Fréttir
Samræmd stúdentspróf heyra sögunni til Ákveðið hefur verið að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum í núverandi mynd. Menntamálaráherra hyggst leggja fram frumvarp á vorþingi þar sem þetta verður lagt til. Ýmsir vankantar hafa verið á framkvæmd prófana að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu og hafa framhaldskólarnir átt í erfiðleikum með að bæta samræmdu prófunum við prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil. Innlent 24.2.2006 15:47
Liggur þungt haldinn á gjörgæslu Maðurinn sem féll af þaki við Lyngás í Garðabæ í gærdag liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega áverka og er haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn var við störf á þakinu þegar slysið átti sér stað. Vinnueftirltið vinnur nú að rannsókn málsins. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt. Innlent 24.2.2006 15:43
Ekki samstaða um hvort að vændiskaup eigi að vera refsiverð Ekki náðist samstaða um hvort gera ætti kaup á vændi refsiverð í starfshóp sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2004 og farið hefur yfir málið. Starfshópurinn kannaði mismunandi löggjöf um vændi á Norðurlöndum og víðar. Innlent 24.2.2006 15:32
Vikið úr starfi fyrir ummæli um blaðamann af gyðingaættum Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna, hefur verið vikið úr starfi í mánuð fyrir ummæli sín um blaðamann af gyðingaættum. Rauði Ken, eins og hann er oft kallaður, bar blaðamanninn saman við fangavörð í útrýmingabúðum nasista. Erlent 24.2.2006 15:03
Vöruskipti óhagstæð um 11,4 milljarða Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Mest jókst innflutningur neysluvara og flutningatækja, um 23,6 og 14,2 prósent, meðan innflutningur á mat og drykkjarvöru dróst saman um 5,4 prósent. Viðskipti innlent 24.2.2006 13:14
Lithái úrskurðaður í farbann Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun Litháa á fertugsaldri í farbann til 24. mars næstkomandi vegna rannsóknar á amfetamínsmygli. Maðurinn er búsettur hér á landi. Gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum, sem einnig eru taldir tengjast málinu, rennur út klukkan fjögur í dag. Fyrir þann tíma verður tekin afstaða til þess hvort óskað verður eftir að það verði framlengt. Innlent 24.2.2006 13:09
Styrkir vegna ættleiðinga frá útlöndum Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita styrki vegna ættleiðinga frá útlöndum frá og með næsta ári. Kostnaður para sem ættleiða börn erlendis frá er gjarnan um ein milljón króna. Innlent 24.2.2006 13:04
Göran Sonnevi hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Sænska skáldið Göran Sonnevi hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir ljóðasafnið Úthafið eða Oceanen. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Kristín Marja Baldursdóttir voru tilnefndar af Íslands hálfu, Auður fyrir bókina "Fólkið í kjallaranum" og Kristín Marja fyrir "Karítas - án titils". Erlent 24.2.2006 12:23
Neyðarástand á Filipseyjum Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í morgun eftir að fregnir bárust af því að valdamenn í hernum hafi ætlað að velta henni úr sessi í dag. Tuttugu ár eru á morgun frá því Ferdinand Marcos, þáverandi einræðisherra, flúði í útlegð eftir uppreisn almennings gegn honum. Erlent 24.2.2006 12:32
Þrjú handtekin vegna stærsta ráns í sögu Bretlands Þrír hafa verið handteknir vegna ránsins í fjárhirslu Securitas í Kent, skammt utan við London, í fyrradag en þetta er langstærsta rán í sögu Bretlands. Ræningjarnir, sem dulbjuggust sem lögregluþjónar við verknaðinn, komust á brott með allt að sex milljarða íslenskra króna. Rúmlega tvö hundruð milljónum króna hefur verið heitið fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku ræningjanna. Erlent 24.2.2006 12:40
Útgöngubann í Bagdad Útgöngubann er nú í gildi allan sólarhringinn í Bagdad, höfuðborg Íraks. Óttast er að borgarastyrjöld sé að brjótast út í landinu en á annað hundrað manns hafa fallið í skærum sjía- og súnní-múslima undanfarna daga. Erlent 24.2.2006 12:28
Banaslys í Garðabæ Stúlkan sem lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Bæjarbraut í Garðabæ fimmtánda þessa mánaðar hét Halla Margrét Ásgeirsdóttir. Minningarathöfn um Höllu Margréti fer fram í Vídalínskirkju klukkan 18 í dag. Innlent 24.2.2006 12:21
Rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Þegar hefur orðið rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í morgun þótt þeir hafi ekki gripið til formlegra hópaðgerða. Eftir því sem NFS kemst næst, mættu slökkvililðs- og sjúkraflutningamenn ekki á endurmennturnarnámskeið í morgun, en þar var skyldumæting. Þá hafa þeir hafanð yfirvinnu, en menn í yfirvinnu manna svonefnda dagbíla, sem eru tveir sjúkrabílar, sem flytja fólk á milli sjúkrahúsam á daginn vegna myndatöku og annara rannsókna. Innlent 24.2.2006 12:16
Félagsráðgjafar höfnuðu tilboði borgaryfirvalda Félagsráðgjafar höfnuðu í morgun tilboði borgaryfirvalda í kjaraviðræðum aðilanna og svöruðu með gagntilboði. Formaður stéttarfélags félagsráðgjafa segir mikið hafa borið í milli. Innlent 24.2.2006 12:08
Nýsköpunarverðlaunin ekki fyrir konur? Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, segir að sér virðist sem hvatningu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár hafa ekki verið beint til ungra kvenna. Verðlaunin voru veitt í gær og að þessu sinni voru þau gefin af Viðskiptaháskólanum. Fjögur verkefni voru tilnefnd og voru þau öll unnin af karlmönnum. Leiðbeinendur þeirra voru einnig karlar. 140 verkefni komu til greina. Innlent 24.2.2006 10:47
Mannskæður bruni í textílverksmiðju í Bangladesh Að minnsta kosti 52 létu lífið og 150 slösuðust þegar eldur kviknaði í textílverksmiðju í suð-austur hluta Bangladesh í gærkvöldi. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá neista úr rafmagnsverkfæri og jókst hann þegar rafall og gufuketill sprungu. Erlent 24.2.2006 09:32
Enn átök fyrir Rolling Stones tónleika Að minnsta kosti 20 slösuðust og 50 voru handteknir þegar til átaka kom milli lögreglu og æstra aðdáenda hljómsveitarinnar Rolling Stones í Buenos Aires í Argentínu í gær, annað kvöldið í röð. Erlent 24.2.2006 09:18
Fuglaflensa í innlendum alifuglum í Frakklandi Fuglaflensa hefur greinst í fuglum á kalkúnabúi í Frakklandi. Dominique Busseraeu, landbúnaðarráðherra, staðfesti þetta í morgun. Hann sagði verið að rannsaka hvort um hið hættulega H5N1 afbrigði væri að ræða. Verði það staðfest yrði það í fyrsta sinn sem það hættulega afbrigði greindist í innlendum alifuglum í Evrópusambandsríki. Erlent 24.2.2006 09:13
Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir í búsetumálum og hætta að skattpína þá, segir Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldriborgara í Reykjavík. Innlent 24.2.2006 09:04
Meleyri lokað Einni elstu rækjuverksmiðju landsins, Meleyri á Hvammstanga verður lokað innan skamms þar sem öllum 20 starfsmönnunum verksmiðjunnar hefur verið sagt upp. Þá verða aðeins sex til sjö rækjuverksmiðjur eftir í rekstri hér á landi en þær voru 20 fyrir nokkrum árum. Innlent 24.2.2006 09:01
Bæjarstjórinn tregur til að boxa 20-30 nemendur Háskólans á Akureyri afhentu Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra á Akureyri boxhanska á Akureyrarflugvelli í morgun. Bæjarstjórinn virtist tregur til að veita hönskunum viðtöku. Innlent 24.2.2006 09:20
Útgöngubann í Bagdad Óttast er að borgarastyrjöld sé að brjótast út í Írak en á annað hundrað manns hafa fallið í skærum síja- og súnní-múslima undanfarna daga. Ákveðið hefur verið að útgöngubann sem gildir á nóttunni í Bagdad gildi nú allan sólarhringinn. Erlent 24.2.2006 09:08
Baugsmálið í dóm Ákæruliðirnir í Baugsmálinu snúa annars vegar að brotum á lögum um ársreikninga og hins vegar að brotum á tollalögum vegna innflutnings á bílum, en málið var dómtekið í gærkvöldi að lokinni aðalmeðferð. Dómarar hafa nú þrjár vikur til að kveða upp dóm. Innlent 24.2.2006 08:56
Handtekin vegna stærsta ráns í sögu Bretlands Kona og maður hafa verið handtekin vegna ránsins í fjárhirslu Securitas í Kent, skammt utan við London, í fyrradag en þetta er langstærsta rán sem framið hefur verið í sögu Bretlands. Ræningjarnir, sem dulbjuggust sem lögregluþjónar við verknaðinn, komust á brott með jafnvirði allt að 6 milljarða íslenskra króna. Jafnvirði rúmlega 200 milljóna króna hefur verið heitið fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku ræningjanna. Erlent 24.2.2006 08:52
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja verkfall Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu einróma í gær heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars. Innlent 24.2.2006 08:46
Minningarathöfn í París Jacques Chirac, forseti Frakklands, og fleiri stjórnmálamenn og trúarleiðtogar þar í landi tóku í gær þátt í minningarathöfn um ungan mann af gyðingaættum sem fannst nær dauða en lífi á sorphaugum í París í síðustu viku. Pilturinn lést á leið á spítala en honum var rænt þremur vikum áður og hafði verið haldið föngnum í kjallara húss í úthverfi Parísar. Erlent 24.2.2006 07:14
Neyðarástand á Filipseyjum Gloria Arroyo, forseti Filipseyja, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í morgun eftir að fregnir bárust af því að valdamenn í hernum hafi ætlað að velta henni úr sessi í dag. Auk þess söfnuðust íbúar í höfuðborginni, Manila, saman í morgun til að mótmæla ástandinu í landinu. Fólki hafi verið bannað að koma saman á tiltekinni götu í borginni en það bann var virt að vettugi. Erlent 24.2.2006 07:11
Hlustað verði á óskir og þarfir aldraðra í búsetumálum Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir um búsetuúrræði og hætta að skattpína þá, segir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Innlent 23.2.2006 23:45
Erilsamt hjá lögreglunni í Hafnarfirði Maður liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann féll af þaki við Lyngás í Garðabæ um klukkan hálf tvö í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt og var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið á gjörgæsludeild . Innlent 23.2.2006 22:35
Stefnir í verkfall slökkviliðsmanna Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum sveitarfélaga og slökkviliðsmanna, sem hyggjast óska eftir heimild til verkfallsboðunar á stéttarfundum víða um land í kvöld. Formaður samninganefndarinnar segir þolinmæði slökkviliðsmanna á þrotum. Heimildir NFS herma að slökkviliðsmenn íhugi að vinna ekki yfirvinnu á næstu dögum, sem er stór hluti af starfi þeirra. Innlent 23.2.2006 21:28