Fréttir
Varp fugla getur verið í uppnámi vegna Mýrarelda Varp fugla getur verið í uppnámi vegna sinueldanna á Mýrum og líklegt er að smárdýralíf skaðist vegna eldanna. Þetta er mat Náttúrufræðistofnunar Íslands en enn logar víða sina á Mýrum. Innlent 31.3.2006 22:52
Aðstoðarmenn dómara fái aukin völd Aðstoðarmenn dómara fá vald til að fara með hluta dómsstarfa verði frumvarp dómsmálaráðherra um dómstóla að lögum. Hert er á hæfnisskilyrðum aðstoðarmanna og verða þeir að vera lögfræðingar með reynslu af lögmanns- eða lögfræðistörfum eða þá hafa setið á Alþingi. Innlent 31.3.2006 22:01
Frakklandsforseti ætlar að staðfesta vinnulöggjöf Chirac Frakklandsforseti ætlar að staðfesta umdeilda vinnulöggjöf þrátt fyrir mikil mótmæli á götum Frakklands síðustu vikur. Hann heitir því þó að tveimur umdeildum ákvæðum verði breytt. Erlent 31.3.2006 22:10
Staðfesti starfsleyfi Alcans Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra staðfesti í dag ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis vegna stækkunar Alcans í Straumsvík. Með nýja starfsleyfinu fær fyrirtækið heimild til að framleiða allt að 460 þúsund tonn af áli á ári. Innlent 31.3.2006 22:18
Svíar taka út fangelsi stríðsglæpadómstólsins Sænskum yfirvöldum hefur verið falið að gera úttekt á fangelsinu sem hýsti Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, meðan réttað var yfir honum fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Forsetinn lést þar fyrr í þessum mánuði. Erlent 31.3.2006 22:07
Ár flæða yfir bakka sína í Evrópu Ár flæða nú yfir bakka sína í sex ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og valda miklum skemmdum. Minnst fjórir hafa farist í flóðunum. Vatn flæðir um götur og inn í hús og hefur þurft að flytja mörg þúsund manns frá heimilum sínum. Erlent 31.3.2006 22:02
Deildi hart á gagnrýnendur innan flokks Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, fór hörðum orðum um þá flokksmenn sem hafa gagnrýnt forystuna opinberlega, þegar hann ávarpaði vorfund miðstjórnarflokksins sem haldinn er í Reykjavík. Innlent 31.3.2006 21:56
Skemmtiferð lauk með skelfingu Skemmtiferð um Persaflóann lauk hræðilega í gærkvöldi, þegar stór snekkja, yfirfull af fólki, fór á hliðina með þeim afleiðingum að 57 manns drukknuðu. Flestir í bátnum voru útlendingar í verktakavinnu í Bahrain. Erlent 31.3.2006 20:24
Minnst 70 fórust í jarðskjálfta Að minnsta kosti 70 manns létu lífið í snörpum jarðskjálftakippum í Íran í nótt. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka. Erlent 31.3.2006 20:21
Blóðug átök á Gaza Blóðug átök brutust út í dag milli andstæðra fylkinga Palestínumanna á Gaza-ströndinni. Átökin hófust eftir að bílsprengja varð Palestínumanni að bana. Maðurinn var foringi skæruliðasamtaka sem hafa staðið fyrir flugskeytaárásum á Ísrael. Erlent 31.3.2006 20:14
Kynningarátak til að efla trú á íslensku efnahagslífi Forsætisráðuneytið og viðskiptabankarnir ætla í sameiginlegt kynningarátak til að efla trú útlendinga á íslensku efnahagslífi. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans í dag. Innlent 31.3.2006 20:00
Sjálfstæðisflokkur fengi meirihluta í borginni Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta í borgarstjórn ef kosið væri nú samkvæmt skoðanakönnun Gallup en fylgi flokksins minnkar þó talsvert frá síðustu könnun. Innlent 31.3.2006 19:06
Stúlkubarn varð fuglaflensu að bráð Stúlka á fyrsta ári léstu úr fuglaflensu á Indónesíu á dögunum. Heilbrigðisráðuneyti landsins greindi frá þessu í dag. Erlent 31.3.2006 17:09
Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu manns sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann tengdist fíkniefnasmygli árið 2004. Við rannsókn kom ekkert fram sem benti til þess að maðurinn tengdist málinu og krafðist hann 11 milljóna króna í miskabætur en þeirri kröfu hafnaði héraðsdómur. Innlent 31.3.2006 17:39
Fyrirtæki þurfa skýra stefnu í eineltismálum Mikilvægt er fyrir fyrirtæki að hafa skýra stefnu í eineltismálum því þau geta orðið þeim kostnaðarsöm. Þetta segir skrifstofustjóri Vinnueftirlitsins sem nýlega rannskaði einelti á þremur opinberum stofnunum. Innlent 31.3.2006 17:30
Járniðnaðarmenn og vélstjórar sameinast Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands hafa samþykkt að sameina þessi tvö félög og verður gengið frá nýju nafni á félagið og kosið í stjórn stofnfundi nýja félagsins í maílok. Kosið var um sameininguna og voru 92,6 prósent félagsmanna hjá Félagi járniðnaðarmanna samþykk sameiningunig og 54 prósent félagsmanna hjá Vélstjórafélaginu. Innlent 31.3.2006 17:31
Sprenging á iðnaðarsvæði í Hollandi Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir að sprenging varð í verksmiðju í iðnaðarhverfi nálægt Haag í Hollandi í dag. Mikill viðbúnaður var á svæðinu eftir sprenginguna en slökkviliðsmenn sögðu hættu á frekari sprengingum. Erlent 31.3.2006 17:05
Kynningarátak um íslenskt efnahagslíf Kynningarátak um íslenskt efnahagslíf erlendis, breytingar á Íbúðalánasjóði og stóriðjuframkvæmdir voru meðal þess sem forsætisráðherra talaði um í ræðu sinni á ársþingi Seðlabanka Íslands sem hófst klukkan fjögur. Innlent 31.3.2006 17:18
Gera kjarasamning við starfsmannaleigu Verkalýðsfélag Húsavíkur gekk í dag frá kjarasamningi við starfmannaleiguna RIMEC sem er með höfuðstöðvar á Írlandi. Er þetta í fyrsta skipti sem verkalýðsfélag gengur frá samningi við erlenda starfsmannaleigu að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Innlent 31.3.2006 17:03
Sprenging í Istanbúl Að minnsta kosti einn lét lífið og fjölmargir særðsut þegar sprengja sprakk nálægt strætisvagnastöð í Istanbúl í Tyrklandi í dag. Erlent 31.3.2006 17:02
Vaskasti uppvaskarinn í Fífunni Keppnisskapið var allsráðandi í Fífunni í Kópavogi í dag þar sem bestu uppvaskarar landsins börðust um titilinn vaskasti uppvaskarinn. Keppnin er liður í stórsýningunni Matur 2006, en þar leiða einnig fjölmargir innlendir og erlendir matreiðslumenn saman hesta sína í fjölbreyttri keppni. Innlent 31.3.2006 17:13
Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5 prósent Úrvalsvísitalan hækkaði um 6,5 prósent á fyrsta fjórðungi 2006 þrátt fyrir töluverðar lækkanir síðustu vikur. Greiningardeild KB banka segir í hálf fimm fréttum að sé hækkunin sett í samhengi við lengra tímabil megi sjá að hækkun fjórðungsins er nokkuð yfir meðaltals ársfjórðungshækkun frá upphafi vísitölunnar, sem nemur um 5,9 prósentum. Viðskipti innlent 31.3.2006 17:02
Fasteignagjöld lægst í Reykjanesbæ Fasteignagjöld á hvern og einn íbúa eru lægst í Reykjanesbæ af stærstu sveitarfélögum landsins þrátt fyrir að gjöldin hafi hækkað mest þar en síðustu ár. Innlent 31.3.2006 16:24
Harmar ákvörðun síldarverksmiðjunnar á Raufarhöfn Verkalýðsfélag Húsavíkur harmar ákvörðun Síldarvinnslunnar um að hætta starfsemi loðnuverksmiðju á Raufarhöfn en öllum starfsmönnum verksmiðjunnar hefur verið sagt upp frá og með næstu mánaðarmótum. Að því er fram kemur í yfirlýsingu frá verkalýðsfélaginu þá hefur loðnuverksmiðja gegnt mikilvægu hlutverki í atvinnuuppbyggingu Raufarhafnar og veitt fjölmörgum atvinnu. Innlent 31.3.2006 16:58
Vonar að hægt verði að komast hjá refsiaðgerðum Mohammed El-Baradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, segist vonast til þess að hægt verði að komast hjá refsiaðgerðum gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Hann sagði vissulega hægt að grípa til aðgerða og þar með stigmagna deiluna en það leysi hana ekki. Erlent 31.3.2006 16:57
Vímulaus æska fær styrk Félagsmálaráðuneytið og Vímulaus æska hafa gert með sér styrktarsamning þar sem félagsmálaráðuneytið leggur starfsemi samtakanna lið með fjárstuðningi til næstu tveggja ára en samningur þess efnis var undirritaður í gær. Samningurinn gerir samtökunum kleift að vinna áfram fjölbreytt fornvarnarstarf meðal íslenskra fjölskyldna. Innlent 31.3.2006 16:47
Forsætisráðherra skipar í nýtt vísindaráð Forsætisráðherra hefur skipað nýtt Vísinda- og tækniráð sem er meðal annars ætlað að marka stefnu stjórnvalda á sviði vísinda og tæknimála. Ráðið er skipað til þriggja ára og í því eiga sæti Hrefna Kristmannsdóttir, Inga Þórsdóttir, Jón Torfi Jónasson og Þorlákur Karlsson, Rúnar Bachmann og Stefán Úlfarsson, Kristinn Andersen, Pétur Reimarsson, Guðrún Nordal sem tilnefnd er af menntamálaráðherra, Hallgrímur Jónasson, Sjöfn Sigurgísladóttir, Þorsteinn Tómasson, Ingileif Jónsdóttir og Magnús Jónsson. Innlent 31.3.2006 16:24
Á annan tug sinuelda á höfuðborgarsvæðinu Sinueldar loga víðar en í Borgarfirði í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur farið í á annan tug útkalla frá því klukkan eitt og hafa slökkviliðsmenn meðal annars fengið aðstoð frá starfsmönnum borgarinnar við að ráða niðurlögum eldanna. Innlent 31.3.2006 16:44
Hagnaður Milestone tæpir 14 milljarðar Hagnaður Milestone ehf. nam tæpum 14 milljörðum króna á síðasta ári. Fyrir skatta nam hagnaðurinn 17,8 milljörðum króna. Starfsemi félagsins einkenndist af viðamiklum fjárfestingum og breytingum á efnahagsreikningi félagsins. Félagið keypti m.a. 66,6 prósenta hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. í fyrra. Viðskipti innlent 31.3.2006 16:42
Vilja sérstakt stéttarfélag innan KÍ Leikskólakennarar vilja stofna sérstakt stéttarfélag innan Kennarasambands Íslands. Þetta eru niðurstöður konnunar meðal leikskólakennara, leikskólastjóra og leikskólafulltrúa sem framkvæmd var af IMG og kynnt var á fundi faghóps leikskólastjóra sem haldinn var á Akureyri í dag. Rúmlega sjötíu og sex prósent þátttakenda í könnuninni vildu að stofnað yrði sérstakt stéttarfélag en ríflega 20 prósent þeirra voru því andvíg. Innlent 31.3.2006 16:20