Fréttir
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Selfossi í gær. Stúlkan var til öryggis flutt á Landspítala háskólasjúkrahús í Fossvogi. Innlent 3.11.2005 22:48
Sigur hjá Boro og Bolton Middlesbrough sigraði úkraínska liðið Dnipro auðveldlega 3-0 í riðlakeppni UEFA bikarsins í gærkvöldi. Mark Viduka skoraði tvö mörk og Yakubu eitt. Bolton sigraði Zenit St Petersburg 1-0 með marki frá Kevin Nolan. Þá töpuðu Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar hans í Halmstad stórt, 5-0 fyrir Lens. Sport 4.11.2005 04:34
Bóksalinn í Kabúl óskar eftir hæli í Noregi Bóksalinn í Kabúl, Shah Mohammad Rais, hefur óskað eftir pólitísku hæli í Noregi en norsk stjórnvöld eru treg til að veita honum það. Innlent 3.11.2005 18:10
Flugvélar hafi millilent a.m.k. 67 sinnum á Íslandi Vélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar hafa millilent í Keflavík og Reykjavík 67 sinnum síðan 2001. Íslensk stjórnvöld vissu ekkert um málið og þingmaður hefur krafist lögreglurannsóknar á því, hvort að fangar séu fluttir um íslenska lofthelgi og pyntaðir. Innlent 4.11.2005 18:05
Tap hjá Keflavík og Haukum Karlalið Keflavíkur tapaði fyrir finnska liðinu Lappeeranta í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld 92-75, en leikurinn fór fram í Keflavík. Á sama tíma töpuðu Haukastúlkur stórt á heimavelli fyrir Polisporto Ares frá Ítalíu 85-45 á Ásvöllum. Sport 3.11.2005 21:29
Tónlistarmyndbönd hafi slæm áhrif á ímynd stúlkna Tónlistarmyndbönd geta haft slæm áhrif á sjálfsímynd stúlkna. Þessi myndbönd sýna gjarnan tágrannar stelpur í flegnum fötum, en eins og kunnugt er þá hafa ekki allar stúlkur þessa líkamsbyggingu. Ímynd stúlkna var rædd á ráðstefnu uppeldis- og mannfræðinema. Innlent 3.11.2005 20:45
Rauð bindi grundvallaratriði í kosningum Hart er barist um atkvæði átján þúsund Reykvíkinga sem eru á kjörskrá Sjálfstæðisflokksins og hafa í hendi sér hver verður kosinn borgarstjóraefni í prófkjörinu um helgina. Frambjóðendurnir leggja ýmislegt á sig til að heilla kjósendur upp úr skónum með hugmyndaauðgi og ekki síst réttu ímyndinni, þar sem rauð bindi eru grundvallaratriði. Innlent 3.11.2005 20:16
Tími ríkisstjórnar Merkel strax á enda? Ríkisstjórn Angelu Merkel í Þýskalandi var spáð tveggja ára líftíma eftir kosningarnar fyrir mánuði. Stjórnin hefur reyndar ekki ennþá verið mynduð en tími hennar virðist engu að síður liðinn. Erlent 3.11.2005 20:07
Telur nýju Hringbrautina mistök Borgarfulltrúi R-listans telur nýju Hringbrautina vera mistök því hún taki allt of mikið landrými. Hann segir að grafa verði götuna niður eða byggja yfir hana þegar Vatnsmýrin verði byggð upp. Innlent 3.11.2005 18:30
Litlu sparisjóðirnir þoli varla hærri bindiskyldu Litlu sparisjóðirnir þola varla hærri bindiskyldu, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann undrast málfluting þeirra sem vilja snúa til fyrri hátta, enda notar enginn seðlabanki í þróuðu ríki, bindiskyldu í baráttunni við verðbólgu. Innlent 3.11.2005 18:27
Skotbardagar í fátækrahverfi í París Skotbardagar brutust út í einu af fátækustu úthverfum Parísarborgar í nótt en blóðug átök hafa staðið þar allar nætur í viku. Kveikt hefur verið í hundruðum bifreiða og ráðist inn í skóla, verslanir og stofnanir. Erlent 3.11.2005 18:13
Lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól Ríkisstjórnin situr hjá á meðan glæpafyrirtæki brjóta á fátæku erlendu verkafólki, segir Össur Skarphéðinsson og vill lög hið snarasta. Félagsmálaráðherra segir að íslensk fyrirtæki sem taka þátt í vitleysunni ættu að skammast sín, öllum beri að virða leikreglur á vinnumarkaði enda sé Ísland ekkert fríríki í þessum efnum. Hann lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól. Innlent 3.11.2005 18:10
Mikil leynd yfir fangelsum Mikil leynd hvílir yfir dularfullum fangelsum þar sem meintir hryðjuverkamenn eru yfirheyrðir. Yfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum áttu erfitt með að svara spurningum fréttamanna um málið í dag. Erlent 3.11.2005 19:24
James á skilið annað tækifæri Stuart Pearce segir að markvörður sinn David James eigi skilið að fá annað tækifæri með enska landsliðinu eftir góða frammistöðu með City undanfarið. James hefur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans síðan í stórtapi Englendinga fyrir Dönum í ágúst. Sport 3.11.2005 17:51
Söluaukning um 13,3 prósent Sala Marels fyrstu níu mánuði þessa árs nam 94,3 milljónum evra, eða jafnvirði 7,5 milljarða íslenskra króna. Þetta er um 13,3 prósenta aukning frá fyrra ári. Innlent 3.11.2005 17:59
554 milljónir í hagnað 554 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir tekjuskatt fyrstu níu mánuði þessa árs samanborið við 367 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Innlent 3.11.2005 18:02
Betri útkoma hjá ríkissjóði en áætlað var Breyting á handbæru fé frá rekstri ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins er jákvæð um 14,6 milljarða króna á tímabilinu. Innlent 3.11.2005 18:06
Krónan styrkst enn frekar Krónan hefur styrkt sig um núll komma tuttugu og eitt prósent í dag og hefur gengisvísitalan að líkindum aldrei verið jafn sterk, að minnsta kosti ekki frá 1992. Innlent 3.11.2005 17:57
Libby lýsir sig saklausan vegna lekamáls Lewis Libby, fyrrverandi starfsmannastjóri Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna, lýsti sig saklausan við upphaf réttarhalda yfir honum vegna hins svokallaða lekamáls í dag. Innlent 3.11.2005 17:25
Keflavík og Haukar spila í kvöld Tveir leikir verða á dagskrá í Evrópukeppninni í körfuknattleik hér á landi í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur á móti finnska liðinu Lappeenranta í Keflavík og Haukastúlkur spila við Ribera frá Ítalíu á Ásvöllum. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15. Sport 3.11.2005 17:19
Víða hálka og hálkublettir Nokkur éljagangur er með Norðausturströndinni. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum um allt norðanvert landið.Að mestu er greiðfært um Suðurland og Vesturland. Innlent 3.11.2005 17:22
Merck ekki skaðabótaskylt vegna Vioox Kviðdómur í New Jersey í Bandaríkjunum komst í dag að þeirri niðurstöðu í dag að lyfjafyrirtækið Merck hefði gert læknum nægilega grein fyrir aukaverkunum af gigtarlyfinu Vioox og hefði því ekki blekkt neytendur við markaðsetningu lyfsins. Fyrirtækið væri því ekki skaðabótskylt gagnvart sextugum póstburðarmanni sem lögsótti fyrirtækið og sagðist hafa fengið hjartaáfall vegna notkunar lyfsins. Innlent 3.11.2005 17:15
Refsing vegna líkamsárásar felld niður Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af líkamsárás í ágúst í fyrra í miðbæ Reykjavíkur. Hann var árkærður fyrir að hafa slegið annan karlmann hnefahöggi í andlitið og veitt honum talsverða áverka. Innlent 3.11.2005 16:51
Ritsjóri The Sun fangelsuð vegna líkamsárásar Ritstjóri dagblaðsins The Sun í Bretlandi, Rebekah Wade, var handtekin í morgun vegna árásar á eiginmann sinn, leikarann, Ross Kemp. Málsatvik voru þau að lögreglan var kölluð að heimili þeirra vegna óláta og þegar komið var á staðinn stórsá á eiginmanni hennar og var hann meðal annars skorinn í andliti. Erlent 3.11.2005 16:49
Ástþóri dæmdar bætur vegna frelsissviptingar Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Ástþóri Magnússyni 150 þúsund krónur vegn frelsissviptingar, en Ástþór var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í fjóra daga síðla nóvember 2002 fyrir að hafa sent orðsendingu um að hætta væri á hryðjuverkaárás á íslenska flugvél. Innlent 3.11.2005 17:59
45 daga fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 45 daga fangelsi fyrir tvöfalda líkamsárás. Og einnig til greiðslu þjáningar- og miskabóta til beggja þolenda. Líkamsárásin var framin á veitingastaðnum Klúbbnum í október í fyrra. Innlent 3.11.2005 16:38
Tillögur að deiliskipulagi áfram til sýnis Ákveðið hefur verið að framlengja sýningu á tillögum sem bárust í samkeppninni um deiliskipulag fyrir nýtt sjúkrahús á lóð Landspítalans við Hringbraut um nokkrar vikur vegna mikils áhuga. Innlent 3.11.2005 16:36
Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag. Innlent 3.11.2005 16:42
Enn meiðist Kieron Dyer Miðjumaðurinn Kieron Dyer verður ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Birmingham á laugardag eftir að í ljós kom að hann er veikur. Sagt er að veikindi hans tengist því að hann spilaði um helgina án þess að vera kominn í leikform. Sport 3.11.2005 16:30
Berlusconi segist hafa stafað ógn af sprengjumanni Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að sjálfsmorðsárásarmaður hafi ætlað að ráða hann af dögum á knattspyrnuleik. Hann sakar einnig pólitíska andstæðinga sína um að auka hættuna á hryðjuverkaárásum í landinu með því að draga heilindi hans í efa. Erlent 3.11.2005 16:01