Fréttir

Fréttamynd

10 Kínverjinn látinn úr fuglaflensu

Tíundi Kínverjinn hefur látist af völdum fuglaflensu. Athuganir á níu ára stúlku sem lést á mánudaginn í austuhluta Kína, hafa leitt í ljós að hún var smituð af H5N1.

Erlent
Fréttamynd

Gengi hlutabréfa í deCode lækkaði

Gengi hlutabréfa í deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar féll um 7,4% á Nasdaq markaði vestra í gær, eftir að birtar voru tölur um 4 milljarða króna halla í fyrra. Kári Stefánsson forstjóri segist allt eins líta á hallann sem fjárfestingu.

Innlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn og Rússar ósammála

Vaxandi ágreiningur Bandaríkjamanna og Rússa kom berlega kom í ljós á fundi utanríkisráðherra landanna í gær. Condoleeza Rice og Sergei Lavrov hikuðu ekki við að vera ósammála á blaðamannafundi í Washington í gær, sem er afar óvenjulegt eftir fundi sem þessa. Rice sagðist hafa áhyggjur af lýðræðisþróuninni í Rússlandi, en því svaraði Lavrov með því að Rússar hefðu líka áhyggjur af yfirgangi Bandaríkjamanna í hinum ýmsu málum.

Erlent
Fréttamynd

18 lík í sendibifreið

18 lík fundust í sendibifreið í vesturhluta Baghdad í nótt. Búið var að binda fyrir augu mannanna 18 og bendir flest til að fjöldaaftaka hafi átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Ekki er allt sem sýnist

Ekki er allt sem sýnist, segir í yfirskrift ítarlegrar skýrslu, sem verðbréfafyrirtækið Merrill Lynch gaf út í gær og Morgunblaðið greinir frá. Merrill Lynch, sem er eitt stærsta verðbréfafyrirtæki í heimi, gangrýnir matsfyrirtækin Fitch Ratings og Moody´s fyrir lánshæfismat þeirra á íslensku bönkunum og telur að þeir hafi átt að fá lakara mat en fyrirtækin gáfu þeim.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu ára stúlku nauðgað

Bretar eru slegnir óhug eftir að ellefu ára stúlku var nauðgað inni á salerni í matvöruverslun í Lemington Spa í Warwickshire í Bretlandi. Stúlkan var með móður sinni í innkaupaleiðangri fyrir helgi og brá sér á klósettið en þar réðst á hana maður um tvítugt og nauðgaði henni.

Erlent
Fréttamynd

Íslendingar kaupa meira áfengi

Áfengissala hér á landi jókst um tæp 7% á milli áranna 2004 og 2005. Um 5% aukningu er að ræða á hvern íbúa 15 ára og eldri sem er með því mesta sem verið hefur á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Læknir braut lög um persónuvernd

Yfirlæknir á Landspítalanum braut lög um persónuvernd þegar hann sótti upplýsingar í sjúkraskrá í heimildarleysi þegar hann var að vinna álit fyrir tryggingafélag.

Innlent
Fréttamynd

Úr pólitík í bankann

Fyrrum erfðaprins Framsóknarflokksins gekk af leikvelli stjórnmálanna í dag þegar forseti Íslands samþykkti afsögn hans sem félagsmálaráðherra á Ríkissráðsfundi í morgun. Eftir fundinn bað Árni flokksfélaga sína afsökunar á brotthvarfinu en sagði ástæður sínar persónulegar.

Innlent
Fréttamynd

Besta ár í sögu Actavis

Alþjóðlega samheitalyfjafyrirtækið Actavis Group skilaði 6,3 milljarða króna hagnaði á árinu 2005 og 2,8 milljarða hagnaði á fjórða ársfjórðungi. Tekjur samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna á árinu og hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta nam 11,5 milljörðum króna. Árið er það besta í sögu félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

16 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Akureyri

Það virðist ekkert lát á hraðakstri ökumanna. Lögreglan á Akureyri hefur stöðvað 16 ökumenn fyrir of hraðan akstur frá klukkan sjö í morgun. Allir ökumenn voru að keyra innanbæjar og fimm þeirra ökumanna sem lögreglan stöðvaði voru að keyra í nágrenni við skóla þar sem hámarkshraði er 30 km.

Innlent
Fréttamynd

Fær ekki að nota egg sín

Bresk kona fær ekki að nota egg, frjóvguð með sæði úr þáverandi kærasta hennar, til að verða ófrísk nema hann gefi leyfi fyrir því. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu sem hafnaði beiðni konunnar um að úrskurði bresks dómstóls í þessa veru yrði hnekkt.

Erlent
Fréttamynd

Á­kærður fyrir brot á hegningar- og siglingarlögum

Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, var ákærður fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jónas er ákærður fyrir brot á hegningarlögum og siglingarlögum. Hann er sakaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skemmtibátnum Hörpu, sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september á síðasta ári.

Innlent
Fréttamynd

Viðskiptahallinn við útlönd 164,1 milljarður króna í fyrra

Viðskiptahallinn við útlönd nam 53,1 milljarði króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tímabili 2004 var viðskiptahallinn 35,2 milljarðar króna. Viðskiptahallinn á öllu síðasta ári nam samtals 164,1 milljarði króna en var 85,3 milljarðar króna árið áður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spron styrkir Hjálparsíma RKÍ

Hjálparsími Rauða kross Íslands 1717 hefur hlotið þriggja milljón króna styk frá Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, SPRON. Styrkurinn var afhentur á aðalfundi SPRON í gærkvöldi. Hjálparsíninn 1717 hefur verið starfræktur síðan árið 2002 og gegnir því hlutverki að veita ráðgjöf og hlutstun til fólks á öllum aldri sem þarf á stuðningi að halda vegna ýmissa erfiðleika.

Innlent
Fréttamynd

Sex létust í sprengingum

Sex manns hið minnsta létu lífið þegar sprengingar skóku hof hindúa og lestarstöð í hinnu helgu borg Varanasi á Indlandi í dag. Fjörutíu til viðbótar særðust í sprengingunum þar af um tuttugu alvarlega.

Erlent
Fréttamynd

Viðskiptavinir ánægðastir með Ölgerðina

Viðskiptavinir voru ánægðastir með viðskipti við Ölgerð Egils Skallagrímssonar árið 2005 samkvæmt mælingu samkvæmt árlegri mælingu Samtaka iðnaðarins, Stjórnvísi og Gallup. Viðurkenningar hinnar svokölluðu íslensku ánægjuvogar voru afhent í dag.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæltu skerðingu réttinda

Þúsundir manna gengu um götur Parísar í dag til að mótmæla nýjum lögum sem gera vinnuveitendum auðveldara en áður að segja ungu fólki upp störfum. Efri deild franska þingsins samþykkti lögin í gær og þau eiga að taka gildi á fimmtudag.

Erlent
Fréttamynd

Myndband frá mannræningjum

Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gær stutt myndband sem sýnir þrjá af fjórum gíslum áður óþekktra hryðjuverkasamtaka í Írak. Mennirnir eru allir starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka og eru sagðir hafa beðið ríkisstjórnir landa sinna um að tryggja lausn sína.

Erlent
Fréttamynd

Uppsagnir hjá AT&T

Stjórnendur bandaríska fjarskiptafyrirtækisins AT&T greindu frá því í dag að allt að 10.000 manns verði sagt upp störfum hjá fyrirtækinu á næstu þremur árum. AT&T ákvað í gær að festa kaup á bandaríska farsímafyrirtækinu BellSouth fyrir 67 milljarða Bandaríkjadali og eru uppsagnirnar liður í hagræðingu hins sameinaða fjarskiptarisa.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sinntu öryggishlutverki sínu

Broddi Broddason, varafréttastjóri Ríkisútvarpsins, hafnar því alfarið að Ríkisútvarpið hafi ekki staðið sig í fréttaflutningi af jarðskjálftanum við Kleifarvatn í gær. Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi á Alþingi í gær Ríkisútvarpið fyrir að sinna öryggishlutverki sínu ekki sem skildi í fréttaflutningi af skjálftanum í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fatah leitar til hæstaréttar

Fatah-samtök Mahmous Abbas, forseta Palestínumanna, hafa farið þess á leit við hæstarétt Palestínumanna að hann felli úr gildi þá ákvörðun Hamas-liða á þingi í gær að fella úr gildi ný lög sem auka vald forseta. Hamas-liðar eru í meirihluta á þingi heimastjórnarinnar og voru lögin sem um ræðir sett á síðasta þingfundi fyrra þings þar sem Fatah-liðar voru í forystu.

Erlent
Fréttamynd

Dregið úr styrkjum til landtökumanna

Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir í dag að Kadima-flokkur hans og Sharons, forsætisráðherra, ætli að draga stórlega úr styrkjum til landtökumanna Gyðinga á Vesturbakkanum. Stutt er til þingkosninga í Ísrael og má búast við að þessi yfirlýsing komi sem sprengja í baráttuna.

Erlent
Fréttamynd

Sprenging í hofi á Indlandi

Að minnsta kosti 4 féllu og hátt í 20 særðust í minnst tveimur sprengingum í ferðamannabænum Varanasi á Norður-Indlandi í dag. Önnur sprengingin varð í hofi Hindúa þar í borg en mikið fjölmenni var þar. Hin sprengingin var á lestarstöð.

Erlent
Fréttamynd

Flugvöllur rýmdur í Svíþjóð

Rýma þurfti Landvetter-flugvöll rétt fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð í dag þar sem dularfullur pakki fannst þar eftir að vopnað rán var framið í banka á vellinum skömmu áður.

Erlent
Fréttamynd

Alþjóðabankinn styrkir Palestínustjórn

Alþjóðabankinn samþykkti í dag að veita palestínsku heimastjórninni fjárstyrk að andvirði 2,8 milljarða króna. Með þessu vill bankinn hlaupa undir bagga með heimastjórninni sem á í miklum fjárhagsvandræðum.

Erlent
Fréttamynd

Kaupþing selur hlut sinn í Baugi

Kaupþing banki seldi 8,75 prósenta hlut sinn í Baugi Group í dag og innleysti þar með 3,3 milljarða króna hagnað. Kaupendur eru fjárfestingafélagið Gaumur og Eignarhaldsfélagið ISP, félög í eigu Baugsfjölskyldunnar og Ingibjargar Pálmadóttur, konu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Innlent