Fréttir
Ný fuglaflensutilfelli í Tyrklandi Tvö tilfelli fuglaflensu greindust í Ankara höfuðborg Tyrklands í dag. Einnig greindust tvö tilfelli í dauðum kjúklingum á tveimur þorpum í austurhluta landsins en ekki er vitað hvort um hinn banvæna stofn H5N1 er að ræða og hvort veiran hafi borist í menn. Þorpin eru bæði í einangrun. Erlent 8.1.2006 12:48
Félagsmálaráðherra í leyfi næstu vikurnar Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, verður í leyfi frá störfum næstu vikur vegna veikinda eiginkonu sinnar. Áætlað er að ráðherrann taki aftur til starfa í byrjun febrúar. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, gegnir embætti félagsmálaráðherra í fjarveru Árna en Sæunn Stefánsdóttir varaþingmaður tekur sæti Árna á Alþingi. Innlent 8.1.2006 12:12
Sharon haldið sofandi áfram Ariel Sharon fór í enn eina sneiðmyndatökuna í morgun. Niðurstaðan liggur fyrir, en verður ekki tilkynnt fyrr en núna á næstu mínútunum. Sharon hefur verið haldið sofandi í tvo sólarhringa, en læknar hans ákveða í dag hvort hættandi sé á að vekja hann í kvöld. Erlent 8.1.2006 12:26
Öflugur skjálfti í Aþenu Öflugur jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter skók Aþenu, höfuðborg Grikklands á tólfta tímanum. Enn hafa ekki borist fregnir af skemmdum eða slysum á fólki. Erlent 8.1.2006 12:15
Sharon vakinn á morgun. Nú rétt í þessu tilkynntu læknar Ariels Sharon að hann yrði vakinn á morgun ef allt gengi að áætlun. Honum hefur verið haldið sofandi síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudagskvöldið og ekki verður hægt að meta ástand leiðtogans fyrr en hann vaknar. Einn af skurðlæknum Sharons segir að líklega muni hann lifa af, en óvíst sé hvort hann muni nokkru sinni geta talað eða skilið annað fólk. Ehud Olmert, sem hefur tekið við starfi Sharons til bráðabirgða, hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagðist hann ætla að stjórna málum eins og Sharon hefði viljað. Eitt af hans fyrstu verkum verður að ákveða hvort Palestínumenn í austurhluta Jerúsalem fái að kjósa í þingkosningunum í Palestínu í lok mánaðarins. Leyfi hann það ekki, gæti það sett kosningarnar í uppnám. Ísraelskir fjölmiðlar segja að helstu samstarfsmenn Sharons vilji að Olmert taki við forystu í Kadíma flokknum og leiði hann í kosningunum í Ísrael í lok mars. Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og einn af aðalmönnunum á bakvið friðarferlið í Osló, sagðist í morgun styðja Olmert til forystu í Kadíma. Peres sem gekk í Kadíma fyrir nokkrum vikum vill ekki staðfesta að hann verði áfram í flokknum eftir brotthvarf Sharons. Verði hann áfram í stjórnmálum verður það líklega í Kadíma, því Peres útilokaði í morgun að hann myndi aftur ganga í verkamannaflokkinn. Innanbúðarmenn í Kadíma segja að Peres sé einn af fimm mönnum sem flokksmenn vilji í ráðherraembætti eftir kosningarnar. Erlent 8.1.2006 12:11
Enn leitað vitna að árás á stúlku sem beið í strætóbiðskýli Rannsóknarlögreglan leitar enn vitna að árás karlmanns á 16 ára gamalli stúlku í strætóskýli við Miklubraut á föstudagskvöldið. Stúlkan var að bíða eftir strætosvagni í biðskýli milli hálf-níu og níu og lenti í átökum við karlmann. Átökin bárust að Sogavegi þar sem stúlkunni tókst að losa sig frá manninum. Innlent 8.1.2006 11:51
Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustu bíður enn svara Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustu til sveitarfélaga skilaði áliti sínu fyrir rúmu ári síðan og bíður enn viðbragða. Ástæðan fyrir biðinni er tregða sveitarfélaga til sameiningar, segir heilbrigðisráðherra. Innlent 8.1.2006 11:47
Gefur ekki kost á sér í sameiginlegu prófkjöri fyrir sveitastjórnarkosningarnar Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Ísafirði mun ekki gefa kost á sér í sameiginlegu prófkjöri minnihlutaflokkanna fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Bryndís hefur verið í bæjarstjórn á Ísafirði og í Ísafjarðarbæ meira og minna í um 15 ár. Innlent 8.1.2006 11:16
Ekið á ungan dreng í Grindavík Ekið var á ungan dreng við Miðgarð í Grindavík um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Talið var að drengurinn væri fótbrotinn en annar fótur hans hafði orðið undir afturhjóli bifreiðar sem hafði ekið framhjá honum. Drengurinn, sem er sex ára, var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar og þar kom í ljós að hann var ekki fótbrotinn. Hann hafði tognað á fætinum og fékk að fara heim að skoðunn lokinni. Innlent 8.1.2006 10:00
Ófært víða á Vestfjörðum Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum sem og á flestum vegum á Suðurlandi. Á Vesturlandi er víða ýmist hálka eða hálkublettir og á Holtavörðuheiði er hálka og skafrenningur. Á Vestfjörðum er óveður og ófært, bæði á Hálfdán- og Gemlufallsheiði en verið er að moka Kleifarheiði og Klettháls. Innlent 8.1.2006 09:39
Sinueldar blossa upp á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað út um sjöleitið í gær vegna sinuelda sem höfðu kviknað út frá brennu inn í Melgerði, hjá Torfum. Slökkvilið var síðan kallað út aftur í nótt en þá hafði eldur blossað upp að nýju. Engin hætta stafaði af eldinum en girðingar urðu hvað verst úti í sinueldinum. Þrír voru ökumenn voru stoppaðir, grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavik í nótt. Að því frátöldu var nóttin róleg hjá lögreglunni í Reykjavík og sömuleiðis víða um land. Innlent 8.1.2006 09:23
Stjórnmálaflokkar ekki sammála um breytingar á eftirlaunalögum Engar breytingar hafa verið gerðar á eftirlaunalögunum þar sem stjórnmálaflokkarnir eru ekki samstíga um hversu langt eigi að ganga til breytinga. Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna segir engar málamiðlanir til. Það verði að rífa þessi ólög upp með rótum. Allt hik sýni að hugur fylgi ekki máli hjá stjórnarflokkunum. Innlent 7.1.2006 16:59
Jólahátíð rétttrúnaðarmanna gengin í garð Á sama tíma og flestir Íslendingar kveðja jólin eru þau rétt að hefjast hjá réttrúnaðarmönnum. Þeirra jól voru hringd inn eftir miðnætti í nótt, víða um heim, líka hér á landi. Innlent 7.1.2006 17:08
Félagsmálaráðherra efnir til víðtæks samráðs um framtíð húsnæðislána ríkisins Félagsmálaráðherra ætlar að efna til víðtæks samráðs um framtíð húsnæðislána ríkisins. Starfshópur á vegum ráðherra telur koma til greina að þróa Íbúðalánasjóð í átt til heildsölubanka. Að mati hópsins kemur tvennt til greina, að Íbúðalánasjóður verði rekin áfram í lítið breyttri mynd eða verði heildsölubanki. Innlent 7.1.2006 16:51
Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustunnar til sveitarfélaga bíður svara Nefnd um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga skilaði skýrslu sinni til heilbrigðisráðherra fyrir meira en ári en þó hafa enn engin viðbrögð borist frá Ráðuneytinu. Þetta kom fram í viðtali við Dag B. Eggertsson, í þættinum Skaftahlíð 24 á NFS í dag. Innlent 7.1.2006 16:40
Charles Kennedy segir af sér Charles Kennedy, formaður Frjálslynda flokksins í Bretlandi, sagði af sér í dag. Tuttugu og fimm þingmenn flokksins höfðu hótað að hætta ef Kennedy myndi ekki segja af sér fyrir mánudaginn. Áður hafði Kennedy sagt að hann myndi berjast fyrir starfi sínu, en í tilkynningu sem barst úr höfuðstöðvum flokksins fyrir stundu, sagði að Kennedy myndi ekki gefa kost á sér í fyrirhuguðu leiðtogakjöri flokksins. Erlent 7.1.2006 16:39
Eldur í bílskúr við Safamýri Mikill eldur varð laus í bílskúr við Safamýri í Reykjavík á fjórða tímanum í dag. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn og enn var verið að ráða niðurlögum eldsins klukkan fjögur. Bílskúrinn var áfastur íbúðarhúsi að hluta engin slys urðu á fólki þar sem húsráðendur voru ekki heima við. Ekki er vitað um upptök eldsins. Innlent 7.1.2006 15:59
Ráðist á stúlku í strætóskýli í gærkvöldi Lögreglan í Reykjavík rannsakar atvik sem átti sér stað í gærkvöldi, föstudaginn 6. janúar um kl: 20.30 til 21.00, í biðskýli Strætó við Miklubraut, gegnt Skeifunni, í akstursleið austur. Þar er talið að veist hafi verið að ungri stúlku sem beið þar eftir strætisvagni.og að til átaka hafi komið milli hennar og árásarmannsins. Átökin munu hafa borist í átt að Sogavegi áður en stúlkan náði að losa sig frá árásarmanninum. Innlent 7.1.2006 14:51
Opinn fundur um Norðlingaölduveitu í Norræna húsinu í dag Átta félagasamtök sem láta sig varða umhverfisvernd efna í dag til opins fundar um mikilvægi þess að vernda Þjórsárver og koma þannig í veg fyrir Norðlingaölduveitu. Yfirskrift fundarins er "Þjórsárver eru þjóðargersemi sem ekki má spilla" en fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan hálftvö. Innlent 7.1.2006 12:52
Eyþór Arnalds tilkynnnir viðbrögð við framboðsáskorun Sunnlendinga Eyþór Arnalds heldur fund í Tryggvaskála á Selfossi klukkan fjögur í dag. Þar ætlar að tilkynna viðbrögð sín við auglýsingu í Sunnlenska fréttablaðinu í vikunni. Þar skoruðu eitthundrað og fimmtíu sunnlendingar á hann að gefa kost á sér í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkin í komandi sveitarstjórnarkosnigum í vor. Innlent 7.1.2006 13:23
Naugðaði vændiskonu og réðst að annarri Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar nú manns en hann er sakaður um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi gegn tveimur vændiskonur. Tékknesk vændiskona náði að flýja undan manninum aðfaranótt föstudags, en maðurinn hafði ógnað henni og sigað hundi sínum á hana. Erlent 7.1.2006 13:21
Starfshópur um Íbúðalánasjóð vill jafnvel heildsölubanka Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem falið var að leggja mat á stöðu Íbúðalánasjóðs og möguleika sjóðsins við breyttar markaðsaðstæður, telur eðlilegt að kannað verði til hlítar hvort rétt sé að þróa hlutverk Íbúðalánasjóðs í átt til heildsölubanka. Innlent 7.1.2006 13:36
Færeyingar leita langmest allra Norðurlandabúa að barnaklámi á netinu Færeyingar leita langmest allra Norðurlandabúa að barnaklámi á netinu. Aðgangur að sambærilegum upplýsingum um sambærilega netnotkun Íslendinga er ekki að finna. Innlent 7.1.2006 12:47
Ber botn og djöfullinn á borðum landsmanna Ber botn og djöfullinn er eitthvað sem stundum sést á borðum landsmanna og þá sem teikningar aftan á mjólkurfernum. Flestir láta sér þetta í léttu rúmi liggja, en öðrum er ekki skemmt. Innlent 7.1.2006 12:40
Hálka víða um land Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en annars eru flestar fleiðir greiðfærar á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Á sunnanverðum Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og éljagangur. Innlent 7.1.2006 12:23
Eldur á Njálsgötu Engin slys urðu á fólki þegar eldur kom upp í parhúsi á Njálsgötu um klukkan fjögurleitið í gær. Enginn var heimavið þegar eldurinn kom upp en þegar íbúar komu heim urðu þeir varir við reyk og kölluðu til Slökkvilið Reykjavíkur. Innlent 7.1.2006 12:18
Engin ástæða til að forðast ferðalög til Tyrklands Tyrknesk yfirvöld rannsaka nú þann möguleika hvort fyrstu dauðsföll af völdum fuglaflensu þar í landi sé um smit manna á millum að ræða. Haraldur Breim, sóttvarnarlækninr segir enga ástæðu til að forðast ferðalög til Tyrklands. Innlent 7.1.2006 12:16
Tvær brennur á höfuðborgasvæðinu í kvöld Ákveðið hefur verið að kveikja í þrettándabrennum í Mosfellsbæ neðan Holtahverfis við skeiðvöllinn og í Gufunesi í kvöld, en öðrum brennum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið frestað þar til eftir helgi. Brennan í Mosfellsbæ hefst með blysför frá Nóatúni klukkan 17:00 og í Gufunesi verður kveikt í brennunni klukkan 17:30. Innlent 7.1.2006 12:08
Georgíumenn óttaslegnir Stjórnvöld í Georgíu hafa ákveðið að sprauta sótthreinsandi efni á alla bíla sem keyra yfir landamærin frá Tyrklandi af ótta við að fuglaflensa berist inn í landið. Erlent 7.1.2006 10:15
Enn einum fjölmiðlamanni rænt í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu vestrænni fjölmiðlakonu í Baghdad í morgun og myrtu túlk hennar. Konan var á leiðinni til fundar með stjórnmálaleiðtoga úr röðum súnníta þegar hópur byssumanna króaði bifreið hennar af. Erlent 7.1.2006 10:14
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist