Fréttir
Stjórnarmenn í SPH yfirheyrðir Stjórnarmenn í Sparisjóði Hafnarfjarðar voru fyrirvaralaust færðir til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra í gær með hótun um handtöku. Stjórnarmennirnir hafa réttarstöðu grunaðra í lögreglurannsókn sem beinist að því hvort hegningarlög og lög um fjármálafyrirtæki hafi verið brotin í tengslum við valdatöku nýrra aðila í sparisjóðnum síðastliðið vor. Brotin varða allt að eins árs fangelsi. Innlent 4.1.2006 18:18
Allir nema einn létust í námuslysinu Gleði breyttist í mikla sorg og reiði þegar ættingjum manna sem lokuðust af í kolanámu í Bandaríkjunum var fyrst sagt að allir nema einn hefðu komist lífs af, en þremur klukkustundum síðar að einn hefði lifað en allir hinir látið lífið. Erlent 4.1.2006 18:24
Rafmagn ódýrast á Húsavík Orkuverð lækkaði mest hjá Orkuveitu Húsavíkur nú um áramótin og er nú ódýrast að kaupa raforku þaðan. Þrátt fyrir að Orkuveita Reykjavíkur hafi ekki lækkað raforkuverð nú um áramótin er næstódýrast að kaupa raforku þaðan. Innlent 4.1.2006 18:15
Baugsmál ekki ástæða skipulagsbreytinga Dómsmálaráðherra segir frávísun þrjátíu og tveggja ákæruliða í Baugsmálinu ekki vera kveikjuna að tillögu um nýja skiptingu ákæruvaldsins. Og óánægju bæjarstjóra Kópavogs og Hafnarfjarðar um sameiginlegt lögregluumdæmi á höfuðborgarsvæðinu segir hann vera á misskilningi byggða. Innlent 4.1.2006 18:28
Forsætisráðherra fór að lögum Umboðsmaður Alþingis hefur skilað inn álit sínu vegna kvörtunar Braga Guðbrandssonar á þeirri ákvörðun forsætisráðherra að skipa Ingibjörgu Rafnar í embætti umboðsmanns barna. Innlent 4.1.2006 18:07
Hettusótt herjar á ungmenni Hettusótt herjar á fólk sem er um og rétt yfir tvítugt. Þetta fólk var ekki bólusett gegn óværunni, sem getur valdið ófrjósemi hjá körlum og þróast í heilahimnubólgu. Bent skal á að fólk á þessum aldri getur fengið ókeypis bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Innlent 4.1.2006 17:32
FL Group kaupir hlut í FinnAir Oyj FL Group festi kaup á rúmlega þrjár milljónir hluti í FinnAir Oyj með framvirkum samningi. Fyrir átti FL Investment, sem er dótturfélag í eigu FL Group, ríflega tvær milljónir hluti í fyrirtækinu í framvirkum samningi. Hlutirnir eru því ekki skráðir á nafn FL Investment eða FL Group en atkvæðisréttur er þó á þeirra hendi. Samanlagt eiga því FL Group og FL Investment rúmlega 6% atkvæðisréttar í FinnAir Oyj eftir kaupin í dag. Innlent 4.1.2006 17:14
Hópuppsagnir starfsmanna leikskóla Kópavogs Rúmlega þrjátíu starfsmenn á leikskólum Kópavogs hafa sagt upp í dag og í gær. Um er að ræða hvoru tveggja faglærða og ófaglærða starfsmenn. Á leikskólanum Núpi sögðu fimmtán af þeim þrjátíu starfsmönnum sem þar eru á launaskrá upp störfum í gær. Foreldrar barna á leikskólum bæjarins munu funda í kvöld vegna málsins. Innlent 4.1.2006 17:04
Gjaldþrotaskiptum á þrotabúi Nanoq lokið Gjaldþrotaskiptum á þrotabúi Íslenskrar útivistar, sem rak verslunina Nanoq í Kringlunni, er lokið. Verslunin var lýst gjaldþrota árið 2002 en þá höfðu heildsalar ekki fengið greitt fyrir vörur að verðmæti á annað hundrað milljónir króna. Sextíu manns misstu vinnuna við gjaldþrotið. Innlent 4.1.2006 15:26
Landsmenn verða 300 þúsund fyrr en áætlað var Landsmenn verða líklega 300 þúsund fyrr en áætlað var í fyrstu samkvæmt upplýsingum á mannfjöldadeild Hagstofunnar. Samkvæmt mannfjöldaklukku stofnunarinnar sem finna má á heimasíðu hennar vantar 77 einstaklinga upp á að svo verði. Innlent 4.1.2006 15:03
Fæðingamet á Akranesi Fleiri börn fæddust á Sjúkrahúsi Akraness á síðasta ári en nokkru sinni fyrr á einu og sama árinu. 227 börn fæddust á fæðingardeild sjúkrahússins í fyrra að því er Skessuhorn greinir frá en fyrra met var frá árinu 1973 þegar 226 börn komu í heiminn á fæðingardeildinni. Innlent 4.1.2006 13:29
Oddi verður Kvos Allar eignir Prentsmiðjunnar Odda og dótturfélaga hennar hafa verið færðar yfir í nýtt félag, Kvos hf. Engar breytingar verða á eignarhaldi samstæðunnar og Þorgeir Baldursson verður áfram forstjóri. Innlent 4.1.2006 14:12
Íslandsbanki greiði þrotabúi 4,5 milljónir Íslandsbanki verður að greiða þrotabúi Kaldabergs ehf. hálfa fimmtu milljón króna auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málkostnað. Upphæðina fékk Íslandsbanki greidda upp í skuldir skömmu áður en fyrirtækið varð gjaldþrota og þær þóttu brjóta gegn lögum um jafnræði lánadrottna. Innlent 4.1.2006 14:04
Fagna frestun framkvæmda Íbúasamtökin Betri byggð fagna því að framkvæmdum á miðsvæði Álftaness verði frestað fram yfir sveitarstjórnarkosningar í vor. Forystumenn samtakanna þakka Álftnesingum góðar viðtökur í undirskriftasöfnun sem fram fór á aðventunni og segja að þrír af hverjum fjórum íbúum sem var leitað til hafi skráð sig á listann. Innlent 4.1.2006 13:47
Ekki búið að taka afstöðu til beiðni Neytendasamtaka Ekki er búið að taka afstöðu til beiðni formanns Neytendasamtakanna um að samtökin fái aðild að nefnd sem forsætisráðherra hyggst skipa til að kanna ástæður hás matvælaverðs og leiðir til að lækka það. Formaður Neytendasamtakanna skrifaði forsætisráðherra bréf þar að lútandi en ráðherra sagði í áramótaávarpi sínu að í nefndinni yrðu fulltrúar stjórnvalda, bænda og aðila vinnumarkaðarins. Innlent 4.1.2006 13:21
Æfingar hafnar á Öskubusku Æfingar eru hafnar á óperunni Öskubusku eftir Rossini sem er aðalverkefni Íslensku óperunnar á vormisseri 2006. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Öskubuska verður frumsýnd í Óperunni 5. febrúar 2006 og alls verða 10 sýningar. Lífið 4.1.2006 13:43
Hækka gjöld frístundaheimila Reykjavíkurborg hefur ákvðeðið að hækka gjald vegna þjónustu frístundaheimilanna frá og með 1. febrúar næstkomandi. Grunngjaldið fer úr 7.150 krónum í 7.500 krónur sem er fimm prósenta hækkun. Sú breyting hefur líka verið gerð að sett hefur verið á sérstakt gjald fyrir þjónustu frístundaheimilanna þá daga sem ekki eru hefðbundnir skóladagar krónur 800. Ennfremur hæækar gjald fyrir síðdegishressingu í heimilunum, fer úr 2.000 krónum í 2.100 krónur. Innlent 4.1.2006 13:33
Konráð Vestlendingur ársins Konráð Andrésson, stjórnarformaður og stofnandi Loftorku í Borgarnesi er Vestlendingur ársins 2005 að mati lesenda Skessuhorns en alls voru um 40 manns tilnefndir. Innlent 4.1.2006 13:20
Sorpa hættir að greiða út skilagjald Sorpa hefur ákveðið að hætta að gefa út tékka þegar flöskum og dósum er skilað inn. Á heimasíðu Sorpu er ástæðan fyrir þessum breytingum sögð vera að það kosti allt að 300 krónur að leysa út tékka í banka og því sé betra fyrir viðskiptavini að fá upphæðina fyrir dósirnar og flöskurnar greidda beint inn á debet kortið. Innlent 4.1.2006 12:38
Fagnar átaki gegn sjóræningjaveiðum Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, fagnar átaki yfirvalda gegn sjóræningjaveiðum á Reykjaneshrygg og vonast til að hægt verði að fá fleiri ríki til að taka þátt í átaki gegn veiðunum. Innlent 4.1.2006 13:11
Mun færri kaupsamningar í desember í fyrra en árið 2004 620 kaupsamningum um fasteignir var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í desember samanborið við 735 samninga í nóvember og 1.078 á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríksins. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að þetta bendi til þess mikið hafi róast til á markaðinum og að fólk hafi frestað íbúðakaupum um jólin. Innlent 4.1.2006 12:16
Skæruliðahópur sprengdi olíuholur- og leiðslur Skæruliðahópur í Kólumbíu sprengdi átta olíuborholur og þrjár olíuleiðslur í Amason-regnskógunum í loft upp í gær. Olían hefur valdið miklum umhverfisspjöllum og liggur nú á 100 km löngum kafla árinnar Putumayo. Erlent 4.1.2006 11:59
Þingmaður í loðnuleit Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður og varaformaður Frjálslynda flokksins, er farinn út á sjó að leita að loðnu. Hann fór í loðnuleit sem afleysingaháseti á nótaskipinu Víkingi AK 100 frá Akranesi í gær, skömmu eftir að skipinu var rennt úr slippnum í Reykjavík. Innlent 4.1.2006 12:53
Umferðarljósin óvirk fram í næstu viku Umferðarljósin á Fífuhvammsvegi í Kópavogi, við Reykjanesbrautina, verða að líkindum óvirk fram í næstu viku vegna umferðarslyss þar í gærkvöldi, þar sem varastykki í stýribúnað ljósanna er ekki til í landinu. Innlent 4.1.2006 12:13
Meint lögbrot vegna stofnfjárkaupa rannsökuð Lögreglurannsókn er hafin á meintum lögbrotum við kaup á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar í fyrrasumar. Rannsóknin hófst í kjölfarið á tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu sem gerði athugasemdir við að upplýsingum kunni að hafa verið haldið leyndum eða að rangar upplýsingar hafi verið gefnar. Innlent 4.1.2006 12:26
Náðu samkomulagi í gasdeilu Rússar og Úkraínumenn hafa komist að samkomulagi í gasdeilunni. En rússneska gasfyrirtækið Gazprom lokaði fyrir gassölu til Úkraínu í fyrradag vegna ósættis um verðlag. Evrópskir fjölmiðlar segja gjörðir Rússa hafa gert heimsbyggðina tortryggna gagnvart Pútín forseta og stjórnvöldum í landinu. Erlent 4.1.2006 12:09
Starfslokasamningar hljóti samþykki hluthafa Stjórnum fyrirtækja verður gert skylt að leggja starfslokasamninga undir hluthafafund nái væntanlegt frumvarp Samfylkingarþingmanna um breytingar á hlutafélagalögum fram að ganga. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að þar með yrðu það ekki fámennar klíkur sem tækju ákvarðanir um slíka samninga heldur raunverulegir hluthafar í viðkomandi fyrirtækjum. Innlent 4.1.2006 11:54
Hafa hundruð milljóna af ökumönnum Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir að olíufélögin hafi hækkað álagningu sína um allt að fimmtán prósent þrjá síðustu mánuði nýliðins árs, sem nemi hækkun til neytenda upp á 600 til 700 milljónir króna á ársgrundvelli. Innlent 4.1.2006 11:53
Sonur Sharons segir af sér Omri Sharon, sonur Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt af sér þingmennsku. Omri var ákærður fyrir að taka við erlendum fjárframlögum til að standa straum af kosningabaráttu föður síns fyrir Likud-flokkinn árið 1999. Forsætisráðherrann verður þó ekki ákærður vegna skorts á sönnunum. Erlent 4.1.2006 11:49
Desember hlýr en umhleypingasamur Hiti mældist um 2,5 stigum yfir meðallagi bæði í Reykjavík og á Akureyri í desember en mánuðurinn var almennt fremur hlýr en umhleypingasamur eftir því sem Trausti Jónsson veðurfræðingur segir. Meðalhiti í Reykjavík mældist 2,3 stig og er það 2,5 stigum yfir meðallagi. Þetta er nokkru hærri hiti en í desember í fyrra og hitteðyrra en talsvert kaldara en í metmánuðinum 2002. Innlent 4.1.2006 11:13