
Frakkland

Fjórir létust í gassprengingunni í París
Þrír létust í gær og þar af tveir slökkviliðsmenn og spænskur ferðamaður og á fimmta tug slasaðist.

Sprenging í bakaríi í París: Þrír látnir
Slökkviliðsmenn hafa unnið hörðum höndum að því að koma slösuðu fólki út um glugga húsnæðisins og bílum sem höfðu oltið á hliðina vegna sprengingarinnar.

Franskur þýðandi Hugleiks virðist telja hann of grófan
Háðfuglinn Hugleikur Dagsson er nokkuð hissa á þýðandanum sem þýddi frönsku útgáfuna af skopmyndabók hans Elskið okkur. Í einni myndasögunni í frönsku útgáfunni má sjá að texta hennar hefur verið breitt á ansi þýðingarmikinn hátt. Hugleikur veltir því fyrir sér hvort að breytingar hafi verið gerðar á fleiri myndasögum hans í frönsku útgáfunni.

Dramatísk þyrlubjörgun náðist á myndband
Segja má að flugmaður björgunarþyrlu í frönsku Ölpunum hafi staðið sig afar vel í erfiðum aðstæðum er bjarga þurfti skíðamanni sem slasaðist í um 2.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Aðstæður í fjallshlíðinni gerði það að verkum að ekki var hægt að lenda þyrlunni.

Segir ómögulegt að elska konur yfir fimmtugu
Franski rithöfundurinn og þáttastjórnandinn Yann Moix hefur valdið usla í heimalandi sínu eftir að hann sagðist eiga ómögulegt að elska konur sem væru fimmtugar eða eldri, þrátt fyrir að hann sjálfur sé fimmtugur.

Erkibiskupinn í Lyon svarar til saka fyrir meinta yfirhylmingu
Á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.

Bretar senda herskip til að stöðva förufólk á Ermarsundi
Innanríkisráðuneyti Bretlands óskaði eftir aðstoð sjóhersins vegna fjölgunar fólks sem reynir að komast yfir sundið á litlum bátum undanfarnar vikur.

Formúa í ferjur náist ekki að semja um Brexit
Bresk stjórnvöld munu verja yfir hundrað milljónum punda í ferjukaup til að liðka á samgöngum um Ermarsund komi til þess að ekki yrði samið um Brexit.

Telja tímaspursmál hvenær farandfólk ferst á Ermarsundi
Fjöldi fólks hefur reynt að komast með smábátum yfir Ermarsund til Bretlands undanfarnar vikur og mánuði.

Stefnir að því að komast yfir Atlantshaf í tunnu
Frakkinn Jean-Jacques Savin hefur haldið af stað frá Kanaríeyjum í appelsínugulu tunnulaga hylki og stefnir hann að því að komast yfir Atlantshaf, einungis með aðstoð hafstrauma.

Macron um Trump: „Bandamaður á að vera áreiðanlegur“
Emmanuel Macron Frakklandsforseti kveðst harma mjög ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta að kalla herlið Bandaríkjanna heim frá Sýrlandi.

Einn til viðbótar lést í mótmælunum í Frakklandi
Mótmælendur komu sér fyrir í tröppunum fyrir neðan Sacré-Cæur kirkjuna í Montmartre hverfinu í dag.

Sýrlenskir Kúrdar líta til Frakklands
Frakkland er meðlimur í bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS og er með sérsveitarmenn í norðurhluta Sýrlands þar sem þeir berjast með sýrlenskum Kúrdum og öðrum meðlimum samtakanna Syrian Democratic Forces gegn ISIS-liðum.

Kúrdar í Sýrlandi telja ákvörðun Trump svik
Mikil óvissa ríkir um framhald stríðsins gegn Ríki íslams í Sýrlandi eftir að Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að draga 2.000 manna herlið þaðan.

Níu látnir í mótmælunum í Frakklandi
Karlmaður á sjötugsaldri lét lífið þar sem hann mótmælti á götum úti í suðvesturhluta Frakklands í morgun.

„Gulu vestin“ kveikja í tollahliðum
Loka þurfti hraðbrautum sums staðar eftir að mótmælendur klæddir í gul vesti tóku yfir tollahlið eða kveiktu í þeim.

Gulvestungum bolað í burtu frá Champs-Elysees breiðgötunni
Lögreglan notaði táragas og þrýstivatnsbyssur til að bola mótmælendum í burtu.

Gulvestungar hundsa tilmæli stjórnvalda
Franskir mótmælendur, kenndir við gul vesti, söfnuðust í dag saman á Champs-Elysées, helstu breiðgötu Parísar, fimmtu helgina í röð þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda til þeirra um að halda sig heima.

Fjórða fórnarlambið látið
Fjórða fórnarlamb skotárásarinnar á jólamarkaði í frönsku borginni Strassborg lést í gær.

Jólamarkaðurinn í Strassborg opnaður að nýju
Markaðnum var lokað eftir árás sem gerð var á þriðjudagskvöld.

Lögregla skaut árásarmanninn í Strassborg til bana
Cherif Chekatt hafði verið á flótta allt frá því að árásin var gerð á jólamarkaðnum á Klebertorgi í Strassborg þar sem þrír létust og fjöldi særðist.

Enn leitað að árásarmanninum og þriðji látinn
Lögreglan í Frakklandi leitar enn að Chérif Chekatt, sem grunaður er um að hafa skotið minnst þrjá til bana í árás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudaginn.

Birta nafn og mynd af hinum grunaða í Strassborg
Lögregla í Frakklandi hefur óskað eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manninum sem skaut og drap tvo og særði fleiri á jólamarkaði í frönsku borginni Strassborg í gærkvöldi.

Fimm handteknir vegna skotárásarinnar í Strassborg
Mögulegt er talið að byssumaðurinn hafi flúið yfir landamærin til Þýskalands.

Hundruð lögreglumanna leita árásarmannsins í Strassborg
Maðurinn sem drap þrjá og særði tólf til viðbótar á jólamarkaði í gærkvöldi er sagður tæplega þrítugur innfæddur íbúi Strassborgar.

Nokkrir særðir eftir skotárás í Strassborg
Skothvellir heyrðust nærri jólamarkaði.

Macron ávarpar þjóðina: Lofar að hækka lágmarkslaun og gera breytingar á skattkerfinu
Macron ætlar að hækka laun þeirra lægst launuðu um hundrað Evrur í hverjum mánuði frá ársbyrjun 2019 og þá hyggst hann hætta við ætlaða skattahækkun á eftirlaunaþega.

Macron forseti ávarpar þjóðina og boðar tafarlausar aðgerðir
Gulu vestin mótmæltu Emmanuel Macron Frakklandsforseta og ríkisstjórn hans fjórðu helgina í röð. Hann mun ávarpa frönsku þjóðina í kvöld og boða einingu og áþreifanlegar og tafarlausar aðgerðir.

Íslendingur í París lokaðist inni vegna mótmæla „gulvestunga“
Íslendingur í jólaverslunarleiðangri í París, endaði á að vera lokuð inni á bar, upplifa sársaukann sem fylgir táragasi og verða vitni að einum stærsta mótmæladegi í borginni í gær.

Rússneskar samfélagsmiðlasíður kynda undir mótmælum gulu vestanna
Twitter-síður sem enduróma skoðanir stjórnvalda í Kreml deila nú vafasömum fréttum um mótmæli gulu vestanna svokölluðu í Frakklandi.