Fréttir
Krefjast úrbóta í málefnum innflytjenda Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælagöngum víða um Bandaríkin í gær og kröfðust úrbóta í málefnum innflytjenda. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig taka skal á þessu máli en talið er að á milli ellefu til þráttán milljónir ólöglegra innflytjenda búi í landinu. Í síðustu viku benti margt til að öldungadeild Bandaríkjaþings hefði náð samkomulagi um nýja tillögu Erlent 11.4.2006 08:05
Boða viku setuverkfall Starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem verið hafa í aðgerðum undanfarnar tvær vikur, samþykktu á fundi í gær að boða til viku setuverkfalls, sem tekur gildi 21. apríl. Boðaður hefur verið fundur starfsfólksins með forstöðumönnum hjúkrunarheimilisins þann 19. apríl. Ef samkomulag næst ekki eða ef fyrirhugaðar aðgerðir bera ekki árangur, er boðað að gripið verði til fjöldauppsagna. Innlent 11.4.2006 08:00
Fyrrum forstjóri Enron segist saklaus Jeffrey Skilling, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri bandaríska orkusölufyrirtækisins Enron, lýsti sig saklausan er hann bar vitni við réttarhöldin í máli sínu og Kenneths Lays, fyrrverandi forstjóra Enron, í Houston í gær. Skilling og Lay eru ákærðir fyrir að hafa leynt raunverulegri fjárhagsstöðu fyrirtækisins fyrir fjárfestum áður en það varð gjaldþrota árið 2001. Skilling sagði í gær að hann myndi berjast fyrir sakleysi sínu til dauðadags. Erlent 11.4.2006 07:57
Prodi fagnar sigri Miðvinstri-fylkingin, undir forystu Romanos Prodis, sigraði í þingkosningunum á Ítalíu sem fram fóru á sunnudag og í gær. Fylkingin fékk til neðri deildarinnar 49,8 prósent atkvæða en hægri fylking Berlusconis forsætisráðherra fékk 49,7 prósent. Munurinn var því einungis 0,07 prósent eða um 25 þúsund. Erlent 11.4.2006 07:54
Lést í snjóflóði Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal, fyrir ofan Fáskrúðsfjörð í kvöld, er látinn. Hann var á þrítugsaldri en ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 23:20
Ekki kemur til greina að taka upp vegtoll Hugmyndir um vegtoll um Suðurlandsveg eru algjörlega óásættanlegar að mati Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Tryggingafélagið Sjóvá vill endurbyggja Suðurlandsveg með tveimur akreinum í hvora átt og en forstjóri fyrirtækisins segir að jafnvel megi fjármagna framkvæmdirnar með vegtolli. Innlent 10.4.2006 23:19
Pólitísk framtíð forsætisráðherra Frakklands óráðin Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique de Villepin, forsætisráðherra, þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. Erlent 10.4.2006 22:22
Bush vísar fréttum á bug Bush Bandaríkjaforseti vísar alfarið á bug fréttum í fjölmiðlum um nýliðna helgi þess efnis að Bandaríkjamenn ætli að ráðast gegn hernaðarlegum skotmörkum í Íran með kjarnorkuvopnum. Hann segir bandarísk stjórnvöld stefna að því að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. Erlent 10.4.2006 22:17
Nokkuð um hraðakstur í nágrenni Blönduós Átta ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi í kvöld. Grunur leikur á að einn ökumannanna hafi verið undir áhrifum áfengis. Sá sem ók hraðast mældist á rúmlega 120 km hraða en eins og kunngut er, þá er 90 km hámarkshraði á þjóðvegum landsins. Innlent 10.4.2006 22:32
Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú látin Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, eiginkona Sigurbjarnar Einarssonar biskups, er látin, 95 ára að aldri. Fréttavefur Morgunblaðsins greindi frá þessu í kvöld. Innlent 10.4.2006 22:31
Hundur fann vélsleðamanninn Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal við Reyðarfjörð fannst upp úr klukkan átta í kvöld, um það bil tveimur klukkustundum eftir að hann lenti í flóðinu. Farið var með hann á sjúkrahús í flýti en ekki er hægt að greina frá afdrifum hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 22:11
Má vart á milli sjá Lokaspretturinn í ítölsku þingkosningunum hefur verið hörkuspennandi en svo virðist sem stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, ætli að halda naumum meirihluta í efri deild þingsins en missa hann naumlega í neðri deild. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Erlent 10.4.2006 22:11
Mótmæla stóriðjuframkvæmdum Enn fjölgar þeim hópum í samfélaginu sem eru á móti stóriðjuframkvæmdum. Samtök ferðaþjónustunnar og unglingar í Austurbæjarskóla hafa nú stigið fram gegn stóriðjuframkvæmdum stjórnvalda. Innlent 10.4.2006 22:06
Maðurinn fundinn Maðurinn sem leitað hefur verið að eftir snjóflóð í Hoffellsdal fyrir ofan Fáskrúðsfjörð er fundinn. Ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. Innlent 10.4.2006 21:18
Fyrstu björgunarsveitarmenn komnir Fyrstu björgunarsveitarmenn eru komnir í Hoffelsdal við Fáskrúðsfjörð en eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll þar undir kvöldið. Leit er hafin og björgunarsveitarmenn notast við leitarhunda. Tveir vélsleðamenn voru á ferð þegar snjóflóðið féll og lenti annar mannanna í flóðinu. Innlent 10.4.2006 20:04
Óvíst hverjir fá meirihluta í ítölsku þingkosningunum Allt stefni í hörkuspennandi lokasprett í ítölsku þingkosningunum en fyrstu tölur benda til þess að stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Erlent 10.4.2006 19:58
Chirac skarst í leikinn Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique du Villepin forsætisráðherra þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. Erlent 10.4.2006 19:02
Enn á neyslufylleríi þrátt fyrir viðvörunarbjöllur Vöruinnflutningur jókst um ríflega þriðjung, í krónum talið, í síðasta mánuði. Hluti skýringarinnar liggur í lækkun krónunnar, en að sama skapi má ætla að þrátt fyrir viðvörunarbjöllur sé þjóðin enn á neyslufylleríi. Innlent 10.4.2006 18:42
Vísa orðum Hersh á bug Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu. Erlent 10.4.2006 18:54
Náið samstarf við NATO Náið samstarf verður haft við Atlantshafsbandalagið um framtíð öryggis- og varnarmála Íslands, þegar Bandaríkjamenn hafi lagt fram útfærslu á því hvernig þeir hyggist halda í heiðri ákvæði varnarsamningsins. Þetta segir Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og jafnframt að framkoma Bandaríkjamanna í garð Íslendinga geri það að verkum að samstarf þjóðanna verði aldrei hið sama. Forsætisráðherra er ekki bjartsýnn á framahald samningaviðræðna við Bandaríkjamenn um varnir landsins og útilokar ekki að það komi til uppsagnar varnarsamningsins. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti í Háskóla Íslands í dag um framtíðarstefnu Íslendinga í öryggis- og varnarmálum. Jafnframt að hvergi verði hvikað frá því að varnir Íslands séu sýnilegar og öflugar þótt erfitt væri að sjá hvernig það mætti vera án þess að herþotur væru hér. Því hafi Bandaríkjmenn haldið fram og nú væri beðið eftir því að þeir bæru fram frekari útskýringar. Forsætsráðherra segir Bandaríkjamenn þurfa að uppfylla stefnu Atlantshafsbandalagsins um loftvarnir og náið samstarf verði haft við bandalagið og þá sérstaklega framkvæmdastjóra þess, Jaap de Hoop Scheffer, þegar áætlun Bandaríkjamanna liggur fyrir. Enga launung væri á því að framkoma bandarískra stjórnvalda varðandi brottflutning héðan hafi skapað vantraust milli þjóðanna. Í ljósi breyttra aðstæðna sagði forsætisráðherra að þátttaka íslendinga innan Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna yrði efld. Sömu sögu væri að segja um samstarf á vettvangi Schengen, jafnframt því sem þátttaka okkar í friðargæslu, þróunarhjálp og þróunarsamvinnu yrði efld. Utanríkisþjónustan þroskuð og möguleikar til þátttöku í alþjóðasamstarfi. Tækjabúnaðaður Landhelgisgæslunnar yrði stórefldur og einnig Víkingasveit lögreglunnar. Starfið yrði aukið í takt við auknar þjóðartekjur. Innlent 10.4.2006 18:29
Eins er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal Eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal í nágrenni Fáskrúðsfjarðar fyrir síðdegis í dag. Björgunarsveitir eru á leið á staðinn frá Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað. Innlent 10.4.2006 18:16
Nagladekkin að lenda á bannlista Þeir sem eru enn á nagladekkjum ættu að huga að því að skipta um dekk hið fyrsta. Frá og með páskadegi er óheimilt að vera á negldum dekkjum á götum Reykjavíkur. Innlent 10.4.2006 17:11
Öflun kaupir í Office Line Öflun ehf., sem á Apple-verslanir á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð, hefur eignast tæp 90 prósent í norska fyrirtækinu Office Line og gert yfirtökutilboð í félagið allt. Viðskipti innlent 10.4.2006 17:27
Hugmyndasamkeppni hleypt af stað Heildar verðlaunafé í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrinnar er jafnvirði rúmra 65 milljóna íslenskra króna. Átta teymi verða valin og fá þau tækifæri til að vinna að ítarlegri útfærslu hugmynda sinna. Innlent 10.4.2006 17:17
Stýrivextir gætu farið í 16 prósent Stýrivextir Seðlabankans geta farið í allt að sextán prósent að því er fram kemur í viðtali viðskiptavefsins Bloomberg við Davíð Oddsson Seðlabankastjóra. Davíð segist reiðubúinn að hækka stýrivexti verulega ef þess gerist þörf til að halda aftur af verðbólgu. Innlent 10.4.2006 16:49
Olíuverð hækkar á ný Vaxandi áhyggjur af hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Íran hafa valdið hækkunum á olíuverði og hefur það ekki verið hærra í 2 mánuði. Íran er fjórði stærsti olíuframleiðandi í heimi og gætu mögulegar aðgerðir Bandaríkjanna dregið talsvert úr framboði hráolíu í heiminum. Viðskipti erlent 10.4.2006 16:47
Miðjan er í bakgarði í Goðalandi Miðja höfuðborgarsvæðisins er í bakgarði Goðalands 11, það er að segja ef það er reiknað er út frá búsetu í Reykjavík og nágrenni. Í fyrsta skipti í fjögur ár fjarlægist hún Kópavog í stað þess að nálgast hann. Innlent 10.4.2006 16:30
Aðgerðaleysi ráðherra gagnrýnt Stjórnarandstæðingar deildu hart á heilbrigðis- og fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þeir gagnrýndu ráðherrana fyrir aðgerða- og úrræðaleysi þegar kæmi að því að leysa stöðuna á hjúkrunarheimilum og óskuðu eftir því að forsætisráðherra hlutaðist til um málið. Innlent 10.4.2006 16:26
ESB stöðvar fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í dag formlega að stöðva tímabundið fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna. Fram kemur í tilkynningu að með því vilji sambandsríkin þrýsta á að stjórnin, undir forystu Hamas-samtakanna, viðurkenni Ísraelsríki, stöðvi ofsamenn í sínum röðum og staðfesti þau friðarsamkomulög sem gerð hafi verið. Erlent 10.4.2006 15:30
Gífurleg flóð í Serbíu Serbar búa sig undir það að vatnshæð í Dóná verði í dag sú mesta sem mælst hefur í aldarfjórðung. Gríðarlega hefur flætt í landinu síðasta hálfa mánuðinn sökum mikillar úrkomu og asahláku. Erlent 10.4.2006 15:25