Fréttir
Leitað að vélsleðamanni Fjölmennt lið björgunarsveita er að fara af stað til að leita að vélsleðamanni sem er týndur á Langjökli. Maðurinn var ásamt þremur félögum sínum á jöklinum, þegar þeir týndu honum og ekkert hefur til hans spurst síðan. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg eru björgunarmenn rétt í þessu að leggja af stað upp á jökulinn. Innlent 29.4.2006 12:04
Lokað fyrir umferð um Dyrhólaey Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almenna umferð um Dyrhólaey frá 1. maí næstkomandi og til með 25. júní. Umhverfistofnun mun jafnframt, í samráði við landeigendur og nytjaréttarhafa, fylgjast með varpi á eynni og skoða hvort opna eigi fyrr fyrir umferð á Háey. Innlent 29.4.2006 00:11
Vegurinn um Þrengslin lýstur upp Vonast er til að vegurinn um Þrengslin verði upplýstur í kringum næstu áramót. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir þá hafa boðið Vegagerðinni að taka þátt í að lýsa einnig upp Hellisheiðina. Innlent 28.4.2006 23:28
Sammála um að aðgerða þörf í málefnum aldraðra Oddvitar stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru sammála um að aðgerða sé þörf í málefnum aldraðra. Formaður Félags eldri borgara segir það kröfu félagsins að málefnin aldraðra verði alfarið færð til sveitafélaganna. Innlent 28.4.2006 22:23
Aðeins eftir að semja í Sunnuhlíð Samningar hafa tekist milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins. Eftir því sem fréttastofa NFS kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. Innlent 28.4.2006 22:16
Kosningarnar framundan lita Gustsmálin Kosningarnar í vor hafa hugsanlega áhrif á deilurnar sem sprottnar eru upp um kaup á húsum á hinu svokallaða Gustssvæði, segir talsmaður viðræðunefndar Gusts. Forsvarsmenn félagsins sáu sig knúna til að kalla til fundar í kvöld til að skýra málin fyrir félagsmönnum. Innlent 28.4.2006 22:37
Vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn Ögmundur Jónasson, þingmaður og formaður BSRB vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn. Hann ætlar samt sem áður að styðja frumvarp um Kjararáð sem nú liggur fyrir. Innlent 28.4.2006 22:34
Chavez hótar stjórnvöldum í Perú Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar því að hætta öllum samskiptum við Perú ef Alan Garcia verði kjörinn forseti landsins. Chavez lét hafa þetta eftir sér í kjölfar þess að Garcia gagnrýndi hann opinberlega. Chavez hefur styður andstæðing Garcia í annarri umferð kosninganna. Erlent 28.4.2006 22:11
Háttsettur hermaður ákærður fyrir meðferð á föngum í Abu Ghraib Bandaríkjaher hefur ákært yfirmann í hernum fyrir illa meðferð á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad. Enginn hermaður með jafn háa tign hefur áður verið ákærður í málinu. Erlent 28.4.2006 22:46
Íraksstríðið dýrara en stríðið í Víetnam Allt stefnir í að kostnaður Bandaríkjamanna vegna stríðsrekstrarins í Írak verði meiri en við Víetnamstríðið. Samanlögð útgjöld vegna hernáms Afganistans og Íraks nema um 60 þúsund milljörðum króna. Erlent 28.4.2006 19:15
Verkmenntaskóli Austurlands 20 ára Það var mikið um fjör á Neskaupsstað í dag þegar Verkmenntaskóli Austurlands fagnaði tuttugu ára starfsafmæli sínu. Á Fréttavefnum Aussturlandið.is kemur fram að fjölmenni hafi verið á afmælishátíðinni og meðal gesta voru Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, Guðmundur Bjarnason. Innlent 28.4.2006 19:38
Prófessor segir Íslendingum bera að kanna aðra valkosti í varnarmálum Michael Corgan, prófessor við Boston-háskóla telur að Íslendingum beri skylda til að kanna aðra valkosti í varnarmálum, jafnvel á meðan viðræður standi yfir við Bandaríkjamenn. Frakkar séu greinilega reiðubúnir að draga fram hversu óáreiðanlegir Bandaríkjamenn séu sem bandamenn. Innlent 28.4.2006 19:07
Kvöldfréttir NFS sauma að kvöldfréttum RÚV Kvöldfréttir NFS sauma nú að kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í áhorfi samkvæmt nýrri áhorfskönnun IMG Gallup sem opinberuð var í dag. Samkvæmt henni mælist áhorf á kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins 40.4% miðað við 34.5% áhorf á kvöldfréttatíma NFS. Innlent 28.4.2006 18:55
Biðröð á bensínstöðvum vegna tímabundinna verðlækkana Það hljómaði eins og aprílgabb þegar tilkynnt var á útvarpsstöðinni Kiss FM í dag að eldsneytisverð yrði lækkað á bensínstöðvum Bensínorkunnar í höfuðborginni um nærri þriðjung miðað við almennt verð. Svo var þó ekki og því mynduðust langar biðraðir á stöðvunum á meðan tilboðið stóð enda hefur dropinn verið dýr undanfarnar vikur. Innlent 28.4.2006 18:33
Íranar halda sínu striki Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda. Erlent 28.4.2006 18:08
Þurfa að kanna pólitíks tengsl viðskiptavina Bankar þurfa að kanna pólitísk tengsl viðskiptavina sinna, samkvæmt frumvarpi um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í áhættuhópi eru þeir sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu og eru búsettir utan Íslands, sem og nánasta fjölskylda þeirra. Innlent 28.4.2006 18:14
Íranar virtu kröfur Öryggisráðs SÞ að vettugi Alþjóða kjarnorkumálastofnunin kynnti Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stundu nýja skýrslu um stöðu mála í kjarnorkudeilunni við Írana. Þar segir að stjórnvöld í Teheran hafi virt kröfur ráðsins að vettugi. Bandaríkjaforseti segist vona að hægt verði að semja um lausn deilunnar. Erlent 28.4.2006 17:17
Frakkar vilja tryggja Palestínumönnum fjárstyrk Frakkar ætla að nota áhrif sín á alþjóðavettvangi til að reyna að fá ríki og stofnanir til að veita Palestínumönnum fjárstyrk á ný. Þetta sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, fyrir fund sinn með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í París í dag. Erlent 28.4.2006 15:10
DV framvegis helgarblað Útgáfu DV verður hætt í núverandi mynd og kemur blaðið framvegis aðeins út um helgar. Tíu manns verður sagt upp störfum á ritstjórninni. Þetta kom fram á starfsmannafundi hjá blaðinu í dag. Innlent 28.4.2006 15:25
Þing Nepals koma saman í fyrsta sinn í 4 ár Þing Nepals kom saman til fundar í dag í fyrsta sinn í 4 ár. Þingmenn lögðu þá til að samið yrði um varanlegt vopnahlé við uppreisnarmenn Maóista og að boðað yrði til þingkosninga hið fyrsta. Erlent 28.4.2006 15:00
Sveitarfélag Ölfuss og OR semja um samstarf Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem felst meðal annars í lýsingu Þrengslavegar, samstarf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir í sveitarfélaginu og ljósleiðaravæðingu í þar. Innlent 28.4.2006 14:03
Starfsfólk DV boðað til starfsmannafundar Starfsfólk DV hefur verið boðað til starfsmannafundar klukkan þrjú. Ritstjórar blaðsins hafa ekki gefið neitt upp um efni fundarins, en búast má við að hann fjalli um framtíð blaðsins. NFS fylgist með og segir fréttir af fundinum um leið og þær berast. Innlent 28.4.2006 14:08
Frumvarp um frjálst flæði vinnuafls samþykkt Frumvarp til laga um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi nú á öðrum tímanum með 46 greiddum atkvæðum. Frumvarpið snýr að réttindum ríkisborgara frá átta af tíu hinna nýju Evrópusambandsríkja. Þeir geta nú komið hingað til lands og ráðið sig í vinnu án atvinnuleyfis frá og með 1. maí. Innlent 28.4.2006 13:54
Vinnubrögð meirihlutans algjörlega óviðunandi Vinnubrögð meirihlutans í Kópavogi í málefnum Gustssvæðisins eru algjörlega óviðunandi að mati Samfylkingarmanna í bænum. Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við stjórnarmenn Gusts um að taka yfir kauptilboð þeirra á hesthúsum á svæðinu.Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra hófu fjárfestar að kaupa upp hesthús á Gustssvæðinu sem svo er kallað og fyrr en varði áttu þeir um 40 prósent húsanna. Innlent 28.4.2006 13:46
Setuverkfall á Hrafnistu í Reykjavík en ekki Hafnarfirði Ófaglærðir starfsmenn á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík ákváðu á fundi nú í hádeginu að halda til streitu steuverkfalli sínu. Starfsmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði ákváðu hins vegar að hætta aðgerðum og ganga að tilboði Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Innlent 28.4.2006 13:36
Dagsbrún telur RÚV-frumvarp brjóta í bága við EES-samninginn Dagsbrún telur að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið hf. brjóti í bága við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð. Í tilkynningu frá félaginu segir að það að með því að undanskilja Ríkisútvarpið reglum um eignarhald er óhjákvæmilega verið að lögfesta mismunun á grundvelli þjóðernis sem EES-reglur banni. Innlent 28.4.2006 13:26
Bandaríkjamenn fjölga herstöðvum í A-Evrópu Á sama tíma og Bandaríkjamenn draga úr varnarviðbúnaði sínum í Vestur-Evrópu fjölga þeir herstöðvum austar í álfunni. Bandaríkin og Búlgaría undirrituðu í dag samning um herstöð þar í landi. Erlent 28.4.2006 12:40
Frumvarp til laga um frjálsa för verkafólks rætt á þingi Nú stendur yfir á þingi önnur umræða um frumvarp um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturrétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin eiga að taka gildi 1. maí og því liggur á að samþykkja þau. Innlent 28.4.2006 12:24
Rætt hvort halda eigi aðgerðum áfram á Hrafnistu Neyðarástand skapast á dvalar- og hjúkrunarheimilum ef ekki semst við ófaglært starfsfólk á allra næstu dögum. Deilan strandar á svari frá fjármálaráðherra segir formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Nú klukkan hálfeitt var boðað til neyðarfundar á Hrafnistu í Reykjavík þar sem ekki er samstaða meðal starfmannanna um hvort halda eigi setuverkfalli til streitu. Innlent 28.4.2006 12:34
Ólíklegt að Íslendingar fái breytt varnaráætlun Ólíklegt má telja að Íslendingar fái nokkru breytt um þá varnaráætlun sem sendinefnd Bandaríkjamanna kynnti í íslenska utanríkisráðuneytinu í gær. Ekki síst í ljósi þess að varnarliðið birti í gær áætlun um um lokun allra þjónustustofnana við varnarliðsmenn áður en fundur fulltrúa Íslendinga og Bandaríkjamanna hófst í gær. Innlent 28.4.2006 12:18