Fréttir

Fréttamynd

Prófkjör hjá Framsóknarflokknum á Akureyri á morgun

Framsóknarmenn á Akureyri og í Hrísey halda á morgun opið prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningaarnar í vor. Nítján manns eru í framboði, þrettán karlar og sex konur, en nýr oddviti flokksins verður kjörinn þar sem Jakob Björnsson, oodviti framsóknarmanna til fjölda ára, gefur ekki kost á sér áfram.

Innlent
Fréttamynd

Tíu árekstrar á Akureyri í gær

Tíu árekstrar urðu á Akureyri í gær sem alla má rekja til slæms skygnis og hálku, og er árekstrafjöldinn langt yfir meðaltali þar í bæ. Engin meiddist þó í þessari hrynu, en talsvert eignatjón varð. Nú er farið að hlýna í veðri og varar lögreglan við enn meiri hálku en í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Hamas

Ismail Haniyeh hefur verið útnefndur sem forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna í Palestínu. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum embættismanni innan samtakanna, sem segir jafnframt að þetta verði ekki tilkynnt formlega fyrr en um helgina.

Erlent
Fréttamynd

Peningum stolið úr hraðbanka á Fáskrúðsfirði

Hraðbanki Landsbankans í söluskála Skeljungs á Fáskrúðsfirði var brotinn upp í nótt og þaðan stolið peningum. Ekki liggur enn fyrir hversu miklir peningar voru í bankanum en verið er að ganga úr skugga um það.

Innlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn ættu að loka Guantanamo-búðunum

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir að Bandaríkjamenn ættu að loka fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu eins fljótt og auðið er. Þó að hann segist ekki sammála öllu sem fram hafi komið í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum styðji hann þá niðurstöðu að ekki sé verjandi að halda föngum án ákæru eins og gert sé í Guantanamo.

Erlent
Fréttamynd

Dagblað Dagsbrúnar verði stærst í Danmörku

Dagblaðið sem Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, ætlar að gefa út í Danmörku verður gefið í út í 500 þúsund eintökum dag hvern og verður þannig langstærsta dagblað Danmerkur. Þetta hefur Jótlandspósturinn eftir heimildarmönnum sínum í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Enn verið að opnað tilboð í lóðir í Úlfarsárdal

Starfsmenn framkvæmdasviðs unnu sleitulaust í alla nótt við að opna tilboð í lóðir í Úlfarsárdal og skrá þau. Klukkan hálfátta í morgun voru þeir enn að og var þá búið að skrá tilboð á fjórða hundrað bjóðenda.

Innlent
Fréttamynd

Náðu að hemja tvo báta í Keflavíkurhöfn

Björgunarsveit var kölluð út í Keflavík í gærkvöldi þar sem tveir bátar voru að slitna frá bryggju í gömlu höfninni við miðbæinn og mikill sjógangur var í höfninni. Björgunarmönnum tókst að komst út í bátana og hemja þá með traustari landfestum, og hlaust ekkert tjón af.

Innlent
Fréttamynd

Slapp með skrekkinn í snjóflóði

Ökumaður slapp með skrekkinn þegar snjóflóð féll á þjóðveginn á milli Súðavíkur og Ísafjarðar seint í gærkvöldi, rétt í þann mund sem maðurinn átti þar leið um. Hann ók inn í flóðið, en bíllinn hélst á veginum og komst maðurinn af sjálfsdáðum út úr honum og lét vita um flóðið.

Innlent
Fréttamynd

Á 200 kílómetra hraða á Miklubraut

Sautján ára piltur með nokkurra daga gamalt ökuskírteini slapp ómeiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á 200 kílómetra hraða, að eigin sögn, í aðreininni frá Miklubraut upp á Réttarholtsveg í nótt. Bíllinn , sem er nýlegur Benz í eigur foreldra piltsins, klippti í sundur ljósastaur og þeyttist síðan langar leliðir uns han stöðvaðist.

Innlent
Fréttamynd

Segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu

Stórt lyfjafyrirtæki í Ástralíu segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsókn á virkni hins nýja bóluefnis, ættu fimmtán míkrógrömm af efninu að duga til að koma í veg fyrir fuglaflensu hjá fullorðnu fólki.

Erlent
Fréttamynd

Óttast að 2000 manns hafi látist í aurskriðum á Filippseyjum

Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Fiippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist á kaf í leðju eftir miklar rigningar og hávaðarok. Fréttir af svæðinu eru enn óljósar, en embættismenn telja víst að tala látinna skipti hundruðum og jafnvel þúsundum.

Erlent
Fréttamynd

Ekki tvöfaldað alla leið

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hét bótum á veginum um Hellisheiði á opnum fundi sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hélt á Selfossi í kvöld. Hann sagði þó að akgreinar verði ekki tvöfaldaðar. Fundarmenn vildu almennt að ráðherrann beitti sér fyrir meiri vegabótum, en Samtökin hafa beitt sér fyrir tvöföldun akgreina á öllum veginum milli Reykjavíkur og Selfoss.

Innlent
Fréttamynd

200 Kúrdar handteknir í mótmælaaðgerðum í Tyrklandi

Um tvö hundruð Kúrdar voru handteknir í mótmælaaðgerðum í borgunum Adana og Batman í Tyrklandi í dag. Mótmælin upphófust í gær þegar sjö ár voru liðin frá handtöku kúrdíska andspyrnuleiðtogans Abdullah Ocalan. Mótmælendur hentu grjóti og múrsteinum að lögreglumönnum sem vörðust með kylfum og skjöldum.

Erlent
Fréttamynd

700 krakkar á frostdansleik

Um 700 grunnskólanemar voru saman komnir í þróttahúsi Víðastaðaskóla í kvöld en þar fór fram dansleikur sem rak endapunktinn á grunnskólahátíðinni hátíð sem nemendur úr efri bekkjum grunnskóla í Hafnarfirði og Álftanesi stóðu fyrir í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ósakhæfur og gert að sæta öryggisgæslu

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms um ósakhæfi manns sem bæði hótaði og réðst á lækni vegna erfðafræðilegra rannsókna sem hann hafði gert í faðernismáli og vörðuðu hinn ákærða. Manninum er einnig gert að sæta öryggisgæslu.

Innlent
Fréttamynd

Fjölbreyttur hópur mæðra og barna

Hópur kvenna af erlendum uppruna hittist reglulega í foreldrahópi í Alþjóðahúsinu. Konurnar eiga það sameiginlegt að vera bæði mæður og búsetar á Íslandi en feður barna þeirra eru flestir íslenskir.

Innlent
Fréttamynd

Verulegar líkur á lækkunum á hlutabréfum

Lektor í viðskiptafræði segir verulegar líkur á lækkunum á íslenskum hlutabréfum og mikil áhætta sé fólgin í kaupum á þeim. Ekki sé innistæða fyrir hækkunum undanfarið en Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um rúm 24% frá áramótum.

Innlent
Fréttamynd

Aðstandendur harma myndbirtingar DV

Aðstandendur Jóns Þórs Ólafssonar, sem var myrtur í El Salvador sl. helgi, segjast harma „ósmekklegar og tilgangslausar myndbirtingar" DV í morgun þar sem fjallað var um atburðinn.

Innlent
Fréttamynd

Ökumaður vörubílsins dæmdur í 60 daga fangelsi

Ökumaður vörubílsins sem lenti í árekstri við strætisvagn síðastliðið sumar, með þeim afleiðingum að vagnstjórinn missti báða fótleggi neðan við hné, var í Héraðsdómi í fyrradag dæmdur í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórvítavert gáleysi við akstur.

Innlent
Fréttamynd

Kjarasamningur undirritaður

Starfsmannafélag Reykjavíkur og Launanefnd sveitarfélaganna hafa undirritað kjarasamning vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga og er gildistími samninganna frá 1. desember 2005 til 30. nóvember 2008. Kjarasamningurinn var kynntur á fundi á þriðjudag og samþykktur með öllum atkvæðum. Samningurinn er á sömu nótum og kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjóri ræði við hlutaðeigandi vegna sjúkraflugs

Bæjarstjóra Vestmannaeyja hefur verið falið að ræða við hlutaðeigandi aðila um framtíðarfyrirkomulag sjúkraflugs frá Eyjum eftir atvik í fyrrakvöld þar sem sjúkraflugvél var ekki til taks til að flytja veikt barn til Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Nokkuð um umferðaróhöpp

Mikil hálka er nú í Ártúnsbrekkunni og þónokkur óhöpp hafa orðið þar síðasta klukkutímann. Ein bifreið keyrði utan í vegrið og önnur á staur. Þá skullu tvær bifreiðar saman og fleiri minniháttar óhöpp urðu. Lögreglan varar ökumenn við ástandinu og biður þá að fara varlega en svo virðist sem snöggfryst hafi í brekkunni og því sé þar launhált.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitar keppa í körfubolta

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson, Svandís Svavarsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson og Margrét Sverrisdóttir mætast í Laugardalshöll í dag til að taka þátt í körfuboltaskotkeppni. Keppnin gengur út á að það reyna að slá andstæðinginn út.

Innlent