Fréttir

Fréttamynd

Ciudad Real mætir Celje Lasko

Í dag var dregið í 8-liða úrslit Evrópukeppnanna í handbolta. Í Meistaradeildinni mæta Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real sterku liði Celje Lasko frá Slóveníu. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach mæta Bidasoa frá Spáni í EHF keppninni og Lemgo, lið Ásgeirs Hallgrímssonar og Loga Geirssonar, mætir rússneska liðinu Dynamo Astachan.

Sport
Fréttamynd

Mourinho og Ferguson gætu fengið sekt

Nú eru ummæli þeirra Jose Mourinho og Alex Ferguson eftir leiki helgarinnar í rannsókn og svo gæti farið að báðir yrðu sektaðir fyrir gremju sína. Mourinho sakaði leikmann Wigan um að vera svindlara og Ferguson lét vafasöm orð falla um Rob Styles dómara eftir jafnteflið við Everton.

Sport
Fréttamynd

Detroit lá í Utah

Fimm leikir voru háðir í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að sjóðheitt lið Detroit Pistons tapaði óvænt fyrir Utah Jazz á útivelli. Kobe Bryant tryggði LA Lakers sömuleiðis óvæntan sigur á Dallas Mavericks með þriggja stiga körfu í lokin og Phoenix lá fyrir New Orleans á heimavelli sínum.

Sport
Fréttamynd

Metaukning innflutnings

Innflutningur hefur aldrei aukist jafn mikið á einum ársfjórðungi og á þriðja ársfjórðungi ársins 2005 en þá jókst hann um 32,2 prósent. Á sama tíma minnkaði útflutningur um 3,3 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Slapp ótrúlega vel úr vinnuslysi

Maður slapp nær ómeiddur þegar þrjú fiskikör féllu á hann ofan af vörubifreið sem hann vann við að afferma í Grindavík í gær. Víkurfréttir greina frá því að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild Landspítalans í Reykjavík en reyndist einungis hafa marist nokkuð og fékk að fara heim að skoðun lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Hraðvirkasta leitarvélin fyrir flug

Dohop.com opnaði í dag nýja gerð flugleitarvélar sem inniheldur 650 flugfélög, þar með talin 80 lággjaldafélög. Aðstandendur vefsins segja leitarvélina bæði ítarlegri og hraðvirkari en áður hefur þekkst.

Innlent
Fréttamynd

Verði að læra dönsku áður en þeir flytja til Danmerkur

Útlendingar sem hyggjast flytja til ættingja sinna sem búsettir eru í Danmörku skulu hafa staðist próf í dönsku og danskri menningu áður en þeir flytja. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju lagafrumvarpi Venstre-flokksins í Danmörku, og sem íhaldsmenn og danski Þjóðflokkurinn virðast ætla að styðja.

Erlent
Fréttamynd

Þrír Palestínumenn særðust á Vesturbakkanum

Þrír særðust þegar ísraelskir hermenn skutu á hóp palestínskra mótmælenda í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Tveir mannanna eru alvarlega særðir, að sögn palestínskra sjúkraflutningamanna.

Erlent
Fréttamynd

Fundu kannabisplöntur við húsleit

Lögreglumenn frá Selfossi fundu í morgun á annað hundrað kannabisplöntur og talsvert af Marijuana við húsleit í uppsveitum Árnessýslu. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins og eru lögreglumenn enn á vettvangi. Maðurinn mun áður hafa gerst bortlegur við lög.

Innlent
Fréttamynd

Óeirðir í Sidney annan daginn í röð

Sjö slösuðust og tugir bíla voru eyðilagðir í óeirðum sem geisuðu í Sidney í Ásralíu í gærkvöldi, annað kvöldið í röð. Ólætin byrjuðu á sunnudagseftirmiðdag þegar um 5000 manns gerðu aðsúg að hópi fólks af arabískum uppruna.

Erlent
Fréttamynd

Heimabankaræninginn viðurkennir verknaðinn

Tæplega þrítugur karlmaður hefur viðurkennt að hafa stolið um tveimur milljónum króna úr heimabönkum í nokkrum færslum. Hann hefur hins vegar ekki viljað segja hvað hann gerði við peningana og hefur lögregla ekki haft uppi á þeim.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert frekara grjóthrun í Óshlíð

Ekkert frekara grjóthrun hefur orðið í Óshlíð á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur eftir að nokkur björg, tvö til fjögur tonn að þyngd, féllu niður á veginn á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin átti leið um veginn í sama mund og hrunið varð og hlutust því engin slys af.

Innlent
Fréttamynd

Williams verður tekinn af lífi

Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníuríkis, ætlar ekki að náða Stanley Williams sem eftir stundarfjórðung verður tekinn af lífi með banvænni sprautu. Willams, sem stofnaði glæpagengið Crips, var fundinn sekur um fjögur morð árið 1979.

Erlent
Fréttamynd

Handtekinn með fíkniefni eftir eltingarleik

Ökumaður bíls, sem var á leið niður Ártúnsbrekkuna á sjötta tímanum í morgun, gaf allt í botn þegar hann sá lögreglubíl gefa sér stöðvunarmerki. Hann ók á miklum hraða niður í Mörkina þar sem hann nauðhemlaði, stökk út úr bílnum og tók til fótanna. Það gerðu lögreglumenn líka og hlupu hann uppi.

Innlent
Fréttamynd

Þrjár hryðjuverkaárásir stöðvaðar í London

Lögreglan í Lundúnum hefur komið í veg fyrir þrjár hryðjuverkaárásir síðan tilraun til hryðjuverkaárása var gerð þann 21. júlí síðastliðinn. Þetta sagði Ian Blair, lögreglustjóri borgarinnar, á blaðamannafundi í gær.

Erlent
Fréttamynd

Hávaði í mötuneytum geti leitt til heyrnaskaða

Hávaði í mötuneytum sumra grunnskóla í Reykjavík er slíkur að það getur leitt til þess að börn skaðist á heyrn. Nýjar hljómælingar sýna að mesti hávaði er töluvert yfir viðmiðunarmörkum Umhverfissviðs borgarinnar í að minnsta kosti einum skóla og nálægt mörkunum í tveimur öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Snarpur skjálfti í Afganistan

Snarpur jarðskjálfti sem mældist 6,7 ár Richter skók Hindu Kush héraðið í Afganistan fyrir stundu, þar sem nú er árla dags, en engar fregnir hafa borist af mann- eða eignatjóni.

Erlent
Fréttamynd

Tottenham sigraði Portsmouth

Lið Tottenham Hotspurs hefur ekki sagt sitt síðasta orð í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í vetur og í kvöld vann liðið góðan sigur á botnliði Portsmouth 3-1 á heimavelli sínum. Sigurinn var þó langt frá því að vera auðveldur.

Sport
Fréttamynd

Schwarzenegger náðar ekki dauðadæmdan mann

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, ákvað í dag að náða ekki Stanley "Tookie" Williams, fyrrverandi foringja í glæpagengi, sem taka á af lífi í fyrramálið að íslenskum tíma. Williams var dæmdur til dauða fyrir morð á fjórum mönnum árið 1979 en hann hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu og hefur í fangelsi unnið ötullega gegn gengjamenningu í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Verið að skoða erindi Íbúðalánasjóðs

Fjármálaeftirlitið hefur tekið til skoðunar erindi Íbúðalánasjóðs vegna umdeildra viðskipta KB banka með íbúðalánabréf á útboðsdegi Íbúðalánasjóðs í nóvember. Að sögn Jónasar Fr. Jónssonar, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, er verið að skoða erindi Íbúðalánasjóðs en ekki er þó að vænta neinna viðbragða frá Fjármálaeftirlitinu fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Líbanska ríkisstjórnin hangir á bláþræði

Líf líbönsku ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði. Fimm ráðherrar úr röðum Hizbollah sem eru hallir undir sýrlensk stjórnvöld sögðust í kvöld vera hættir þátttöku í ríkisstjórninni. Þetta sögðu þeir eftir neyðarfund í ríkisstjórninni vegna morðsins á blaðaútgefandanum Gebran Tueni í bílsprengjuárás í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Flýja öfund út í meint auðæfi

Foreldrar barns númer áttatíu og eitt, sem bjargaðist á undraverðan hátt úr flóðbylgjunni miklu á Srí Lanka, eiga erfitt, því að fólk heldur að þeir séu svo ríkir.

Erlent
Fréttamynd

Stóraukinn vatnsútflutningur

Útflutningur á drykkjarvatni er orðinn þriðjungi meiri en hann var á síðasta ári, og það þrátt fyrir að þrír síðustu mánuðir þessa árs séu ekki taldir með.

Innlent
Fréttamynd

Bruni í bílum sjaldgæfur

Afar sjaldgæft er að kvikni í bílum við árekstra. Þegar slíkt gerist er það oftast nær tengt rafkerfi bílanna og byrja slökkviliðsmenn venjulega á því að aftengja rafkerfin þegar þeir koma á slysstað.

Innlent
Fréttamynd

Fær enn martröð þrem vikum eftir slysið

Særún Sveinsdóttir Williams, sem missti báða fætur í bílslysi í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, fær enn martraðir eftir slysið. Hún liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi, en segist afar þakklát fyrir að vera á lífi. Hafin er fjársöfnun til handa þessari einstæðu þriggja barna móður.

Innlent
Fréttamynd

Enn leitað að Karadic

Hersveitir NATO, í Bosníu, gerðu í dag húsleit hjá einum stuðningsmanna Radovans Karadic, leiðtoga Serba í Bosníustríðinu. Talsmaður NATO sagði við fréttamenn að þetta hefði verið gert til að fá frekari upplýsingar um net stuðningsmanna sem hafa gert Radovan Karadic kleift að vera í felum í tíu ár.

Erlent
Fréttamynd

Ráðherra vonar að málið fjúki í burtu

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, mun ekki segja af sér vegna dóms hæstarréttar sem féll fyrir helgi og neitar að ræða málið efnislega. Ástráður Haraldsson, lögmaður Valgerðar Bjarnadóttur, segir Árna einbeita sér að því að drepa málinu á dreif og fá það til að snúast um eitthvað annað í þeirri von að tali hann nógu mynduglega og með nógu djúpum tóni þá muni þetta mál fjúka í burtu.

Innlent
Fréttamynd

Réðum illa við eldinn ef kviknaði í í Örfirisey

Olíubirgðastöðin fyrir norðan Lundúnir sem stendur í ljósum logum er af svipaðri stærð og olíubirgðastöðin í Örfirisey. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki nægar froðubirgðir til í landinu til þess að slökkva eld eins og þann sem logar í Bretlandi.

Innlent