Jón Þór Ólafsson

Nútíma vísindi og gömul viska um kosti hugleiðslu
Vísindasamfélagið hefur síðasta áratug sýnt fram á ótvíræð jákvæð áhrif mismunandi hugleiðslu aðferða eins og núvitundar. Minna stress og þunglyndi með tengsl við betri líkamlegri heilsu. Minnkun fíknar og sársauka. Betri tilfinningalíðan og tilfinningastjórn. Bætt samskipti og lífsfylling með meiri velvilja, þakklæti og gjafmildi.

Hvaða þingmenn kusu gegn hagsmunum kjósenda eftir ólöglega endurtalningu í norðvestur?
Hæstiréttur Íslands dæmdi kosningar ógildar í Borgarbyggð árið 2002 (dómur 458/2002) því eitt ógilt atkvæði hefði geta breytt niðurstöðu kosninganna. Aðrar kosningar voru haldnar. Hagsmunir kjósenda voru látnir njóta vafans.

Oddviti yfirkjörstjórnar norðvestur kærður til lögreglu fyrir mögulegt kosningasvindl
Kæran byggir á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa (URK) og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni.

Eftirlit Alþingis virkar, þrátt fyrir árásir
Höfum eitt á kristaltæru: Eftirlit Alþingis með ákvörðunum og verklagi ráðherra er stjórnarskrárbundin skylda.

Kyndlar næstu kynslóðar
Það er stór dagur í dag, bæði fyrir Pírata sem hreyfingu og mig persónulega.


Svona afnemum við launahækkun þingmanna
Ákvörðun Kjararáðs um miklar hækkanir launa ráðamanna umfram almenna launaþróun gengur í besta falli gegn tilgangi laga um Kjararáð, og í versta falli er um beint lögbrot að ræða.

Tæklum spillinguna
Sem markaðssinni sem mælist til hægri í stjórnmálum er mér ljóst að hægri flokkarnir eru illfærir um að efla virka samkeppni, skattaeftirlit og tækla spillingu vegna hagsmunatengsla.

Spilling er skiljanleg
Velmegun Norðurlanda var aðalumfjöllun tímaritsins The Economist skömmu fyrir síðustu kosningar. Þar sagði að tvennt þurfi til að hægt sé að byggja norrænt velferðarsamfélag sem verndar samkeppni á markaði.

Athyglisbrestur og ofurathygli
Nýlega benti frændi minn á að ég væri með athyglisbrest. Ég hef ofurathygli svo það gat ekki verið.

Tíu lexíur úr þingstarfinu
Markmið stjórnmálamanna eru misjöfn, rétt eins og leiðirnar sem þeir velja að þeim, en eitt eiga þeir sameiginlegt. Stjórnmálamenn vilja sitja á valdastóli, og flestir vilja þeir sitja sem fastast þar til stærri stóll er fáanlegur.

Fyrsta flokks heilbrigðisþjónusta kosningamál 2017
Þrisvar sinnum síðastliðinn mánuð hefur Landlæknir sent stjórnvöldum formlegt bréf þar sem fram kemur að "ástandið í heilbrigðiskerfinu sé komið út fyrir þau mörk að hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga“ og "aðgerðir sem binda enda á verkfall án þess að samningar náist leysa ekki vanda heilbrigðiskerfisins þegar til lengri tíma er litið“.

Alþingi ekki í jólafrí fyrr en samningar nást við lækna
Það er afgerandi vilji landsmanna að forgangsraða sínu skattfé í heilbrigðiskerfið eins og fram kemur í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir þingflokk Pírata í nóvember. Þetta á við alla aldursflokka, alla tekjuflokka, kjósendur allra flokka og úr öllum kjördæmum, konur og karla.

Kurteisi og málefnaleg umræða
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um traust til Alþingis eru borðliggjandi. Þjóðin treystir ekki Alþingi og er umræðuhefð þingmanna helsta ástæðan.

Höfundarréttur.net
Til að tryggja að höfundar gætu einir hagnast á eigin verkum voru fyrr á öldum sett afritunarákvæði í höfundalögin. Höfundar fengu tímabundið einkaleyfi til að afrita verk sín. Í dag þurfum við að finna aðrar leiðir til að tryggja að höfundar einir geti hagnast á eigin verkum.

Píratar eru stjórnmálahreyfing internetsins
Tölvunördar stofnuðu stórfyrirtæki upplýsingabyltingarinnar: Microsoft, Apple og Google. Tölvunördar sköpuðu stærstu samfélög internetsins: Facebook, Twitter og YouTube.

Hve mikilvægur er eiður lækna?
Dóttir mín þriggja ára fékk lungnabólgu á dögunum. Læknirinn sem greindi hana á Læknavaktinni sagði að um bakteríusýkingu væri að ræða svo sýklalyf væru málið. Ég spurði hvort greiningin væri örugg og vildi láta rannsaka hvort mögulega væri um veirusýkingu að ræða. Sýklalyf virka ekki á veirur en þau geta farið mjög illa með líkamann og ónæmiskerfið svo ef um veirusýkingu væri að ræða myndu þau aðeins gera ógagn. Læknirinn vildi ekki rannsaka það frekar og skrifaði upp á breiðvirkt sýklalyf sem virkaði svo ekki.

Forsetinn sem fékk flugu í höfuðið
Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera óhefðbundinn. Fyrir að fara bókstaflega eftir stjórnarskránni frekar en að fylgja hefðum og venjum við beitingu forsetavaldsins. Margir fræðimenn hafa gert sitjandi forseta upp einræðishvatir. En hvað ef forseti Íslands fengi, t.d. við heilablóðfall, þá flugu í höfuðið að taka sér eins mikil völd og hann kæmist upp með? Hve langt gæti hann gengið samkvæmt gildandi stjórnarskrá?

Sameiningarafl þjóðarinnar
Þegar sameiningartákn þjóðarinnar sat á Bessastöðum gaf þingið sjávarauðlind þjóðarinnar, tók verðtryggingu af launum en ekki skuldum, einkavinavæddi ríkisbankana og svo má lengi telja. Okkur leið vel með táknrænan forseta. En þegar við kjósum til embættisins í sumar skulum við samt spyrja hvort okkur liði ekki betur í dag hefði forsetinn skotið þessum málum til þjóðarinnar. Við værum eflaust með réttlátara fiskveiðikerfi, verðtryggingin væri án efa minningin ein og hér hefði mögulega ekki orðið bankahrun, eða í það minnsta ekki jafn stórt.

Lýðræðispopúlistinn
Metnaðarfulla stjórnmálamenn hefur alltaf dreymt um að sagan sýni þá í sem bestu ljósi. Aðeins tveimur leiðtogum í 500 ára sögu Rómarlýðveldisins var veittur eftirsóttasti heiður ríkisins fyrir að bjarga Róm frá glötun og voru þeir þaðan í frá þekktir sem stofnendur Rómar. Sá síðari þeirra var popúlistinn Gaius Maríus. Menn eins og hann sem sækja stuðning sinn til "popúlsins“, sem er latína fyrir "lýðurinn“, hafa alltaf verið hataðir af valdaelítunni sem þeir sniðganga og Ólafur Ragnar Grímsson er engin undantekning.