Fréttir
Eftirsóttur í janúar Talið er líklegt að nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni muni fara í stríð um að fá framherjann Dean Ashton hjá Norwich til sín þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Ashton hefur alls ekki náð sér á strik hjá Norwich í 1. deildinni það sem af er vetri, en liðið hefur sömuleiðis tapað helmingi leikja sinna og valdið miklum vonbrigðum. Sport 9.12.2005 17:08
Ekið á konu í Hafnarfirði Ekið var á fullorðna konu á bílaplaninu við Samkaup í Hafnarfirði fyrr í dag. Konan, sem er íbúi í þjónustuíbúðum aldraðra í Miðvangi, var á gangi eftir bílaplaninu þegar bíll keyrði á hana. Konan hlaut minniháttar áverka. Innlent 9.12.2005 17:10
Verður ekki meira með á tímabilinu Hollenski miðjumaðurinn Boundewijn Zenden mun að öllum líkindum ekki spila meira með Liverpool á leiktíðinni, eftir að í ljós kom að hann þarf að gangast undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Zenden meiddist í leik gegn Betis í Meistaradeildinni og nú er ljóst að hinn 29 ára gamli leikmaður þarf að fara til Bandaríkjanna í aðgerð. Sport 9.12.2005 16:55
Bandarísk stjórnvöld viðurkenna að hafa í haldi fanga sem mannréttindasamtök hafa ekki aðgang að Bandarísk stjórnvöld hafa viðurkennt að þau haldi föngum sem mannréttindasamtök fá ekki aðgang að. Rauði Krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. Innlent 9.12.2005 16:46
Fimm hlutu A-styrk Í dag var íþróttamönnum úthlutað 60 milljónum úr afrekssjóði ÍSÍ, sem og úr sjóði ungra og efnilegra íþróttamanna, en styrkirnir eru fyrir árið 2006. Ásdís Hjálmsdóttir hlaut A-styrk í fyrsta sinn, en auk hennar hlutu Rúnar Alexandersson, Þórey Edda Elísdóttir, Kristín Rós Hákonardóttir og Jón Oddur Halldórsson A-styrkinn. Sport 9.12.2005 16:30
Ragnheiður hafnaði í 19. sæti Ragnheiður Ragnarsdóttir hafnaði í 19. sæti í undanrásum í 100 metra fjórsundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug sem fram fer í Trieste. Anja Ríkey Jakobsdóttir hafnaði í 26. sæti í sundinu. Ragnheiður synti á 1: 04, 71. Sport 9.12.2005 16:44
20 ára afmæli aflrauna á Íslandi Annað kvöld verður mikið um dýrðir á Kaffi Reykjavík, þar sem múgur og margmenni verður saman komið til að fagna 20 ára afmæli aflrauna á Íslandi. Ríkulegur matseðill verður á boðstólnum og þegar hefur fjöldi manns boðað komu sína á þennan skemmtilega viðburð, þar sem meðal annars verða sýndar svipmyndir úr heimildarmynd Hjalta Árnasonar um Jón Pál Sigmarsson heitinn. Sport 9.12.2005 16:18
Fékk leyfi vegna dauða bróður síns Bakvörðurinn Quentin Richardson hjá New York á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en hann hefur fengið tímabundið leyfi frá liðinu eftir að bróðir hans var myrtur í Chicago á dögunum. Bróðir hans, Lee Richardson, varð fyrir því óláni að verða á vegi miskunnarlausra ræningja sem hófu skothríð þegar þeir lögðu á flótta og lést Lee af skotsárum sínum. Árásarmennirnir náðust allir og hafa verið ákærðir. Sport 9.12.2005 14:51
Sýndi áhorfendum fingurinn Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United gæti átt yfir höfði sér refsingu frá UEFA eftir að hann sýndi löndum sínum í fingurinn þegar hann gekk af velli í tapinu gegn Benfica í Meistaradeildinni. Stuðningsmenn Benfica bauluðu á hann í hvert skipti sem hann snerti boltann í leiknum, en Ronaldo lék áður með erkifjendum Benfica í Sporting Lissabon. Sport 9.12.2005 16:09
Dagur genginn í Samfylkinguna Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur. Innlent 9.12.2005 15:29
Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði Fyrsta skóflustungan verður tekin á morgun að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir byggingu 320 íbúða sem verða í fimm til sex hæða húsum. Þá er einnig gert ráð fyrir byggingu 120 íbúða fyrir eldri borgara ásamt samkomuhúsi. Innlent 9.12.2005 15:06
Everton og Bolton líklegust til að hreppa Keane Nú líður senn að því að Roy Keane taki ákvörðun um hvar hann ætlar að ljúka ferli sínum sem knattspyrnumaður og samkvæmt fréttum frá Bretlandi, þykja Bolton og Everton líklegustu liðin til að fá hann í sínar raðir af þeirri einföldu ástæðu að hann hefur gefið út að hann vilji ekki flytja of langt með fjölskyldu sína. Sport 9.12.2005 14:59
Strípuðu fjallabíl og skildu eftir við Rauðavatn Bífrænir þjófar þurftu ekki langan tíma til að strípa jeppa sem þeir þeir stálu í Árbænum á þriðjudag. Flestallt nýtilegt var hreinsað úr honum á rúmum sólarhring að líkindum til þess að nýta í aðra bíla. Eigandi bílsins segir tjónið tölvuert. Innlent 9.12.2005 14:49
Vill að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar Baugsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi og verjendur sakborninga kröfðust þess á ný að málinu væri vísað frá og tiltóku þrjár ástæður fyrir að slíkt ætti að gera. Settur saksóknari vísaði þeim öllum á bug og sagði kominn tíma til að taka málið til efnislegrar meðferðar. Innlent 9.12.2005 14:44
Landspítalinn stóð við sinn enda samkomulagsins Landspítali – háskólasjúkrahús segist hafa staðið við sinn enda samkomulags síns við yfirlækni í æðaskurðlæknum og því hafi uppsögn hans verið réttmæt. Í yfirlýsingu spítalans segir að í starfslýsingu sem Stefán E. Matthíasson undirritaði við ráðningu í starf yfirlæknis í æðaskurðlæknum komi skýrt fram að yfirmenn Landspítala-háskólasjúkrahúss stundi ekki sjálfstæðan atvinnurekstur. Innlent 9.12.2005 14:17
Indiana burstaði Washington Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Indiana Pacers burstaði Washington Wizards 111-87, en Indiana lék án Ron Artest sem er meiddur. Þá vann Houston Rockets góðan útisigur á Sacramento 106-95, en Sacramento hefur nú tapað 5 leikjum í röð. Sport 9.12.2005 14:43
Enn hálka víða Hellisheiði eystri er enn lokuð vegna flughálku og hvassviðris en einnig er varað við flughálku á Ströndum norðan Bjarnarfjarðar, á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og á Lágheiði samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Enn er hálka eða hálkublettir að einhverju marki í flestum landshlutum, - þó síst á Suðausturlandi. Innlent 9.12.2005 13:51
Réttað á ný í Baugsmálinu Þinghald hófst rétt í þessu í Baugsmálinu. Héraðsdómari boðaði tvo saksóknara í dómssal, hvort tveggja Boga Nilsson ríkissaksóknara og Sigurð Tómas Magnússon, sérstakan saksóknara, en ekki hefur fengist úr því skorið hvor þeirra fer með ákæruvald í málinu. Innlent 9.12.2005 13:29
Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa. Innlent 9.12.2005 12:48
Slökkviliðið var í næstu götu Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í húsi í Faxafeni í Reykjavík en útskrifaðir skömmu síðar. Slökkviliðsmenn voru á fundi í næstu götu og því fljótir á staðinn. Innlent 9.12.2005 12:14
Snákar og byssur fundust í Kópavogi Tveir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi var meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Snákarnir eru yfir hálfur metri á lengd hvor, en blátt bann liggur við innflutningi þessháttar dýra bæði vegna þess að bit þeirra geta reynst hættuleg og svo geta þau borið með sér sjúkdóma, enda fara þau ekki í sóttkví, ef þeim er smyglað. Innlent 9.12.2005 12:06
Spenna um framtíðarsýn Símans Eitt stærsta viðskiptaleyndarmálið þessa dagana er, í hverju síminn ætlar að fjárfesta eftir að hann eykur hlutafé sitt um 35 milljarða króna, eins og allt stefnir í. Innlent 9.12.2005 12:01
Hlýtur að hugleiða að segja af sér Árni Magnússon hlýtur að hugleiða að segja af sér vegna dóms sem féll gegn honum í Hæstarétti í gær, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, neitar að tjá sig frekar um málið og vísar til yfirlýsingar sem hann sendi frá sér í gær. Innlent 9.12.2005 11:53
Slapp ómeidd úr bílveltu Kona slapp óslösuð þegar bíll sem hún ók valt í hálku á Eyrarbakkavegi laust fyrir klukkan átta í morgun. Hálka er á nokkrum stöðum á Suðurlandi en að sögn lögreglu er útlit fyrir að hálkublettirnir hverfi þegar líður á daginn. Innlent 9.12.2005 11:48
Kristinn fær engin svör Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, fær ekkert svar við fyrirspurn sinni um íbúðalán banka og sparisjóða. Hann spurði meðal annars hversu mikið hver banki og sparisjóður hefði lánað gegn veði í húsnæði, hversu margir væru í viðskiptum hjá hverjum bankanna í sig og á hvaða kjörum þeir væru. Innlent 9.12.2005 09:36
Gary Glitter segist saklaus Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter hefur viðurkennt fyrir Víetnömskum yfirvöldum að hafa haft ellefu ára gamla stúlku í rúmi sínu en neitar að hafa misnotað hana. Hinum sextíu og eins árs gamla Glitter er haldið í fangelsi fyrir utan strandborgina Vung Tau, ásakaður um svívirðilegt athæfi með barni en hann er talinn hafa haft kynmök með allnokkrum stúlkum undir lögaldri, þar á meðal er ein ellefu ára og önnur tólf. Erlent 9.12.2005 08:37
Bjarni Hafþór ráðinn til KEA Bjarni Hafþór Helgason hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri KEA og hefur hann störf um áramót. Hann mun annast framkvæmdastjórn fjárfestingafélaganna Hildings og Upphafs en þau eru dótturfélög KEA. Innlent 9.12.2005 10:56
Verður líklega fyrsti kvenkyns forseti Chile Michele Bachelet verður fyrsti kvenkyns forseti Chile, nái hún kjöri í í forsetakosningum á sunnudag. Til að ná kjöri verður forseti að hafa yfir 51 % atkvæða en Bachelet hefur forystuna í skoðanakönnunum með 48% atkvæða. Erlent 9.12.2005 07:18
Tveir á sjúkrahús með reykeitrun Eldur kviknaði í einu Bláu húsanna svokölluðu við Faxafen í Reykjavík fyrir um klukkustund síðan og var tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um að það væri með reykeitrun. Innlent 9.12.2005 10:33
Bíll skorðaðist þversum á Blöndubrú Það var lán í óláni þegar ungur maður missti stjórn á bíl sínum á leið yfir brúna yfir Blöndu í Blöndudal í gærkvöldi að bíllinn skorðaðist þversum á brúnni á milli handriðanna í stað þess að fara út af öðru hvoru megin. Innlent 9.12.2005 08:05