Fréttir

Fréttamynd

Ætla að ganga út

Nemendur Menntaskólans á Akureyri hyggjast mómæla fyrirhugaðri skerðingu náms til stúdentsprófs með því að fella niður nám á miðvikudag. Menntamálaráðherra hefur boðað að nám til stúdentsprófs verði stytt á næstu árum. Þessu vilja nemendur við Menntaskólann á Akureyri mótmæla og ætla því að ganga út eftir annan tíma á miðvikudag

Innlent
Fréttamynd

Innflytjendalöggjöf í Hollandi hert

Innflytjendur sem hyggjast setjast að í Hollandi þurfa að standast tungumála- og menningarpróf áður en þeir fá að koma til landsins, samkvæmt nýjum innflytjendalögum sem taka gildi um næstu mánaðamót

Erlent
Fréttamynd

Níu teknir fyrir of hraðan akstur í Rangárvallasýslu

Níu ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli síðustu vikuna. Sá sem ók hraðast var mældur á 128 kílómetra hraða á 90 kílómetra kafla á Suðurlandsvegi. Af þessum hópi voru tveir erlendir ökumenn sem greiddu sekt sína á staðnum.

Innlent
Fréttamynd

Kanna megi auknar heimildir lögreglu til tálbeitunotkunar

Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir að velta megi því upp hvort auka þurfi heimildir lögreglu til að nota tálbeitur en segir slíkar breytingar þarfnast vandaðrar yfirferðar. Þingmaður óskar eftir utandagskrárumræðum á Alþingi um auknar heimildir til handa lögreglu eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kompás um málið þar sem tálbeitur voru notaðar til að hanka barnaníðinga.

Innlent
Fréttamynd

Veik von um að mennirnir séu enn á lífi

Aðstandendur sextíu og fimm námaverkamanna í Mexíkó, sem sitja fastir á þriggja metra dýpi, bíða nú milli vonar og ótta um að það takist að bjarga þeim í tæka tíð.

Erlent
Fréttamynd

Segir ekki hafa verið samið við Jón Gerald

Lögregla segir að Jón Gerald Sullenberger hafi játað við yfirheyrslur að hafa tekið þátt í að gera tilhæfulausa reikninga vegna bílakaupa Baugs-fjölskyldunnar. Lögregla ákvað samt að kæra Jón Gerald ekki en neitar að hafa gert við hann samning þess efnis.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja ára fangelsi fyrir að afneita helförinni

Enn er tekist á um hvar mörk tjáningarfrelsisins liggja, að þessu sinni í réttarsal í Vínarborg í dag. Þar viðurkenndi breski sagnfræðingurinn David Irving að hafa afneitað helförinni gegn gyðingum. Fyrir vikið var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Metaðsókn á Fullkomið brúðkaup á Akureyri

Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup sló 23 ára gamalt aðsóknarmet Leikfélags Akureyrar um helgina. Ekki verða þó fleiri sýningar á leikritinu í Samkomuhúsinu en sýningin flyst suður innan skamms.

Innlent
Fréttamynd

Segist hafa gert ráðstafanir vegna öryggis starfsmanna sinna

Fyrirtækið Enex, sem Jón Þór Ólafsson starfaði hjá, segist hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi starfsmanna sinna í El Salvador. Forsvarsmenn þess vísa fréttum, þar sem gefið er í skyn að þeir hafi hunsað ráðleggingar um slíkt, á bug.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast óskoraðs sjálfstæðis Kosovo

Viðræður um framtíð hins umdeilda Kosovo-héraðs í Serbíu hófust í Austurríki í dag. Kosovo-Albanar vilja að héraðið fái fullt og óskorað sjálfstæði en serbneski minnihlutinn hugsar til þess með hryllingi.

Erlent
Fréttamynd

Meintum fíkniefnasölum á Ísafirði sleppt

Tveimur unglingspiltum, sem verið hafa í gæsluvarðhaldi á Ísafirði síðan á laugardag fyrir meinta fíkniefnasölu, hefur verið sleppt. Drengirnir tveir, sem eru 16 og 19 ára, voru handteknir í Ísafjarðardjúpi þar sem þeir voru á leiðinni til Ísafjarðarbæjar með 85 grömm af hassi í sölueiningum.

Innlent
Fréttamynd

Fær ekki allar lóðirnar

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir að ekki komi til greina að einn og sami maðurinn fái allar einbýlishúsalóðirnar nema eina við Úlfarsfell úthlutaðar. Minnihlutinn í Reykjavík segir stöðuna sem upp er komin vegna útboðsins lýsandi fyrir það öngstræti sem lóðastefna R-listans er kominn í.

Innlent
Fréttamynd

Ekki tilkynnt um virkan eignarhlut í Búnaðarbankanum

Þýski bankinn Hauck og Afhauser tilkynnti ekki um virkan eignarhlut í Búnaðarbanka til Fjármálaeftirlitsins eða Kauphallarinnar. Þingmenn Frjáslynda flokksins og Samfylkingarinnar kröfðust þess í dag að rannsakað yrði hvort aðkoma bankans að S-hópnum hefði byggst á blekkingum. Viðskiptaráðherra segir ekkert nýtt í málinu nema tregðu Samfylkingarinnar til að skilja að ráðherra segi ekki sjálfstæðri eftirlitsstofnun fyrir verkum.

Innlent
Fréttamynd

Sömdu um skiptingu hafsvæðis

Utanríkisráðherrar Danmerkur og Noregs undirrituðu í dag samning um skiptingu landsgrunns og hafsvæðis milli Svalbarða og Grænlands

Erlent
Fréttamynd

Þokast í átt að nýrri ríkisstjórn

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hóf í dag viðræður við Hamas-samtökin sigurvegara þingkosninga í landinu um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Fulltrúi Hamas-samtakanna sagði að líklega myndi Abbas á fundinum fela Ismail Abbas, forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna, umboð til að setja saman ríkisstjórn.

Erlent
Fréttamynd

Viðræður halda áfram á morgun

Rússar og Íranir ætla að halda áfram viðræðum á morgun um auðgun Rússa á úrani fyrir Írani. Samningaviðræður vegna málsins hófust í morgun og lauk fundinum fyrir skömmu.

Erlent
Fréttamynd

Enn lífsmark í aurskriðum á Filippseyjum

Björgunarmenn vinna nú hörðum höndum að því að grafa frá skóla sem að lenti undir aurskriðu á eynni Leyte á Filippseyjum eftir að lífsmarks varð vart undir skriðunni.

Erlent
Fréttamynd

Fundað um fuglaflensu

Þýsk stjórnvöld leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir að hinn banvæni H5N1 fuglaflensu stofn breiðist út um Þýskaland. Lanbúnaðarráðherrar Evrópuríkja funda í Brussel í dag um fuglaflensuna og mögulegar aðgerðir gegn henni.

Erlent
Fréttamynd

Vélstjórar fella kjarasamning í annað sinn

Vélstjórar á fiskiskipum felldu nýgerðan kjarasamning við LÍÚ með aðeins tveggja atkvæða mun. Skrifað var undir samninginn um áramót en þetta er í annað sinn sem vélstjórar fella kjarasamning á innan við ári, en þeir felldu einnig samning sem gerður var á fyrri hluta síðasta árs.

Innlent
Fréttamynd

Rússar og Íranar ræða kjarnorkumál

Samningaviðræður Rússa og Írana um samvinnu vegna kjarnorkuáætlunar Írana hófust í Moskvu í morgun. Þetta er haft eftir talsmanni öryggisráðs rússneska þingsins. Rússar hafa boðist til þess að auðga úran fyrir Írana og þar með draga úr þeirri alþjóðadeilu sem er uppi vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran.

Erlent
Fréttamynd

Sagði þingmanni að hann ætti að skammast sín

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingar, að hann ætti að skammast sín í fyrirspurnatíma á Alþingi. Fjármálaráðherra sagði Kristján opinbera það í hvert skipti sem hann færi í ræðustól að hann kynni ekki reikning.

Innlent
Fréttamynd

Vilja rannsókn á sölu Búnaðarbankans

Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir því við upphaf þingfundar að rannsókn yrði hafin á sölu Búnaðarbankans og blekkingum sem Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands, segir kaupendur hafa beitt.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður SPRON rúmir fjórir milljarðar

Hagnaður SPRON á síðasta ári nam fjórum koma einum milljarði króna og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í dag. Hagnaðurinn jókst um 150 prósent á milli ára og nema heildareignir SPRON-samstæðunnar nú 115 milljörðum króna.

Innlent
Fréttamynd

Utandagskrárumræða á Alþingi um tálbeitunotkun

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir utandagskrárumræðu á Alþingi um heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga. Í ljósi umfjöllunar Kompáss á Stöð 2 og NFS í gær um barnaníðinga, og notkun á tálbeitum til að lokka þá fram, þurfi að ræða á vettvangi Alþingis hvort ekki verði að rýmka heimildir lögreglu til að beita því ráði.

Innlent
Fréttamynd

Skýringar Landsflugs ekki fullnægjandi

Þriðja tilvikið þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar á þurfti að halda kom upp á föstudag. Skýringar Landsflugs á þessum tilvikum eru engan veginn fullnægjandi, segir bæjarstjórinn í Eyjum.

Innlent