annars að í Karíbahafinu væru fimmtán til tuttugu eyríki sem líklega myndu greiða Íslandi atkvæði sitt. Hann bætti því þó við að kosningar til alþjóðaembætta færu oft á annan veg en skriflegar stuðningsyfirlýsingar bentu til, enda væru kosningarnar leynilegar. Innlent 9.3.2006 15:29
Tók fyrstu skóflustungu án leyfis Steinunn Valdís Óskarsdóttir Borgarstjóri í Reykjavík tók fyrstu skóflustunguna að stórri viðbyggingu við Egilsshöll án þess þó að byggingaleyfi lægi fyrir framkvæmdunum. Það er fyrirtækið Nýsir sem stendur að þessum framkvæmdum en það hyggst reisa tíu þúsund fermetra nýbyggingu sunnan Egilshallar. Í nýbyggingunni verður fjögurra sala kvikmyndahús í eigu Sambíóanna sem mun rúma allt að 1.000 manns, 36 brauta keilusalur og þemasýning sem ber nafnið "Auga Óðins" en henni verður komið fyrir neðanjarðar. Innlent 9.3.2006 15:41
Þyrlupallurinn í Kolbeinsey hruninn að hluta Þyrlupallurinn í Kolbeinsey er að að stórum hluta hruninn. Þetta blasti við flugmönnum TF-SYNar þegar þeir fóru í eftirlitsflug um miðin nálægt Kolbeinsey í dag. Innlent 9.3.2006 15:26
Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland, segir danska viðskiptablaðið Børsen í dag, og talar um jarðskjálfta í íslensku fjármálakerfi. Sagt er að fjárfestingarbankinn Merill Lync, hafi kastað grjóti í íslensku fjármálavélina með skýrslu sinni um íslenska bankakerfið. Innlent 9.3.2006 15:16
Spítali greiði bætur fyrir heilsutjón Landspítalinn var í dag dæmdur til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í starfi sínu. Innlent 9.3.2006 14:20
Samningur um tónlistarhús undirritaður Borgarráð samþykkti fyrir sitt leyti samning um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík. Samningurinn verður undirritaður af menntamálaráðherra, borgarstjóra og fleirum í Ráðherrabústaðnum klukkan fimm í dag og verður NFS á staðnum með beina útsendingu. Innlent 9.3.2006 14:17
Borgarráð samþykkti einróma að úthluta Bauhaus lóð Borgarráð samþykkti einróma í dag að úthluta byggingarvörufyrirtækinu Bauhaus lóð við Úlfarsfell. Þar með lýkur tilraunum Bauhaus til að fá úthlutað lóð á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 9.3.2006 14:07
Tekjuafgangur Akureyrarbæjar 360 milljónir Heildarniðurstaða ársreikninga Akureyrarbæjar fyrir síðasta ár, sem lagðir voru fram í bæjarráði Akureyrar í dag, er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fjárhagurinn er traustur og er rekstrarniðurstaða samstæðunnar jákvæð um ríflega 360 milljónir króna. Áætlun hafði gert ráð fyrir 144,2 milljóna króna hagnaði. Viðskipti innlent 9.3.2006 13:31
Fengu þau skilaboð að verðið réði öllu Forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hafa boðið umfram gjaldskrá í lóð Urriðaholts í Garðabæ eftir að hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts að verðið réði úrslitum um hver fengi lóðina. Byko bauð ekki umfram gjaldskrá. Innlent 9.3.2006 11:20
Stjörnu-Oddi hlýtur Nýsköpunarverðlaunin í ár Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs fyrir árið 2006 voru afhent við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í morgun. Að þessu sinni hlaut fyrirtækið Stjörnu-Oddi verðlaunin en það vinnur að þróun og framleiðslu á mælitækjum sem eru það lítil að og handhæg að hægt er að setja þau á fiska. Innlent 9.3.2006 11:16
Bjóða ókeypis notkun milli innlendra heimasíma Og Vodafone býður nú viðskiptavinum sínum, sem nýta sér vildarþjónustuna Og1, að hringja ótakmarkað úr heimasíma sínum í alla innlenda heimasíma án endurgjalds. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á ótakmörkuð ókeypis símtöl milli innlendra heimasíma en viðskiptavinir greiða aðeins óbreytt venjulegt mánaðargjald. Innlent 9.3.2006 09:45
Erfiður morgunn Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Garðsvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. Bæði ökumaðurinn og farþegi í bílnum sluppu með skrámur, en voru vistaðir í fangageymslum í nótt. Innlent 9.3.2006 07:39
Lögregla hefur afskipti af hústökufólki Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af svonefndu hústökufólki, sem í stór auknum mæli er farið að hreiðra um sig í auðum húsum, einkum á svæði hundrað og einum. Innlent 9.3.2006 07:36
Sólveig gagnrýnd Stjórnarandstöðuþingmenn gripu enn til þess ráðs í gærkvöldi , að lengja mál sitt við aðra umræðu um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, til að tefja fyrir framgöngu málsins. Innlent 9.3.2006 07:22
Bíða milli vonar og ótta Hagsmunaaðillar á fjármálamarkaði bíða nú milli vonar og ótta eftir því hvað gerist á markaðnum í dag, eftir að krónan lækkaði um tæp þrjú prósent í gær og úrvalsvísitalan í Kauphöllinni lækkaði um rúm þrjú prósent á einum degi, sem telst til tíðinda þar á bæ. Innlent 9.3.2006 06:31
Kröftug uppsveifla FlyMe Enn eykst fjöldi þeirra sem ferðast með sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe. Farþegum fjölgaði um 49,5 prósent í febrúar samanborið við sama mánuð í fyrra en sams konar aukning var 44,4 prósent í janúar. Viðskipti innlent 8.3.2006 17:40
Segja áhættu kalla á hærra vaxtaálag skuldabréfa Krónan féll um þrjú prósent fyrri partinn í gær í kjölfar frétta af viðskiptahalla við útlönd og nýrrar skýrslu verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch þar sem dregin er í efa lánshæfiseinkunn íslensku bankanna. Merrill Lynch segist ekki spá krísu, en telur innbyggða áhættu í bankakerfinu. Viðskipti innlent 8.3.2006 17:39
Mikil umsvif í fasteignum Umsvif voru óvenju mikil á fasteignamarkaði í síðustu viku. Gengið var frá 206 kaupsamningum, 160 samningum um kaup á eignum í fjölbýli, 30 kaupsamningum um sérbýli og 16 samningum um annars konar eignir. Meðalupphæð samnings nam 23,6 milljónum króna, að því er fram kemur í hálffimm fréttum KB banka, þar sem vísað er í upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins. Viðskipti innlent 8.3.2006 17:39
Kaupa í Aktiv Kapital í Noregi FL Group hefur keypt tæplega 9 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Aktiv Kapital. Markaðsvirði hlutarins er um 4,7 milljarðar króna. Starfsemi félagsins skiptist í kaup á lánasöfnum sem eru í vanskilum, innheimtu viðskiptakrafna og umsýslu reikninga. Starfsemin er í ellefu löndum og var hagnaður í fyrra um 2,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 8.3.2006 17:39
Kæra rekstur fríhafnarinnar Samtök verslunar og þjónusta hyggjast kæra starfsemi komuverslunarinnar í Leifstöð til Eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingar samtakanna eru að ganga frá kærunni og vonast er til að hægt verði að leggja hana fram í næstu viku. Að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra samtakanna eru þau orðin langþreytt á ástandinu. Innlent 8.3.2006 22:14
Baráttufundur kvenna á Dubliners Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og af því tilefni efndi Feministafélagið Bríet til baráttufundar á Döbbliners í kvöld. Á fundinum sveif andi fyrri tíma yfir með viðeigandi veggspjöldum og slagorðum. Minnst var upphafs kvennabaráttunnar meðal annars með því að lesa úr ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887 og nútímafeministar ræddu um það sem stendur þeim næst. Innlent 8.3.2006 22:18
Ræða ekki mál Jónasar Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hyggst ekki taka mál Jónasar Garðarssonar, formanns félagsins, til umræðu á fundi stjórnarinnar en Jónas er ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyss. Jónas er ákærður fyrir brot á hegningarlögum og siglingalögum vegna slyssins sem varð aðfaranótt laugardagsins tíunda september síðastliðinn. Þau Friðrik Ásgeir Hermannsson og Matthildur Harðardóttir létu lífið í slysinu. Innlent 8.3.2006 22:12
Magnus Carlsen efstur Norðmaðurinn Magnus Carlsen er efstur á Reykjavíkurskákmótinu sem stendur. Hann er með þrjá vinninga þegar flestum skákum þriðju umferðar er lokið en Þröstur Þórhallsson sem vann tvær fyrstu skákir sínar situr enn að tafli gegn franska stórmeistaranum Igor-Alexander Nataf. Innlent 8.3.2006 21:47
Mjög hefur dregið úr fasteignasölu Sala á íbúðum í fjölbýli hefur dregist saman um 26 prósent milli ára að því er fram kemur í tölum frá Fasteignamati ríkisins. Á sama tíma hefur sala á einbýlishúsum aukist um fimmtán prósent. Innlent 8.3.2006 21:17
Bakarar mótmæla raforkuverði Bakarameistarar eru afar ósáttir við miklar verðhækkanir á raforku síðan ný orkulög tóku gildi. Fyrri samningi þeirra um lágt raforkuverð að næturlagi var rift og við það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að 50 prósent. Innlent 8.3.2006 20:49
Stefnum að hvalveiðum í atvinnuskyni Íslendingar stefna að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Enn á eftir að ákveða hvenær veiðar hefjast sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á Alþingi í dag. Innlent 8.3.2006 19:07
Valgerður vill evru! Ísland gæti hæglega tekið upp evruna og gengið í myntbandalag Evrópu, án þess að ganga í Evrópusambandið, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra í pistli á heimasíðu sinni. Óraunhæft, segir Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands. Innlent 8.3.2006 18:37