Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Oddvitar þeirra sjö flokka sem keppast um ellefu sæti í bæjarstjórn Kópavogs mætast í Pallborðinu á Vísi í dag. Snemma í þættinum verður splunkuný Maskínukönnun sýnd og við fáum viðbrögð oddvitanna við henni. Innlent 5.5.2026 11:12
Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Regnbogafánar og lausaganga flokksgæðinga komu við sögu þegar oddvitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum umræðum við kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum. Innlent 30.4.2026 07:00
Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna. Innlent 29.4.2026 10:05
Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Innlent 21.4.2026 11:57
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. Innlent 12. febrúar 2026 16:50
Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. Innlent 12. febrúar 2026 12:54
Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Frambjóðendur til oddvita Viðreisnar í Reykjavíkurborg tókust á í Pallborðinu í dag. Farið var yfir óbirta spurningu í skoðanakönnun og Airbnb-mál fyrrverandi bæjarstjóra. Enginn frambjóðandi gat valið hvern hann myndi velja í oddvitasætið fyrir utan sig sjálfan. Innlent 29. janúar 2026 17:07
Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Fjögur sækjast eftir oddvitasætinu hjá Viðreisn í borgarstjórnarkosningum í vor. Þau mættust í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi í dag. Innlent 29. janúar 2026 13:08
Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun. Innlent 23. janúar 2026 11:31
Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Þau tvö sem sækjast eftir oddvitasætinu hjá Samfylkingunni í borginni í sveitarstjórnarkosningum mætast í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi á morgun. Lesendur Vísis eru hvattir til að beina spurningum til frambjóðendanna. Innlent 22. janúar 2026 15:24
Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Íslendingar eyða tugum milljarða á ári á ólöglegum veðmálasíðum. Eigendur þeirra greiða enga skatta eða gjöld hér á landi vegna úreltra laga sem hefur ekki verið breytt síðan árið 2005. Dómsmálaráðherra vill breytingar en í hvaða átt skal fara? Leyfa eða banna? Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 23. október 2025 12:02
„Margir tittir í þessum hópi og máttum ekki við því að missa stóran mann“ Meiðsli Hauks Helga Pálssonar munu hafa mikil áhrif á leik íslenska landsliðsins á EM í körfubolta, að mati Sigurðar Péturssonar og Ólafs Ólafssonar. Þeir segja landsliðshópinn heldur lágvaxinn en eru vissir um að liðið bæti upp fyrir það með öðrum hætti. Körfubolti 27. ágúst 2025 17:17
Svona var EM-Pallborðið Íslenska landsliðið hefur leik á EM í körfubolta í hádeginu á morgun með leik gegn Ísrael. Hitað var upp fyrir leik morgundagsins og mótið allt í EM-Pallborðinu sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Sigurður Pétursson og Ólafur Ólafsson mættu í settið. Körfubolti 27. ágúst 2025 15:00
Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér „Það er verið að gera öllum upp einhvern annarlegan ásetning og það er óþolandi,“ segir Karen Kjartansdóttir almannatengill um þær skotgrafir sem myndast reglulega í þjóðfélagsumræðu á samfélagsmiðlum. Innlent 10. apríl 2025 22:42
Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Hugtakið „woke“ hefur verið til mikillar umræðu í vikunni og virðist hver og einn skilgreina hugtakið á sinn hátt. Sumir vilja meina að hugtakið snúist um umburðarlyndi en aðrir segja það einkennast af einræðislegri hugmyndafræði. Innlent 10. apríl 2025 11:01
Börn hafi reynt að drepa önnur börn Hermann Arnar Austmar, foreldri í Breiðholti, segir að það hafi komið upp atvik tengd ofbeldisöldu ungmenna í hverfinu, sem hefur verið sérstaklega tengd Breiðholtsskóla, þar sem hann telur að börn hafi reynt að ráða önnur börn af dögum. Innlent 20. mars 2025 16:55
Svona var Pallborðið um ofbeldisöldu hjá ungmennum Undanfarnar vikur hefur mikið verið fjallað um ástand í Breiðholtsskóla þar sem hópur stráka í sjöunda bekk ásamt fleiri úr öðrum skólum hafa haldið hverfinu í heljargreipum. Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 20. mars 2025 11:31
„Stefnir í að árið í ár verði það versta á öldinni“ Vegakerfið er byggt upp á löngum tíma og stór hluti þess er kominn á tíma. Á sama tíma hefur fjárfesting ekki verið nægileg, sama hvort það er í tengslum við viðhald eða nýframkvæmdir. Þetta, og margt annað, kom fram í Pallborði um umferðaröryggi og vegakerfið á Vísi í dag. Innlent 13. mars 2025 23:32
Pallborðið: Umferðaröryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld Fjórir hafa farist í umferðarslysum á árinu, þar af þrír á fjögurra daga tímabili. Fjöldi þeirra sem látast eða slasast alvarlega í umferðinni fer hækkandi þvert á markmið. Fjallað verður um umferðaröryggi og ástand samgönguinnviða á Íslandi í Pallborðinu á Vísi klukkan 12:30 í dag. Innlent 13. mars 2025 10:06
Tekist á um vopnastuðning við Úkraínu Til hvassra orðaskipta kom á milli gesta í Pallborðinu á Vísi í dag þar sem staða öryggis- og varnarmála í Evrópu var til umræðu. Þótt gestir væru sammála um mikilvægi þess að friður komist á í Úkraínu voru skiptar skoðanir um það hvaða leiðir væru vænlegastar til árangurs. Innlent 6. mars 2025 20:02
Óttast að Íslendingar þurfi að halla sér að Evrópusambandinu Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki endilega telja þörf á að flýta umræðu um umsókn Íslendinga að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin sé með plan og þau fylgi því. Hann segir þó ljóst að betra sé fyrir Íslendinga að eiga í góðum samskiptum við Evrópu. Innlent 6. mars 2025 15:33
Pallborðið á Vísi: Hvar stendur Ísland gagnvart Trump, tollastríði og breyttri heimsmynd? Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og vikur í heimsmálunum. Upp úr sauð milli leiðtoga Bandaríkjanna og Úkraínu í Hvíta húsinu og hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu verið sett á ís á meðan Evrópuleiðtogar þétta raðirnar og heita auknum útgjöldum til öryggis- og varnarmála. Þá er tollastríð hafið á milli Bandaríkjanna og Kanada auk Kína og Mexíkó og útlit fyrir að Evrópa gæti orðið næst. Innlent 6. mars 2025 11:01
Fleiri strætóferðir næsta haust og hætt við fækkun bílastæða Oddviti Flokks fólksins í borginni segir að með stuðningi ríkisins verði hægt að fjölga ferðum hjá Strætó strax næsta haust. Fyrrverandi borgarstjóri bendir á að ákveðið hafi verið að auka ferðatíðni strætó í hans stjórnartíð. Þá ætlar núverandi meirihluti að stöðva áform um að fækka bílastæðum í borginni þar til Borgarlína verður tekin í gagnið. Innlent 27. febrúar 2025 20:02
„Við skulum aðeins róa okkur, fókus“ Nokkuð fjörugar umræður spunnust þegar húsnæðisuppbygging bar á góma þar sem oddvitar í meiri- og minnihluta í Reykjavík mættust í Pallborðinu. Á einum tímapunkti talaði hver ofan í annan og fulltrúi Flokks fólksins sá sig knúinn til að biðja fólk um að róa sig. Innlent 27. febrúar 2025 15:49
Brýnustu verkefnin í borginni í Pallborði Rætt verður við borgarfulltrúa úr nýjum meiri- og minnihluta í Reykjavík í Pallborðinu á Vísi í dag klukkan 14. Farið verður yfir brýnustu verkefnin en nýr meirihluti hefur aðeins um fjórtán mánuði til að láta verkin tala. Innlent 27. febrúar 2025 10:12