Fréttir
Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð hóf tilraunaútsendingar í dag. Sjónvarpsstöðin, sem sendir út allan sólarhringinn, er þó ekki send út á rússnesku heldur á ensku. Ástæðan er sú að henni er ætlað að bæta orðspor Rússlands á alþjóðavettvangi. Erlent 14.10.2005 06:42
Meðvitundarlaus eftir vinnuslys Ökumaður stórrar vinnuvélar, svokallaðrar búkollu, var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann í Fossvogi eftir vinnuslys við Hellisheiðarvirkjun í dag. Ökumaðurinn var að bakka farartækinu upp brekku þegar eitthvað brast og búkollann rann um 300 metra niður brekkuna. Innlent 14.10.2005 06:42
Greining: Lúðueldi Fiskey ehf. mun á næstu mánuðum loka lúðueldisstöð sinni í Þorlákshöfn. Þá verður ein slík stöð eftir en Silfurstjarnan er með áframeldisstöð í Axarfirði. Lúðueldi hefur farið stigvaxandi hér á landi og nú er svo komið að jafnmikið er til af villtri lúðu og eldislúðu. Innlent 14.10.2005 06:42
Vélhjóli ekið á 13 ára pilt Þrettán ára piltur hlaut opið fótbrot þegar jafnaldri hans ók á hann á vélhjóli við sveitabæ í Rangárvallasýslu í gær. Þrír jafnaldrar höfðu verið þar að leik á tveimur óskráðum vélhjólum, og að sjálfsögðu réttindalausir, sem endaði með þessum hætti. Innlent 14.10.2005 06:42
Skuldir heimilanna vaxið um 19% Skuldir íslenskra heimila hafa vaxið um 157 milljarða á einu ári, eða um heil nítján prósent. Þá eru yfirdráttarlán ívið hærri en þau voru áður en bankarnir fóru að bjóða nýju húsnæðislánin í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Of seint að hætta við framboðið Formaður Frjálslynda flokksins segir réttast að hætta við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Formenn Samfylkingar og Vinstri - grænna telja hins vegar of seint að hætta við. Innlent 14.10.2005 06:42
Höfuðborg án skuldbindinga Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flestir borgarfulltrúar í Reykjavík álíti að borgin sé höfuðborg án skuldbindinga. Þetta kemur fram í nýjum pistli sem hann skrifar á heimasíðu sinni. Innlent 14.10.2005 06:42
Aron Pálmi hvorki bitur né reiður Aron Pálmi Ágústsson, sem hefur mátt dúsa í fangelsi í Texas í rúm átta ár vegna brota sem hann framdi ellefu ára gamall, segist hvorki bitur né reiður yfir örlögum sínum. Hann vonast til að hefja nýjan kafla í lífi sínu á Íslandi innan skamms og ætlar að nota reynslu sína til að hjálpa öðrum. Innlent 14.10.2005 06:42
Sjö menn handteknir í Bretlandi Breska lögreglan réðst í morgun inn í nokkur íbúðarhús í London og Manchester og handtók sjö menn. Ekki hefur verið gefið upp fyrir hvað mennirnir voru handteknir en breskir fjölmiðlar ýja að því að þeir tengist hryðjuverkasamtökum. Erlent 14.10.2005 06:42
Milljónir á leyndum reikningum Evrópskir vopnaframleiðendur lögðu milljónir dollara inn á leynilega bankareikninga sem Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hafði aðgang að. Þetta hefur komið fram í rannsókn á fjárreiðum einræðisherrans sem nú stendur yfir. Erlent 14.10.2005 06:42
Olíuríki auka framleiðslu sína Samtök olíuframleiðsluríkja hafa lofað að auka framleiðslu sína um fimm hundruð þúsund föt á dag til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir olíu. Ólíklegt er þó talið að þetta verði til þess að lækka heimsmarkaðsverðið að einhverju ráði. Erlent 14.10.2005 06:42
Ólafur Ragnar á ráðstefnu í BNA Ólafur Ragnar Grímsson forseti er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipulagt. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar leiðir í baráttunni gegn fátækt, hættu á loftslagsbreytingum og áhrif trúar í stjórnmálum svo nokkur mál séu nefnd. Innlent 14.10.2005 06:42
Leikskólakennarar áhyggjufullir Stjórn félags leikskólakennara lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi. Útlit er fyrir að senda þurfi á fimmta tug leikskólabarna heim á hverjum degi frá og með næstu mánaðamótum því ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður. Innlent 14.10.2005 06:42
Greiningin tilbúin í Vesturbyggð Greiningunni sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur unnið að um rekstur Bílddælings, sem lagði niður starfsemi sína í sumar, er nú lokið að sögn Shirans Þórissonar, viðskipta- og markaðsráðgjafa félagsins. Skýrslan verður í dag afhent Guðmundi Guðlaugssyni, bæjarstjóra í Vesturbyggð, og síðan tekin til umræðu næstkomandi miðvikudag. Innlent 14.10.2005 06:42
Fá úthlutað lóð í Vatnsmýrinni Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að íslenska lyfjafyrirtækinu Invent Farma yrði úthlutað lóð í Vatnsmýrinni nálægt því svæði sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið úthlutað. Fyrirhugað er að Invent Farma setji þar upp rannsóknar- og þróunardeild. Innlent 14.10.2005 06:42
Lögregla gefur ekkert upp Lögregla hefur yfirheyrt þá sem komust lífs af úr sjóslysinu á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Lögreglan vill þó ekkert gefa út um ástæður eða aðdraganda slyssins þar sem rannsókn er enn í fullum gangi. Innlent 15.9.2005 00:01
Hafa samstarfið við SAS í huga Forstjóri SAS ætlar að slíta öllu samstarfi við Icelandair um flug á Norðurlöndunum ef FL Group kaupir Sterling-flugfélagið. Þetta kom fram í danska blaðinu <em>Börsen</em> í morgun. Talsmaður Flugleiða segir að samstarfið við SAS hafi verið gott og menn ætli að hafa það í huga við samningaborðið. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Flugrisar nærri gjaldþroti Tvö af fjórum stærstu flugfélögum Bandaríkjanna fengu í gær greiðslustöðvun samkvæmt bandarískum lögum um gjaldþrot til að freista þess að vinna sig út úr fjárhagsörðugleikum og koma í veg fyrir gjaldþrot. Erlent 14.10.2005 06:42
New Orleans að vakna af dvala Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, lýsti því yfir í gær að stórir hlutar borgarinnar yrðu opnaðir fyrir aðgangi íbúa í næstu viku. Gamli bærinn, Franska hverfið, yrði opnaður viku síðar. George W. Bush Bandaríkjaforseti var væntanlegur til New Orleans í gærkvöld til að flytja þaðan sjónvarpsávarp, það fyrsta frá því hamfarirnar dundu yfir. Erlent 14.10.2005 06:42
Samstarfi við Icelandair slitið Forstjóri SAS segir í viðtali við danska viðskiptablaðið <em>Börsen</em> í morgun að öllu samstarfi við Icelandair um flug innan Skandinavíu verði slitið ef FL Group, móðurfélag Icelandair, kaupi Sterling-flugfélagið. Innlent 14.10.2005 06:42
Aukinn afli en minna verðmæti Heildarafli íslenskra skipa nam tæplega 83.000 tonnum í ágúst. Þetta er aukning um rúm 5.700 tonn frá ágúst í fyrra þegar aflinn nam 77.200 tonnum. Aflaverðmætið dróst hins vegar saman um 6,2% frá ágúst í fyrra. Innlent 14.10.2005 06:42
Kosningabandalag vinstri flokka? Einskonar kosningabandalag vinstri flokkanna fyrir næstu alþingiskosningar gæti verið raunhæfur möguleiki að mati forystumanna Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna. Formaður Vinstri - grænna segir að vinstri flokkunum í Noregi hafi tekist það sem misheppnaðist hér fyrir kosningarnar 2003. Innlent 14.10.2005 06:42
Leitað á saklausum nemendum Lögreglumenn og fíkniefnahundur biðu á Akureyrarflugvelli þegar leiguflugvél, sem flutti væntanlega útskriftarnemendur Menntaskólans á Akureyri heim úr skemmtiferð frá Tyrklandi í gær, og var leit gerð á farþegum og í farangri. En ekki komust þeir í feitt í þetta sinn. Innlent 14.10.2005 06:42
Kvenfélag nefnt eftir Maggnúsi Maggnús Víkingur Grímsson skrifar Magnúsarnafnið sitt með tveimur G-um. Hann hóf starfsævina í vélsmiðju í Þorlákshöfn en áformar nú að reisa millahverfi á Flúðum. </font /></b /> Innlent 14.10.2005 06:42
50 þúsund manns án rafmagns Fellibylurinn Ófelía skall á Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gærkvöldi og hefur þegar valdið töluverðum usla. Fimmtíu þúsund manns eru án rafmagns á svæðinu, mörgum skólum hefur þegar verið lokað og fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Erlent 14.10.2005 06:42
Töluverð aukning í sölu nautakjöts Í ágúst. varð töluverð söluaukning á nautakjöti miðað við sama tíma í fyrra og nam salan 281 tonnum miðað við 269 tonn á síðasta ári. Ef litið er til sölu síðustu tólf mánuði hefur orðið örlítil aukning í sölu miðað við sambærilegt tímabil árið á undan. Innlent 14.10.2005 06:42
Leiðtogarnir undirbúa samninga Margir leiðtoganna hundrað og fimmtíu, sem sækja afmælisfund Sameinuðu þjóðanna, hafa notað tækifærið til að undirbúa tvíhliða samninga um hin ýmsu málefni. Í gær funduðu til að mynda Pútín Rússlandsforseti og Jalal Talabani, forseti Íraks, og eins átti Ariel Sharon fund með Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Erlent 14.10.2005 06:42
Fær nafn sitt ekki skráð Fimm ára gömul stúlka í Neskaupstað er ekki bara stúlka heldur er hún skráð sem Stúlka Steinþórsdóttir í þjóðskrá. Um árabil hefur faðir hennar barist fyrir því að fullt nafn hennar verði skráð í þjóðskrá en er sagt að það sé of langt. Innlent 14.10.2005 06:42
SÞ-umbætur andvana fæddar Vonir stóðu til að á sextugasta afmælisári Sameinuðu þjóðanna yrðu samþykktar víðtækar umbætur á stofnuninni. Ágreiningur um þær reyndist of mikill til að það tækist. Erlent 14.10.2005 06:42
Sjítum sagt stríð á hendur Írakski hryðjuverkamaðurinn Al-Zarqawi hefur sagt sjítum stríð á hendur. Liðsmenn hans hafa myrt á annað hundrað þeirra á síðustu tveim sólarhringum. Erlent 14.10.2005 06:42
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent