Fréttir
Fangarnir ekki fundnir Ekkert hefur spurst til tuttugu og þriggja fanga sem strkuku úr fangelsi í Jemen á föstudaginn. Óttast er að þeir hyggist fremja hryðjuverk á næstunni. Erlent 7.2.2006 15:53
Fjórir fallnir í átökum vegna skopmyndanna Fjórir hafa látist og átján eru slasaðir eftir uppþot meira en þrjú þúsund múslima við búðir norskra friðargæsluliða í Afghanistan í dag. Erlent 7.2.2006 15:51
Varað við ferðum til Sýrlands og Líbanons Utanríkisráðuneytið ráðleggur íslenskum ríkisborgurum frá því að ferðast til Sýrlands og Líbanons eins og sakir standa. Ástæðan fyrir þessu eru atburðir síðustu daga og ótryggt ástand í löndunum vegna deilna um skopmyndir af spámanninum Múhameð sem birtust í danska blaðinu Jótlandspóstinum. Innlent 7.2.2006 15:45
Ríkið sýknað af bótakröfu Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfu Óla Bjarna Ólasonar útgerðarmanns sem krafðist skaðabóta úr ríkissjóði vegna lagasetningar þar sem sóknardagakerfið var aflagt og kvóti settur á krókabáta. Innlent 7.2.2006 15:39
Dorrit erlendis í fríi Dorrit Moussaieff, forsetafrú, er nú stödd erlendis í fríi. Eins og kunnugt er fékk hún aðsvif við upphaf afhendingar Íslensku bókmenntaverðlaunna í síðustu viku. Dorrit fór í rannsóknir í síðustu viku vegna aðsvifsins en enn hefur ekkert komið út úr þeim rannsóknum. Innlent 7.2.2006 15:17
Marklaus þriggja ára áætlun Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja þriggja ára áætlun meirihlutans í borgarstjórn fyrir árin 2007 til 2009 marklausa og hvetja til þess að hún sé dregin til baka. Fyrri umræða um áætlunina hófst á borgarstjórnarfundi klukkan tvö og hafa Sjálfstæðismenn bókað að hún sýni meiri óskhyggju en raunhæfar áætlanir. Innlent 7.2.2006 15:12
VSB átti lægsta boð VSB verkfræðistofa í Hafnarfirði átti lægsta tilboðið í eftirlit með framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika. Innlent 7.2.2006 15:05
Vöxtur fram úr björtustu vonum Vöxtur þorsks í kvíum Brims fiskeldis í Eyjafirði er framar björtustu vonum segir Sigþór Eiðsson stöðvarstjóri og telur hitastig sjávar hafa greinileg áhrif á vöxtinn. Alls eru um 470 tonn af þorski í kvíum Brims fiskeldis en það eru um 363 þúsund fiskar. Innlent 7.2.2006 15:01
Hagnaður Össurar 225 milljónum minni en árið 2004 Hagnaður Össurar á síðasta ári var tæplega 735 milljónir króna. Árið 2004 nam hagnaður félagsins tæpum 960 milljónum króna, eða um 225 milljónum meira en á nýliðnu ári. Viðskipti innlent 7.2.2006 13:59
Silvía Nótt áfram með Útvarpsráð hefur ákveðið að vísa ekki laginu "Til hamingju Ísland", sem Silvía Nótt flytur, úr Söngvakeppni Sjónvarpsins, þótt lagið hafi lekið út á netið. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins í dag. Innlent 7.2.2006 13:01
Lögreglan á Ísafirði óskar eftir upplýsingum frá almenningi Lögregluyfirvöld á Ísafirði hvetja almenning að hafa samband við lögreglu ef grunur leikur á að einhvers konar fíkniefnamisferli eigi sér stað, og heitir uppljóstrurum nafnleynd. Lögfræðingur hjá persónuvernd segir að erfitt gæti reynst að halda nöfnum vitna leyndum, leiði upplýsingar þeirra til ákæru og málaferla. Innlent 7.2.2006 18:07
Endanlegur framboðslisti ekki ákveðinn Endanlegur framboðslisti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor hefur ekki verið ákveðinn. Ef allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti, er hugsanlegt að Gestur Kr. Gestsson, sem lenti í áttunda sæti í prófkjörinu, verði tilnefndur í fimmta sætið. Innlent 7.2.2006 12:43
150 kosið utankjörstaðar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Um 150 manns hafa kosið utankjörstaðar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem fram fer dagana 11. og 12. febrúar næstkomandi. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla hófst á þriðjudag í síðustu viku. Innlent 7.2.2006 12:32
Öryggisgæslu ábótavant Rannsókn yfirvalda á Filipseyjum hefur leitt í ljós að öryggisgæslu við íþróttaleikvang í höfuðborginni, Maníla, hafi verið ábótavant þegar 75 létu lífið og rúmlega 500 slösuðust í miklum troðningi í síðustu viku. Erlent 7.2.2006 12:27
7 létu lífð í sprengjuárás í Bagdad Að minnsta kosti 7 létu lífið og rúmlega 20 særðust þegar tvær sprengjur sprungu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Erlent 7.2.2006 12:25
Íbúar á Haítí kjósa forseta og þing Íbúar á Haítí kjósa sér forseta og þing í dag. Þetta eru fyrstu kosningar þar í landi síðan Jean-Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta, var komið frá völdum í blóðugri uppreisn fyrir tveimur árum. Hátt í 10 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna annast kosningaeftirlit. Erlent 7.2.2006 12:22
Danir krefja Írana um vernd Danir krefjast þess að írönsk stjórnvöld verji danska sendiráðið í höfuðborginni Teheran og starfsfólk þess með öllum tiltækum ráðum. Mótmælendur hafa tvívegis látið grjóti og eldsprengjum rigna yfir sendiráðið til að láta í ljós óánægju sína með birtingu skopmynda af Múhameð í Jótlandspóstinum. Erlent 7.2.2006 12:17
Gestur tilnefndur í 5. sæti á lista Framsóknar? Endanlegur framboðslisti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor hefur ekki verið ákveðinn. Ef allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti, er hugsanlegt að Gestur Kr. Gestsson, sem lenti í áttunda sæti í prófkjörinu, verði tilnefndur í fimmta sætið. Innlent 7.2.2006 12:05
Ríkið í mál við olíufélögin Ríkisstjórnin ákvað í morgun að fara í mál við olíufélögin vegna verðsamráðs þeirra. Stjórnvöld senda stóru olíufélögunum kröfugerð vegna þess tjóns sem ríkið varð fyrir. Innlent 7.2.2006 12:03
Þorskseiði sjöfalda þyngd sína á rúmum 10 mánuðum Þorskseiði, sem fiskeldi Brims hf. í Eyjafirði er að ala, stækka og þyngjast með meiri hraða en bjöttustu vonir stóðu til. Á heimasíðu Brims er greint frá því að seiði, sem voru 90 grömm um miðjan mars í fyrra, séu nú orðin 740 grömm og hafi þar með rúmlega sjöfaldað þyngd sína á tíu og hálfum mánuði. Innlent 7.2.2006 10:06
Bæjarráð Hveragerðis nýtir heimild Bæjarráð Hveragerðis hefur samykkt samhljóða að nýta heimild Launanefndar sveitafélaga til tímabundinnar launahækkunar. Laun leikskólakennara og starfsmanna félaga sem samið hafa um starfsmat við launanefndina, verða hækkuð. Þeim starfsmönnum sem fá launahækkunm verður kynnt það sérstaklega. Innlent 7.2.2006 10:01
Ragnheiður leiðir lista Samfylkingar í Árborg Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarfulltrúi, og framkvæmdastjóri mun leiða lista Samfylkingarinnar í Árborg í komandi sveitastjórnakosningum. Uppstilling listans var kynnt og samþykkt á flokksfundi í gærkveldi. Innlent 7.2.2006 09:57
Bílanaust kaupir Olíufélagið Núverandi hluthafar og stjórnendur Bílanausts, ásamt öðrum fjárfestum, hafa keypt allt hlutafé í Olíufélaginu fyrir hátt í 20 milljarða króna. Með í kaupunum er eignarhluti Olíufélagsins í Olíudreifingu sem og þjónustustöðvar og flestar aðrar fasteignir í rekstri Olíufélagsins. Olíufélagið og Bilanaust verða í eigu nýs eignarhaldsfélags og verður velta þess á árinu 2006 um 26 milljarðar króna. Íslandsbanki hafði umsjón með söluferlinu. Hinir nýju eigendur skilja fjárfestingarfélagið Ker eftir með hugsanlegar sektargreiðslur vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu. Innlent 7.2.2006 09:37
Verið að hreinsa snjó af vegum í flestum landshlutum Nokkur hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum landsins. Verið er að hreinsa snjó af vegum í flestum landshlutum, einkum á heiðum. Smá éljagangur hefur verið víða um land. Innlent 7.2.2006 08:17
Flytji réttleysið ekki milli landa Forystumenn allra launþegasamtaka á Norðurlöndum hafa skorað á norræna þingmenn á Evrópuþinginu að styðja breytingartillögu við þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þannig megi koma í veg fyrir að réttindaleysi launþega í sumum aðildarríkjum sé í raun flutt með þeim landa á milli segir formaður BSRB. Innlent 6.2.2006 22:06
Kosið um sameiningu á laugardag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin vegna kosninga um sameiningu þriggja sveitarfélaga austur í Flóa í Árnessýslu, en kosningarnar verða á laugardag. Þá ganga íbúar Hraungerðis- Gaulverjabæjar- og Villingaholtshreppa að kjörborðinu, en þessir hreppar eru austan við Árborg, sem er sameinað sveitarfélag Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyrar og Sandvíkurhrepps. Innlent 7.2.2006 07:54
2 liðsmenn Al Aqsa féllu í flugskeytaárás Tveir palestínskir liðsmenn Al Aqsa-hersveitanna féllu í flugskeytaárás á bifreið þeirra á norðurhluta Gasa-strandarinnar í gærkvöld. Þrír vegfarendur særðust í árásinni. Annar þeirra sem féll mun hafa verið háttsettur liðsmaður samtakanna. Erlent 7.2.2006 08:06
Reyndu að bjarga manni úr kjafti krókódíls Íbúar í smá þorpi utan við Harare borg í Simbabwe í Afríku lentu nýverið í einskonar reiptogi við krókodíl og höfðu betur. Það teldist í sjálfu sér vart til tíðinda ef ekki væri fyrir það, að reipið var maður, nánar til tekið einn þorpsbúanna. Erlent 7.2.2006 07:36
Karlarnir hvattir til að mæta í karlaþrek Karlar á Þingeyri og í Ísafjarðarbæ eru nú hvattir til að taka upp heilbrigt líferni og skella sér í svokallað karlaþrek, sem Íþróttafélagið Höfrungur og íþróttamiðstöðin á Þingeyri bjóða upp á. Innlent 7.2.2006 07:49
Byssumenn réðust á blaðamenn í Mexíkó Þungvopnaður hópur glæpamenn réðst í gær inn á skrifstofu dagblaðins El Manana í Mexíkó, hleypti af byssum sínum og kastaði handsprengju að blaðamönnum. Einn særðist alvarlega í árásinni. Erlent 7.2.2006 07:58