Fréttir

Fréttamynd

Starfsfólk leikskóla Kópavogs bíður svara til 20. janúar

Allt útlit er fyrir að ófaglært starfsfólk á leikskólum í Kópavogi dragi uppsagnir sínar til baka, en það er þó háð því að sátt náist í launamálum. Nú þegar hafa fimmtíu og níu starfsmenn sagt upp á leikskólum bæjarins og þar af eru fimmtíu ófaglærðir. Jófríður Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, sagði í samtali í morgun að á næstu dögum væri búist við enn fleiri uppsögnum. Hún reiknaði með að eftir helgi yrði talan líklega komin upp í áttatíu.

Innlent
Fréttamynd

Líðan Sharons óbreytt

Líðan Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels er óbreytt eftir þriðju nóttina á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Hann fékk heilablóðfall af verstu gerð í fyrradag, en það verður líklega ekki fyrr en eftir nokkra daga sem í ljós kemur hve miklum heilaskemmdum hann hefur orðið fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Róleg nótt hjá lögreglu víða um land

Nóttin var róleg hjá lögreglu víða um land og má telja líklegt að vont veður hafi sett strik í reikninginn. Vestmannaeyingar létu þó vonskuveður ekki stoppa sig en um sex hundruð manns voru samankomnir á balli í eyjum í gærkvöldi. Slökkvilið Akureyrar var kallað út fjórum sinnum í gærkvöldi vegna sinuelda.

Innlent
Fréttamynd

73 milljóna króna bíll

Dýrasti bíll í heimi kostar jafnvirði rúmlega sjötíu og þriggja milljóna íslenskra króna og er um leið sá hraðskreiðasti en hann kemst hraðast rétt rúma fjögur hundruð kílómetra á klukkustund.

Erlent
Fréttamynd

Heilsugæslan Fjörður vígð í Hafnarfirði í dag

Heilsugæslan Fjörður í Hafnarfirði var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Um nýja heilsugæslu er að ræða og mun hún þjóna íbúum Álftanes og Hafnarfjarðar. Á heilsugæslunni verður veitt almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, slysa og bráðaþjónusta.

Innlent
Fréttamynd

Sterling selt til Easy Jet?

Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir að til greina komið að selja breska lággjaldaflugfélaginu Easy Jet, danska flugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group. Í viðtali við danska viðskiptablaðið Börsen segir Hannes að einnig komi til greina að auka mjög samstarf þessara tveggja flugfélaga. Sameinuð yrðu flugfélögin stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Sterling brýtur samkeppnislög

Dönsk samkeppnisyfirvöld segja lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, brjóta lög með því að innheimta of há gjöld af flugmiðum sem keyptir eru með greiðslukortum.

Innlent
Fréttamynd

Charles Kennedy hvattur til afsagnar vegna drykkjuvanda

Einn helsti ráðgjafi Charles Kennedy, leiðtoga Frjálslyndra demókrata í Bretlandi, hefur hótað að segja af sér ef Kennedy hættir ekki sem leiðtogi flokksins. Kennedy viðurkenndi í gær að hann ætti við áfengisvanda að stríða en ætlaði ekki að víkja þrátt fyrir háværar þar um.

Erlent
Fréttamynd

Öllum brennum á höfuðborgarsvæðinu frestað

Öllum þrettándabrennum sem halda átti á höfuðborgarsvæðinu í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs. Halda átti átta brennur í á höfuðborgarsvæðinu en eftir fund ábyrgðarmanna brennanna, fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins á svæðinu og Veðurstofunnar með slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og yfirlögregluþjónum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði var þetta sameiginleg niðurstaða.

Innlent
Fréttamynd

Nístandi kuldi í Kína

Vetur konungur hefur heldur betur látið til sín taka í norðvesturhluta Kína að undanförnu. Mikil snjókoma og nístandi kuldi herjar á íbúa Xinjiang-héraðs og hefur frost mælst niður í fjörutíu og þrjár gráður. Þá er sums staðar sextíu sentímetra jafnfallinn snjór.

Erlent
Fréttamynd

Hálf milljón í sekt fyrir að halda ólöglegt vinnuafl

Karlmaður á sextugsaldri var í dag dæmdur fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga með því að hafa á tímabilinu frá því í september 2002 til september 2003 ráðið til sína sex Litháa í vinnu án þess að hafa aflað þeim atvinnuleyfa. Mennirnir, sex að tölu, voru allir Litháar og störfuðu hjá ákærða í byggingarvinnu. Ákærði var dæmdur til greiðslu hálfrar milljónar í sekt, og einnig gert að greiða málskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Vatnstjón við Höfn nemur milljónum

Ljóst er að tjónið sem varð þegar Jökulsá í Lóni flæddi yfir þjóðveginn austan við Höfn í fyrakvöld, nemur mörgum milljónum króna. Verulegt magn af efni skolaðist burt úr vegöxlum, svo minnstu munaði að vegurinn rofnaði. Er nú verið að byggja vegkantana aftur upp.

Innlent
Fréttamynd

Fundað með starfsfólki leikskóla og foreldrum í Kópavogi

Bæjaryfirvöld í Kópavogi munu í dag og á mánudag funda með starfsmönnum leikskóla og forvarsmönnum foreldrafélaga þeirra vegna þeirrar óánægju með leikskólamál bæjarins. Þá hóta leikskólakennarar á Akureyri uppsögnum ef kjör þeirra verði ekki leiðrétt.

Innlent
Fréttamynd

Líðan Sharons hefur versnað

Líðan Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur versnað til mikilla muna í morgun. Þórir Guðmundsson, fréttamaður NFS, er nýlentur í Jerúsalem þar sem hann fylgist grannt með þróun mála. Hann segir allt í mikilli óvissu um líðan Sharons.

Erlent
Fréttamynd

Enn finnst engin loðna við landið

Enn finnst engin loðna við landið og eru loðnuskipin fimm, sem tóku þátt í skipulagðri leit Hafrannsóknastofnunar, búin að leita árangurslaust á sínum svæðum og eru á landleið.

Innlent
Fréttamynd

SFR undirritar samning við Faxaflóahafnir

Fyrsti sjálfstæði kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna sf. var undirritaður í gær, 5. janúar 2006 í fundarsal hafnarstjórnar. Samningurinn er í öllum meginatriðum sambærilegur nýgerðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Heilbrigðisráðherra gerir samning um 600 biðlistaaðgerðir

Heilbrigðismálaráðherra hefur gert samning við fjórar heilbrigðisstofnanir um tæplega sex hundruð svokallaðar biðlistaaðgerðir á árinu. Samningurinn er gerður til að stytta biðtíma sjúklinga sem bíða eftir tilteknum læknisaðgerðum og stofnanirnar sem í hlut eiga eru Landspítali - sjúkrahús, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, St. Jósefsspítali í Hafnarfirði og Heilbrigðisstofnunin Akranesi. Flestar aðgerðirnar eru svokallaðar augnsteinaaðgerðir og fjölgar þeim á árinu um 500 frá því sem gera mátti ráð fyrir í reglulegri starfsemi viðkomandi stofnunar.

Innlent
Fréttamynd

Ólíklegt að kveikt verði í brennum í kvöld

Ólíklegt er talið að kveikt verði í þrettándabrennum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi í kvöld vegna yfirvofandi storms á suðvesturhorninu. Þegar hefur verið ákveðið að fresta þrettándagleði í Grafarvogi en endanleg ákvörðun um aðra staði verður tekin eftir hádegi.

Innlent
Fréttamynd

Sharon aftur undir hnífinn

Nú fyrir nokkrum mínútum var byrjað að undirbúa aðgerð á Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, eftir að hann gekkst undir heilaskönnun, að því er Reuters-fréttastofan greinir frá, en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu.

Erlent
Fréttamynd

Mannfall í mótmælum gegn atvinnuástandinu í Írak

Tveir létust og tuttugu og fjórir særðust í óeirðum í bænum Nasiriyah í Írak í gær. Hundruð manna gengu um götur bæjarins og mótmæltu atvinnuástandinu í landinu en þar er atvinnuleysi allverulegt. Mótmælin fóru úr böndunum og til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu sem reyndi að róa lýðinn.

Innlent
Fréttamynd

Þrettán látnir í óeirðum í fangelsi í Hondúras

Þrettán fangar létust í óeirðum í hámarksöryggisfangelsi í Hondúras. Upp úr sauð eftir að til átaka kom á milli tveggja hópa fanga og skiptust þeir á skotum með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki er ljóst hvernig fangarnir komust yfir byssur. Tekist hefur að ná tökum á ástandinu en uppþot sem þessi eru tíð í fangeslum í Hondúras.

Erlent
Fréttamynd

Skora á stjórnvöld að stofna til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár

Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að stofna hið fyrsta til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár með tilheyrandi hliðarráðstöfunum. Ísland er eina landið innan Evrópu sem ekkert hefur gert til þess að tryggja að héðan séu gerð út kaupskip með íslenskum áhöfnum þrátt fyrir þá staðreynd íslensk þjóð á allt sitt undir öflugum siglingum að og frá landinu. Áframhaldandi aðgerðarleysi stjórnvalda í þessu máli mun hafa þær afleiðingar að innan fárra ára mun áratuga þekking og reynsla farmanna heyra sögunni til.

Innlent
Fréttamynd

Jólatré fjarlægð við lóðamörk 7. - 13. janúar

Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið út fyrir lóðamörk dagana frá og með morgundeginum og til 13. janúar. Eftir að átakinu lýkur geta íbúar losað sig við jólatré á gámastöðvar Sorpu.

Innlent
Fréttamynd

Mikið fannfergi í Japan

Tvær aldraðar konur létust í Japan þegar hús þeirra gaf sig undan snjóþunga í borginni Hakusan, 300 kílómetra norðvestur af Tókýó. Eiginmaður annarrrar konunnar slapp lítið meiddur frá slysinu. Gríðarlega ofankoma hefur verið í Hakusan að undanförnu og var um eins og hálfs metra jafnfallinn snjór í borginni í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Umboðsmaður ver ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra

Umboðsmaður alþingis hefur svarað kvörtun lögreglumanns sem kvartaði yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumannsins á Seyðisfirði. Í kvörtuninni var því haldið fram að ákvörðun ráðherra hefði farið gegn bæði jafnræðisreglu stjórnarskrár og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga auk þess sem því var haldið fram að rökstuðningur ráðherra hefði ekki verið í samræmi við efni stjórnsýslulaga.

Innlent