Erlent

Fréttamynd

Forskot kristilegra eykst

Forskot Kristilegra demókrata eftir þingkosningarnar í Þýskalandi jókst um eitt sæti í gær þegar ljóst varð að þeirra maður hefði sigrað í Dresden. Þó að sigurinn í gær sé aðeins dropi í hafið, og breyti í raun engu, munu Kristilegir demókratar líta á sigurinn sem enn frekari sönnun þess að Angela Merkel, leiðtogi þeirra, eigi að verða næsti kanslari Þýskalands.

Erlent
Fréttamynd

Mandela leiðtogi heimsins

Nelson Mandela fékk flest atkvæði í könnun BBC á því hverjir ættu að sitja í „heimsríkisstjórninni“, ef slík stjórn væri sett á laggirnar. Hins vegar virðist ekki vera vilji fyrir því að kona sitji í slíkri stjórn.

Erlent
Fréttamynd

Átök á Gaza

Til skotbardaga kom milli palestínskra lögreglumanna og meðlima samtaka Hamas á Gaza í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem til átaka kemur síðan að Ísraelar létu Gaza í hendur Palestínumanna í síðasta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Ein og yfirgefin

Fjögurra ára gömul stúlka fannst ein og yfirgefin á náttfötunum úti á götu um miðja nótt í úthverfi New York í Bandaríkjunum. Það var kona sem tók eftir henni út um gluggann hjá sér, og veitti því strax athygli að ekki væri allt með felldu.

Erlent
Fréttamynd

Eldgos í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvador byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í áratugi. Mikið hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Eftirlýstustu menn Suðaustur-Asíu

Talið er að tveir menn frá Suðaustur-Asíu hafi staðið á bakvið sjálfsmorðsárásir á þremur veitingastöðum á eyjunni Balí í Indónesíu á laugardag. 26 manns fórust í árásunum.

Erlent
Fréttamynd

Mikill viðbúnaður

Mikill viðbúnaður er í höfuðborg Indónesíu, Djakarta, vegna sprengjutilræðanna á Kúta-ströndinni á Balí, í gær. Þrjátíu manns létu lífið í árásunum og um hundrað og tuttugu eru slasaðir, margir lífshættulega.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir bjartsýnir

Stjórnvöld í Tyrklandi eru bjartsýn á aðildarviðræðurnar sem hefjast formlega við Evrópusambandið í Brussel á morgun, þrátt fyrir að mikil andstaða sé við aðildina innan sumra ESB-ríkja.

Erlent
Fréttamynd

Tveir Malasíumenn grunaðir um ódæðið á Balí í gær

Yfirvöld á Balí á Indónesíu segja ljóst að sprengingarnar sem urðu á Kúta-strönd á Balí í gær, hafi verið sjálfsmorðssprengingar og eru tveir hryðjuverkamenn frá Malasíu grunaðir um verknaðinn. Að minnsta kosti tuttugu og sex menn létu lífið í árásunum, þar af margir ferðamenn, og um hundrað og tuttugu særðust, margir lífshættulega.

Erlent
Fréttamynd

Þýsku kosningunum lýkur í dag

Kosið er til þýska sambandsþingsins í borginni Dresden í austurhluta Þýskalands í dag, en kosningum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna dauðsfalls eins frambjóðanda frá borginni. Vonir eru bundnar við að úrslitin í Dresden muni leysa þá stjórnmálakreppu sem ríkt hefur í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Gýs í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec, sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvadors, byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í um hundrað ár. Hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Hermönnum rænt í Írak

Samtök Al-Qaeda í Írak hafa sent út yfirlýsingu þess efnis að þau hafi í haldi tvo bandaríska sjóliða.

Erlent
Fréttamynd

Fundur fyrirhugaður

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels og Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, hafa samþykkt að funda í fyrsta sinn síðan Ísraelar drógu herlið sitt frá Gasasvæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Um sjálfsmorðsárásir að ræða

Yfirvöld á Balí á Indónesíu segja ljóst að sprengingarnar sem urðu á Kúta-strönd í gær, hafi verið sjálfsmorðssprengingar og eru tveir hryðjuverkamenn frá Malasíu grunaðir um verknaðinn.

Erlent
Fréttamynd

Giuliani íhugar forsetaframboð

Fyrrverandi borgarstjóri New York, Rudolph Giuliani, upplýsti á ferð sinni um Danmörku nýverið að hann ætlaði að ákveða á næsta ári hvort hann byði sig fram til forseta árið 2008. Hann setti þó þann fyrirvara að þessar hugleiðingar hans um að verða forsetaefni repúblikana gætu að engu orðið.

Erlent
Fréttamynd

Aðildarviðræður í uppnámi

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í gær vegna aðildarviðræðna sambandsins við Tyrkland sem hefjast eiga í dag. Vegna andstöðu nokkurra aðildarlanda ESB er ekki ljóst hvort viðræðurnar geti hafist.

Erlent
Fréttamynd

Njósnað um Benedikt páfa

Austur-þýska leyniþjónustan sáluga, Stasi, áleit Joseph Ratzinger kardinála, sem nú er Benedikt páfi sextándi, einn hættulegasta gagnrýnanda kommúnisma og njósnaði um hann frá árinu 1974. Þetta kemur fram í þýska tímaritinu Bild am Sonntag sem birti nýlega gögn sem sýna að Stasi fylgdist náið með Ratzinger í mörg ár.

Erlent
Fréttamynd

Kristilegir hafa betur

Kristilegi demókrataflokkurinn hafði betur í kosningum til þýska sambandsþingsins sem fram fóru í Dresden í Þýskalandi í gær. Kosningunum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna dauðsfalls eins frambjóðanda í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Frakkar leggja niður vinnu

Líklegt er talið að mikill fjöldi fólks muni leggja niður vinnu um allt Frakklandi á þriðjudag til að mótmæla stefnu stjórnvalda í efnahags- og atvinnumálum. Þetta verður fyrsta alvöru barátta ríkisstjórnar Frakka, sem aðeins hefur starfað í fjóra mánuði, við verkalýðsfélög landsins sem þykja oft á tíðum óstýrilátar.

Erlent
Fréttamynd

Átu milliveggi

New Jersey ríki hefur verið dæmt til að greiða fjórum ungum bræðrum jafnvirði 760 milljóna króna í skaðabætur en starfsmönnum félagsmálayfirvalda yfirsást að fósturforeldrar þeirra höfðu svelt þá árum saman.

Erlent
Fréttamynd

Varar við brottflutingi frá Írak

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varar við því að bandaríski herinn verði sendur frá Írak. Hún telur það geta haft skelfilegar afleiðingar að yfirgefa landið og láta þannig stjórn þess í hendur samviskulausra morðingja.

Erlent
Fréttamynd

Hvatti til fóstureyðinga svartra

William Bennett, menntamálaráðherra í ríkisstjórn Ronalds Reagan, reitti stóran hluta Bandaríkjamanna til reiði í vikunni þegar hann sagði í útvarpsþætti sínum að ef börnum þeldökkra væri eytt á fósturstigi myndi draga úr glæpum.

Erlent
Fréttamynd

Herinn verður í Írak segir Rice

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ekki komi til greina að senda bandaríska herinn frá Írak. Hún telur að það geti haft skelfilegar afleiðingar að yfirgefa landið og láta þannig stjórn landsins í hendur samviskulausra morðingja.

Erlent
Fréttamynd

Fjórða hvert barn í hættu

Eitt af hverjum fjórum fæddum börnum í heiminum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Saka hvort annað um óhæfi

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, eru enn langt frá því að leysa ágreining sinn um það hvort þeirra skuli leiða stjórnarmyndunarviðræður í landinu. Í dag sökuðu þau hvort annað um að vera óhæf til að leiða landið.

Erlent
Fréttamynd

Sprengja á Bali

Í það minnsta 25 biðu bana í tvöföldu sprengjutilræði á veitingahúsum á eynni Balí á Indónesíu um kvöldmatarleytið í gær. 51 slasaðist alvarlega. Enn er ekki búið að bera kennsl á líkin en talið er að þau séu bæði af innfæddum og útlendingum.

Erlent
Fréttamynd

Venesúela flytur gjaldeyrisforðann

Venesúela fært gjaldeyrisforða landsins í sjóði í Evrópu og öðrum löndum. Forseti landsins, Hugo Chavez tilkynnti um þetta en hingað til hefur gjaldeyrisforði landsins verið í bandarískum ríkisskuldabréfum.

Erlent
Fréttamynd

Baugur í Berlingske Tidende

Dagblaðið Berlingske Tidende gerði Baugsmálinu góð skil í lok síðustu viku. Blaðið ræðir umfjöllun fjölmiðla um málið en einnig bendir það á tengsl Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, við framvinduna.

Erlent
Fréttamynd

Keypti far út í geim

Bandarískur kaupsýslumaður greiddi einn komma tvo milljarða króna fyrir að láta skjóta sér út í geiminn frá Kasakstan í dag, ásamt tveimur geimförum. Hann er þriðji maðurinn sem borgar fyrir að fara út í geiminn.

Erlent