Fréttir

Fréttamynd

Konum fjölgar í sveitarstjórnum

Ef sameining verður samþykkt má búast við að konum fjölgi í sveitarstjórnum. Sameiningarkosningarnar á morgun snerta 96 þúsund manns í 61sveitarfélagi. Dæmin sýna að hlutur kvenna í sveitarstjórnum er meiri í stærri og fjölmennari sveitarfélögum en þeim fámennari.

Innlent
Fréttamynd

500 milljarðar á mánuði

Bandaríkjastjórn eyðir nálægt fimm hundruð milljörðum íslenskra króna mánaðarlega í baráttu gegn hryðjuverkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu þingnefndar í Bandaríkjunum. Langstærstur hluti kostnaðarins fer í Íraksstríðið, eða sem nemur um fjögur hundruð milljörðum á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Á þriðja hundrað talin af

Í það minnsta 250 manns hafa farist í flóðunum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Þar af fórust fimmtíu manns í aurskriðu í Gvatemala í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

VÍS sýknað

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Vátryggingafélag Íslands af 29 milljóna króna bótakröfu þrítugrar konu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Sluppu ómeidd úr eldsvoða

Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarmannafundur síðdegis

Starfsmannafélag Akraness heldur trúnaðarmannafund eftir hádegi. Þar verður afstaða tekin til áskorunar bæjarráðs Akraness um að starfsmannafélagið fresti boðuðu verkfalli um viku.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur til vopnahlés vegna Ramadan

Einn af leiðtogum súnníta í Írak hefur hvatt til vopnahlés á milli uppreisnarmanna og hermanna í landinu í hinum helga íslamska mánuði Ramadan sem nú er nýhafinn. Saleh al-Mutlak, sem m.a. vann að drögum að nýrri stjórnarskrá fyrir Írak, sagði enn fremur að nokkrir stjórnmálaflokkar súnníta í landinu sem þekktu til uppreisnarmanna hefðu boðist til að koma á viðræðum milli þeirra og Bandaríkjamanna til þess að reyna að binda enda á hin blóðugu átök í Írak.

Erlent
Fréttamynd

250 fasteignir haldlagðar

Breska lögreglan lagði í gær hald á 250 fasteignir í Manchester sem talið er að tengist Írska lýðveldishernum, IRA. Eignirnar tengjast tveimur kaupsýslumönnum og annar þeirra er Thomas Murphy, sem talinn er einn af leiðtogum IRA.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensa finnst í Rúmeníu

Landbúnaðarráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að fundist hefði fuglaflensa í alifuglum þar í landi. Fuglarnir sem smit fannst í eru sagðir þrír en ekki hefur fengist staðfest hvort um banvænt afbrigði flensunnar er að ræða og verða sýni send til Bretlands til frekari rannsókna.

Erlent
Fréttamynd

Mótmæla ráðningu Þorsteins

Stjórn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, mótmælir þeirri ráðstöfun forsætisnefndar Alþingis að ráða sendiherra og fyrrverandi ráðherra, sem enga reynslu hefur af ritun fræðirita, til að rita sögu þingræðis á Íslandi. Sem kunnugt er hefur nefndin falið Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, ritunina.

Innlent
Fréttamynd

Vill viðræður um sjálfstæði Kosovo

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði til við öryggisráð samtakanna í dag að hafnar yrðu viðræður um það hvort Kosovo-hérað skuli fá sjálfstæði eða verða hluti af Serbíu eins og héraðið var áður en átök brustust út milli Serba og Kosovo-Albana seint á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

Stóru olíufélögin lækka verð

Öll stóru olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni um eina krónu á lítra í dag. Ástæða lækkunarinnar er lækkandi heimsmarkaðsverð, en verð á hráolíu lækkaði í gær, fimmta daginn í röð, og er nú komið niður í rétt rúmlega sextíu og einn dollara á fatið.

Innlent
Fréttamynd

270 milljónir í sendiráðin

Sendiráð Íslands fá rúmlega 270 milljóna króna aukaframlag á fjáraukalögum. Á fjárlögum ársins sem samþykkt voru í desember í fyrra var gert ráð fyrir að kostnaður við sendiráðin næmi um 1.700 milljónum króna. Aukningin nú nemur því sextán prósentum af því sem gert var ráð fyrir að rekstur sendiráðanna kostaði.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur ómerkti sýknudóminn

Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps með því að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar, og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms. Sýknudómurinn vakti undrun á sínum tíma þar sem hann byggðist á því að enginn hafi séð verknaðinn nægilega vel.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðleikhúsið fær mest

Lista- og menningarstofnanir fá fjögur hundruð og þrjátíu milljónir króna á fjáraukalögum samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra. Mest rennur til Þjóðleikhússins, sem fær annars vegar tvö hundruð og fimmtíu milljónir vegna endurbóta og viðhalds, og hins vegar tuttugu og fimm milljónir vegna hallareksturs.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Fyrrverandi forstjóri Atlanta, Arngrímur Jóhannsson, var sýknaður af 94 milljón króna kröfu norsks eiganda flugfélags í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Konur og lýðræði

Tuttugu og tveggja manna íslensk sendinefnd tekur nú þátt í ráðstefnunni konur og lýðræði, sem fer fram í St. Pétursborg í Rússlandi. Þetta er fjórða og síðasta ráðstefnan í ráðstefnuröð sem ber sama heitið.

Erlent
Fréttamynd

178 hluthafar í Skúlason Ltd

Hundrað sjötíu og átta hluthafar eru í breska fyrirtækinu Skúlason Limited sem á meirihluta í Skúlason ehf. Það félag sætir nú rannsókn bresku lögreglunnar vegna gruns um peningaþvætti.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla afnámi bensínstyrks

Stjórn Vinstri - grænna mótmælir harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að afnema örorkustyrk vegna reksturs bifreiða, eða svokallaðs bensínstyrks, eins og gert er ráð fyrir í fjárlögum sem birt voru í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Írarnir hafa ekki sótt um leyfi

Hópur Íra, sem gripinn hefur verið við ólöglega sölu ýmiss varnings hér á landi undanfarið, virðist ekki hafa ráðið bót á sínum málum. Á meðal þess sem mennirnir hafa boðið til sölu eru rafstöðvar, borvélar og háþrýstidælur.

Innlent
Fréttamynd

Séra Hans unir tilfærslunni

Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, ætlar að una tilfærslu í annað starf en styrr hefur staðið um störf hans um nokkurt skeið. Hann verður héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og á að sinna aðstoð, prestsþjónustu og afleysingum, samkvæmt tilkynningu frá Biskupsstofu.

Innlent
Fréttamynd

Friðarverðlaun Nóbels afhent

Ósló varð miðpunktur allrar fjölmiðlaathygli um skamma hríð í morgun þegar formaður norsku Nóbelsnefndarinnar sté fram og tilkynnti hver hlyti Friðarverðlaun Nóbels í ár. Þau skiptast í tvennt, á milli Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og yfirmanns hennar, Egyptans Mohammads El-Baradeis.

Erlent
Fréttamynd

Eigendur beita sér ekki

Kristinn Björnsson og fjölskylda hans á stærri hlut í Morgunblaðinu en Baugur í Fréttablaðinu, 36 prósent á móti 32 prósentum Baugs. Stærstu eigendur þessara miðla segjast ekki beita sér varðandi efnistök þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Slysavarnarskóli sjómanna 20 ára

Slysavarnaskóli sjómanna fagnar í dag tuttugu ára afmæli sínu. Það var Slysavarnarfélag Íslands, sem nú heitir Slysavarnarfélagið Landsbörg, sem setti skólann á laggirnar. Skólinn sinnir allri öryggisfræðslu fyrir sjómenn.

Innlent
Fréttamynd

El-Baradai fær friðarverðlaunin

Muhammad el-Baradei var nú fyrir stundu útnefndur til friðarverðlauna Nóbels. El-Baradei er yfirmaður kjarnorkumálaráðs Sameinuðu þjóðanna og barðist fyrir því á sínum tíma að vopnaeftirlitsmenn í Írak fengju meira svigrúm til að leita í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Mæta til vinnu að nýju?

Svo gæti farið að um eitt hundruð starfsmenn Slippstöðvarinnar, sem á þriðjudag bættust á atvinnuleysisskrá á Akureyri, geti mætt til vinnu hjá nýrri endurreistri Slippstöð á næstu dögum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að þrjú fyrirtæki og fjárfestingafélög á Akureyri séu að leggja lokahönd á samkomulag um yfirtöku á rekstri Slippstöðvarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Guðleg opinberun í Hvíta húsinu

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa rökstutt innrásina í Írak og Afganistan með því að hafa fengið guðlega opinberun. Hvíta húsið vísar þessu hins vegar á bug.

Erlent
Fréttamynd

Hljótt um valnefnd í bókmenntum

Enn hefur ekki verið tilkynnt hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Valnefndin í bókmenntum, sem velur vinningshafann úr stórum hópi tilfnefndra skálda, er yfirleitt sú nefnd sem erfiðast á með að finna vinningshafa. Venju samkvæmt á að tilkynna úrslitin í bókmenntum á fimmtudeginum í Nóbelsvikunni, sem nú er komin að lokum, en svo var ekki gert þetta árið frekar en mörg önnur.

Erlent
Fréttamynd

Ófremdarástand í Ártúnsbrekku

Ragnar Sær Ragnarsson, frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, fer heldur óvenjulega leið til að vekja athygli á hinni miklu umferð sem fer um Ártúnsbrekkuna. Hann hyggst dreifa upplýsingum um umferðina til ökumanna við umferðarljósin til móts við Suðurlandsveg upp úr klukkan fjögur í dag.

Innlent