Sýrland

Assad kveðst hissa á afstöðu Tyrkja
Vopnahlé tók gildi í norðvesturhluta Sýrlands í nótt. Átökin á svæðinu höfðu verið afar hörð en sýrlenski stjórnarherinn hefur sótt að Idlib, síðasta stóra vígi uppreisnarmanna.

Vopnahlé tekið gildi í Idlib
Eftirlitsaðilar segja tiltölulega ró hafa myndast á svæðinu eftir margra vikna bardaga á milli uppreisnar- og vígahópa sem Tyrkir styðja og stjórnarhers Sýrlands, sem Rússar styðja.

Erdogan og Pútín funda í Moskvu
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er staddur í Moskvu þar sem hann fór á fund Vladimir Pútín, forseta Rússlands. Þar ræða leiðtogarnir í dag átökin í Idlibhéraði í Sýrlandi og hvernig binda megi enda á þau. Þó ekki nema bara um tíma.


Grikkir hættir að taka á móti hælisumsóknum
Yfirvöld Grikklands hafa lokað landamærum ríkisins við Tyrkland og eru hætt að taka á mótti hælisumsóknum vegna mikils fjölda flóttafólks sem vill komast frá Tyrklandi til Grikklands.

Segir Tyrki ekki lengur munu stöðva sýrlenska flóttamenn á leið til Evrópu
Fréttirnar koma í kjölfar þess að 33 tyrkneskir hermenn hið minnsta létu lífið í árásum sýrlenska stjórnarhersins í Idlib-héraði.

Fjöldi tyrkneskra hermanna felldur í loftárás
Tyrkneskir embættismenn segja Assad-liða hafa gert árásina sem um ræðir og beinast spótin að Rússum.

Hræðilegt ástand og mestu fólksflutningarnir í sögu stríðsins
Héðinn Halldórsson, upplýsingafulltrúi hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, er kominn að landamærum Tyrklands og Sýrlands. Neyðarástand er á svæðinu enda fólksflutningar frá Sýrlandi nú þeir mestu frá því stríð braust þar út fyrir tæpum áratug.

Átökin koma sérstaklega niður á börnum
Um milljón manna hafa flúið undan sókn stjórnarhers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í Idlib-héraði. Sóknin nýtur stuðnings Rússa, sem hafa verið sakaðir af mannréttindasamtökum um loftárásir á sjúkrahús og skóla.

Ísraelar gerðu loftárásir á Gasa og í Sýrlandi
Árásirnar voru svar við eldflaugaárásum á Ísrael í gær sem sjálfar voru svar við drápi á liðsmanni vopnaðrar sveitar Palestínumanna.

Hraðbrautin milli Damaskus og Aleppo opin almenningi á ný
Ákveðið var að opna hraðbrautina eftir að sveitir sýrlenska stjórnarhersins náðu landsvæðum aftur á sitt vald með aðstoð rússneska hersins.

SÞ óttast blóðbað en Rússar segja allt í lagi
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNOCHA, óttast blóðbað í Idlib-héraði í Sýrlandi.

Hótar því að ráðast enn eina ferðina inn í Sýrland
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir viðræður við Rússa um átökin í Idlib-héraði í Sýrlandi hafa verið vonbrigði. Þær hafi jafnvel verið móðgandi og einungis tímaspursmál sé hvenær Tyrkir grípa til aðgerða í héraðinu.

Erdogan hótar stjórnarher Assad
Tyrkir munu gera árásir á stjórnarher Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, víðsvegar um Sýrland, verði tyrkneskir hermenn fyrir frekari árásum í Idlib-héraði í Sýrlandi.

Kenna Ísraelum um að farþegaþota hafi næstum verið skotin niður
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir stjórnarher Bashar al-Assad næstum því hafa skotið niður farþegaþotu með 172 farþega innanborðs í gær.

Tyrkir og sýrlenski stjórnarherinn í hár saman
Herlið Tyrkja í Sýrlandi svaraði fyrir árásir sem felldu fjóra hermenn með stórskotaliðsárás á sýrlenska stjórnarherinn.

Segja nýjan leiðtoga ISIS vera einn af stofnendum samtakanna
Íslamska ríkið hefur fundið nýjan leiðtoga. Sá heitir Amir Mohammed Abdul Rahman al-Mawli al Salbi og er einn af stofnmeðlimum hryðjuverkasamtakanna.

Danskur ISIS-liði gómaður í Tyrklandi
Lögreglan í Tyrklandi hefur handsamað danskan ISIS-liða sem hefur verið eftirlýstur um árabil.

Pútín heimsótti Sýrland og hitti Assad
Þetta er í annað skiptið sem forseti Rússlands heimsækir Sýrland þar sem rússneskir hermenn hafa tekið þátt í borgarastríðinu til að styðja Assad forseta frá árinu 2015.

Hundruð þúsunda flýja loftárásir Rússa í Sýrlandi
Borgin Maarat al-Numan er sögð því sem næst tóm vegna sóknar stjórnarhersins og Rússa.

Tyrkir senda fjórar konur ISIS-liða og sjö börn til Frakklands
Innanríkisráðuneyti Tyrklands sagði að um hryðjuverkamenn væri að ræða en Tyrkir segjast halda um 1.200 erlendum ISIS-liðum. Allir verði sendir til heimalanda sinna.

Stendur við niðurstöðu OPCW vegna árásarinnar í Douma
Yfirmaður Efnavopnastofnunarinnar stendur við niðurstöðu rannsóknarnefndar stofnunarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu að líklega hafi klórgas verið notað í efnavopnaárásina á Douma í Sýrlandi í apríl í fyrra. Tilefni ummæla hans er birting Wikileaks á tölvupósti eins úr nefndinni sem segir niðurstöður skýrslu hennar hafa verið villandi.

Rússneskur málaliði myndaði aðra pynta, myrða, afhöfða og brenna fanga
Rússneskumælandi maður sem myndaði pyntingu og morð sýrlensks fanga er starfsmaður rússneska málaliðafyrirtækisins Wagner Group og Wagner PMC, sem tengist ríkisstjórn Rússlands.

Gerðu umfangsmiklar árásir á Írana í Sýrlandi
Her Ísraels segist hafa gert árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi í nótt. Þær hafi beinst gegn sveitum Írana sem hafi skotið eldflaugum að Ísrael í gær.

Missti bestu vinkonu sína í stríðinu
Bana Alabed fæddist í Aleppo í Sýrlandi sumarið 2009. Hún segir landið hafa verið fallegt og friðsælt áður en stríðið hófst þegar hún var afar ung.

Yfirvofandi vatnsskortur í norðaustur Sýrlandi
Óvirk vatnsdælustöð fyrir 400 þúsund íbúa í Sýrlandi veldur Alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC) þungum áhyggjum. Í byrjun nóvember dreifði Rauði krossinn samtals 460 þúsund lítrum af drykkjarvatni. Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við aðgerðir Alþjóðaráðs Rauða krossins og sýrlenska Rauða hálfmánans í Sýrlandi með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins.

ISIS-liði fastur í einskismannslandi í þrjá daga
Yfirvöld Tyrklands vísuðu á mánudaginn manni, sem sagður er vera bandarískur ISIS-liði frá Tyrklandi. Hann hefur setið fastur í einskismannslandi milli Tyrklands og Grikklands síðan þá.

Einn helsti bakhjarl Hvítu hjálmanna dó í Tyrklandi
Hinn breski James Le Mesurier fannst fyrir utan íbúð sína í borginni og er hann sagður hafa fallið af svölum íbúðarinnar í nótt.

Tyrkir ætla að senda hundruð ISIS-liða til Evrópu
Tyrkir ætla sér að senda fjölda erlenda vígamenn aftur til síns heima á næstunni, sama þó einhverjir þeirra hafi verið sviptir ríkisborgararétti í heimaríkjum þeirra.

Segir NATO „heiladautt“ vegna Bandaríkjanna
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir Evrópu ekki lengur geta treyst á Bandaríkin.