Skoðun

Verður Grensásvegur hjarta tón­listar í Reykja­vík?

Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Við Íslendingar erum stolt af tónlistarfólkinu okkar, rithöfundunum, myndlistarfólkinu, leikurunum og öðru skapandi fólki sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Oft er þó látið eins og sköpunargáfan sé einfaldlega sjálfsagður eiginleiki Íslendinga og að öflugt lista- og menningarlíf verði til af sjálfu sér. En listafólk verður ekki til í tómarúmi.

Árangurinn verður til í samfélagi sem gefur fólki rými, tækifæri og aðstöðu til að skapa. Kennarar, félagsmiðstöðvar, tónlistarskólar, æfingahúsnæði, menningarstofnanir og skapandi samfélög eru öll hluti af þeim jarðvegi sem gerir fólki kleift að finna hæfileika sína og þroska þá.

Á bak við tónleikana, plötuna, sýninguna eða verkið sem við sjáum liggja oft mörg ár af æfingum, tilraunum, mistökum, samstarfi og vinnu sem fæstir sjá. Áður en leikari stígur á stórt svið þarf hann einhvers staðar að geta tekið fyrstu skrefin og áður en hljómsveit fyllir tónleikahöll þarf hún rými til að æfa. Þess vegna skipta innviðir fyrir skapandi greinar máli.

Og það skiptir okkur öll máli. Hvernig væri Reykjavík án tónlistar, myndlistar, leikhúsa, bókmennta og alls þess skapandi starfs sem á sér stað á hverjum degi, oft langt frá sviðsljósinu?

Tónlistarfólk í Reykjavík hefur verið á hrakhólum með æfingaaðstöðu eftir að Tónlistarþróunarmiðstöðin missti húsnæði sitt á Hólmaslóð í sumar. Verkefni á borð við Læti!, áður þekkt sem Stelpur rokka!, eru sömuleiðis í húsnæði sem er mjög ábótavant og listafólk hefur lengi kallað eftir fleiri aðgengilegum rýmum til sköpunar.

Á fundi borgarstjórnar í dag lagði meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar því til að Reykjavíkurborg hefji formlegar viðræður um leigu á húsnæði að Grensásvegi 8 fyrir tónlistar- og menningartengda starfsemi. Húsnæðið er rúmir 940 fermetrar og þar gæti skapast sameiginlegur tónlistar- og menningarklasi með æfingaaðstöðu, rými fyrir minni tónleika og menningarviðburði, námskeið, fræðslu og þróunarverkefni. Í júlí óskaði meirihlutinn jafnframt eftir kortlagningu á húsnæði í eigu borgarinnar sem mætti nýta undir skapandi greinar og stendur sú vinna nú yfir. Stór hluti kostnaðar við Grensásveg yrði fjármagnaður með fjármunum sem borgin ver nú þegar til starfsemi á þessu sviði. Viðbótarkostnaðurinn er innan við fimm milljónir króna á ári, en húsnæðið gæti nýst mun fleirum en áður. Menningarhúsið við Grensásveg er því bæði góð nýting fjármuna og fjárfesting til framtíðar.

Auður samfélags felst ekki aðeins í krónum, fasteignum og fjárfestingum. Hann er líka að finna í menningarlegum auð. Sá auður felst í sögunum sem við segjum, tónlistinni, tungumálinu okkar, hugmyndunum, hefðunum og nýsköpuninni. Hann verður til þegar fólk fær tækifæri til að skapa og deila sköpun sinni með öðrum. Borg án lista og menningar væri einfaldlega fátækari, einsleitari og litlausari. Reykjavík á að vera borg þar sem skapandi greinar fá að þrífast. Það gerir borgina ekki aðeins skemmtilegri að heimsækja heldur líka betri stað til að búa á.

Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×