Fréttir
Úrskurður um Baugsmál í dag Innlent 17.10.2005 23:43 « ‹ ›
Tíu takast á um sex sæti Framboðsfrestur forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor rann út á föstudag, en forvalið verður 1. október. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram 28. og 30. september. Innlent 17.10.2005 23:43
Stöð 2 braut ekki siðareglur BÍ Fréttastofa Stöðvar 2 braut ekki gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands í umfjöllun sinni af slagsmálum við Hverfisgötu, að mati siðanefndar. Átökin áttu sér stað í apríl á þessu ári. Innlent 17.10.2005 23:43
Hærri laun í ræsinu en á leikskóla Pólskur innflytjandi hefur rekið sig áþreifanlega á að hér á landi sé það betur metið að vinna í ræsinu en að annast leikskólabörn. Hann fær rúmum fjörutíu þúsund krónum meira á mánuði í tekjur eftir að hann skipti um starfsvettvang. Innlent 17.10.2005 23:43
Eina landleið Bolvíkinga Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman til fundar í dag vegna grjóthruns úr Óshlíð niður á þjóðveginn um helgina og vegna þess að hrun virðist vera að aukast úr hlíðinni. Sýslumaður þeirra minnir á að þetta sé eina landleið Bolvíkinga. Innlent 17.10.2005 23:43
Vilja leyfa erfðabreytt matvæli Danir munu greiða atkvæði með því að leyfa innflutning á erfðabreyttum matvælum, þegar landbúnaðarráðherrar Evrópusambandsins fjalla um málið, á morgun. Danska blaðið <em>Politiken</em> segir að þetta sé til komið vegna kúvendingar hjá dönskum jafnaðarmönnum. Erlent 17.10.2005 23:43
N-Kóreumenn hætta kjarnavopnaþróun Norður-Kóreumenn hétu því í morgun að hætta þróun kjarnavopna og gangast undir alþjóðasáttmála um vopnaþróun. Á sex þjóða fundi í Peking í morgun var skrifað undir samkomulag þessa efnis og að sama skapi hétu Bandaríkjamenn því að engar áætlanir væru uppi um að ráðast inn í Norður-Kóreu. Erlent 13.10.2005 19:47
50 milljónir í umsóknina Alþingi hefur að minnsta kosti fimm undanfarin ár fjallað um og samþykkt aukin framlög til fastanefndar Íslands í New York vegna framboðs til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Innlent 17.10.2005 23:43
Íbúar New Orleans tínast heim Íbúar New Orleans eru nú farnir að hlýða kalli borgarstjórans og tínast heim aftur, þrátt fyrir andstöðu alríkisstjórnarinnar. Alríkisstjórnin í Washington er á móti þessu og segir að borgin sé ennþá hættusvæði. Erlent 17.10.2005 23:43
Verka portúgalskan jólamat Starfsmenn í saltfiskvinnslu Brims í Grenivík eru nú í óðaönn að undirbúa jólamatinn fyrir Portúgali. Þar starfa fjórtán manns við að verka jólasaltfiskinn en í Portúgal er saltaður þorskur jólamatur á fjölda heimila. Innlent 17.10.2005 23:43
Sandrækja finnst hér við land Sandrækja (<i>Crangon crangon</i>) greindist í fyrsta sinn hér við land í vor. Tegundin fannst við sýnatöku á skarkolaseiðum við Álftanes og við frekari rannsóknir fannst tegundin víðar á Faxaflóasvæðinu. Frá þessu greinir á vef Hafrannsóknastofnunar í dag. Innlent 17.10.2005 23:42
Skortur hreinsunarstöðva skýringin Samtök olíuframleiðsluríkja segja að það sé ekki skortur á olíu sem valdi háu bensínverði heldur skortur á hreinsunarstöðvum. OPEC ríkin eru nú á fundi í Austurríki um hvað þau geti gert til þess að ná eldsneytisverði niður í einhver þolanleg mörk. Viðskipti erlent 17.10.2005 23:43
Líf og fjör í réttum Um sex þúsund fjár og tvö hundruð manns voru í Oddstaðarétt í Lundarreykjadal í síðustu viku. Að sögn Davíðs Péturssonar, hreppsstjóra í Skorradal, var glatt á hjalla enda var tappi tekinn úr flösku eins og hefð er fyrir á svona stundum. Hann segir þó að sveitungar á þessum slóðum verði seint lofaðir fyrir mikla sönggleði. Innlent 17.10.2005 23:43
Fóstureyðing jákvæð lífsreynsla? Bæklingur frá Landspítalanum um fóstureyðingar hefur verið sendur í endurskoðun eftir að yfirlækni kvennasviðs var bent á óskiljanlega setningu í honum. Innlent 17.10.2005 23:43
Nota bökunarolíu í stað bensíns Nokkrir ökumenn í Kaliforníu hafa gripið til heldur nýstárlegra leiða til að mæta háu eldsneytisverði í Bandaríkjunum. Í stað þess að fylla bílinn af bensíni og tæma um leið budduna hefur hópur manna um nokkurt skeið notað bökunarolíu á tankinn með góðum árangri. Erlent 17.10.2005 23:43
Krefst viðurkenningar bótaskyldu Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál séra Sigríðar Guðmarsdóttur gegn Biskupsstofu. Farið var fram á að bótaskylda væri viðurkennd vegna þess að Biskupsstofa hefði gengið framhjá Sigríði þegar ráðið var í stöðu sendiráðsprests í London. Innlent 17.10.2005 23:43
Blaðamaður NY Times myrtur Írakskur blaðamaður, sem vann fyrir bandaríska stórblaðið <em>The New York Times</em>, fannst myrtur í borginni Basra í dag. Grímuklæddir menn höfðu rænt honum um helgina. Erlent 17.10.2005 23:43
Laugalækjarskóli sigraði Skáksveit Laugalækjarskóla tryggði sér sigur á Norðurlandameistaramóti grunnskólasveita sem haldið var í Árósum í Danmörku um síðustu helgi. Vilhjálmur Pálmason og Einar Sigurðsson voru sigursælastir í sigurliðinu; hvor um sig var með fjóra og hálfan vinning en fimm skákir voru tefldar. Innlent 17.10.2005 23:43
50% Afgana kusu Um það bil helmingur afgönsku þjóðarinnar neytti kosningaréttar síns í fyrstu þingkosningum sem þar hafa farið fram í áratugi um helgina. Þetta gerðist þrátt fyrir hótanir talíbana um að drepa þá sem mættu til þess að kjósa. Erlent 17.10.2005 23:43
Bæti aðstoð við sjúklinga Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að stofnanir í heilbrigðiskerfinu bæti aðstoð sína við sjúklinga og öryrkja sem leita úrræða hjá hinu opinbera. Fréttastofan hefur bent á að ofbeldisbrotaþolar hafi ekki fengið upplýsingar um hvaða hjálp sé að fá heldur villist þeir endalaust í völundarhúsi kerfisins. Innlent 17.10.2005 23:43
Fléttulistar um allt land Landsamband framsóknarkvenna samþykkti ályktun þess efnis að Framsóknarflokkurinn byði fram fléttulista um allt land fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara næsta vor, að sögn Bryndísar Bjarnarsonar nýkjörins formanns sambandsins. Innlent 17.10.2005 23:43
Staðið verði við ákvörðunina Samband ungra framsóknarmanna tók í gærkvöldi undir þá ályktun landsþings Landssambands framsóknarkvenna í gær að staðið verði við þá ákvörðun, sem Halldór Ásgrímsson greindi frá á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna fyrir helgi, að standa beri við fyrri ákvarðanir um framboð Íslendinga til setu í öryggisráðinu árin 2009-2010. Innlent 13.10.2005 19:47
Merkel segist hafa skýrt umboð Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi, hefur í dag minnt Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga sósíaldemókrata, á það að hún hafi skýrt umboð til að mynda stjórn. Schröder hefur í dag reynt að fá frjálslynda demókrata til liðs með sósíaldemókrötum og græningjum. Erlent 17.10.2005 23:43
Sprenging í sendiráði Breta Einn slasaðist lítillega þegar sprengja sprakk í sendiráði Bretlands í Króatíu núna í morgunsárið. Lögreglumenn vakta nú svæðið í kringum sendiráðið. Ekki er enn vitað hver stóð að sprengingunni. Erlent 13.10.2005 19:47
Orrustuþoturnar yfirgefa landið Fjórar orrustuþotur breska flughersins tóku á loft frá Reykjavíkurflugvelli í dag. Þoturnar fóru í æfingaflug til Keflavíkur fyrir helgi en gátu ekki lent þar vegna veðurs. Sjaldgæft er að eins hreyfils orrustuþotum sé lent með blindflugstækjum. Innlent 17.10.2005 23:43
Mannað geimfar til Mars? NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, tilkynnti í dag nýja gerð geimfars sem til stendur að smíða. Með geimfarinu er ætlunin að koma mönnum til tunglsins fyrir árið 2020. Hið nýja geimfar verður einnig útbúið með lengri geimferðir í huga og ætti einhverntíma á næstu áratugum að geta borið allt að sex áhafnarmeðlimi alla leið til Mars. Erlent 17.10.2005 23:42
Geir frekar fylgjandi framboðinu Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. Innlent 17.10.2005 23:43
Ísland í uppáhaldi hjá ferðamönnum Ísland hefur verið útnefnt uppáhalds Evrópuland ferðamanna af breska dagblaðinu <em>Guardian</em>. Í fyrra var Slóvenía vinsælasti áfangastaðurinn og Ísland í öðru sæti og árið þar áður var Ísland einnig efst. Innlent 17.10.2005 23:43
Vilja skuldbundna friðhelgi Norður-Kóreumenn eru nú sagðir vilja hverfa frá áformum sínum um kjarnorkutilraunir og leyfa eftirlitsferðir alþjóðlegra eftirlitsmanna, fái þeir í staðinn vilyrði um vernd og fjárhagslegan stuðning Kínverja og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn sagðir vilja skuldbinda friðhelgi við stjórnina í Pyongyang. Innlent 17.10.2005 23:43
Naumur sigur Clark á Nýja Sjálandi Helen Clark, fráfarandi forsætisráðherra Nýja Sjálands, hóf í gær viðræður við fulltrúa smáflokka um myndun nýs stjórnarmeirihluta sem gæti gert henni kleift að stjórna landinu þriðja kjörtímabilið í röð. Erlent 17.10.2005 23:43