

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Nauðsynlegt að gera upp fortíðina
„Ég áttaði mig á því að það væri tímasóun að trúa ekki á sjálfa mig, það skemmir bara fyrir manni sjálfum,“ segir tónlistarkonan Silja Rós sem var að senda frá sér plötuna Letters from my past. Blaðamaður ræddi við hana um lífið og listina.

Staupasteinsstjarna er látin
George Wendt, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið hinn drykkfengna Norm Peterson í gamanþáttunum Staupasteinn, eða Cheers, er látinn. Hann lést í svefni á heimili sínu í morgun en hann var 76 ára gamall.

Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision
Keppandi Króatíu í Eurovision í ár vill að engar þjóðir í stríði fái að taka þátt í Eurovision, sama hvort þær hafi hafið stríðið eða ekki. Það sé óhjákvæmilegt að keppnin verði pólitísk með þátttöku þeirra.

Agnes Johansen er látin
Agnes Johansen, kvikmyndaframleiðandi og einn af lykilframleiðendum RVK Studios, lést á líknardeild Landspítalans í Reykjavík sunnudaginn 18. maí, 66 ára að aldri.

„Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“
Jónas Sen tónlistarmaður og tónlistargagnrýnandi, segist sannarlega ekki hafa viljað gera lítið úr kórastarfi né íslenskri kóramenningu. Hann hafi viljað bregða upp kaldhæðnu en kærleiksríku auga.

Gurra og Georg hafa eignast litla systur
Teiknimyndagríslingarnir Gurra og Georg hafa nú eignast litla systur. Greint var frá gleðitíðindunum í morgunþættinum Good Morning Britain. Þættirnir um Gurru (e. Peppa pig) eru geysivinsælir hjá yngstu kynslóðinni.

Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu
Emilíana Torrini og Víkingur Heiðar Ólafsson eru tilnefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu. Úrslitin ráðast í október og fær verðlaunahafinn andvirði 5,9 milljóna króna í sinn hlut.

Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni
Helga Margrét Marzellíusardóttir, formaður félags íslenskra kórstjóra, hefur engan áhuga á því að láta Jónas Sen tónlistargagnrýnanda Vísis, vaða á skítugum skónum yfir kórastarf í landinu. Nú sé komið gott. Jónas segir ekki hafa verið ætlun sína að særa neinn heldur aðeins hrista upp í umræðunni eins og gagnrýni eigi að gera.

Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn
Hinn rússneski Júrí Grígorovitsj, einn virtasti ballettdanshöfundur heims og listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins í Moskvu til áratuga, er látinn.Hann varð 98 ára.

Reyna sáttaleið eftir að aðalfundi MÍR var aftur hleypt upp
Reyna á að koma á fót sáttanefnd eftir að hópur fólks kom í veg fyrir að aðalfundur menningarfélagsins MÍR yrði haldinn í síðustu viku. Hætta varð við síðasta fund í miðjum klíðum eftir að til handalögmála kom við húsnæði félagsins.

Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985
„Ég var pínu stressaður um að afi myndi snúa sér í gröfinni en svo þegar ég sé að það er verið að spila þetta í kirkjum og fermingum þá veit ég að hann yrði mjög ánægður,“ segir útvarpsmaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal, jafnan þekktur sem Auddi Blö. Lagið hans „Hver er sá besti“ er eitt allra vinsælasta lagið í dag og sagan á bak við það er heldur betur einstök.

Kærleiksbomba frá GusGus
„Eins og kannski flestir Íslendingar er ég súperfan af GusGus og var ég því ekki lengi að svara kallinu þegar vinur minn Marteinn spurði hvort ég vildi gera lag með þeim,“ segir tónlistarkonan Tatjana Dís sem er hluti af GusGus ofur sumarsmellinum Partýið er þú og ég.

Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar
Ungfrú Ísland fær flestar tilnefningar til Grímunnar, eða alls níu talsins, fyrir síðasta ár. Meðal annars er hún tilnefnd sem sýning ársins og leikrit ársins. Þar á eftir koma Sýslumaður dauðans og Hringir Orfeusar og annað slúður með sjö tilnefningar en bæði Köttur á heitu blikkþaki og Innkaupapokinn eru með fimm.

Ásgeir og Hildur eiga von á stúlku
Ásgeir Orri Ásgeirsson, lagahöfundur og pródúsent hjá Stop Wait Go, og kærasta hans, Hildur Hálfdánardóttir sálfræðingur, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau eiga von á stúlku sem er væntanleg í heiminn í haust.

Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur
Halldóra Geirharðsdóttir leikkona segist hafa viljað sleppa öllu öryggi þegar hún ákvað að segja upp í Borgarleikhúsinu eftir 30 ár. Halldóra, sem er gestur í nýjasta hlaðvarpi Sölvar Tryggvasonar. Hún segist finna sig vel í nýjum lífsstíl sem sjálfstætt starfandi einstaklingur, en hún sé enn að leita að hinum gullna meðalvegi í að taka ekki að sér of mörg verkefni:

Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu?
Það er eitthvað skrýtið við íslenska kórmenningu. Kannski er það hve kórtónleikar eru gamaldags - a.m.k. fyrir yngri kynslóðina - kannski endalausi tenóraskorturinn, eða kannski sú staðreynd að hér hefur þróast sérkennilegur menningarheimur þar sem fólk mætir í náttfötum úr Joe Boxer til að syngja með útöndun eins og gamalt gufuskip. Meira um það hér rétt á eftir.

Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar
Að loknu dramatísku Eurovision kvöldi í Basel er margt sem fólk klórar sér í kollinum yfir. Austurríkismaðurinn JJ stóð óvænt uppi sem sigurvegari með lagi sínu Wasted Love. Veðbankar töldu allar líkur á sigri Svía sem komust ekki í topp þrjú. Fréttamaður hefur fylgst grannt með Eurovision síðustu ár, og getur með sanni sagt að heildarúrslitin hafi verið ein þau óvæntustu í sögunni.

Voru í sjötta sæti í undankeppninni
Strákarnir í Væb lentu í sjötta sæti í undanriðli Eurovision á þriðjudaginn. Þeir fengu þar 97 stig, einungis fjörutíu stigum minna en sigurvegarinn Úkraína.

Ísland fékk stig frá þessum löndum
Ísland fékk 33 stig á úrslitakvöldi Eurovision í Basel. Öll 33 þeirra komu frá almenningi. Flest þeirra komu frá Danmörku eða tíu talsins sem þýðir að næstflest dönsk atkvæði fóru til Íslands.

Austurríki sigurvegari Eurovision 2025
Austurríki er sigurvegari Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2025. Söngvarinn JJ sigraði í Basel með laginu „Wasted Love“ fyrir hönd Austurríkis sem hefur nú unnið keppnina þrisvar sinnum.

Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi
„Lykilinn“ var þema á bíódögum nemenda í níunda og tíunda bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi þegar þau spreyttu sig á kvikmyndagerð og veittu sín eigin óskarsverðlaun á uppskeruhátíð, sem fór fram í Bíóhúsinu á Selfossi.

Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig
Úrslitakvöld Eurovision fór fram í Basel í kvöld þar sem Austurríki bar sigur úr býtum.VÆB-bræður fengu núll stig frá dómnefndum og enduðu næstneðstir. Vísir fylgdist með gangi mála í vaktinni hér að neðan.

Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur
Krókódíllinn Morris, sem er þekktastur fyrir rullu sína í gamanmyndinni goðsagnakenndu Happy Gilmore, er dauður. Talið er að hann hafi verið um það bil áttræður.

Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð
Fátt virðist geta hindrað Svíana frá því að sigra Eurovision í áttunda sinn og verða þar með ein sigursælasta þjóð í sögu keppninnar. Fáar breytingar urðu í veðbönkum eftir dómararennsli gærkvöldsins, þó svo að margt hafi gengið þar á.

Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu
Baulað var hressilega á framlag Ísrael í Eurovision á dómararennsli keppninnar í kvöld. Fagnaðarlæti yfirgnæfðu baulið á endanum.

Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“
Ekki nóg með að VÆB-bræður stígi á stokk á úrslitakvöldi Eurovision á morgun heldur gefa þeir einnig út nýtt lag.

Baráttan um jólagestina hafin
Þótt maímánuður sé rétt hálfnaður er baráttan í miðasölu fyrir jólatónleika árið 2025 þegar hafin. Í auglýsingahléum Ríkisútvarpsins á undankeppnum Eurovision á þriðjudags- og fimmtudagskvöld birtust auglýsingar fyrir jólatónleika bæði Baggalúts og Vitringanna þriggja, því til staðfestingar.

Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir?
Væb-bræðurnir eru gríðarlega vinsælir í Basel meðal allra sem að Eurovision koma. Þó þeim sé spáð neðarlega á lokakvöldinu á laugardaginn er ekki þar með sagt að þeir endi kvöldið neðarlega.

Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju
Tónlistarkonan og stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir tilkynnti í gær að hún mun gefa út sína þriðju plötu, A Matter of Time, þann 22. ágúst næstkomandi. Platan kemur út á vínyl og í tengslum við útgáfuna birti hún myndband á TikTok þar sem hún dansar og syngur við lag Herra Hnetusmjörs, Elli Egils, á meðan hún áritar tugþúsundir eintaka.

Þessi tíu lög komust í úrslit
Seinna undankvöld Eurovision fór fram í Basel í kvöld. Sextán atriði stigu á svið og kepptust um tíu laus sæti á úrslitakvöldinu á laugardaginn. Veðbankar voru ekki vissir hvaða atriði kæmust áfram og niðurstaðan olli ekki vonbrigðum hjá hinum hlutlausu.