Fréttir

Fréttamynd

Banna kennslu á sköpunarkenningunni

Alríkisdómari í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að ekki mætti kenna sköpunarkenninguna í líffræðitímum í skólum í Pennsylvaníu.

Erlent
Fréttamynd

Hæstiréttur sýknaði ríkið

Hæstiréttur sýknaði ríkið í gær af kröfu manns sem vildi að álagning iðnaðarmálagjalds á rekstur hans á árunum 2001 til 2004 yrði felld úr gildi.

Innlent
Fréttamynd

Hætt við uppboð á eigum Bobby Fischer

Uppboð á eigum Bobby Fischer á uppboðsvefnum e-bay sem sagt var frá í fréttum NFS í síðustu viku hefur nú verið dregið til baka. Seljandinn segist reiðubúinn að afhenda Fischer eigur sínar aftur fáist einhver til að greiða flutningskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Réttarhöld yfir Saddam hefjast á ný

Réttarhöldin yfir Saddam Hússein og sjö samstarfsmönnum voru að hefjast rétt í þessu. Saddam er viðstaddur réttarhöldin, þrátt fyrir að hafa neitað að taka frekari þátt í þeim fyrir tveimur vikum.

Erlent
Fréttamynd

Vélstjórar samþykktu samning

Vélstjórar samþykktu kjarasamning sinn við Landhelgisgæsluna með 63 prósentum atkvæða. Tólf voru á kjörskrá og greiddu ellefu þeirra atkvæði. Sjö greiddu atkvæði með samningnum, tveir á móti og tvö atkvæði voru ógild.

Innlent
Fréttamynd

Misnota og misskilja notagildi öryggismyndavéla

Norskur afbrotafræðingur segir öryggisverði misskilja og/eða misnota notkun eftirlitsmyndavéla, samkvæmt frétt í Aftenposten. Niðurstöða afbrotafræðingsins byggir á rannsókn á viðbrögðum öryggisvarða í verslunarmiðstöðvum. Þar segir að oft sé nóg að fólk hafi oft ekkert annað til saka unnið en að vera þreytulegt eða sjúskað til þess að því sé vísað út eða önnur afskipti höfð af þeim. Afbrotafræðingurinn segir að um gróflega mismunum sé að ræða og hvetur yfirvöld til aðgerða.

Innlent
Fréttamynd

Kosning um sjö undur veraldar

Nú gefst heimbyggðinni kostur á að kjósa um sjö undur veraldar. Kosningin fer fram á netinu og þar er gefnir möguleikar á að kjósa á milli hinna fjölbreyttustu mannvirkja. Í boði eru kirkjur, hof og minnisvarða. Kínamúrinn er nú efstur á listanum og í öðru sæti er Patala höllin í Indlandi, í tíunda sæti er Rauða torgið í Moskvu. Kjósendum gefst einnig kostur á að benda á önnur mannvirki. Úrslit verða tilynnt í janúar 2007.

Innlent
Fréttamynd

Vinnuhópur um verndun hafsins

Norrænu ríkisstjórnirnar hafa sett á laggirnar vinnuhóp um verndun hafsins. Vinnuhópurinn á að koma með tillögur Norðurlanda að sameiginlegri Evrópskri stefnu um verndun sjávar. Formaður nefndarinnar er Tore Riise frá norska strand- og sjávarútvegsráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Vara við kertaskreytingum

Slökkviliðið í Reykajvík var kallað út tvisvar í gærkvöldi og í nótt vegna elds í kertaskreytingum. Húsráðanda í Þingholtunum tókst að koma skreytingunni logandi út, ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni. Í Grafarvogi barst eldur frá skreytingunni í gardínur og tókst húsráðanda sjálfum að ráða niðurlögum eldsins. Hann brenndist lítillega.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur í Njarðvík

Harður árekstu varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks í Njarðvík í dag. Einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist meiðsl hans minniháttar og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Bílarnir voru talsvert skemmtis og voru fjarlægðar með dráttarbifreið.

Innlent
Fréttamynd

Tvö umferðaróhöpp í Vestur-Húnavatnssýslu fyrr í kvöld

Betur fór en á horfðist þegar ungur ökumaður velti bíl sínum í nágrenni Hvammstanga fyrr í kvöld. Bílli fór veltu en endaði á hvolfi á miðjum veginum. Ökumaðurinn, sem er nýkominn með bílpróf, var fluttur á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga og reyndust meiðsl hans vera lítilsháttar.

Innlent
Fréttamynd

Hjördís sátt

Hjördís Hákonardóttir dómsstjóri er sátt við samkomulag sem náðst hefur milli hennar og Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að dómsmálaráðherra hafi brotið jafnréttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara í ágúst árið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri þiggur ekki launahækkun

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið. Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. sem á og rekur Skjá 1. Síminn stefnir að því að hasla sér frekari völl á fjölmiðlamarkaði, bæði innanlands og utan.

Innlent
Fréttamynd

Síminn og Skjár 1 sameinast

Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. (Símans) samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf., sem á og rekur Skjá 1. Í fréttatilkynningu frá Símanum segir að á fundinum hafi verið samþykkt samrunaáætlun sem lögð var fyrir hluthafafund í öllum félögunum fyrr í þessum mánuði. Samruni Símans, Skipta og Íslenska sjónvarpsfélagsins undir nafni og kennitölu Símans gildir frá 30. júní sl. og gilda samþykktir Símans fyrir sameinað félag.

Innlent
Fréttamynd

Laun borgarstjóra munu ekki hækka samkvæmt ákvörðun Steinunnar Valdísar

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. Laun borgarstjóra hafa miðast við laun forsætisráðherra, en skv. úrskurðinum áttu launin að hækka um 75.000 kr. á mánuði frá áramótum.

Innlent
Fréttamynd

Elton John staðfestir samvist sína

Elton John og ástmaður hans eru meðal sexhundrað áttatíu og sjö samkynhneigðra para sem ætla að staðfesta samvist sína opinberlega, þegar ný lög taka gildi í Bretlandi á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Brýnasta verkefnið að lækka virðisaukaskatt á matvæli

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir eitt brýnasta verkefnið fram undan að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Ríkisvaldið verði að stuðla með beinum hætti að lægra vöruverði. Það verði þó að herða eftirlit með verðlagi svo skattaívilnunin lendi ekki í vasa kaupmanna. Sporin hræði í þeim efnum.

Innlent
Fréttamynd

Vildu horfa í augu morðingja sona þeirra

Fimm Serbar, sem voru kvikmyndaðir þegar þeir myrtu sex múslíma í Bosníu árið 1995, voru leiddir fyrir rétt í Belgrad í dag. Mæður hinna myrtu eru viðstaddar réttarhöldin. Þær sögðust vilja horfa í augu mannanna sem myrtu syni þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Vonar að það takist að manna leikskólana

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vonast til þess að það takist að manna leikskólana í Kópavogi þótt nokkrir starfsmenn hafi lýst því yfir að þeir muni hætta störfum. Hann segir þó viðbúið að einhverjir hætti vegna yfirboða Reykjavíkurborgar. Formaður foreldrafélags leikskólans Dals segir ófremdarástand að skapast og fólk horfi fram á að þurfa að hætta að vinna til að geta verið með börnum sínum vegna manneklu á leikskólum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag milli Björns og Hjördísar

Samkomulag hefur tekist milli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, og Hjördísar Hákonardóttur, dómsstjóra, vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að ráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði hæstaréttardómara haustið 2003. Björn skipaði þá Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Innlent
Fréttamynd

Fékk 6 mánaða dóm fyrir að stela kókómjólk, áleggi og köku

Karlmaður var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að brjótast inn í Reynisbakarí í Kópavogi í ágúst síðastliðnum og stela þaðan vörum. Ránsfengurinn var þrjár kókómjólkurfernur, oststykki, hangikjötssalat og brúnkaka.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla árekstur við Smáralind

Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut í nágrenni Smáralindar fyrr í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild. Svo virðist sem meiðsl þeirra séu lítilsháttar en verið er að rannsaka hugsanlega áverka.

Innlent
Fréttamynd

Vetnisrafall tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli

Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kveiktu á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag. Rekstur rafalsins er hluti af tilraunaverkefni verkfræðideildar Bandaríkjahers með vetni sem varaafl.

Innlent
Fréttamynd

Forseti Íslands heimsótti Fjölskylduhjálpina

Forseti Íslands kom í opinbera heimsókn í bækistöðvar Fjölskylduhjálpar Íslands í dag. Það kom honum á óvart hversu margir leita til fjölskylduhjálparinnar allan ársins hring. Hann sagði einnig augljóst að þrátt fyrir að flestir ynnu fulla vinnu næðu margir ekki endum saman.

Innlent
Fréttamynd

Geti kennt sjálfum sér um að vera lítið á sviðinu

Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í borginni hafa lítið verið á sviðinu og það er þeim sjálfum að kenna, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ný skoðanakönnun sýnir að fylgi flokksins í borginni mælist nú 55,7 prósent. Borgarstjóri á von á að kannanir í febrúar gefi skýrari mynd af stöðu floikkanna.

Innlent
Fréttamynd

Hálka og hálkublettir víða um land

Hálka og hálkublettir eru víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni frá því um klukkan þrjú í dag. Hálka er á Hellisheiði og víðar á Suðurlandi, ásamt hálkublettum. Í Þrengslum er éljagangur og snjóþekja og þá er einnig snjóþekja og hálka víða á Vesturlandi. Éljagangur er í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði.

Innlent