Fréttir
Bensínstyrkur ekki afnuminn Bensínstyrkur ellilífeyrisþega og öryrkja verður ekki afnuminn. Þetta sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja hér á landi á Alþingi í dag. Alls nær styrkurinn til 4000 ellilífeyrisþega og 2650 öryrkja. Innlent 4.11.2005 15:06
Olíutengivagn slitnaði aftan úr flutningabíl Betur fór en á horfðist þegar tengivagn olíuflutningabíls með fullan tank af olíu slitnaði aftan úr bílnum á hringtorginu við Kaplakrika í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu í Hafnarfirði stöðvaðist vagninn strax og urðu engin slys á fólki og litlar sem engar skemmdir á umferðarmannvirkjum. Innlent 4.11.2005 15:00
Ekki hrifinn af vináttulandsleikjum Alex Ferguson, stjóri Manchester United, íhugar að banna leikmönnum sínum að spila vináttuleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi. Sport 4.11.2005 15:11
Mætti drukkinn í bílpróf Þrjátíu og sex ára Dani drakk í sig kjarkinn og ákvað að fara aftur í bílpróf, en það hafði hann misst fyrir margt löngu vegna ölvunaraksturs. Heldur var hann djarfur til flöskunnar því ölvunin kom fram í aksturslagi hans. Erlent 4.11.2005 14:46
Gjöld bæjarins 20-30 milljónum meiri en búist var við Útlit er fyrir að gjöld Ísafjarðarbæjar á yfirstandandi rekstrarári fari tugir milljóna fram úr áætlun. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir í samtali við Bæjarins besta að þetta stafi af auknum launakostnaði sem stefni í að verða 20 til 30 milljónum króna meiri en gert var ráð fyrir. Innlent 4.11.2005 14:14
Kosið um sameiningu á morgun Kosningar um tvær sameiningartillögur sveitarfélaga fara fram á morgun. Í Aðaldælahreppi, Kelduneshreppi, Skútustaðahreppi og Tjörneshreppi verður kosið um sameiningu þessara sveitarfélaga við Húsavíkurbæ, Raufarhafnarhrepp og Öxarfjarðarhrepp, og í Reykhólahreppi verður kosið um sameiningu við Dalabyggð og Saurbæjarhrepp. Innlent 4.11.2005 14:05
Rannsókn á lokastigi Rannsókn á fíkniefnasmygli með póstsendingum er á lokastigi. Karli og konu sem dæmd voru í gæsluvarðhald nýverið hefur verið sleppt. Búist er við að ákæra verði lögð fram um leið og rannsókn málsins lýkur. Innlent 4.11.2005 13:30
Varaðir við að kaupa Tamiflu á Netinu Norsk heilbrigðisyfirvöld vara landsmenn við að kaupa flensulyfið Tamiflu í gegnum Netið af óþekktum framleiðendum en Norðmenn hamstra lyfið í þeirri trú að það verji þá gegn fuglaflensu. Norskir tollverðir hafa lagt hald á talsvert af lyfinu þegar það berst til landsins með póstsendingum en Tamiflu er lyfseðilsskylt og því óheimilt að flytja það inn með þessum hætti. Erlent 4.11.2005 13:28
Vísað tvisvar út sama kvöldið Lögreglan í Keflavík vísaði sömu fimmtán ára stúlkunni út af tveimur vínveitingastöðum í bænum í nótt. Á einum staðnum voru þrjú ungmenni undir 18 ára aldri og þeirra á meðal stúlkan. Þeim var vísað út en þegar lögreglan kom á næsta stað mætti hún stúlkunni þar galvaskri, og var henni aftur vísað út. Innlent 4.11.2005 13:23
Sex lögreglumenn drepnir í Írak Sex lögreglumenn féllu og tíu særðust þegar uppreisnarmenn gerðu árás á eftirlitsstöð íröksku lögreglunnar í norðurhluta Íraks í dag. Skutu uppreisnarmennirnir fyrst úr sprengjuvörpum að stöðinni og keyrðu síðan að henni á átta bílum og hófu vélbyssuskothríð. Erlent 4.11.2005 13:12
Stúlka féll af hestbaki Stúlka féll af hestbaki í Hrunamannahreppi nú eftir hádegið og lenti á höfðinu. Ástæða þótti til að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja stúlkuna á sjúkrahús. Ekki er meira vitað um málið að svo stöddu. Innlent 4.11.2005 12:54
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja taki að sér sjúkrahússþjónustu fyrir Varnarliðið Verið er að kanna möguleika á því að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja taki að sér sjúkrahússþjónustu fyrir Varnarliðið þegar flugherinn tekur við herstöðinni af sjóhernum. Nú þegar er samstarf á milli sjúkrahússins í Keflavík og á Vellinum á vissum sviðum og gæti það aukist til muna á næstunni. Innlent 4.11.2005 12:16
Öryggisverðir fara í verkfall Lausafjárskortur gæti orðið í stærstu borgum Svíþjóðar um helgina þar sem verkalýðsfélag öryggisvarða, sem annast peningaflutninga, ætlar að hætta að flytja peninga þar til öryggi þeirra verður tryggt. Þeir ákváðu þetta eftir að vopnaðir menn rændu fjármunum úr peningaflutningabíl í grennd við Gautaborg í gærmorgun en tveir öryggisverðir slösuðust þegar ræningjarnir sprengdu hreinlega aðra hliðina úr bílnum. Erlent 4.11.2005 12:06
Kanna hvort verktakar fari að lögum Forsvarsmenn Norðuráls á Grundartanga og fulltrúar þeirra stéttarfélaga sem eiga aðild að kjarasamningi við Norðurál funduðu í morgun um málefni þeirra erlendu starfsmanna sem vinna við stækkun Norðuráls hjá ýmsum verktökum á Grundartangasvæðinu. Innlent 4.11.2005 11:26
Indiana vann í Miami Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami. Sport 4.11.2005 04:59
Ágreiningur um kjör í stjórn Framsóknarmenn í Reykjavík ætla að efna til opins prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Stuðningyfirlýsing við Framsóknarflokkinn dugir til að vera gjaldgengur í prófkjörinu. Fundur í kjördæmaráði Reykjavíkurkjördæmis-suður leystist upp í gær vegna ágreinings um kjör í stjórn. Innlent 4.11.2005 10:42
Bjórbruggverksmiðja rís á Litla Árskógssandi Reisa á bruggverksmiðju á Litla Árskógssandi við Eyjafjörð innan tíðar og framleiða þar áfengan bjór. Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson eru á förum til Tékklands til að kaupa áhöld til framleiðslunnar. Reist verður 300 fermetra stálgrindarhús yfir framleiðsluna og er stefnt að því að brugga 200 þúsund lítra af bjór á ári. Innlent 4.11.2005 10:39
Bush aldrei verið jafn óvinsæll George Bush Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og hann er nú. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir CBS-fréttastofuna reyndust aðeins 35% þeirra sem tóku þátt ánægð með störf forsetans. Erlent 4.11.2005 10:17
Stefnir í stríð milli Eþíópíu og Erítreu Hætta er á nýju stríði á milli Afríkuríkjanna Eþíópíu og Erítreu en herflokkar beggja þjóða hafa safnast saman meðfram landamærum ríkjanna tveggja. Eþíópía og Erítrea hafa áður háð stríð vegna landamæranna en því stríði lauk árið 2001. Erlent 4.11.2005 10:12
Skulda mest á aldrinum 36-40 ára Hjón og sambýlisfólk á aldrinum 36 til 40 ára skulda að jafnaði mest samkvæmt samantekt Hagstofunnar, eða 13 milljónir króna að meðaltali. Af þeim skuldum eru rúm 68 prósent vegna húsnæðis. Innlent 4.11.2005 09:09
Vill sættast við Wenger Jose Mourinho segist vera alveg tilbúinn að sættast við kollega sinn Arsene Wenger hjá Arsenal með því að biðjast afsökunar á því að hafa kallað hann gluggagægir í viðtali fyrir stuttu, en aðeins með þeim skilyrðum að Wenger biðjist afsökunar á ummælum sínum um Chelsea. Sport 4.11.2005 04:46
Skotárás í Osló Maður hóf skotárás fyrir utan bar í miðborg Oslóar á miðnætti í nótt. Einn maður særðist lítilsháttar á höfði en talið er að hann hafi særst þegar hann kastaði sér í götuna í skotárásinni eða að öðrum orsökum. Erlent 4.11.2005 08:41
Ferja sökk í Pakistan 60 manns fórust þegar ferja sökk í Indus ánni í Pakistan í morgun. Talsmaður pakistanska hersins segir að ferjan hafi sokkið nálægt borginni Thatta, sunnarlega í Pakistan. Talið er að 80 manns hafi verið um borð þegar ferjan sökk en verið er að rannsaka orsakir slyssins. Erlent 4.11.2005 08:37
12 þúsund hafa yfirgefið heimili sín Yfir tólf þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Hondúras vegna úrhellisrigninga að undanförnu. Ár flæða yfir bakka sína og er vatnið byrjað að eyðileggja vegi sem liggja milli fimmtíu þorpa og kaupstaða þar sem land stendur lægst við strandir. Erlent 4.11.2005 08:04
Hefur hlotið 25 dóma á 15 árum Síbrotamaður var dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot í Hæstarétti í gær. Braust maðurinn bæði inn í bíla og verslanir og stal þaðan verðmætum. Frá árinu 1990 til ársins 2004 hefur maðurinn samtals 25 sinnum hlotið refsidóma fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Innlent 4.11.2005 07:53
Níu ára palestínskur drengur skotinn Ísraelskir hermenn skutu og særðu níu ára palestínskan dreng á Vesturbakka Jórdan í gær. Hermennirnir héldu að drengurinn væri vopnaður en seinna kom í ljós að hann var með leikfangariffil. Erlent 4.11.2005 07:51
Ný tegund ökuréttinda vegna pallbíla Byrjað er að bjóða upp á nýja tegund ökuréttinda til þess að koma til móts við þá sem eiga pallbíla, en margir bílanna eru það þungir að almenn ökuréttindi duga ekki til. Innlent 3.11.2005 23:30
Útfæði erlends gjaldeyris frá landinu Talsvert útflæði erlends gjaldeyris var frá landinu í september síðastliðnum. Stafar það aðallega af erlendum verðbréfakaupum innlendra aðila. Einnig má gera ráð fyrir aukinni sölu íslenskra skuldabréfa til erlendra aðila á næstu misserum. Innlent 3.11.2005 22:13
KB banki hækki sjálfur vexti Búast má við að vextir á íbúðalánum Íbúðalánasjóðs hækki í árslok. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir samt nær fyrir KB banka að hækka vexti á sínum lánum. Þenslan sé jú sprottin upp úr óheftum lánum bankanna. Innlent 3.11.2005 21:54
Bandarísk stjórnvöld hafi leyfi íslenskra til fangaflugs Össur Skarphéðinsson fullyrðir á heimasíðu sinni að bandarísk stjórnvöld hafi formlegt leyfi íslenskra stjórnvalda til að fljúga með meinta hermdarverkamenn í haldi um Ísland. Þetta megi lesa út úr yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, frá 18. mars 2003, sem birt hafi verið á vef Hvíta Hússins 26. mars sama ár. Innlent 3.11.2005 23:32