Sport

Ciudad Real mætir Celje Lasko

Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real fá erfitt verkefni í 8-liða úrslitunum
Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real fá erfitt verkefni í 8-liða úrslitunum NordicPhotos/GettyImages
Í dag var dregið í 8-liða úrslit Evrópukeppnanna í handbolta. Í Meistaradeildinni mæta Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real sterku liði Celje Lasko frá Slóveníu. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach mæta Bidasoa frá Spáni í EHF keppninni og Lemgo, lið Ásgeirs Hallgrímssonar og Loga Geirssonar, mætir rússneska liðinu Dynamo Astachan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×