Erlent
Samningaviðræðum haldið áfram Stríðandi fylkingar í Darfur-héraði í Súdan hafa fengið tveggja sólarhringa langan viðbótarfrest til að ná sáttum. Skorað var á bandarísk stjórnvöld að koma á friði í Darfur á fjölmennum útifundi í Washington í gær. Erlent 1.5.2006 18:58
Útlitið dökknar hjá Prescott og Clarke Tveir ráðherrar í bresku ríkisstjórninni berjast nú fyrir pólitísku lífi sínu en þrýstingur á að þeir segi af sér vegna hneykslismála fer vaxandi með degi hverjum. Erlent 1.5.2006 18:27
Skutu þrjá til bana Egypskir lögreglumenn skutu þrjá bedúína til bana á Sínaí-skaga í gær. Mennirnir lágu undir grun um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Dahab í síðustu viku þar sem átján manns létu lífið. Erlent 1.5.2006 17:22
Haglél á stærð við hafnarbolta Hávaðarok og haglél á stærð við hafnarbolta hafa dunið yfir Texas um helgina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í veðurofsanum, en miklar skemmdir hafa orðið á fjölmörgum húsum og vegum. Erlent 30.4.2006 16:18
Fráleitt að gera kjarnorkuárás á Íran Það er fráleitt að íhuga að gera kjarnorkuárásir á Íran segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Í sjónvarpsviðtali í gær sagðist Powell jafnframt hafa ráðlagt George Bush að senda fleiri hermenn til Íraks, en á það hafi ekki verið hlustað. Erlent 30.4.2006 16:22
Vilja framlengja neyðarlög gegn hryðjuverkum Egypska lögreglan skaut mann til bana og handsamaði fjóra aðra snemma í morgun í aðgerðum vegna hryðjuverkanna í Dahab. Ríkisstjórn landsins hefur krafist þess að neyðarlög vegna hryðjuverka verði framlengd. Erlent 30.4.2006 12:02
90.000 manns hafa flúið heimili sín 90.000 manns hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín í Írak undanfarið vegna átaka á milli Sjía og Súnnía. Bandarískar hersveitir hafa drepið og handsamað nærri eitt hundrað árásarmenn undanfarnar vikur. Erlent 30.4.2006 11:59
Súkkulaðihátíð í Belgíu Súkkulaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkulaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. Erlent 30.4.2006 10:08
Segir Íransforseta minna á Hitler Forseti Írans er siðblindingi sem minnir á Adolf Hitler. Þetta segir Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, sem biður til guðs að Íranar komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum. Erlent 30.4.2006 10:04
Súkkúlaðihátíð í Belgíu Súkkúlaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkúlaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. Erlent 29.4.2006 16:23
Sex ára í háskólakennslu Sex ára undrabarn frá Mexíkó heldur fyrirlestra um beinþynningu fyrir læknisfræðinema á háskólastigi. Sjálfur neitar drengurinn því að hann sé snillingur og segist bara venjulegur strákur sem hafi gaman af að læra. Erlent 29.4.2006 16:22
Ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans sama hvað tautar og raular. Þeir eru hins vegar tilbúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið ef öryggisráðið hættir að fjalla um kjarnorkuþróun landsins. Þrjár þjóðir í öryggisráðinu vilja refsa Írönum þegar í stað. Erlent 29.4.2006 16:19
Chavez hótar stjórnvöldum í Perú Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar því að hætta öllum samskiptum við Perú ef Alan Garcia verði kjörinn forseti landsins. Chavez lét hafa þetta eftir sér í kjölfar þess að Garcia gagnrýndi hann opinberlega. Chavez hefur styður andstæðing Garcia í annarri umferð kosninganna. Erlent 28.4.2006 22:11
Háttsettur hermaður ákærður fyrir meðferð á föngum í Abu Ghraib Bandaríkjaher hefur ákært yfirmann í hernum fyrir illa meðferð á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad. Enginn hermaður með jafn háa tign hefur áður verið ákærður í málinu. Erlent 28.4.2006 22:46
Íraksstríðið dýrara en stríðið í Víetnam Allt stefnir í að kostnaður Bandaríkjamanna vegna stríðsrekstrarins í Írak verði meiri en við Víetnamstríðið. Samanlögð útgjöld vegna hernáms Afganistans og Íraks nema um 60 þúsund milljörðum króna. Erlent 28.4.2006 19:15
Íranar halda sínu striki Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda. Erlent 28.4.2006 18:08
Íranar virtu kröfur Öryggisráðs SÞ að vettugi Alþjóða kjarnorkumálastofnunin kynnti Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stundu nýja skýrslu um stöðu mála í kjarnorkudeilunni við Írana. Þar segir að stjórnvöld í Teheran hafi virt kröfur ráðsins að vettugi. Bandaríkjaforseti segist vona að hægt verði að semja um lausn deilunnar. Erlent 28.4.2006 17:17
Frakkar vilja tryggja Palestínumönnum fjárstyrk Frakkar ætla að nota áhrif sín á alþjóðavettvangi til að reyna að fá ríki og stofnanir til að veita Palestínumönnum fjárstyrk á ný. Þetta sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, fyrir fund sinn með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í París í dag. Erlent 28.4.2006 15:10
Þing Nepals koma saman í fyrsta sinn í 4 ár Þing Nepals kom saman til fundar í dag í fyrsta sinn í 4 ár. Þingmenn lögðu þá til að samið yrði um varanlegt vopnahlé við uppreisnarmenn Maóista og að boðað yrði til þingkosninga hið fyrsta. Erlent 28.4.2006 15:00
Bandaríkjamenn fjölga herstöðvum í A-Evrópu Á sama tíma og Bandaríkjamenn draga úr varnarviðbúnaði sínum í Vestur-Evrópu fjölga þeir herstöðvum austar í álfunni. Bandaríkin og Búlgaría undirrituðu í dag samning um herstöð þar í landi. Erlent 28.4.2006 12:40
Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu ráðin af dögum Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu, Cesar Gaviria, var í gær drepin af óþekktum glæpamönnum. Atvikið átti sér stað í um 180 kílómetra fjarlægð frá Bogota höfuðborg landsins. Liliana Gaviria, sem var 52 ára fasteignasali, var á ferð með tveimur lífvörðum sínum þegar ráðist var á þau en annar lífvörður hennar féll einnig í árásinni. Erlent 28.4.2006 09:02
Bandaríkjastjórn bindi enda á þjóðarmorð Bandarískir kvikmyndaleikarinn George Clooney krafðist þess á blaðamannafundi í gær að ríkisstjórn Bandaríkjanna gerði allt sem hún gæti til að binda endi á þjóðarmorðin í Darfur-héraði í Súdan. Þá sagði Clooney almenning einnig geta lagt sitt af mörkum. Erlent 28.4.2006 08:50
Öryggisráð verði að vera tilbúið til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Búlgaríu í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að vera reiðubúið að grípa til aðgerða gegn Íran ef stjórnvöld í Teheran yrðu ekki við kröfum aðþjóðasamfélagsins í tengslum við kjarnorkuáætlanir sínar. Erlent 28.4.2006 08:41
Lögreglumaður skotinn í Cleveland Maður var skotinn til bana á flugvelli í Cleveland í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn náði byssu eins lögreglumanns þegar til átaka koma á milli hans og tveggja lögregluþjóna og skaut annan þeirra tvisvar sinnum í brjóstið. Þá kom þriðji lögreglumaðurinn og skaut manninn til bana. Erlent 28.4.2006 08:30
Ákærð fyrir að hafa orðið nýfæddum börnum sínum að bana Réttarhöld hófust í Frankfurt í Þýskalandi í dag yfir konu sem er grunuð um að hafa orðið átta nýfæddum börnum sínum að bana. Líkamsleifar ungbarnanna fundust síðasta sumar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og er þess krafist að barnaverndarlög verði hert. Erlent 27.4.2006 22:40
Öryggisráðið þarf að grípa til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ólíklegt að Íranar hætti auðgun úrans. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þurfi því að grípa til aðgerða til að viðhalda trúverðugleika sínum. Erlent 27.4.2006 22:29
Maóistar lýsa yfir vopnahléi Skæruliðar maóista í Nepal lýstu í dag yfir vopnahléi í baráttu sinni við stjórnarherinn. Erlent 27.4.2006 18:16
Stjórnarsáttmáli í höfn Ný ríkisstjórn í Ísrael er handan við hornið eftir að Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn náðu samkomulagi um stjórnarsamstarf. Flokkarnir hafa ekki hreinan meirihluta og þurfa því að reiða sig á stuðning nokkurra smáflokka. Erlent 27.4.2006 18:11
Ráðherrar í ólgusjó Framhjáhöld og embættisafglöp eru á meðal þess sem þrír ráðherrar í ríkisstjórn Tony Blairs þurfa að svara fyrir þessa dagana. Hneykslið kemur sér verulega illa fyrir Verkamannaflokkinn, því sveitarstjórnakosningar eru á næsta leyti í Bretlandi. Erlent 27.4.2006 18:08
Hagnaður DaimlerChrysler 299 milljón evrur Hagnaður bílaframleiðandans DaimlerChrysler nam 299 milljónum evra, jafnvirði 27,5 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársinis. Þetta er 11 milljónum evrum meira en á sama tímabili fyrir ári. Viðskipti erlent 27.4.2006 12:57
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport